Morgunblaðið - 12.02.2003, Síða 6

Morgunblaðið - 12.02.2003, Síða 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ SKÓLAVELLIR – SELFOSSI Frábær 4ra herb. 119 fm íbúð á 2. hæð miðsvæðis á Selfossi í 3-býli. Stutt er í alla þjónustu. Eigandi er tilbúinn til að skoða skipti á íb. í Selja- hverfinu í Rvík. Parket á forstofu, stofu og öllum herb., svalir endurnýjað- ar, sérinngangur og sameiginlegt þvottahús niðri. Húsið er nýmálað og með stórum garði. Falleg eign á góðum stað. Verð 10,9 millj. Áhv. ca 6,5 millj. í húsbr. Uppl. eru veittar á Hóli, Selfossi, s. 590 7200 - Karólína. Austurvegi 6 Sími 590 7200 - holl@holl.is www.holl.is Selfoss GERT er ráð fyrir miklum fram- kvæmdum við höfnina í Þorlákshöfn á næstu árum samkvæmt tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2003 til 2006. Í tengslum við fyrirhugaðar framkvæmdir hafa líkantilraunir staðið yfir hjá Sigl- ingastofnun síðan í fyrra og eru þær með þeim umfangsmestu í sögu stofnunarinnar. Gísli Viggósson, forstöðumaður hafnasviðs hjá Siglingastofnun, segir að mikil vinna hafi átt sér stað und- anfarna mánuði við líkantilraunirn- ar, en markmið þeirra hafi verið að finna leiðir til að auka kyrrð í höfn- inni í Þorlákshöfn og stækka aðstöðu fyrir fiskiskip og flutningaskip með framtíðarmöguleika hafnarinnar í huga. „Það hafa verið reyndar ýmsar leiðir í líkaninu en allar tilraunirnar benda til þess að hagkvæmast sé að halda núverandi innsiglingu, en auk þess er lagt til að gamla Norðurvar- arbryggjan verði fjarlægð og ný fiskiskipahöfn verði byggð austan við norðurgarðinn,“ segir hann. Langur aðdragandi Fyrir um fjórum árum ályktaði Al- þingi að fela samgönguráðherra að hlutast til um að Siglingastofnun Ís- lands hæfi sem fyrst undirbúnings- rannsóknir og hagrænar athuganir á stækkun hafnarinnar í Þorlákshöfn. Í greinargerð með tillögu til þings- ályktunar kom meðal annars fram að við suðurströnd landsins væri algjör hafnleysa. Eina skjólið fyrir suðvest- anöldunni væri í Skötubótinni í Þor- lákshöfn og þessar aðstæður hefðu verið nýttar þegar byrjað hafi verið á byggingu fiskiskipahafnar í Þorláks- höfn upp úr 1960. Höfnin hafi verið hönnuð fyrir algenga gerð vertíðar- báta en við Vestmannaeyjagosið 1973 hafi komið í ljós þörf fyrir stækkun hafnarinnar. Í það hafi ver- ið ráðist og framkvæmdum lokið 1976. Aðstaða fyrir Herjólf hafi verið gerð 1991 og 1992 og nýr vörukantur tekinn í notkun 1997, en Siglinga- stofnun hafi að ósk hafnarstjórnar Þorlákshafnar unnið að gerð frum- draga að stækkun hafnarinnar miðað við 10.000 tonna vöruflutningaskip annars vegar og hins vegar allt að 20.000 tonna vöruflutningaskip. Áður en líkantilraunirnar hófust voru gerðar botnrannsóknir á öllu svæðinu og miklir öldufarsreikning- ar en auk þess var byggt á eldri bergmálsmælingum. Við hafnar- mynnið er aldan oft um 4 metra há og hana þarf að lækka niður í um 20 til 30 sentimetra við hafnarbakkana. „Þessari löngu suðvestan úthafsöldu fylgir mikið sog og það er vanda- málið sem við þurftum að minnka eins mikið og hægt er,“ segir Sig- urður Sigurðarson, verkfræðingur hjá Siglingastofnun. Hann segir enn- fremur að garðarnir taki mið af hæstu mögulegu öldum, meira en 10 metra háum, sem komi að jafnaði ekki nema á um 100 ára fresti, en gera megi ráð fyrir fjögurra metra hárri öldu nokkrum sinnum á ári. Aldan skellur á svonefndum Suð- urvarargarði og í líkantilraunum var hann lengdur og stefnu hans breytt með aukna kyrrð í höfninni í huga, en Gísli segir að sama hvað hafi verið gert hafi núverandi staða garðsins alltaf komið best út. „Það er ósk heimamanna að fá meiri kyrrð í höfn- ina og bæta jafnframt aðstöðuna fyr- ir vöruflutningaskip, en þetta höfum við haft í huga við tilraunir okkar. Þær hafa verið mjög viðamiklar en þetta er með stærri líkönum og hærri öldum sem við höfum tekist á við hérna.