Morgunblaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
LITLU skiptir hvort stjórnmálafor-
ingi sem hefur ofmetnast er karl eða
kona. Yfirleitt eru slíkar manneskj-
ur sjálfum sér næstar í flestu. Gegn
alþýðufólkinu og þeim sem minna
mega sín eru þær frekar neikvæðar
og skilningsvana. Oft er þetta sterkt
fólk sem á erfitt með að þola veik-
leika sem þó er náttúrlegur fylgi-
fiskur samfélaga. Börn fæðast mis-
jafnlega vel gerð og hluti þeirra
slasast á lífsleiðinni. Öldrun og veik-
indi vega að getu fólks og gerir það
háð samfélagshjálp og þá má skiln-
ing ekki vanta. Um skeið hafa sterk-
ir foringjar og um margt líkir, leitt
ríkis- og borgarstjórn. Báðir eru
viljasterkir og lítt sveigjanlegir.
Ráðherrann er sjálfum sér og auð-
valdsflokknum samkvæmur. R-lista
borgarstjórinn f.v. er hins vegar
ekki samkvæmur sér né jafnaðar-
stefnunni. Báðir foringjarnir láta sér
á sama standa fátækt og erfiðleika
þeirra sem minna mega sín og beina
athygli almennings aðeins að því
sem vel hefur tekist. Í skjóli valds og
með orðfimi, geta þeir haldið óvin-
sælum verkum og ákvörðunum frá
sviðsljósinu. Borgarstjórinn Ingi-
björg, sem stóð ekki við loforð sín
fyrir og eftir kosningar hefur verið
að skerða félagskerfi borgarinnar.
Hún er að ná forsætisráðherranum í
einkavæðingaráráttu sem fer eins og
eldur í sinu um samfélagið og þau
undur gerast að margir hrífast, mest
fyrir að hún sagði ráðherranum stríð
á hendur. Fólkið dáir færni hennar
og yfirlæti en sér ekki allt sem hún
gerir og lætur ógert. Henni tekst að
leyna samúðarleysi sínu gagnvart
þeim sem minnst hafa og þar á með-
al lægst launuðu konunum í félags-
málakerfi borgarinnar. Hún leggur
lið Kárahnjúkavirkjun, mesta
hryðjuverki Íslandssögunnar gegn
umhverfi landsins. Á meðan millj-
ónir tonna af jarðvegi fjúka á haf út
leiðir hún klóakleiðslur á hrygning-
arstöðvar í stað þess að virkja úr-
gang á foksvæði með þekktum að-
ferðum. Þjóð sem byggir afkomu
sína á fiskveiðum sendir ekki upp-
örvandi skilaboð til viðskiptalanda
sinna með slíkum hætti. Fyrir ESB
vill hún fórna sjálfstæði Íslands.
Ingibjörg Sólrún er snjöll, en of
mörg verka hennar bera þess merki
að ekki er allt gull sem glóir. Von-
andi verður hún ekki forsætisráð-
herra, því hætt er við að Samfylk-
ingin muni styðjast við Framsókn og
það yrði þjóðinni skaðlegur kostur ef
að líkum lætur.
ALBERT JENSEN,
Sléttuvegi 3.
Fráfarandi
borgarstjóri
Frá Alberti Jensen:
HINN 2. febrúar sl. birti Morgun-
blaðið opið bréf Ingimundar Kjarval
til mín varðandi gjöf Jóhannesar
Kjarval listmálara til Reykjavíkur-
borgar. Af því tilefni vil ég upplýsa
lesendur blaðsins um að ég er að
kynna mér efnisatriði málsins og
mun funda með Ingimundi þegar
hann kemur til landsins í næstu viku.
ÞÓRÓLFUR ÁRNASON,
borgarstjóri í Reykjavík.
Kynnir sér efnisatriði
Frá Þórólfi Árnasyni:
AÐ gefnu tilefni langar mig til að
koma á framfæri leiðréttingum við
grein Steinar Bergs Ísleifssonar í
Morgunblaðinu 6. febrúar, sem birt-
ist undir yfirskriftinni „Fáum við
nýja plötu á fóninn?“.
Svo ég vitni beint í grein Steinars
þá segir: „Hins vegar er það um-
hugsunarvert að fánaberar íslenskr-
ar tónlistar á erlendri grund: Björk,
Sigur Rós, Quarashi, Leaves, Caput
og múm eru samningsbundin er-
lendum fyrirtækjum. Sala platna
þeirra á Íslandi er háð leyfi hins er-
lenda útgefanda. Eitt meginmark-
mið útrásar íslenskrar tónlistar er
öndvert við þetta fyrirkomulag. Út-
gáfurétturinn ætti að vera vistaður
hérlendis og hann framleigður til er-
lendra aðila.“ Útgáfufélagið Smekk-
leysa hefur gefið út og tengist
nokkrum þessara listamanna sem
hér eru nefndir. Fyrir hönd félags-
ins vil ég benda á að útgáfuréttur
Bjarkar og Sigur Rósar er ýmist hjá
Smekkleysu eða listamanninum
sjálfum og er framseldur þaðan.
Sala platna þeirra á Íslandi hefur
aldrei verið háð erlendum fyrirtækj-
um.
Hvað sölu á Íslandi varðar get ég
fullyrt hið sama í tilfelli Leaves. Ca-
put hefur gert samninga við ýmis
úgáfufyrirtæki hérlendis sem er-
lendis. Þeir samningar sem Caput
hefur gert eru bundnir við einstakar
útgáfur. Smekkleysa hefur gefið út
hljóðritanir með Caput, þar sem út-
gáfurétturinn er vistaður hérlendis.
Þetta er algengt fyrirkomulag hjá
flytjendum samtíma- og klassískrar
tónlistar. Múm samdi beint við er-
lent fyrirtæki, sem er rétt með farið.
Mál Quarashi þekki ég hins vegar
ekki.
Ég vona að þessi misskilningur
leiðréttist hér með.
ÁSMUNDUR JÓNSSON,
framkvæmdastjóri Smekkleysu.
Leiðréttingar
við grein
Frá Ásmundi Jónssyni: