Morgunblaðið - 12.02.2003, Side 10

Morgunblaðið - 12.02.2003, Side 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ DEILT var um stöðu íslenskrar verkmenntunar og ágæti svokall- aðs reiknilíkans, sem notað er til að meta fjármagn til skóla, í ut- andagskrárumræðu á Alþingi í gær. Björgvin G. Sigurðsson, varaþingmaður Samfylking- arinnar, var málshefjandi umræð- unnar. Hann sagði að íslensk verkmenntun væri í kreppu í kjölfar metnaðarleysis og fjár- sveltis menntamálayfirvalda und- anfarinn áratug. Það fjársvelti ætti rætur sínar að rekja til reiknilíkansins, sem skilaði verk- námi ekki því fjármagni sem nauðsynlegt væri til að halda úti metnaðarfullri iðn- og tækni- menntun. Tómas Ingi Olrich mennta- málaráðherra vísaði þessari gagnrýni hins vegar á bug. Hann sagði að menntamálayfirvöld hefðu beitt sér fyrir marg- víslegum aðgerðum til að styrkja undirstöður iðn- og starfsmennt- unar í landinu og að sá mála- flokkur væri búinn að vera í for- gangi hjá þeim lengi. Auk þess sagði ráðherra að markmið reiknilíkansins væri að fjár- framlög til einstakra skóla end- urspegluðu kostnað vegna fjár- festingar þeirra og starfsemi. Hann sagði það því rangt að reiknilíkanið tæki ekki tillit til sérstaks kostnaðar sem leiddi af kennslu verknáms. Í upphafi ræðu sinnar sagði Björgvin: „Íslensk verkmenntun er í kreppu í kjölfar fjársveltis og metnaðarleysis menntamála- yfirvalda undanfarinn áratug. Iðn- og tæknimenntun á í djúp- stæðum vanda sem lýsir sér m.a. í því að aðsókn að náminu hefur minnkað, verknámið að hluta færst af landsbyggðinni og fram- boð á verkmenntun minnkað í fjölbrautaskólum landsins. Auk þess er námsefnið staðnað og úr- elt í mörgum greinum. Afleiðing- arnar eru lítil nýliðun í iðngrein- unum og atgervisvandi íslensks iðnaðar.“ Björgvin sagði m.a. að í kjölfar fjársveltis hefðu hinar hefðbundnu iðngreinar verið að gefa eftir og nefndi sem dæmi að sveinsprófum hefði fækkað um 14% á liðnum árum. Menntamálaráðherra sagði hins vegar að ásókn að námi væri breytileg frá einu tímabili til ann- ars. „Aðsókn að námi í löggiltum iðngreinum hefur dregist nokkuð saman á tímabilinu 1992 til 2000 eða um 9,5%. Á þeim tíma fjölg- aði nemendum í öðru starfsnámi hins vegar um 10,5%, iðnnemum fjölgaði um 2% milli áranna 1995 og 2001 og nemendum í öðru starfsnámi fjölgaði þá um 14,5%. Á árunum 1995 til 2001 fjölgaði nemendum í framhaldsskólum alls um 5,6%. Á þessum tölum sést að aðsókn er nokkuð sveiflu- kennd að mismunandi tegundum náms, en nýjustu innritunartölur benda til þess að aðsóknaraukn- ingin sé mest í öðru starfsnámi.“ Síðan sagði ráðherra: „Mennta- málayfirvöld hafa beitt sér fyrir margvíslegum aðgerðum til að styrkja undirstöður iðn- og starfsmenntunar í landinu og sá málaflokkur er búinn að vera í forgangi hjá þeim lengi. Það verður að skoða þróun aðsóknar að námi í heild sinni og festast ekki í klisjukenndri umræðu um minnkandi aðsókn að námi í lög- giltum iðngreinum. Margt bendir til þess að starfsmenntun sé í sókn og menn verða að taka tillit til þess að þjóðfélagið er að taka breytingum. Menn geta ekki rætt þessi mál á grundvelli þess hvernig þetta þjóðfélag var fyrir meira en tíu árum.“ Segir verk- og iðnmennt- un á Íslandi vera í kreppu Morgunblaðið/Golli Á Alþingi var rætt um verkmenntun og hvort stjórnvöld hefðu staðið nægilega vel að uppbyggingu þessa náms. ÞINGFUNDUR hefst kl. 13.30 í dag. Á dagskrá eru atkvæða- greiðslur og tvær fyrirspurnir til ráðherra. Í fyrsta lagi verður spurt um niðurstöður starfshóps um sam- þættingu fjárlagagerðar og jafnrétt- is og í öðru lagi verður spurt um skelfiskveiðar og ástand lífríkis í Breiðafirði. Í FRUMVARPI sem Páll Pétursson félagsmálaráð- herra mælti fyrir í liðinni viku um breytingu á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum er sér- staklega fjallað um einelti á vinnustöðum. Í frumvarpinu er m.a. bætt við lið 9. grein laganna um ráðstafanir gegn einelti á vinnustöðum en þar segir að „starfsmenn eigi ekki að þurfa að þola áreitni eða aðra ótilhlýðilega háttsemi á vinnustað, þar með talda kyn- ferðislega áreitni eða annað andlegt eða líkamlegt of- beldi“. Í greinargerð með frum- varpi félagsmálaráðherra kemur fram að í könnun Evr- ópustofnunarinnar frá árinu 2000 hafi komið á daginn að 2% launafólks telji sig hafa orðið fyrir kynferðislegu áreiti á vinnustað og 9% töldu sig hafa verið lögð í einelti. Hér á landi hafi verið fram- kvæmdar rannsóknir á tíðni eineltis í einstökum atvinnu- greinum og hafi þær allar sýnt fram á að ákveðinn hluti fólks verði fyrir einelti í starfi. Víða í nágrannalönd- unum