Morgunblaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GRÚPPÍURNAR
Frábær ævintýra og spennumynd
fyrir alla fjölskylduna.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 6.
Kvikmyndir.com
HJ. MBL
Radio X
Njósnarinn Alex Scott er að fara í sitt
hættulegasta verkefni til þessa...með
ennþá hættulegri félaga!
Frumsýning
Kvikmyndir.is
Búðu þig undir D-daginn 28. febrúar
Geggjuð gamanmynd með
léttgeggjuðum félögum!
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
Sýnd kl. 3,45, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 3.45, 5.50 og 8.
YFIR 90.000 GESTIR
Njósnarinn Alex Scott er að fara í sitt hættulegasta verkefni til
þessa...með ennþá hættulegri félaga!
Geggjuð gamanmynd með léttgeggjuðum félögum!
Búðu þig undir D-daginn 28. febrúar
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i.16 Sýnd kl. 5 og 10.10. B.i.12.
Frábær ævintýra og spennumynd
fyrir alla fjölskylduna.
kl. 5.30 og 9.Sýnd kl. 4 og 8. Bi. 12.
6
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna
þ. á. m. besta mynd
ÞAÐ verður sungið og dansað
þegar Óskarsverðlaunin verða af-
hent í 75. sinn í Kodak-leikhúsinu í
Los Angeles 23. mars næstkom-
andi. Nafn dans- og söngvamynd-
arinnar Chicago mun þá hljóma
oftar en nöfn annarra mynda því
myndin er tilnefnd til flestra verð-
launa í ár, alls 13 talsins. Fast á
hæla hennar koma New York-
gengin með 10 tilnefningar og The
Hours með 9 tilnefningar. Þetta
var kunngjört í gær af óskars-
verðlaunahafanum Marisu Tomei
og forseta Óskarsakademíunnar
Frank Pierson.
Allar hlutu myndirnar þrjár til-
nefningu sem bestu myndir, ásamt
The Pianist og The Two Towers,
og fyrir bestu leikstjórn. Chicago
hlaut þar að auki fjórar tilnefn-
ingar fyrir leikframmistöðu, Réne
Zellweger sem aðalleikkona, Cath-
erine Zeta-Jones og Queen Latifah
sem aukaleikkonur og John C.
Reilly sem aukaleikari. Hinsvegar
varð Golden Globe-verðlaunahaf-
inn Richard Gere af tilnefningu
fyrir aðalhlutverk. Leikstjórinn
Rob Marshall er tilnefndur fyrir
sitt framlag en þetta er fyrsta
mynd sem hann gerir. Verið er að
sýna Chicago hér á landi um þess-
ar mundir.
Enn og aftur eru hin margverð-
launuðu Meryl Streep og Jack
Nicholson tilnefnd fyrir leik-
frammistöðu sína. Streep, sem
unnið hefur tvisvar, hlaut sína 13.
tilnefningu, fyrir aukahlutverk í
Adaptation en engin leikkona hef-
ur hlotið svo margar óskars-
verðlaunatilnefningar. Sama gildir
um Nicholson sem bætti eigið met
með því að hljóta 12. tilnefninguna
fyrir aðalhlutverk í About
Schmidt, sem frumsýnd verður
hér á landi um næstu helgi. Karl-
inn mun þar etja kappi við Adrien
Brody úr The Pianist, Nicolas
Cage úr Adaptation, Michael
Caine úr The Quiet American og
Daniel Day-Lewis úr The Gangs of
New York. Martin Scorsese hlaut
og tilnefningu sem besti leikstjóri
fyrir þá mynd en hann hefur
þrisvar sinnum áður verið til-
nefndur, án þess hafa unnið í þess-
um flokki. Sýningar á The Gangs
of New York hefjast hér 21. febr-
úar.
Julianne Moore hefur ærna
ástæðu til að mæta á athöfnina í
Kodak-leikhúsinu því hún fékk
tvær tilnefningar, fyrir aðal-
hlutverk í Far From Heaven, og
aukahlutverk í The Hours. Nicole
Kidman er einnig tilnefnd til verð-
launa í flokki aðalleikkvenna fyrir
túlkun sína á Virginiu Woolf í
sömu mynd, The Hours. Sem bestu
aðalleikkonur voru tilnefndar að
auki Diane Lane fyrir Unfaithful
og Salma Hayek en hugarfóstur
hennar, kvikmyndin Frida, kemur
svolítið á óvart með því að hljóta
alls 6 tilnefningar.
Leikstjóri The Hours, Bretinn
Stephen Daldry, er tilnefndur í
annað sinn á tveimur árum en árið
2001 var hann tilnefndur fyrir
fyrstu mynd sína Billy Elliott. Af
öðrum tilnefningum The Hours má
nefna að Ed Harris er tilnefndur
sem besti leikari í aukahlutverki.
Aðrar myndir sem fá vænan
skammt af tilnefningum eru mynd
Romans Polanskis The Pianist
með 7 tilnefningar, The Two Tow-
ers með 6 tilnefningar, The Road
To Perdition með 5 og Adaptation
og Far From Heaven með 4.
