Morgunblaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BIN LADEN STYÐUR ÍRAK
OSAMA bin Laden, leiðtogi al-
Qaeda-hryðjuverkasamtakanna,
lýsir yfir stuðningi við Íraka í
ávarpi sem sent var út á arabísku
sjónvarpsstöðinni al-Jazeera í gær.
Þar hvetur hann múslima hvar-
vetna til að sameinast og verja
írösku þjóðina gegn árás Banda-
ríkjamanna. Þá hvetur hann Íraka
til sjálfsmorðsárása gegn Banda-
ríkjunum. Embættismenn í Wash-
ington segjast telja að hljóð-
upptakan hafi raunverulega að
geyma rödd bins Ladens, en marg-
ir hafa talið að Sádi-Arabinn væri
látinn. Þeir segja ummæli bins
Ladens sanna að hann eigi í sam-
starfi við írösk stjórnvöld.
6,3 mil l jarða innspýting
Ríkisstjórnin ætlar að eyða 6,3
milljörðum króna til aukinna vega-
framkvæmda, byggingar menning-
arhúsa og til atvinnuþróunarverk-
efna á næstu 18 mánuðum. Á með
þessu að stuðla að atvinnu fyrir
hundruð manns og draga úr slaka í
efnahagslífinu fram að þeim tíma
sem áhrifa af framkvæmdum við
stóriðju fer að gæta til fulls. Jafn-
framt verður umfangsmiklum
vegaframvæmdum sem þegar
höfðu verið ákveðnar flýtt. Davíð
Oddsson forsætisráðherra segir
engin dæmi um svo mikla innspýt-
ingu í efnahagslífið.
Enn dei lt hjá NATO
Enginn árangur varð á fundi
sendiherra aðildarríkja Atlants-
hafsbandalagsins í gær en nú er
reynt að leysa erfiða deilu sem
komin er upp meðal aðildarþjóð-
anna eftir að Þjóðverjar, Frakkar
og Belgar beittu neitunarvaldi
gegn virkjun varnarskuldbindinga
NATO til handa Tyrkjum vegna
hugsanlegs stríðs við Írak.
Varar við hryðjuverkum
George Tenet, yfirmaður banda-
rísku leyniþjónustunnar (CIA),
varaði í gær við hryðjuverkaárás
annaðhvort í Bandaríkjunum eða á
Arabíuskaganum. Sagði hann
liggja fyrir upplýsingar sem bentu
til að hryðjuverkamenn hygðust
reyna að standa fyrir árás jafnvel
fyrir lok þessarar viku.
Hervar hættur
Hervar Gunnarsson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, sagði af
sér formennsku á framhalds-
aðalfundi félagsins í gærkvöldi. Öll
stjórn félagsins sagði af sér í kjöl-
farið, samtals 11 manns.
PT CRUISER REYNSLUEKIÐ
Á SUBURBAN Í VINNU
DRAUMABÍLLINN
JEPPAHORNIÐ
BREYTTUR DOUBLE CAB
NÝJUSTU VÉLSLEÐARNIR
JEPPAR, FERÐIR OG
JEPPABREYTINGAR
Þjónustuaðili fyrir öryggis- og
þjófavarnarbúnað frá DIRECTED
VIPER á Íslandi
FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI
SÍMI 555 6025 • www.kia.is
K IA ÍSLAND
Bílar sem borga sig!
Alhliða
lausn í
bílafjármögnun
Suðurlandsbraut 22 540 1500
www.lysing. is
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 25/27
Viðskipti 13/14 Minningar 32/37
Höfuðborgin 18 Bréf 40
Akureyri 19 Skák 41
Suðurnes 20 Dagbók 42/43
Landið 21 Fólk 48/53
Listir 22/24 Bíó 50/53
Forystugrein 28 Ljósvakamiðlar 54
* * *
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra hefur sent
formönnum stjórnmálaflokkanna bréf þar sem
hann greinir frá því að hann hafi hug á að skipa
tíu manna nefnd sem hefði það hlutverk að fjalla
á faglegan hátt um veigamikil álitaefni um Evr-
ópumál. „Hér er ekki um Evrópustefnunefnd að
ræða, enda eðlilegt að hver stjórnmálaflokkur og
samtök móti þá stefnu á eigin forsendum,“ segir
í bréfi Davíðs.
