Morgunblaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 42
DAGBÓK 42 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. LÁRÉTT 1 gutlreið, 4 tilfinning, 7 fótaskjögrið, 8 höndin, 9 þæg, 11 groms, 13 ljúka, 14 mynnið, 15 hrúgaði upp, 17 nota, 20 sár, 22 hásan, 23 klaufdýrið, 24 ræktuð lönd, 25 þreytt- ar. LÓÐRÉTT 1 viðarbútur, 2 minnist á, 3 ær, 4 höfuð, 5 ber, 6 dútla, 10 kappnógur, 12 væn, 13 bókstafur, 15 afskræmi, 16 óður, 18 fylginn sér, 19 korns, 20 sættir sig við, 21 bauja. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 kjánalegt, 8 tófur, 9 ótukt, 10 rós, 11 terta, 13 tunna, 15 kepps, 18 sakna, 21 kóp, 22 pilla, 23 arann, 24 kampakáta. Lóðrétt: 2 jöfur, 3 narra, 4 ljóst, 5 grunn, 6 stút, 7 Etna, 12 tap, 14 Una, 15 kopp, 16 pilta, 17 skaup, 18 spark, 19 kraft, 20 asni. Krossgáta Skipin Reykjavíkurhöfn: Brú- arfoss og Dettifoss koma og fara í dag. Bremon og Hanseduo koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Polar Siglir fór í gær. Brúarfoss fer í dag til Reykjavíkur. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur Skrifstofa s. 551 4349, opin mið- vikud. kl. 14–17. Flóa- markaður, fataút- hlutun og fatamóttaka opin annan og fjórða hvern miðvikud. í mán- uði kl. 14–17, s. 552 5277. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 bað og opin handa- vinnustofa, kl. 13–16.30 opin smíða- og handa- vinnustofa. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 bað, kl. 9–12 gler- list, kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–17 fótaað- gerð, kl. 10–10.30 Búnaðarbankinn, kl. 13–16.30 bridge/vist, kl. 13–16 glerlist. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 hár- greiðsla og bað, kl. 10 leikfimi, kl. 14.30 bankaþjónusta, kl. 14.40 ferð í Bónus. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9 silkimálun, kl. 13–16 körfugerð, kl. 10–13 opin verslunin, kl. 11– 11.30 leikfimi, kl. 13.30 bankaþjónusta. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 postulínsmálun, kl. 13– 16.30 módelteikning, kl. 9–14 hárgreiðsla, kl. 9–16.30 fótaaðgerð. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9.30 hjúkrunarfræðingur á staðnum, kl. 10 hár- greiðsla, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska, byrjendur. Félag eldri borgara Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl 16.30–18. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Tréút- skurður kl. 9, myndlist kl. 10–16, línudans kl. 11, glerlist kl. 13, pílu- kast kl. 13.30 og kóræf- ing kl. 16.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Línudans- kennsla kl. 19.15. Söngvaka kl. 20.45. S. 588 2111. Félag eldri borgara, Suðurnesjum, Selinu, Vallarbraut 4, Njarð- vík. Í dag kl. 14 fé- lagsvist. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 gamlir leikir og dansar, frá hádegi spilasalur opinn. S. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan op- in, kl. 9.30 boccia og glerlist, kl. 13 glerlist, kl. 16 hringdansar, kl. 17 bobb. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.05 leikfimi, kl. 9.55 stólaleikfimi, kl. 10 ganga, kl. 13–16 handavinnustofan opin. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, bútasaum- ur, útskurður, hár- greiðsla og fótaaðgerð, kl. 11 banki, kl. 13 bridge. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 föndur, kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 14 dans, kl. 15 frjáls dans, kl. 15 teiknun og málun. Fótaaðgerðir og hár- greiðsla. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–12 tréskurður, kl. 10–11 samverustund, kl. 9–16 fótaaðgerð, kl. 13–13.30 banki, kl. 14 félagsvist. Vesturgata 7. Kl. 8.25– 10.30 sund, kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–16 myndmennt, kl. 12.15– 14.30 verslunarferð í Bónus, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurður. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10 fótaaðgerð, bók- band og bútasaumur, kl. 13 handmennt, kl. 13.30 bókband, kl. 12.30 verslunarferð. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, félagsheim- ilið Hátúni 12. Kl. 19.30 félagsvist, kl. 16.30 fundur hjá átaks- hópnum. Barðstrendinga- félagið. Félagsvist í Konnakoti, Hverf- isgötu 105, kl. 20.30 í kvöld. ITC Melkorka, fundur í Borgartúni 22, 3. hæð, í kvöld kl. 20 Allir velkomnir. Uppl. í s. 587 1712. Hulda. Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík. Aðalfundurinn er í Höllubúð fimmtudag- inn 13. og hefst kl. 19.30 með þorramat. Í dag er miðvikudagur 12. febr- úar, 43. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Auðmýkið yður því undir Guðs voldugu hönd, til þess að hann á sínum tíma upphefji yður. Varpið allri áhyggju yðar á hann, því að hann ber umhyggju fyrir yður. (1. Pét. 5, 6. 7.) Hellisheiði ÉG er einn af þeim mörgu sem aka Hellisheiði 5–7 sinnum í viku og nú verð ég að segja að ég er orðinn verulega pirraður á ástandi hennar yfirleitt. Eftir að hafa forvitnast um málið komst ég að því að þessi snjómokstur sem um er rætt er settur í út- boð af hálfu Vegagerðar- innar. Eftir að hafa lesið útboðsgögnin er ég væg- ast sagt gáttaður og furða mig ekki lengur á að ástandið sé eins og það er. Þeir sem taka þennan mokstur að sér fá úthlutað vissum kílómetrafjölda á ári sem þeir mega moka á fullu gjaldi, allt eftir það er á helmingsafslætti! Hvað eru menn að hugsa? Þetta býður auð- vitað upp á það að þarna sé ekki mokað vegna þess að menn eru að spara þessa kílómetra. Ekki finnst mér mikill sparnaður í þessu því að oft hefur legið við að þarna verði stórslys, nú síðast í byrjun desember varð þarna fimm bíla árekstur og tvær bílveltur. Ef menn hefðu verið svo- lítið vakandi yfir þessum hlutum hefði þetta ekki þurft að gerast. Nú vil ég beina því til Vegagerðarinnar að hressa upp á mannskapinn og taka þetta til athugunar því það er einungis orðið tímaspursmál hvenær þarna verður alvarlegt slys. S.P. Launhelgi lyganna SÆL Baugalín, höfundur bókarinnar „Launhelgi lyganna“. Ég var enda við að klára lestur bókar þinnar og er ég mjög sátt við hana og þakka þér fyrir skrif henn- ar. Ég þekki þetta að hluta til af eigin raun og finnst mikill sigur hjá þér að gefa út bókina. Það sýnir þinn sigur í þínu máli. Ég vona að einhvern daginn muni móðir þín taka þig í sátt og geta ver- ið hreinskilin við þig og fyrst og fremst beðið þig fyrirgefningar. Ég veit að í mínu tilviki þá var enginn ánægður er ég fór að tala um það sem hafði gerst. En ég veit að án þess að tala hefði ég dáið endan- lega, vegna þess að þögnin er í raun til að drepa sálina í manni hægt og sígandi. En það sem mér hefur lærst í dag er fyrst og fremst það að mér takist að fyrirgefa. Svo ég sjálf geti lifað áfram. Ég vona að þér takist það líka. Megi Guð blessa þig. Og takk enn og aftur fyrir góða bók. S. Kristinsdóttir. Steinasafnarar VELVAKANDA hefur borist bréf frá Karsten Gries í Þýskalandi en hann er að leita að steinasafn- ara hér á landi sem er tilbúinn að skiptast