Morgunblaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 16
HELSTU dagblöð Bandaríkjanna
fjölluðu í gær í forystugreinum
um klofninginn sem skapast hef-
ur innan Atlantshafsbandalagsins
(NATO) vegna ágreinings um
réttmæti þess að blása til hern-
aðar gegn stjórn Saddams Huss-
eins Íraksforseta.
Stærstu dagblöð austurstrand-
arinnar The Washington Post og
The New York Times nálgast
deiluna með heldur ólíkum hætti
og gætir meiri hörku í umfjöllun
fyrrnefnda blaðsins.
Leiðarahöfundur The Wash-
ington Post segir að loks hafi
Frakkar og Þjóðverjar brugðist
við skýlausum brotum Íraks-
stjórnar gagnvart ályktunum Ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
„En skotmark þeirrar herferðar
er ekki Saddam Hussein heldur
Bandaríkin,“ segir í forystugrein-
inni. Því er haldið fram að þessi
nálgun muni ekki hafa í för með
sér að valdakerfi „einræðisherr-
ans“ í Bagdad riðlist. Miklu frek-
ar verði það hinar alþjóðlegu
stofnanir sem tengt hafi saman
evrópsk og alþjóðleg öryggismál
sem skaddist.
Blaðið fullyrðir að framganga
þeirra Jacques Chiracs Frakk-
landsforseta og Gerhards Schröd-
ers Þýskalandskanslara styrki
stöðu Saddams Husseins og mál-
svara hans. Yfirskrift leiðarans
er enda; „Staðið með Saddam“.
„Framkoma leiðtoganna tveggja
bendir sífellt meira í átt til þess
að þeir hafi sett sér sama mark-
mið og íraski einræðisherrann: að
Chirac og Schröder sagð-
ir „standa með Saddam“
AP
Andstaða við herför gegn stjórn Saddams Husseins Íraksforseta er mikil
og almenn í Evrópu, ef marka má skoðanakannanir. Hér er stríði mótmælt
á útifundi með yfir 10.000 þátttakendum í Leipzig í Þýskalandi á mánudag.
The Washington
Post fer hörðum
orðum um Þjóð-
verja og Frakka
ERLENT
16 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÝMISLEGT hefur komið á óvart í
þeirri atburðarás, sem nú hefur leitt
til þess að kominn er upp á yfirborðið
alvarlegasti klofningurinn innan Atl-
antshafsbandalagsins í rúmlega
hálfrar aldar sögu þess.
Að Frakkar leggi sig fram um að
sýna og sanna að þeir séu illtilkippi-
legir að lúta forystu Bandaríkja-
manna er að sönnu ekkert nýtt. En
það sem mörgum kemur á óvart –
ekki sízt bandarískum stjórnmála-
mönnum – er sú stefna sem þýzk
stjórnvöld hafa valið að fylgja í þessu
máli. Ekki að það komi á óvart að
Þjóðverjar séu mótfallnir því að her-
valdi sé beitt við lausn alþjóðlegra
deilumála, heldur það að ráðamenn í
Berlín skuli láta þá afstöðu sína
spilla eins alvarlega fyrir samskipt-
unum yfir Atlantshafið eins og nú er
orðin raunin.
Allt frá stofnun þýzka Sam-
bandslýðveldisins – sem gerðist
reyndar sama vorið og Atlantshafs-
bandalagið varð til – hefur það verið
bjargfastasti hornsteinn utanríkis-
stefnu þess að leggja rækt við
tengslin við Bandaríkin.
„Þýzkaland veður í rústum utan-
ríkisstefnu sinnar,“ segir í grein
austurríska blaðsins Die Presse um
þetta efni. Stefna ríkisstjórnarinnar
í Berlín sé í uppnámi, bæði út á við
sem inn á við. Að sögn Die Presse er
staðan nú orðin þannig á „rauð-
græna“ stjórnarheimilinu (sam-
steypustjórn jafnaðarmanna og
græningja) að ekki sé hægt að úti-
loka að Gerhard Schröder kanzlari
segi af sér áður en þetta ár er úti, eða
þá utanríkisráðherrann Joschka
Fischer.
Nýjasta tilefnið til þessara álykt-
ana er það sjónarspil sem fylgjast
mátti með á alþjóðlegri ráðstefnu um
varnarmál sem fram fór í München
um helgina. Þátttakendum á ráð-
stefnunni – þ.ám. varnarmálaráð-
herrum NATO-ríkjanna – var ekki
skemmt þegar þeir fréttu í gegnum
fjölmiðla af meintum þýzk-frönskum
tillögum sem leggja ætti fram í ör-
yggisráðinu um að stórefla vopnaeft-
irlitslið SÞ í Írak. Þannig yrði tryggt
að markmið ályktana SÞ um afvopn-
un Íraka næðust fram án stríðs með
því að senda þangað allfjölmennt
friðargæzlulið á vegum SÞ.