“ Breytt og betri aðstaða Ný og breytt aðstaða verður í höfninni og m.a. munar mikið um sérstaka löndunarbryggju fyrir upp- sjávarfisk, en nú þarf að færa lönd- unarbúnaðinn fram og til baka. Samkvæmt samgönguáætluninni er gert ráð fyrir að byrja á því að reisa nýjan skjólgarð að norðan og austan við núverandi höfn, Austur- garð, og ljúka gerð hans á því næsta. 2004 verði líka dýpkað norðan Svartaskersgarðs, en 2005 verði stál- þil rekið norðan Svartaskers, Norð- urvararbryggja rifin og lokið við þvergarðinn inn í höfnina. Árið 2006 lýkur svo áætluðum framkvæmdum, en kostnaðaráætlun hljóðar upp á um 524 milljónir króna. Gísli segir að Norðurvararbryggj- an verði að víkja vegna þess að hún verði komin á tíma innan nokkurra ára og auk þess þurfi að nýta núver- andi hafnarmynni betur. Nú sé að- eins hægt að taka á móti 100 m löngu flutningaskipi, en með fyrirhuguðum úrbótum megi taka á móti um 120 m löngu skipi sem sé tæplega 10.000 tonn að stærð. Ennfremur verði hægt að flytja fiskiskipaflotann á nýjan stað og aðstaða verði fyrir smábáta. „Með þessu fáum við meira og öruggara rými fyrir fiskiskip, meiri kyrrð í höfninni og meira pláss fyrir stærri skip sem eykur viðskipti hafnarinnar,“ segir Indriði Kristins- son, hafnarstjóri í Þorlákshöfn. Miklar framkvæmdir fyrirhugaðar við höfnina í Þorlákshöfn í kjölfar líkantilrauna Með stærstu líkönum Siglinga- stofnunar Morgunblaðið/RAX Sigurður Sigurðarson, verkfræðingur hjá Siglingastofnun, Indriði Kristinsson, hafnarstjóri í Þorlákshöfn, Gísli Viggósson, forstöðumaður hafnasviðs hjá Siglingastofnun, og Sigmar Þór Sveinbjörnsson, stýrimaður og umsjón- armaður líkansins, standa á Svartaskersgarði í líkaninu. Austurgarðurinn er vinstra megin við þá og Suðurvar- argarðurinn lengst til hægri. Markmiðið með breytingunum er meðal annars að auka kyrrð í höfninni. INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, forsætisráðherraefni Samfylkingar, segir að hún hafi ekki verið að saka ríkislögreglustjóra og skattrann- sóknarstjóra um að hafa haft önnur sjónarmið en fagleg að leiðarljósi, í ræðu sem hún flutti á flokksstjórn- arfundi Samfylkingarinnar í Borgar- nesi á sunnudag. Þar sagði hún að leiða mætti að því rök að afskipta- semi stjórnmálamanna af fyrirtækj- um landsins væru ein aðal meinsemd íslensks efnahags- og atvinnulífs. „Ég vil þannig leyfa mér að halda því fram að það hafi skaðað faglega umfjöllun um Íslenska erfðagrein- ingu, bæði hérlendis og erlendis, að sú skoðun er útbreidd að fyrirtækið njóti sérstaks dálætis hjá forsætis- ráðherranum. Það vekur upp um- ræðu og tortryggni um að gagna- grunnur fyrirtækisins og ríkisábyrgðin byggist á málefnaleg- um og faglegum forsendum en ekki flokkspólitískum. Sama má segja um Baug, Norðurljós og Kaupþing. Byggist gagnrýni og eftir atvikum rannsókn á þessum fyrirtækjum á málefnalegum og faglegum forsend- um eða flokkspólitískum?“ sagði Ingibjörg Sólrún í ræðunni. Í 132. gr. almennra hegningarlaga segir að gæti opinber starfsmaður ekki „af ásetningi eða stórfelldu gá- leysi réttra aðferða við meðferð máls eða úrlausn, handtöku, leit, fangels- an, framkvæmd refsingar eða hald- setningu, eða brýtur aðrar þess kon- ar reglur“ þá skuli hann sæta sektum eða fangelsi, allt að einu ári, nema brot hans varði þyngri refs- ingu að lögum. Er opinber starfs- maður skilgreindur sem handhafi dómsvalds eða annars opinbers úr- skurðarvalds um lögskipti eða dóm- ari eða annar opinber starfsmaður sem á að halda uppi refsivaldi rík- isins. Lögfróður maður sem blaðið leit- aði álits hjá taldi að embætti ríkis- lögreglustjóra og skattrannsóknar- stjóra