Finnska myndin Maður án for-
tíðar eftir Aki Kaurismaki hlaut
tilnefningu sem besta erlenda
myndin ásamt framlagi Kína, Hol-
lands, Mexíkó og Þýskalands.
Töluverða athygli hefur vakið að
tvær af rómuðustu „erlendu“
myndum síðasta árs, spænska
Ræddu málin eftir Almodóvar og
mexíkanska Móðir þín líka eftir
Alfonson Cuarón, voru ekki gjald-
gengar í þessum flokki því þær
höfðu fengið almenna dreifingu í
Bandaríkjunum. Báðar hlutu
myndirnar þó sárabætur því
Almodóvar er tilnefndur til
tvennra verðlauna, fyrir bestu
leikstjórn og handrit og Cuarón er
einnig tilnefndur fyrir besta hand-
ritið ásamt bróður sínum.
Fróðlegt verður að sjá hvort
Disney verður líkt og í fyrra af
verðlaunum í flokki teiknimynda
en af 5 sem tilefndar er á teikni-
myndarisinn 3 þeirra, Lilo &
Stitch, Spirited Away og Treasure
Planet, en hinar eru Ice Age og
Spirit: Stallion of The Cimarron.
Óvænt tilnefning
Michael Moore
Það á síðan ugglaust eftir að
vekja nokkra athygli og umtal að
kvikmyndagerðarmaðurinn og rit-
höfundurinn róttæki Michael
Moore skuli hafa hlotið tilnefningu
fyrir hina umdeildu en margróm-
uðu heimildarmynd Bowling For
Columbine en myndin fjallar á
gagnrýnin hátt um byssueign í
Norður-Ameríku, sögu hennar og
menningaráhrif. Moore hlaut sér-
stök verðlaun fyrir myndina á
Cannes í fyrra og var á dögunum
tilnefndur nokkuð óvænt af Sam-
tökum handritshöfunda í Banda-
ríkjunum fyrir handrit sitt að
heimildarmyndinni.
Rapparinn Eminem þekkir vart
þá tilfinningu að fara tómhentur
af verðlaunahátíðum. Hann er til-
nefndur til sinna fyrstu Ósk-
arsverðlauna, ekki fyrir leik sinn í
8 Mile, eins og einhverjir höfðu
getið sér til um, heldur fyrir besta
frumsamda lag, úr sömu mynd,
„Lose Yourself“. U2 gætu líka
hlotið sinn fyrsta Óskar en sveitin
er tilnefnd í sama flokki fyrir lag-
ið „The Hands That Built Am-
erica“ úr The Gangs of New York
en á dögunum hlaut írska sveitin
Golden Globe-verðlaunin fyrir lag-
ið.
Þess má geta að nú í fyrsta sinn
fellur tilnefning í skaut ímynd-
aðrar persónu. Er hér um að ræða
ímyndaðan tvíburabróður ólík-
indatólsins Charles Kaufmans, en
saman eru þeir „bræður“ tilefndir
fyrir handritið byggt á öðru verki,
sem síðan varð að myndinni
Adaptation. Kaufman hlaut sína
fyrstu tilnefningu fyrir tveimur
árum fyrir frumsamið handrit sitt
að Being John Malkovich.
Það kemur svo í ljós 23. mars í
Kodak-leikhúsinu í Los Angeles
hvort sigurvegarar verði ímynd-
aðir eða alvöru. Kynnir verð-
launathafnarinnar verður Steve
Martin og Stöð 2 mun sýna beint
frá henni.
#
$%
!""&
'
()
*+
,-*
.,//./(*
-
0,)
1+,*)/*,233)/)
$3*1+,*)/./
1+*
*0/
-
45
3..+
6*//
!&
*
/3
.
,.378.
.
,.3*.
!
"
#
*
,.332/*
$
!
"%
"
&
!
90.:*(2
#*/(
2
;
<23
0
2)
0
;2
2;=
0
>.*/.
*
31.3?/@
.3*.
-
*)3*0,)13.
' #
%
!
# "
(
)
$% $
.332/*
-
*)3*0,)13.
"%
*%
+
&"
,
- %+./% &$'( )
*
,/@*
31.3?/@
#0
&*( /%1
+2/ &
#2+2%
&+,
&%3&
&
- #
.
/
.
0 :
(
*
.3/.?/@
.,2
A
.:0
4
+
.,2
A
.:0
*)
>,*/
Tilnefningar til 75. Óskarsverðlaunanna
Chicago
efst á blaði
Reuters
Stjörnur The Hours eru allar til-
nefndar, Nicole Kidman og Jul-
ianne Moore fyrir þátt sinn í mynd-
inni, en Meryl Streep fyrir hlutverk
sitt í Adaptation.
Reuters
Catherine Zeta Jones hlýtur eina af
13 tilnefningum Chicago.
Reuters
Adrien Brody og Roman Polanski
eru báðir tilnefndir fyrir framlag
sitt til Píanístans.
Reuters
Óskarsakademían fær ekki nóg af
Jack, sem hlaut nú sína 12. tilnefn-
ingu fyrir About Schmidt.
Meryl Streep og
Jack Nicholson
slá enn met