Morgunblaðið - 12.02.2003, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 12.02.2003, Qupperneq 12
FRÉTTIR 12 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Almenn ánægja með ákvarðanirnar Samþykkt ríkisstjórnarinnar um að veita 6,3 milljarða króna til eflingar atvinnulífsins á næstu mánuðum mælist almennt vel fyrir hjá talsmönnum atvinnulífsins, Vegagerðarinnar, Hagfræðistofnunar og fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna. GRÉTAR Þorsteinsson, forseti Al- þýðusambands Íslands, segir að samþykkt rík- isstjórnarinnar varðandi eflingu atvinnutækifæra sé mikið fagn- aðarefni. „Við höfum verið að kalla eft- ir því annars vegar að flýta verkefnum og hins vegar að fitja upp á ein- hverjum nýjum framkvæmdum á næstu sex til 18 mánuðum. Þetta lýtur allt í þá áttina og því fögnum við þessum tillögum,“ segir Grétar. Atvinnuleysi hefur verið nokkurt að undanförnu og segir Grétar að samþykkt ríkisstjórnarinnar leysi það ekki alfarið en bæti verulega úr ástandinu og það skipti afar miklu máli. „Það er þægilegt að sjá fram- an í þessa ákvörðun í dag [í gær] eftir að það voru auðvitað ákveðin vonbrigði að Seðlabankinn skyldi ekki ganga lengra í gær [fyrra- dag],“ segir Grétar og vísar þar til vaxtaákvörðunar bankans. Grétar segir að þegar á heildina sé litið sé það fagnaðarefni að þess- ar tillögur skuli liggja fyrir og setja eigi um 6,3 milljarða í boðaðar framkvæmdir, en það sé lykilatriði að allri bregðist skjótt við og ekki síst viðkomandi sveitarfélög. „Það ríður á að ekki bara ríkisstjórnin heldur líka sveitarfélögin standi í stykkinu um að reyna að flýta þessu eins og mögulegt er því að einhverju leyti er um að ræða fram- kvæmdir sem þurfa að fara fyrir skipulagsyfirvöld og kannski í enn frekari umfjöllun hjá viðkomandi sveitarfélögum. Þá er auðvitað afar mikilvægt að sveitarfélögin, sem þetta snertir, séu vel vakandi yfir því að þetta eru framkvæmdir sem við þurfum að koma af stað á morg- un, eins og þar stendur.“ Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ Tillögurnar fagnaðarefni „NÚ ER það mál að sannast að við vissum ekki um þetta fyrr en núna áðan [í gær],“ seg- ir Jón Rögnvalds- son, nýskipaður vegamálastjóri, í samtali við Morg- unblaðið, um sam- þykkt ríkisstjórn- arinnar frá í gær um að veita 6,3 milljörðum í vega- framvæmdir og önnur verkefni á næstu 18 mánuðum. „Þannig að það verður frekar fátt um svör, við þurfum að átta okkur á málinu. Þetta er ákvörðun rík- isstjórnarinnar og við þurfum bara að bretta upp ermarnar og gera það sem við getum,“ segir Jón, spurður um þær hvenær hægt verði að hefj- ast handa við einstaka framkvæmdir, t.a.m. á höfuðborgarsvæðinu. „Sannleikurinn er sá að á höf- uðborgarsvæðinu tekur hönnun og öll umfjöllun um mál mjög langan tíma. Við þurfum að átta okkur á því hvað er til. Við gerum okkur nú samt vonir um að það sé hægt að hrista eitthvað fram úr erminni,“ segir hann, spurður hvort búið sé að hanna einstök mannvirki á höfuðborg- arsvæðinu sem hægt yrði að hefja framkvæmdir við. „Þetta eru auðvitað gríðarlega miklir viðbótarpeningar á þessum stutta tíma, en eins og ég segi, þetta á náttúrulega að vera til þess að auka atvinnu og þá verðum við að gera okkar til þess að það takist.