Ljóst er að hefðu upplýsingar um
hinar þýzk-frönsku tillögur borizt
inn á ráðstefnuna í München hefði
það haft veruleg áhrif á umræður
ráðamannanna sem þar voru saman
komnir. Í seinasta lagi er Fischer ut-
anríkisráðherra var spurður í pall-
borðsumræðum á ráðstefnunni,
hvaða valkosti hann sæi í stöðunni til
lausnar Íraksdeilunni aðra en þá
sem Bandaríkjamenn aðhylltust,
hefði hann þurft að kynna þessar til-
lögur.
Bandarísku fulltrúunum, þar á
meðal Donald Rumsfeld varnar-
málaráðherra, fannst sem verið væri
að fara á bak við þá. Í þeirra augum
bætti það gráu ofan á svart að á sama
tíma sat Schröder kanzlari að ræða
þessar hugmyndir við Vladimír Pút-
ín Rússlandsforseta í Berlín.
Sjálfhelda
Hvernig gat þetta gerzt?
Svarið virðist einfaldlega vera það
að hvorki Fischer né þýzki varnar-
málaráðherrann Struck vissu nokk-
uð um þær hugmyndir sem kanzl-
arinn var þarna að kynna fyrir
heiminum. Þetta er nýjasta og
áþreifanlegasta dæmið um það
hvernig kanzlarinn virðist fara sínar
eigin leiðir í þessum málum án þess
að ráðfæra sig mikið við utanríkis-
ráðherrann. „Það er orðið augljóst
að þýzka ríkisstjórnin reynir nú allt
sem hún getur til þess að reyna að
losa sig út úr þeirri sjálfheldu sem
afskipti Schröders af utanríkisstefn-
unni hafa komið henni í,“ skrifar
svissneska blaðið Neue Zürcher
Zeitung um þetta.
Rugling skapaði líka afstaða
þýzku stjórnarinnar til þess hvort
beita skyldi neitunarvaldi gegn
beiðni Bandaríkjamanna um virkjun
varnarskuldbindinga NATO fyrir
Tyrkland í ljósi þeirrar hættu sem
það bandalagsland lenti í ef til stríðs-
átaka í Írak kæmi. Fyrst var að
heyra að ráðamenn í Berlín væru
ákveðnir í að taka þátt í að beita neit-
unarvaldi innan Atlantshafsbanda-
lagsins. Síðan virtist sem þeir væru
það ekki. Loks lýstu fulltrúar Þýzka-
lands yfir stuðningi við ákvörðun
Belga og Frakka, sem beittu neit-
unarvaldi innan Atlantshafsbanda-
lagsins þegar á það reyndi á mánu-
dag.
Í þýzkum fjölmiðlum hafa undan-
farna daga birzt ítrekaðar fullyrð-
ingar um að sambandið milli Schröd-
ers og Fischers sé nú með versta
móti. Utanríkisráðherranum gremj-
ist mjög hvernig kanzlarinn hafi æ
ofan í æ blandað sér í utanríkismálin
í hrein-innanríkispólitískum tilgangi,
nú síðast fyrir nýafstaðnar héraðs-
þingkosningar í Hessen og Neðra-
Saxlandi, og spilli þar með fyrir sínu
starfi á viðsjárverðum tímum.
Meint vatnaskil
Bandaríska blaðið The Wash-
ington Post les út úr stefnu ríkis-
stjórnar Schröders vatnaskil í sögu
þýzkrar utanríkisstefnu eftir Síðari
heimsstyrjöld. Áður hafi kanzlarar
Sambandslýðveldisins, úr hvaða
flokki sem þeir komu, leitt hjá sér
þær and-amerísku raddir sem vissu-
lega fyrirfundust á jöðrum þýzkra
stjórnmála. Í utanríkismálum hafi
þeir litið á það sem hlutverk sitt
(ólíkt hinum franska Charles de
Gaulle og eftirmönnum hans) að ekki
slaknaði á vináttuböndunum yfir Atl-
antshafið.
Frá því í kosningabaráttunni fyrir
þingkosningarnar í september sl.
hafi Schröder snúið baki við þessari
hefð og frekar ýtt undir and-amer-
ískar raddir en hitt. Nú sé í fyrsta
sinn í sögu Sambandslýðveldisins við
völd ríkisstjórn, sem að vísu „hefur
ekki slíkar [and-amerískar] hneigðir
innanborðs, en ýtir frekar undir þær
og virkjar þær sér til framdráttar,“
eftir því sem Washington Post hefur
eftir ónafngreindum þýzkum þing-
manni.
