Morgunblaðið - 12.02.2003, Qupperneq 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 13
PARSPRO.COM hefur skrifað undir
samning um veflausnir við austur-
ríska veðmálafyrirtækið Admiral
Sportwetten (www.admiral.at) en
samningurinn er að verðmæti að lág-
marki 100 milljónir króna til næstu
þriggja ára.
Parspro er netfyrirtæki sem sér-
hæfir sig í þjónustu við veðmálafyr-
irtæki og hýsingu vefja þeirra.
Sigurður Baldursson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, segir að
Admiral velti um 12 milljörðum á ári
en fyrirtækið er dótturfyrirtæki
Parspro.com semur við austurrískt fyrirtæki
Novo Matic sem
er að sögn Sigurð-
ar eitt allra
stærsta fyrirtæki
í heimi í fram-
leiðslu á casino-
búnaði. Hann seg-
ir að Admiral hafi
fundið Parspro á
Netinu og sett sig
í samband við þá í
kjölfarið. „Þetta er mjög skemmtilegt
hjónaband ef svo má að orði komast
og það að vera komnir í samstarf við
jafnstórt fyrirtæki og Admiral er
mikil viðurkenning fyrir okkur.“
Hann segir að Admiral hafi valið
Parspro úr hópi 4–5 fyrirtækja en
hlutverk Parspro í samningnum er að
þróa internet-lausnir fyrir veðmála-
starfsemi Admiral sem sér framtíð
starfsemi sinnar í auknum mæli á
Netinu að sögn Sigurðar.
Hann segir að nú þegar séu þeir
Parspro-menn farnir að setjast niður
með Admiral til að semja um fleiri
lausnir en þessa einu. „Þetta er bara
byrjunin,“ sagði Sigurður að lokum.
Sigurður
Baldursson
100 milljóna króna samningur
EIMSKIP ehf. hefur ásamt breska
fyrirtækinu Menzies stofnað fyr-
irtæki um rekstur þjónustuseturs
á Schiphol flugvelli í Hollandi.
Hvort félag á helmingshlut í fyr-
irtækinu sem bera mun heitið
Freshport BV og reka 3.200 fer-
metra þjónustusetur fyrir ferskar
afurðir, einkum sjávarafurðir, kjöt,
lifandi fiska o.fl.
Þjónustusetrið, sem opna á í
apríl nk., verður búið kæli- og
frystiklefum ásamt loftkældum
svæðum skv. ströngustu gæðakröf-
um Evrópusambandsins og verður
því hægt að losa flugvélar og með-
höndla afurðir beint inn í kæli- eða
frystirými.
Menzies rekur víðtæka þjónustu
við farþega- og fraktflugvélar víða
um heim, að því er fram kemur í
tilkynningu frá Eimskip.
Að sögn Erlends Hjaltasonar
hefur aðstaða fyrir ferskar afurðir
á Schiphol ekki verið nægjanlega
góð hingað til. „Schiphol er einn af
fjórum stærstu fraktflugvöllum í
Evrópu en það hefur hingað til
ekki verið nógu góð aðstaða fyrir
ferskar afurðir. Nú erum við að
setja upp aðstöðu sem fullnægir
ströngustu skilyrðum.“ Erlendur
segir stóran hluta þess fisks sem
fer í gegnum Schiphol koma frá
Afríku. Freshport BV þjónustu-
setrið mun jafnframt annast heil-
brigðisskoðun afurða með uppruna
utan Evrópu.
Eimskip rekur einnig flutnings-
miðlunarfyrirtækið Malenstein Air
á Schiphol flugvelli. Malenstein
Air er sérhæft í flutningi á fersk-
um sjávarafurðum, lifandi dýrum
og öðrum ferskum afurðum. Um
100 manns starfa á vegum Eim-
skips í Hollandi og Belgíu og er
áætluð velta af starfseminni 2,6
milljarðar króna á árinu.
Eimskip opnar þjón-
ustusetur á Schiphol
ÞRÓUNARFÉLAG Íslands hf. skil-
aði 61 milljón króna í hagnað eftir
skatta á árinu 2002. Þróunarfélagið
og Eignarhaldsfélagið Alþýðubank-
inn voru sameinuð undi nafni Þróun-
arfélagsins í október 2002. Á árinu
2001 voru félögin tvö rekin með 2.085
milljóna króna halla eftir skatta.
Hrein vaxtagjöld samstæðunnar
voru 157 milljónir króna á síðasta ári
en 366 milljónir árið 2001 en aðrar
rekstrartekjur voru 1.106 milljónir
árð 2002 samanborið við 2.432 millj-
óna króna rekstrargjöld árið á und-
an. Í tilkynningu frá félaginu segir
að þessi niðurstaða skýrist í megin-
atriðum af þremur þáttum. Styrking
krónunnar hafi skilað 383 milljóna
gengishagnaði, hagstæð gengisþró-
un á skráðum hlutabréfum gefi 535
milljóna gengishagnað og gengis-
hagnaður af skuldabréfum nemi 70
milljónum.
Önnur rekstrargjöld Þróunar-
félagsins voru 223 milljónir árið 2002
borið saman við 323 milljónir árið á
undan.
Fram kemur í tilkynningunni að
afskriftareikningur fjárfestingar-
hlutabréfa hafi verið myndaður til að
mæta þeirri áhættu sem fylgir bréf-
unum. Samanlagt er mat óskráðra
eigna lækkað um 618 milljónir króna
á ársreikningi fyrir árið 2002.
Annars vegar er þar um að ræða
niðurskrift færslu þar sem áætlað
markaðsverðmæti einstakra fjár-
festingarhlutabréfa er lægra en
kostnaðarverð þeirra, samtals 393
milljónir. Hins vegar er niðurfærsla
til að mæta almennri áhættu sem
felst í eignum í slíkum bréfum og eru
225 milljónir gjaldfærðar vegna
þeirrar áhættu.
Niðurstaða efnahagsreiknings
2002 er 11.287 milljónir króna og
hefur lækkað úr 12.014 milljónum
frá árslokum 2001. Bókfært eigið fé
félagsins í lok ársins nam 4.527 millj-
ónum króna að meðtöldu hlutafé að
fjárhæð 2.216 milljónir. Eigið fé fé-
lagsins hefur lækkað um 318 millj-
ónir frá áramótum.
Eiginfjárhlutfall félagsins í lok
ársins 2002, samkvæmt ákvæðum
laga um lánastofnanir aðrar en við-
skiptabanka og sparisjóði, var 33,2%
en 33,5% árið áður.
Hluthafar Þróunarfélagsins eru
um 1.500 talsins.
Þróunar-
félagið
með 61
milljón
í hagnað
!"
""#
##$%
&
'%#!
' (
)
*
%+%$
"( +
"(
!#!
' "&
& &
,
$
#$%(
+#%,
"!"(
-
. * -
. */ 0
)
12345
&((
#+&
&&6 7
##
'#,+(
",
&&6(7
#&
!"
#$%&%'"
&##
$$(!)*"
NORSKA ríkisstjórnin vill nú gera
fjarskiptafyrirtækjum hægara um
vik að fá leyfi til að setja upp og reka
kerfi fyrir þriðju kynslóð farsíma,
svokölluð UMTS-leyfi, með því að
minnka kröfur á leyfishafa.
Upphaflega voru fjögur leyfi í boði
en aðeins tvö þeirra hafa verið notuð
og enginn sýnt hinum tveimur áhuga.
AP fréttastofan sagði frá þessu.
Síðast voru UMTS-leyfi boðin út í
Noregi í desember árið 2000 en þær
kvaðir lágu á leyfishöfum að fjar-
skiptanet þeirra yrði að ná til a.m.k.
40% landsmanna á innan við 5 árum.
Nú hyggst samgöngu- og fjarskipta-
málaráðherra Noregs, Torhild
Skogsholm, létta á þessum kröfum og
minnka niður í 30% á innan við 6 ár-
um frá því leyfið er gefið út. Ráð-
herrann sagðist telja nauðsynlegt að
draga úr kröfum og skapa þannig að-
stæður til virkrar samkeppni á fjar-
skiptamarkaði í Noregi.
Létt á kröfum
norskra
leyfishafa