Morgunblaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 9 ERFINGJAR konu sem átti íbúð í Reykjavík sem reist var af bygging- arsamvinnufélaginu Samtökum aldraðra mega selja íbúðina á mark- aðsvirði en eru ekki bundnir af sam- þykktum félagsins um að íbúðarverð skuli aldrei vera hærra en kostn- aðarverð hennar að viðbættri verð- hækkun. Þetta er niðurstaða meiri- hluta Hæstaréttar. Einn dómaranna var þessu ósammála og skilaði sér- atkvæði. Málaferlin snerust um ákvæði 17. greinar samþykktar félagsins og hvort efni hennar hefði verið kynnt konunni með fullnægjandi hætti þegar hún keypti íbúðina árið 1991. Þar er m.a. kveðið á um að kaupandi íbúðar skuli vera félagi í Samtökum aldraðra og að hún verði ekki seld eða afhent öðrum en þeim sem hefði náð 63 ára aldri. Þá mætti söluverð íbúðarinnar, hversu oft sem hún skipti um eigendur, aldrei vera hærra en sem næmi kostnaðarverði, þegar tekið hafi verið tillit til vísi- töluhækkunar og fyrningar. Tekið er fram í dómnum að af gögnum málsins yrði ráðið að konan hafi litið á sig sem félaga í samtökunum en engin formleg gögn voru þó til um inngöngu hennar. Þá var ekki þing- lýst á íbúðina ákvæðum um sölu- verð. Taldi meirihluti Hæstaréttar að Samtökum aldraðra hefði ekki tekist að sýna fram á að konunni hefði ver- ið kunnugt um þetta ákvæði og því væru erfingjarnir ekki bundnir af því. Þessu var Garðar Gíslason, hæstaréttardómari, ósammála. Í sératkvæði hans segir að reglan um söluverð sé bæði sanngjörn og eðli- leg, auk þess sem hún hvíldi á öllum íbúðum í húsinu. Taldi hann að erf- ingjunum hefði ekki tekist að sýna fram á að konunni hafi verið ókunn- ugt um þessa reglu og því vildi hann sýkna byggingarsamvinnufélagið. Þeir sem mynduðu meirihluta í dómnum voru þau Guðrún Erlends- dóttir, Gunnlaugur Claessen, Har- aldur Henrysson og Pétur Kr. Haf- stein. Ragnar Halldór Hall hrl. flutti málið f.h. Samtaka aldraðra en Karl Axelsson hrl. fyrir hönd erfingjanna. Erfingjarnir mega selja íbúðina á markaðsverði SAMKVÆMT bréfi til umboðs- manns Alþingis hefur Orkuveita Reykjavíkur (OR) ákveðið að breyta útgáfu á reikningum þannig að fram- vegis geti þeir sem þess óska fengið sent í pósti afrit áætlunarreikninga sinna auk venjulegrar útsendingar uppgjörsreikninga. Tilefni þessa er að umboðsmanni hafa á undanförnum mánuðum bor- ist athugasemdir við að OR sendi ekki þeim viðskiptavinum, sem kjósa að greiða fyrir áætlaða raforkunotk- un með bein- eða boðgreiðslum, reikning vegna viðskiptanna nema einu sinni ári. Sendi umboðsmaður OR bréf þar sem hann óskaði upp- lýsinga um þetta atriði og fékk ofan- greint svar. Vonast umboðsmaður til þess að afrit áætlunarreikninga verði þannig útbúin af hálfu OR að þau teljist full- nægjandi skjöl í bókhaldi orkukaup- enda. Þá kemur umboðsmaður þeirri ábendingu á framfæri við OR að fyr- irtækið gæti þess að kynna við- skiptavinum sínum möguleika þeirra til að fá útgefna reikninga. Tekur umboðsmaður fram að hann telji það vera í betra samræmi við stöðu OR sem eina söluaðila á rafmagni og heitu vatni á sínu svæði, og fyrirtæk- is í opinberri eigu, að hafa frum- kvæði að því að kynna orkukaupend- um umrædda möguleika frekar en