Þetta setur blaðið í samhengi við
yfirlýstan vilja ríkisstjórnar samein-
aðs Þýzkalands til að finna því sinn
verðuga sess í samfélagi þjóðanna
eftir hið langa niðurlægingartímabil
kalda stríðsins, þegar landið var
skipt í tvö ríki sem hvorugt gat talizt
fullvalda. „Ný kynslóð stjórnmála-
manna stýrir nú Þýzkalandi, kynslóð
sem ekki er eins þjökuð af sektar-
Risið upp gegn for-
ystu Bandaríkjanna
Ljóst þykir nú að Schröder Þýzkalandskanzlari fari eigin leiðir í
utanríkismálum, í óþökk utanríkisráðherrans Fischers, skrifar
Auðunn Arnórsson. Með harðri andstöðu við stefnu Bandaríkja-
manna í Íraksmálinu er kanzlarinn að brjóta sterka hefð.
Schröder og Fischer.
LITLAR sem engar líkur eru á því
að stjórnvöld í Frakklandi breyti
um afstöðu og taki að styðja herför
gegn stjórn Saddams Husseins
Íraksforseta. Viðmælendur AFP-
fréttastofunnar frönsku segja að
erfitt ef ekki ógerlegt verði fyrir
Jacques Chirac, forseta Frakk-
lands, að breyta um afstöðu í
Íraksmálinu en almenningur í
landinu er mjög andvígur hernaði.
Chirac vill að vopnaeftirlit verði
hert og aukið áður en afstaða verði
tekin til þess hvort blása skuli til
herfarar gegn Íraksstjórn. Telja
viðmælendur þvert á móti líkur
hafa aukist á því að til sögulegs
uppgjörs komi á milli Frakka og
Bandaríkjamanna á vettvangi ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
„Fyrir viku virtist hugsanlegt að
Frakkar kynnu að skipta um skoð-
un. Hins vegar er reginmunur á því
að lýsa andstöðu við stefnu Banda-
ríkjastjórnar og að leggja fram
aðra afstöðu með formlegum
hætti,“ sagði Armand Menon, for-
stöðumaður rannsóknarstofnunar í
Evrópufræðum við Birmingham-
háskóla. „Nú þegar Frakkar hafa
mótað aðra afstöðu og haft frum-
kvæði að því að kynna aðra lausn
verður mun erfiðara fyrir Frakka
að komast hjá því að beita neitun-
arvaldi,“ bætti hann við.
Fimm ríki öryggisráðsins hafa
neitunarvald og eru Frakkar í
þeim hópi. Tíu ríki eiga þar tíma-
bundið sæti. Ónefndur talsmaður
þýskra stjórnvalda sagði í gær að
11 af 15 ríkjum ráðsins styddu
frumkvæði Frakka og Þjóðverja
um aukið vopnaeftirlit í því skyni
að knýja Íraka til að afvopnast.
Fjögur ríki, Bandaríkin, Bretland,
Búlgaría og Spánn væru á móti.
Líklegt er talið að uppgjörið á
vettvangi öryggisráðsins kunni að
vera skammt undan. Vopnaeftir-
litsmenn í Írak kynna skýrslu sína
um framgang verksins á föstudag
og er þá búist við að umræður hefj-
ist um hvort ráðast beri gegn Írök-
um á þeim forsendum að þeir hafi
brotið gegn ályktunum SÞ.
Margir höfðu talið að Frakkar
myndu á síðustu stundu breyta um
afstöðu og leggjast á sveif með
Bretum og Bandaríkjamönnum.
Þetta myndu Frakkar gera með
tilliti til þjóðarhagsmuna sinna því
ella bíði þeirra einangrun og
áhrifaleysi á alþjóðavettvangi. Nú
telja sumir sérfræðingar líklegt að
þessi umskipti muni ekki eiga sér
stað; Frakkar hyggist hvergi hvika
þrátt fyrir að sú afstaða hafi nú
þegar kallað fram kreppu innan
Atlansthafsbandalagsins, ágrein-
ing innan Evrópusambandsins og
spennu á vettvangi öryggisráðsins.
Francois Heisbourg, þekktur
sérfræðingur á sviði varnarmála og
ráðgjafi utanríkisráðuneytisins
franska, sagði í gær að Frakka
hefði löngum skort sannfæringu
fyrir þeirri ógn sem sögð væri stafa
af Saddam Hussein. „Til viðbótar
við þessa greiningu skynja menn
það hér sem svo að við getum eng-
an veginn fylgt þessari ríkisstjórn
Bandaríkjanna, sem hefur skapað
þvílíkan trúnaðarbrest að annað
eins hefur ekki sést,“ sagði Heis-
bourg. Vísaði hann til öryggisráð-
stefnu sem haldin var í Þýskalandi
um liðna helgi þar sem ágreining-
urinn milli Frakka og Þjóðverja
annars vegar og Bandaríkjamanna
hins vegar kom berlega í ljós. Sagði
Heisbourg að vantraustið sem þar
ríkti hefði gert viðstadda nánast
orðlausa af undrun. „Okkur var í
raun sagt að standa stilltir í röð,
sjúga upp í nefið og halda okkur
saman,“ sagði hann.
Sögulegt
uppgjör?
París. AFP.