á steinum við hann. Þeir sem hafa áhuga eru beðnir að hafa samband: Karsten Gries, Wassergasse 9, 99310 Marlieshausen, Deutschland. Hagnaður á kostnað almennings BANKAR hæla sér núna fyrir mikinn hagnað. Má kannski spyrja hvers vegna og hverjir það séu sem skila inn þessum fjár- munum og fyrir hvað. Verðtrygging er undar- legt fyrirbrigði, því að verðrýrnun kemur ekki lántakendum til góða. Inn- lagt sparifé í banka er vaxtalaust, miðað við verð- bólgu. Hagnaður banka er þess vegna á kostnað al- mennings í landinu. Kári í Kópavogi. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Víkverji skrifar... Á́RSHÁTÍÐ embættismannastjórnarráðsins fór fram á dög- unum, en vart er hægt að komast hærra í þjóðfélagsstiganum. Ægi- vald þeirra sést vel á því að skemmti- krafturinn var ráðherra. Jón Krist- jánsson heilbrigðisráðherra fór á kostum í því hlutverki, enda sagðist hann alinn upp við mikla virðingu fyrir embættismönnum: „Í mínu ungdæmi fyrir norðan var talað um þá í hálfum hljóðum sem fengu embætti. Ef einhver hafði komið sér sérlega vel áfram í lífinu, þá var sagt: „Hann er búinn að fá embætti.“ Það jafngilti aðgangi að himnaríki. Þeir sem komust í stjórn- arráðið, – ég man ekki nokkurn tíma í minni barnæsku eftir að hafa kom- ist í kallfæri við slíka menn. Slíkir til- heyrðu þeim sem gengu undir nafn- inu „þeir“ í munni almennings í landinu, ásamt stjórnmálamönnum. „Þeir“ gerðu þetta og „þeir“ gerðu hitt, og venjulega var það til bölv- unar að áliti manna.“ Jón lét þá sögu fylgja, sem Vil- hjálmur Hjálmarsson sagði honum, að þegar Vilhjálmur var mennta- málaráðherra kom maður nokkur í ráðuneytið og spurði eftir honum. Ráðherrann var ekki við, og þá sagði maðurinn: „Ætli ég verði þá ekki að fá að tala við Birgi sjálfan.“ Birgir þessi var Birgir Thorlacius ráðuneyt- isstjóri. „Þetta er dæmi um virðingu embættismanna, og það er betra að kunna að haga orðum sínum þegar slíkir menn hlusta.“ x x x VEÐRIÐ er eftirlætisumræðuefniÍslendinga. Sama hvernig viðrar, þá þykir það alltaf tíðindum sæta. Eins og kom fram í vísu Jónasar Hallgrímssonar, sem hann orti í septembermollu á Völlum í Svarf- aðardal: Veðrið er hvurki vont né gott, varla kalt og ekki heitt, það er hvurki þurrt né vott, það er svo sem ekki neitt. x x x VINIR Víkverja ákváðu að veraforsjálir og tryggðu sér viku- langa skíðaferð fyrir fjölskylduna með því að panta í vetrarbyrjun or- lofshús á Akureyri í janúar. Ferðin var algjör draumur. Og það þrátt fyr- ir að Hlíðarfjall væri snjólaust. Það varð þess nefnilega valdandi að þau renndu sér í gönguferðir um bæinn á venjulegum skóm. Og fáir staðir eru fallegri en Akureyri til gönguferða. x x x ÞANNIG er Ísland; það hefurtjónkað lítið að plana framtíðina. Það er ekki bara gengi krónunnar sem sveiflast heldur líka veðrið. Jón- as háttaði um sumarkvöld í Skaga- firðinum í góðu veðri, en um morg- uninn þegar hann kom út var snjóhret og norðan kuldastormur. Í þeim veðrabrigðum gerði hann vís- una: Nú er sumar í köldu kinn, eg kvað það á milli vita; fyrr má nú vera, faðir minn! en flugurnar springi af hita. Hannes Pétursson hefur bent á að líklega sé kalda kinn umritun á Ís- landi, „að stakan lýsi því kankvíslega hve skjótt skiptir oft um veðráttu í köldu kinn, á ís-landi: Svo hlýtt hafi verið einn daginn að drottni fannst nóg um og lét snöggkólna til þess að hlífa flugunum – svo að þær spryngju ekki af hita!“ Morgunblaðið/RAX Jón var skemmtikraftur fyrir „þá“. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Ingibjrg Sólrún Gísla-dóttir, forsætisráð- herraefni Samfylking- arinnar, sagði í ræðu sinni í Borgarnesi, að af- skiptasemi stjórnmála- manna af fyrirtækjum landsins væri ein að- almeinsemd íslensks efnahags- og atvinnulífs. Eflaust hafa margir kjós- endur skilið þetta sem svo, að Ingibjörg Sólrún væri talsmaður frjáls markaðar og þess sjón- armiðs að hið opinbera eigi ekki að vasast í at- vinnustarfsemi. Ýmis fyrri ummæli hennar benda þó ekki til þess.     Þegar Ingibjörg Sólrúnvar borgarstjóraefni Reykjavíkurlistans, í maí 1994, var hún spurð í Morgunblaðinu um mun- inn á stefnu R-lista og D- lista í atvinnumálum. Hún svaraði: „Í okkar stefnuskrá er meiri áherzla lögð á pólitískar aðgerðir, sem kalla má opinber afskipti af at- vinnulífinu.“ Borg- arstjóraefnið sagði að R- listinn vildi „ganga nokk- uð langt“ í að beita borginni til að gangsetja hjól atvinnulífsins; hún ætti þó ekki að fara út í atvinnurekstur. Skömmu áður hafði Ingibjörg Sól- rún sagt í Morgunblaðinu að „atvinnulífið hafi hingað til mátt spjara sig upp á eigin spýtur. Það væri hins vegar stefna sem ekki gengi á tímum sem þessum.“     Ýmislegt er til merkisum að þegar leið á borgarstjóraferil Ingi- bjargar Sólrúnar hafi hún fallið frá því að borgin ætti ekki að taka þátt í atvinnurekstri. Um Línu.net-ævintýrið sagði hún í viðtali hér í blaðinu sl. vor: „Um það má auð- vitað alltaf deila hvort opinberir aðilar eigi að koma að slíkum fyr- irtækjum, en okkar mat var einfaldlega að Orku- veitan ætti grunnnet sem mætti þróa og nota til að skapa á markaðnum ein- hverja samkeppni við Landssímann ... ef einka- aðilar treysta sér ekki í þá fjárfestingu sem þarf í upphafi til að skapa þær aðstæður þá finnst mér rétt að Orkuveitan geri það.“     Skoðun IngibjargarSólrúnar á þátttöku Orkuveitunnar í risa- rækjueldi austur í Ölfusi kom fram í sjónvarps- umræðum fyrir borg- arstjórnarkosningar sl. vor: „Orkuveita Reykja- víkur ... er fyrirtæki sem hefur gríðarlega miklu hlutverki að gegna hér í borginni og á auðvitað að sinna sinni samfélags- skyldu með því að skoða ýmis þróunarverkefni sem renna styrkari stoð- um undir atvinnulífið í borginni.“     Með öðrum orðumvirðist forsætisráð- herraefni Samfylking- arinnar telja afskipti stjórnmálamanna af at- vinnulífinu í lagi – þ.e. sumra stjórnmálamanna. STAKSTEINAR ...sem kalla má opinber afskipti af atvinnulífinu ÉG varð þeirrar gæfu aðnjótandi að verða mér úti um miða á tónleika sem voru haldnir í Saln- um í Kópavogi fimmtu- daginn 6. febrúar sl. Þetta voru lögin henn- ar Ellýjar Vilhjálms sem sungin voru af Guðrúnu Gunnarsdóttur. Ég veit nú ekki með hvaða orð- um ég á að lýsa hrifn- ingu minni, því mig vant- ar hreinlega nógu sterk orð. Þarna flutti hún (Guðrún) af sinni ein- skæru snilld hvert lagið á fætur öðru og fékk til liðs við sig frábæra hljóðfæraleikara. Þarna sungu líka Borgardætur bakraddir í nokkrum lögum, Eyfi Kristjáns söng eitt lag með henni og einnig Stefán Hilmars eitt. Fyrir okkur sem vorum svo „heppin“ að vera hlustendur tala ég eflaust fyrir munn allra, þetta var í einu orði sagt FRÁBÆRT. Ef þessir tónleikar verða end- urteknir hvet ég alla unnendur góðrar tónlist- ar til að krækja sér í miða sem fyrst. Guðrún, hafðu þökk fyrir að láta draum þinn rætast og leyfa okkur að njóta. Takk fyrir okkur. Ánægður tónleikagestur. Frábærir tónleikar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.