“ Jón segir að það liggi fyrir að ein- hverjar af þeim framkvæmdum sem hafist yrði handa við séu búnar að fara í umhverfismat, t.d. Reykjanes- brautin úr Kópavogi og suður í Hafn- arfjörð. Jón nefnir að nú þurfi að at- huga hvort unnt sé að stækka þann vegarkafla sem fyrirhugað var að byrja á. Aðpurður hvort 500 milljóna króna fjárveiting til gangagerðar undir Al- mannaskarð dugi til að ljúka verkinu, segir Jón ljóst að svo sé ekki og að rætt hafi verið um á sínum tíma að verkið kostaði í heild um 700 millj- ónir. Á hitt beri að líta að að öðrum kosti þyrfti að fara í vegagerð á þess- um slóðum og því ekki óeðlilegt að eitthvað af fjármunum Vegagerð- arinnar renni til verkefnisins. Að sögn Jóns ráðgerir Vegagerðin að skýra frá einhverjum þeim fram- kvæmdum sem framundan eru síðar í þessari viku. Jón Rögnvaldsson, vegamálastjóri Frétti af ákvörðuninni í gær „AUÐVITAÐ fagnar Samfylkingin því þegar ríkisstjórnin grípur til hefð- bundinna ráða jafnaðarmanna til þess að ýta undir sköpun starfa þegar í óefni stefnir af hennar völdum í atvinnu- málum. Hinu er ekki að leyna að þessi áætlun ber sterkan keim af þeirri taugaveiklun sem ríkir nú inn- an stjórnarliðsins í ljósi þess að það er skammt til kosninga og það fjarar ört undan stjórnarflokkunum eins og kannanir hafa sýnt,“ segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylk- ingarinnar, um þá ákvörðun rík- isstjórnarnir að veita milljarða í vega- framkvæmdir, menningarhús og önnur verkefni á næstu 18 mánuðum. „Það er ekki nema vika liðin síðan lögð var fram samgönguáætlun sem nú er búið að gjörbreyta. Þá var ríkt gengið eftir því af hálfu Samfylking- arinnar hvort ekki væri unnt að ráð- ast í flýtiframkvæmdir til þess að vinna upp slakann í atvinnulífinu og skapa fleiri störf. Þá var því blákalt haldið fram af stjórnvöldum að það væri mjög erfitt vegna þess að ekki lægi fyrir fullnaðarhönnun og um- hverfismat á veigamiklum fram- kvæmdum. Nú allt í einu, viku seinna, þá er þetta hægt,“ segir Össur. „Ég vek auðvitað athylgi á því að það er allsendis óvíst að það verði í höndum núverandi ríkisstjórnar að fylgja þessum loforðum eftir vegna þess að öll þessi verk verða meira og minna unnin á næsta kjörtímabili þegar vera kann að allt önnur rík- isstjórn sitji.“ Össur segir að sömuleiðis sé óvíst um fjármögnun þessara fram- kvæmda á núverandi kjörtímabili því eftir sé að selja hluti í ríkisstofnunum vegna þessa. Óvíst sé hvort þessi eða næsta ríkisstjórn geri það. „Ég hlýt síðan að vekja eftirtekt á því að það virkar skondið í besta falli að sjá þarna gömul kosningaloforð endurnýtt, eins og t.d. kosningaloforð um menningarhús á landsbyggðinni sem Sjálfstæðisflokkurinn lofaði fyrir síðustu kosningar og sveik fyrir síð- ustu kosningar. Og hver er kominn til með að segja að hann standi við það núna?“ Hann segir að þó það sé alveg ljóst að taka þurfi til hendinni á lands- byggðinni til að treysta atvinnulíf þar þá sé eigi að síður ljóst að hlutfallið milli landsbyggðar og höfðuborg- arsvæðisins, eins og það birtist í áætl- un ríkisstjórnarinar um auknar vega- framkvæmdir, sé óviðunandi að sínu viti. „Væri Samfylkingin við völd er al- veg ljóst að hún hefði lagt meiri pen- ing til þess að ýta undir framkvæmdir við samgöngumannvirki á höfuðborg- arsvæðinu. Það er sláandi að einungis einn milljarður er settur í flýtifram- kvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er með ólíkindum en sýnir auð- vitað þann hug sem Sjálfstæðisflokk- urinn hefur til höfuðborgarinnar og hefur birt með endurteknum hætti. Þetta er eiginlega kornið sem fyllir þann mæli finnst mér.