Segir hann viðbrögð forystumanna í stjórn-
málum hafa verið fremur jákvæð. Gert sé ráð
fyrir að Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur,
Samfylking og Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð tilnefni tvo menn hver í nefndina og að
Frjálslyndi flokkurinn tilnefni einn. Þá muni for-
sætisráðherra skipa einn nefndarmann án til-
nefningar, sem jafnframt verði formaður nefnd-
arinnar. „Samskipti Íslands og Evrópu eru
mikilvægt verkefni stjórnmála á Íslandi í nútíð
og framtíð og EES-samningurinn gegnir lyk-
ilhlutverki í viðskiptum landsins. Umræða um
hugsanlega aðild Íslands að ESB hefur verið fyr-
irferðarmikil og oft stangast á fullyrðingar um
grundvallaratriði. Því hefur verið kallað eftir
upplýstri umræðu og er nefndinni ætlað að koma
til móts við þá ósk. Henni er þannig falið það
hlutverk að skýra og skerpa umræðuna, greina
aðalatriði málsins og helstu staðreyndir þess.
Þetta á til dæmis við um atriði eins og fram-
kvæmd EES-samningsins, hvort undanþágur séu
veittar í aðildarsamningum og þá hvers konar
undanþágur, hvað aðild mundi kosta ríkissjóð til
lengri og skemmri tíma litið, hverjir væru kostir
og gallar evru fyrir Ísland o.s.frv., svo aðeins ör-
fá álitaefni séu nefnd til sögunnar,“ segir í bréfi
Davíðs.
Hver nefndarmaður mun geta gert tillögu um
hvaða álitaefni skuli könnuð í starfi nefndarinn-
ar. „Augljóslega yrði hér um allmikið verk að
ræða, sem myndi ljúka með skýrslu og eftir at-
vikum áfangaskýrslu á starfstíma nefndarinnar,“
segir ennfremur í bréfinu. Af hálfu forsætisráð-
herra yrði að sinni ekki kveðið á um skip-
unartíma nefndarinnar, að því er fram kemur í
bréfinu.
Ætlað að skýra og skerpa
umræður um Evrópumál
Evrópunefndinni er
ekki ætlað að marka
stefnu í Evrópumálum
LÍKLEGT er að greiðslumark
mjólkur á næsta ári verði um 103–
104 milljónir lítra, sem er um 2,1–
2,8% minna greiðslumark en á yf-
irstandandi verðlagsári. Greiðslu-
mark, eða mjólkurkvótinn, nú er
106 milljónir lítra. Meginástæðan
fyrir þessum samdrætti er, að sögn
Snorra Sigurðssonar, framkvæmda-
stjóra Landssambands kúabænda,
breytingar í sölu mjólkurafurða.
„Það hefur verið stígandi í fram-
leiðslunni undanfarin ár. Svo kom
verulegur kippur í söluna fyrir
tveimur árum þegar Íslendingar
fóru að borða skyr sem aldrei fyrr.
Þá var greiðslumarkið aukið, en nú
hefur orðið viðsnúningur, sala skyrs
hefur aðeins dalað og sala jógúrts
aukist í staðinn,“ segir Snorri. Hann
segir að meiri mjólk þurfi við fram-
leiðslu skyrs en jógúrts, sem skýri
þessi umskipti. „Síðan hefur neysla
mjólkurdrykkja minnkað ár frá ári í
takt við aukningu gosdrykkja-
neyslu. Því sjáum við fram á að
þurfa að draga úr framleiðslunni á
næsta ári,“ segir Snorri.
Í vor verður greiðslumark fyrir
næsta verðlagsár ákveðið, en það
hefst 1. september. Líklegt er talið
að greiðslumarkið verði þá lækkað
um 2–3 milljónir lítra, eins og fyrr
segir. „Þetta er tekjutap fyrir okk-
ur, þetta getur haft slæm áhrif hjá
sumum bændum og er alltaf slæmt
að missa framleiðsluna niður. Við
vissum svo sem af því að það væri
von á lækkun því framleiðslan hafði
aukist mjög mikið. Greiðslumarkið
var aukið á síðasta ári um 2 millj-
ónir lítra og er í raun að ganga til
baka aftur. Það er alltaf eðlilegt að
ákveðin sveifla sé í framleiðslunni
og það komi sölutoppar. Það er þó
slæmt að missa framleiðsluna niður
aftur,“ segir Snorri.
Hann segir að í lok janúar á
þessu ári hafi mjólkursamlögin sam-
tals tekið við 44,3 milljónum lítra,
frá því yfirstandandi verðlagsár
hófst, þ.e. frá 1. september 2002.
„Framleiðslan var mikil í upphafi
ársins. Kýrnar hafa mjólkað mjög
vel á þessu framleiðsluári,“ segir
Snorri. Að óbreyttu verði offramboð
á mjólk í sumar.