hafi mönnum þótt ástæða til þess að setja sér- stakar reglur um einelti á vinnustöðum, ekki síst vegna þess að rannsóknir hafi sýnt að langvarandi einelti geti haft alvarlegar heilsufarsleg- ar afleiðingar í för með sér. Frumvarpið fer nú til um- fjöllunar í þingnefnd. Frumvarp félags- málaráðherra Starfsfólk þurfi ekki að þola einelti RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gærmorgun að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga um heimild til að afsala til Landsvirkjunar tilteknum vatnsréttindum í Þjórsá, ásamt nauðsynlegu landi til virkjunar þeirra, að fengnu samþykki stjórn- arflokkanna. Frumvarpið er samið í samræmi við yfirlýsingu sem for- sætisráðherra gaf í þinginu fyrir jól. Fram kemur í minnisblaði, sem lagt var fram á ríkisstjórnarfundi, að við stofnun Landsvirkjunar árið 1965 gerðu ríkið og Reykjavíkur- borg með sér sameignarsamning um fyrirtækið þar sem tilgreindar voru þær eignir og önnur réttindi sem hvor aðili um sig lagði til fyr- irtækisins og eignarhlutur þeirra í því byggðist á. Þar á meðal lagði ríkið fram tiltekin vatnsréttindi í Þjórsá ásamt nauðsynlegu landi til virkjunar þeirra við Búrfell. Þessi réttindi taldi ríkið sig hafa komið að með afsali þeirra frá fossafélaginu Titan árið 1952, en þau hafði félagið keypt af Gnúpverjahreppi í byrjun 20. aldar ýmist beint eða fyrir milli- göngu Einars Benediktssonar. Í úrskurði Óbyggðanefndar um eignarréttindi á Gnúpverjaafrétti frá 21. mars sl. sé komist að þeirri niðurstöðu að framsal þessara rétt- inda hafi af hálfu Gnúpverjahrepps byggst á vanheimild þar eð beinn eignarréttur hreppsins á afréttinum hafi aldrei verið fyrir hendi. Af því leiði að síðari aðilaskipti að þessum réttindum séu haldin sama ann- marka og Landsvirkjun geti ekki byggt rétt sinn á framsali þeirra frá ríkinu með áðurnefndum samningi. Að gengnum þessum úrskurði þykir ljóst að grundvallarbreyting hafi orðið á hefðbundinni eignarréttar- legri stöðu Landsvirkjunar á þessu svæði við gildistöku þjóðlendulaga. Eftir hana telst ríkið eigandi þeirra fasteignarréttinda, lands- og vatnsréttinda, á Gnúpverjaafrétti, sem ætlun þess var, að leggja til Landsvirkjunar 1965 og eignarhald þess í fyrirtækinu hefur ásamt öðru byggst á. Eigendur fyrirtækisins hafa að undanförnu fjallað um hvernig óbreytt réttarstaða fyrirtækisins verði tryggð að breyttri réttarskip- an á svæðinu. Hafa eigendurnir sammælst um að réttarstaða þess verði ekki að fullu tryggð, nema ríkinu verði með lögum heimilað að framselja Landsvirkjun þau rétt- indi, sem samningurinn frá 1965 tók, enda hafi framsal þeirra í ljósi niðurstöðu óbyggðanefndar byggst á vanheimild, sem ekki verði bætt úr á annan hátt. Hafa bæði borg- arstjórinn í Reykjavík og bæjar- stjórinn á Akureyri staðfest þá af- stöðu bréflega og beint því til ríkisstjórnarinnar að hún beiti sér fyrir lagasetningu í þá veru, sem hjálagt frumvarp felur í sér. Afsalar vatnsréttindum til Landsvirkjunar Frumvarp um að vatnsréttindi í Þjórsá verði skýrð SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA, Árni M. Mathiesen, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, en markmið frumvarps- ins er að framlengja það ákvæði í lögunum sem hefur þann tilgang að koma í veg fyrir brottkast með því að heimila hverju fiskiskipi að koma með að landi allt að 5% af heildarafla botnfisks, sem ekki reiknast til aflamarks skipsins. Um er að ræða fisk sem er verð- lítill eða utan aflaheimildar út- gerðar og slæðst hefur með veið- um á öðrum fisktegundum. Skal aflinn seldur á fiskmörkuðum og skiptast þannig að fjórir hlutar fari til Hafrannsóknastofnunar- innar og einn hluti skiptist á milli áhafnar og útgerðar. Samkvæmt núgildandi lögum tekur umrætt ákvæði til fiskveiði- ársins 2002/2003 en með frum- varpinu er lagt til að það taki til fiskveiðiáranna 2003/2004 og 2004/2005. Frumvarpið leggur m.ö.o. til að ákvæðið verði fram- lengt um tvö fiskveiðiár. Þegar ákvæðið var upphaflega lögfest árið 2001 kom fram að óvíst væri að hve miklu marki þetta ákvæði yrði nýtt. Því þótti rétt að hafa það tímabundið. „Nú liggur fyrir að á tímabilinu 1. febrúar 2002 til loka fiskveiði- ársins […] eða á sjö mánaða tímabili nýttu um það bil 250 fiskiskip þessa heimild og komu þau samtals með tæpar 800 lestir að landi sem ekki reiknuðust til aflamarks. Má ætla að þannig hafi um það bil 70 milljónir kr. runnið til Hafrannsóknastofnun- arinnar,“ segir í athugasemdum frumvarpsins. Ákvæði til að afstýra brottkasti framlengt Menntamálaráð- herra vísar gagn- rýninni á bug

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.