“ Össur Skarphéð- insson, formaður Samfylkingarinnar Ber sterkan keim af tauga- veiklun ÁKVARÐANIR ríkisstjórnarinnar til að efla atvinnulífið hafa góð áhrif og hjálpa til við að koma efnahagslíf- inu af stað, að sögn Tryggva Þórs Herberts- sonar, forstöðu- manns Hag- fræðistofnunar. Tryggvi Þór Herbertsson seg- ir að peningunum sem eigi að verja í vegaframkvæmdir sé vel varið. Þar sé verið að leggja til fé í uppbyggingu innviðanna sem geri það meðal annars að verkum að vega- lengdir milli ákveðinna staða styttist. „Hagkerfið verður hagkvæmara á eftir því það er hagkvæmt að fara út í samgöngubætur,“ segir hann en set- ur spurningarmerki við milljarð í menningarhús á Akureyri og í Vest- mannaeyjum. „Ég held að það sé ekki alveg það sem liggi mest á í hagkerf- inu að byggja menningarhús í Vest- mannaeyjum og á Akureyri. Aftur á móti mun bygging þessara húsa skapa störf, en þá er spurning hvort ekki hefði verið hægt að verja þeim milljarði á skynsamlegri hátt en gert verður. En það er ótvírætt að vega- framkvæmdirnar hafa þau áhrif að hagkerfið verður sprækara á eftir.“ Aðgerðirnar eru mjög í takt við það sem Hagfræðistofnun hefur bent á að undanförnu, að sögn Tryggva Þórs. „Þær virka mun fyrr og mun betur heldur en að lækka vexti Seðlabank- ans eins og margir hafi verið að biðja um því það er aðgerð sem myndi ekki fara að skila sér fyrr en eftir 6 til 18 mánuði.“ Tryggvi Þór Herberts- son, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Hagkerfið verður hagkvæmara „VIÐ fögnum þessu útspili,“ segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, um ákvörðun rík- isstjórnarinnar varðandi auknar vegafram- kvæmdir og fleira til eflingar atvinnulífsins á næstu mánuðum. Ari Edwald segir að það sé gott svigrúm fyrir boðaðar framkvæmdir og tímasetn- ing þeirra sé góð vegna þess slaka sem sé í efnahagslífinu, lítillar eft- irspurnar á vinnumarkaði og vax- andi atvinnuleysis. Mikilvægt sé að þessar framkvæmdir falli ekki sam- an við stóriðjuframkvæmdirnar 2005 og 2006, en þá þurfi líka að draga úr öðrum framkvæmdum hins opinbera. „Þannig að þetta út- spil verður raunverulega til þess að jafna eftirspurnarsveiflurnar,“ seg- ir hann og bætir við að útspilið vinni ekki aðeins á móti slakanum sem hafi verið að myndast heldur búi í haginn fyrir virkjunarfram- kvæmdirnar síðar. Hvernig staðið er að fjármögnun er einnig fagnaðarefni, að sögn Ara. „Það er mjög jákvætt að tæki- færið sé notað til þess að ljúka einkavæðingu ríkisbankanna fyrr- verandi og Íslenskra aðalverktaka.“ Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA „Við fögnum þessu útspili“ Átak ríkisstjórnarinnar til eflingar atvinnulífsins á næstu mánuðum STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for- maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, segist í öllum að- alatriðum vera mjög ánægður með útspil rík- isstjórnarinnar í atvinnumálunum. Steingrímur segir að á mánu- dag hafi hann beðið um umræðu utan dagskrár á Alþingi um það, hvort ríkisstjórnin væri með einhver áform á prjónunum um að hraða mannaflsfrekum framkvæmdum í ljósi mikils slaka í efnahagsmálum og vaxandi atvinnuleysis. Í gær hefði hann verið í