falli undir þessa skilgreiningu. Ingibjörg Sólrún sagði að í ræðu sinni hefði hún ekki verið að saka embættismenn um lögbrot. „Það sem ég var að tala um í ræðu minni er þessi skortur á trausti sem er orðinn í íslensku samfélagi. Fólk treystir ekki stofnunum samfélags- ins, það treystir ekki stjórnmála- mönnum, það treystir ekki ríkis- stjórn, ráðherrum, það treystir ekki lögreglu, kirkju, fjölmiðlum. Það er almennur skortur á trausti á stofn- unum. Ég færði rök fyrir því að það mætti m.a. rekja til þess að það væri búið að skapa þannig andrúmsloft í samfélaginu m.a. vegna pólitískra af- skipta af ýmsum toga. Þegar gripið er til einhverra aðgerða, burtséð frá því hverjar þær eru, þá vakna þær spurningar hjá fólki hvort þessar að- gerðir séu af faglegum og málefna- legum toga eða hugsanlega einhverj- um öðrum. Það þarf ekki að vera með réttu sem þær röksemdir eða grunsemdir vakna hjá fólki, þær þurfa ekki endilega að eiga sér stoð í raunveruleikanum, en andrúmsloftið í samfélaginu er orðið þannig að þessi umræða kemur upp og menn geta ekki horft fram hjá því,“ segir Ingibjörg. Þú sagðir að þessum fyrirtækjum hefði komið illa að forsætisráðherra væri þeim ekki hliðhollur. „Ég var þar ekki að vísa til þess- ara rannsókna í sjálfu sér. Það kem- ur þeim bara illa að vera alltaf á milli tannanna á forsætisráðherra. Það endurspeglast auðvitað í hinni al- mennu umræðu í samfélaginu og endurómar m.a. í umfjöllun um ís- lenskt viðskiptalíf og fyrirtæki er- lendis. Þetta kemur fram í greinum á erlendum vettvangi í Guardian, Eu- roMoney og fleiri stöðum, þar sem einmitt er talað um þesssa samtvinn- un stjórnmála og viðskiptalífs á Ís- landi. Það þarf ekki mig til að segja þetta. Það var viðtal í Morgun- blaðinu í desember við Björgúlf Thor þar sem hann vísar til þess að hann hafi að mestu verið í Rússlandi síð- ustu tíu ár, það sé nú land sem ekki hafi orð á sér fyrir að markaðsöflin ráði ferðinni. Svo kom hann til Ís- lands og þá sjái hann að markaðs- öflin séu ekki höfð í hávegum hér og hér sé það pólitíkin sem ráði.“ Þú ert þá í raun ekki að saka þessa embættismenn um að hafa framið lögbrot? „Nei, alls ekki. Þetta er algjörlega rifið úr samhengi við það sem ég sagði í minni ræðu.“ Áttu við að embættismenn geti orðið fyrir áhrifum og reyni að þókn- ast stjórnvöldum þótt þeir fái ekki bein tilmæli um slíkt? „Ég er ekkert að velta því fyrir mér og legg ekkert mat á það hvað þarna búi að baki. Ég geri ráð fyrir því að þessar stofnanir, eins og Sam- keppnisstofnun, Fjármálaeftirlit, ríkislögreglustjóri og fleiri, séu að vinna á faglegum og málefnalegum grundvelli. Ég er að segja og hef séð mörg vitni um það að sú umræða er í samfélaginu og almannarómur er þannig að fólk telur sig ekki vera visst. Ég er að vísa til þess að þegar þessar rannsóknir koma upp fara af stað umræður um hvort þetta séu pólitísk afskipti eða málefnaleg og fagleg afskipti. Í raun ætti sú um- ræða ekki að þurfa að koma upp heldur ættum við öll að vera sann- færð um það þegar þessar stofnanir láta til skarar skríða séu þær bara að vinna sín verk og þær ættu ekki að þurfa að sæta slíkri umræðu. En þær gera það og það endurspeglar ákveð- ið andrúmsloft sem er í samfélaginu og sem stafar af þessum pólitísku af- skiptum.“ Telur þú að flokkspólitísk sjónar- mið ráði ferðinni í þessum rannsókn- um? „Ég gef mér að þessar stofnanir sinni sínu eftirlitshlutverki á algjör- lega málefnalegum og faglegum for- sendum. Ég gef mér það.“ Sakar ekki ríkislögreglu- stjóra og skattrann- sóknarstjóra um lögbrot Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir almenning ekki bera traust til stofnana ríkisins og því þurfi að breyta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.