að láta vitneskju viðskiptavina um þá ráðast af því hvort þeir kunni að beina fyrirspurn um þetta til þjón- ustuvers fyrirtækisins. Seðilgjald heimilt Umboðsmanni Alþingis bárust jafnframt athugasemdir við seðil- gjald upp á 450 krónur sem OR hefur lagt á 15 dögum eftir gjalddaga vegna vanskila á raforkureikning- um. Ekki eru gerðar athugasemdir við þetta gjald þar sem heimild sé fyrir því í gjaldskrá fyrirtækisins. Tekur umboðsmaður fram að gefnu tilefni að lagagrundvöllur að baki seðilgjaldinu sé ólíkur þeim sem staðið hafi að baki svonefndu gíró- gjaldi hjá Ríkisútvarpinu. Umboðs- maður bendir á að á grundvelli laga um stofnun sameignarfyrirtækis um OR hafi verið sett gjaldskrá sem hafi verið staðfest af iðnaðarráðherra. Umboðsmaður gerir ekki athuga- semd við þá afstöðu iðnaðarráðu- neytisins að fjárhæð seðilgjaldsins sé hófleg og innan skynsamlegra marka. Telur umboðsmaður ekki fært að fullyrða að það hafi verið í ósamræmi við hlutverk ráðuneytis- ins að það byggði staðfestingu sína á mati, enda þótt ekki liggi fyrir ná- kvæmur útreikningur eða kostnað- argreining á umræddu seðlilgjaldi. Orkuveitan breytir út- gáfu raforkureikninga Morgunblaðið/Jim Smart Forsala miða og borðapantanir alla virka daga kl. 11:00-19.00. Sími 533 1100 - fax 533 1110 - www.broadway.is - broadway@broadway.is • Þau syngja, dansa og þjóna þér ! • Þau láta þig hlæja, dansa og syngja! • Ekki missa af þessari sýningu ! • Þau eru Le'Sing! Sýningar 14.feb. -15.feb. nokkur sæti laus. - 21. og 22.feb. Verð kr. 2.500 + matur Litla sviðið opnar klukkan 19.30 . Sýningin hefst stundvíslega kl. 20:00. Hátíðarkvöldverður og skemmti- dagskrá úr Borgarfirðinum Föstudaginn 14. febrúar: TINA TURNER hljómsveit söngur, dans föstudagur 28. febrúar Matur skemmtun og dansleikur kr. 4.900. Skemmtun og dansleikur2.500. Dansleikur 1.200 kr Söngvarar: Jóhanna Harðardóttir, Jón Ike Sverrisson og Jóna Fanney Friðriksdóttir. St af ræ na h ug m yn da sm ið ja n/ 28 53 SKEMMTI- OG HAGYRÐINGA KVÖLD föstudagskvöldið 21. febrúar Matur - skemmtun - dansleikur 4.900. Skemmtun - dansleikur 2.500. dansleikur eftir kl. 23:30 kr. 1.200. Landsfrægir hagyrðingar. Lögreglukór Reykjavíkur í syngjandi sveiflu. Húsið opnar fyrir matargesti kl. 19:00 Dansleikur til 03:00. Hljómsveitin Lúdó og Stefán. Lögreglumenn og velunnarar lögreglunnar sérstaklega velkomnir. Erum með glæsilega sali fyrir fermingar og giftingar ! Matur - skemmtun - dansleikur 4.900. Skemmtun - dansleikur 2.500. Dansleikur kr. 1.200. Valentínusar- dagur Hljómsveitin Stuðbandalagið leikur svo á ekta sveitaballi Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00. Verðhrun Rýmum fyrir vorinu Engjateigi 5, sími 581 2141. Hlaðhömrum 1 • Grafarvogi sími 577 4949 Næs Glæsilegir árshátíðarkjólar skór - veski Fallegir síðir dragtajakkar í stærðum 38-52 Opnunartími miðvikudag kl. 14-18 fimmtudag kl. 14-18 og 20-22 föstudag kl. 14-18 • laugardag kl. 11-14 Pelshúfur og -treflar Enn er hægt að gera mjög góð kaup á útsölunni í Eddufelli Nýjar vörur í báðum búðunum St. 36—42 & 44—46 Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18 lau. kl. 10—15 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.