sambandi við forsæt- isráðuneytið vegna umræðnanna um málið í dag og menn hefðu verið svo- lítið kindarlegir í svörum. „Ég skil betur núna hvers vegna það var en ætli umræðan fari ekki fram og snú- ist upp í umræðu um þetta útspil og nánari útfærslu þess,“ segir hann. Að sögn Steingríms er útspil rík- isstjórnarinnar mikilvæg viðurkenn- ing á því að skynsamlegt sé að grípa til aðgerða til að sporna gegn vax- andi atvinnuleysi. „Ég held að þess- ar framkvæmdir, sem farið verður í, séu í flestum tilfellum allar bráð- nauðsynlegar. Ég vil sérstaklega fagna því að samgönguframkvæmdir á norðausturhorni landsins og Vest- fjörðum fá þarna mikinn forgang sem og auðvitað brýnar fram- kvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Á þetta höfum við einmitt lagt áherslu, að eitt af því skynsamlegasta sem menn geta gert í atvinnu- og byggðalegu tilliti væri að leggja meira í samgöngubætur.“ Horfa hefði mátt til fleiri sviða eins og til dæmis uppbyggingar stofnana og starfsemi á sviði vel- ferðamála eða uppbyggingar í fjar- skiptamálum úti um landið, að sögn Steingríms, en hann segir að alltaf megi ræða um hvar bera eigi niður hverju sinni. „Efnahagslega er gott lag til að gera þetta. Við höfum áður lagt til sambærilegar aðgerðir til að bæta aðstæður til dæmis afskekktari landshluta til að tengjast meginþjóð- vegakerfinu og þar með allri þeirri margþættu þjónustu og atvinnu- starfsemi og öðru slíku sem á spýt- unni hangir.“ Steingrímur segir að þegar um- ræða hafi verið um söluandvirði bankanna hafi hann einmitt að- spurður svarað því til, burtséð frá deilum um einkavæðingu þeirra sem slíkra, að hann teldi söluandvirði Steingrímur J. Sigfús- son, formaður VG Sama hvaðan og hvenær gott kemur þeirra best varið í að styrkja und- irstöður og innviði samfélagsins í formi bættra samgangna, fjarskipta og eflingar almennrar þjónustu og slíkra hluta. „Í það heila tekið er þetta að mínu mati skynsamlegt. Þegar einhverjir kunna að finna af þessu kosningalykt þá segi ég ekki bara að mér sé sama hvaðan gott komi heldur er mér líka sama hve- nær gott kemur.“ GUÐJÓN A. Kristjánsson, þingmað- ur Frjálslynda flokksins, segir að við- brögð ríkisstjórn- arinnar við atvinnuleysinu komi á réttum tíma, því boðaðar aðgerðir lagfæri atvinnuástandið og efli fram- kvæmdir í landinu, sem full þörf sé á, miðað við hvernig mál hafi þróast. „Þetta er innspýting á réttum tíma,“ segir hann og leggur áherslu á mikilvægi þess að takast á við nýjar framkvæmdir sem og að flýta verk- efnum áður en veruleg uppbygging við Kárahnjúka og á Austfjörðum og hugsanleg stækkun Norðuráls á Grundartanga fari á fulla ferð. „Ég tel því að þetta sé af hinu góða ef um var- anlega lagfæringu er að ræða.“ Guðjón segir að fyrirhugaðar að- gerðir séu stór þáttur í að snúa at- vinnuþróuninni við og í samræmi við það sem hann hafi spurt um í utan- dagskrárumræðum á Alþingi á dög- unum, en þá hafi hann bent á að ýmis þörf verkefni biðu á þjóðvegum lands- ins. Eins sé gott að nota peninga, sem fáist við sölu bankanna, í þessum til- gangi. „Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að ef hægt er að gera var- anlegar lausnir í vegagerð er það góð fjárfesting fyrir landið í heild.“ Guðjón A. Kristjáns- son, Frjálslynda flokknum Innspýting á réttum tíma

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.