Kúabændur þurfa að
draga úr framleiðslu
Útlit fyrir að
greiðslumark
minnki um 2%
JÓN Kristjánsson, heilbrigðisráð-
herra og settur umhverfisráðherra
vegna Norðlingaölduveitu, fékk í
gær þakklætisvott frá náttúruunn-
endum fyrir nýlegan úrskurð sinn,
þar sem m.a. kom fram að veitu-
framkvæmdir mættu ekki hafa
áhrif á friðland Þjórsárvera. Magn-
ús Magnússon kvikmyndagerðar-
maður færði ráðherra ljósmynd af
Þjórsárverum eftir Þóru Ellen Þór-
hallsdóttur prófessor og einnig gaf
hann ráðherra 56 náttúrulífsþætti
eftir sjálfan sig, en þættirnir eru á
16 myndbandsspólum og bað
Magnús ráðherra um að færa
Barnaspítala Hringsins mynda-
safnið að gjöf.
„Ég tel að með úrskurðinum hafi
verið stigið gæfuspor, þjóðinni til
heilla,“ sagði Magnús við Jón. „Öll
framkoma þín í þessu máli var til
fyrirmyndar, njóttu heill.“ Með
Magnúsi voru dætur hans, þær Íris
og Rán, sem fengu það hlutverk að
afhenda ráðherra gjafirnar.
Jón Kristjánsson þakkaði inni-
lega fyrir gjafirnar og sagði und-
anfarna daga hafa verið mjög ein-
kennilega. „Ég hef fundið það mjög
rækilega hvað þjóðin metur mikils
þennan úrskurð,“ sagði hann. „Það
var tvennt sem ég vildi hafa að leið-
arljósi, það er að virða mörk frið-
landsins og þá alþjóðlegu samninga
sem við höfum gert. Ég hef fundið
það mjög áþreifanlega síðustu vik-
una hvað þessar línur í málinu hafa
mælst vel fyrir,“ sagði Jón.
Viðstaddir athöfnina voru nokkr-
ir af forystumönnum náttúruvernd-
arsamtaka.
Jóni þakkað að hafa
bjargað Þjórsárverum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Magnús Magnússon var afar ánægður með framgöngu Jóns Kristjánssonar og gaf honum mynd af Þjórsárverum.
MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefur
skipað Laufeyju Guðjónsdóttur í
embætti forstöðumanns Kvikmynda-
miðstöðvar Ís-
lands. Laufey tek-
ur við starfinu 17.
febrúar næstkom-
andi og er skipuð
í stöðuna til fimm
ára. Alls bárust
17 umsóknir um
embættið, en einn
umsækjenda dró
umsókn sína til
baka. Umsóknir
voru sendar kvik-
myndaráði til umsagnar og mælti
það eindregið með því að Laufeyju
Guðjónsdóttur yrði veitt embættið.
Menntamálaráðherra skipaði síðan
Laufeyju í starfið.
„Það er mjög gaman að hljóta
þetta traust, bæði kvikmyndaráðs
og menntamálaráðherra, til að tak-
ast á við þetta nýja verkefni. Að
vissu leyti mun starf mitt felast í að
móta þessa nýju stofnun sem Kvik-
myndamiðstöð Íslands er, og ég
hlakka mikið til,“ sagði Laufey.
Laufey hefur B.A.-gráðu í kvik-
myndafræðum og spænsku frá
Kaupmannahafnarháskóla. Und-
anfarin þrjú ár hefur hún gegnt
starfi dagskrárstjóra hjá RÚV.
„Hlakka til
að móta
þessa nýju
stofnun“
Laufey
Guðjónsdóttir
Laufey Guðjónsdóttir
skipuð forstöðumaður
Kvikmyndamiðstöðvar
HANNES Hlífar Stefánsson tapaði
annarri skákinni gegn Sergei
Movsesian sem tefld var í gær-
kvöldi í Olíseinvíginu. Hannes er
því 2-0 undir. Hann hafði hvítt og
eins og í fyrstu skákinni var tefld
sikileysk vörn. Hannes gafst upp
eftir 34 leiki eftir mjög kraftmikla
taflmennsku Slóvakans.
Í dag mun Helgi Áss Grétarsson
reyna við Íslandsmetið í blindskák
og hefst það kl. 16.30, hálftíma áð-
ur en þriðja viðureign Hannesar
og Movsesian hefst. Viðburðirnir
fara fram í höfuðstöðvum Olís í
Sundagörðum.
Í gærkvöldi tefldu einnig Bragi
Þorfinnsson og Arnar E. Gunnars-
son gegn tölvuforritnu Tiger 15
og máttu þeir báðir lúta í lægra
haldi.
Olíseinvígið í skák
Hannes tap-
aði aftur fyr-
ir Movsesian