Morgunblaðið - 12.02.2003, Page 20
SUÐURNES
20 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
EIGANDI kanadíska leiguflug-
félagsins HMY Airways hefur
ákveðið að hætta flugi til Evrópu
eftir 5. mars. Ástæðan er sögð
áhrif yfirvofandi stríðs við Persa-
flóa og hugsanleg hryðjuverk á
markaðinn í Evrópu. Flugvélar fé-
lagsins hafa millilent á Keflavík-
urflugvelli.
HMY Airways hóf um miðjan
desember síðastliðinn vikulegt flug
frá Vancouver og Calgary í Kanada
til Manchester í Englandi með við-
komu á Keflavíkurflugvelli. Áform
voru um að fjölga viðkomustöðum í
Evrópu í sumar og fljúga 4–5 sinn-
um í viku eða oftar.
Steinþór Jónsson, umboðsmaður
flugfélagsins á Íslandi, fékk heimild
hjá flugmálayfirvöldum hér á landi
til að kanadíska félagið gæti flutt
farþega og vörur milli Íslands og
Kanada og fóru fyrstu Íslending-
arnir vestur um haf 20. janúar. Síð-
an hafa um 300 farþegar bókað flug
út apríl en sumaráætlun með fleiri
ferðum átti að taka gildi 1. maí.
Kom á óvart
Stjórnendur flugfélagsins til-
kynntu Steinþóri Jónssyni það í
fyrrakvöld að ákveðið hefði verið
að hætta flugi til Evrópu 10. mars
vegna yfirvofandi stríðs við Persa-
flóa og hugsanlegra hryðjuverka.
Fram kemur í bréfi James
Westmacott, aðstoðarforstjóra
HMY Airways Inc., að félagið telji
sig knúið til að endurskoða við-
skiptaáætlun sína um Evrópuflugið
vegna óvissu um markaðinn þar
vegna ástandsins í Írak og annarra
öryggisþátta. Í staðinn verður lögð
áhersla á flug innan Norður-Am-
eríku og þegar til lengri tíma er lit-
ið einnig þjónustu við Asíumark-
aðinn.
Síðasta flug til Íslands verður 3.
mars og síðasta flug héðan til Kan-
ada 5. mars. Allar ferðir eftir það
samkvæmt vetraráætlun til 30. apr-
íl eru felldar niður og ákvörðun um
sumaráætlun frestað til 28. febr-
úar. Af orðsendingu aðstoðarfor-
stjórans til Steinþórs er þó ljóst að
ólíklegt er að þá verði hafið flug til
Evrópu.
Steinþór Jónsson segir að far-
þegar sem hafi greitt fargjald til
Kanada fái það að fullu endurgreitt
og kanadíska félagið muni sjá um
að koma þeim farþegum sem
komnir eru til Kanada heim aftur.
Steinþór Jónsson segir að þessi
ákvörðun eiganda kanadíska flug-
félagsins hafi komið sér mjög á
óvart og hann hafi orðið fyrir von-
brigðum með hana eftir þá miklu
vinnu sem hann hafi lagt í málið.
Segist hann hafa það staðfest að
stjórnendur félagsins hafi verið að
vinna að undirbúningi fjölgunar
ferða til Evrópu alveg fram á föstu-
dag. Segir hann það ekki sitt hlut-
verk að leggja mat á það hvort for-
sendur ákvörðunarinnar séu réttar
eða ekki. Hins vegar hafi allar aðr-
ar ytri aðstæður verið hagstæðar.
Nefnir í því sambandi að yfirvöld
hér á landi hafi verið fljót að af-
greiða ósk félagsins um að flytja
farþega milli Íslands og Kanada,
margir ferðaþjónustuaðilar hafi
sýnt áhuga á að selja ferðir og bók-
anir Íslendinga sýndu að mikill
áhugi væri hér á landi fyrir þessum
valmöguleika í flugi. Segir hann að
mikið hafi verið bókað í flug HMY
Airways, þannig sé fullbókað í allar
ferðir vestur um haf það sem eftir
er þessa mánaðar og einnig í sumar
vélarnar sem áttu að fara í apríl.
Höldum ótrauðir áfram
Að sögn Steinþórs er niðurstað-
an eftir þessa ákvörðun HMY Air-
ways þó sú að mönnum er ljóst að
þarna eru mikil sóknarfæri. „Þrátt
fyrir erfiðan dag í dag mun ég
vissulega leita allra leiða, með eða
án HMY Airways, til að koma aftur
á flugsamgöngum milli Íslands og
Kanada. Við munum halda ótrauðir
áfram,“ segir Steinþór.
Fram hefur komið áður að hann
hefur verið í sambandi við fleiri
kanadísk flugfélög sem hafa verið
að íhuga flug til Evrópu, bæði frá
vesturhluta Kanada og austurhlut-
anum. Meðal þessara félaga er
Canada West, sem hefur verið að
kanna forsendur flugs á sömu nót-
um og HMY Airways. Steinþór
segist ekki vita hvaða áhrif ákvörð-
un HMY Airways hafi á önnur
flugfélög, hvort hún auki eða
minnki líkurnar á að þau hefji flug
á þessari leið.
HMY Airways hættir öllu flugi til Evrópu eftir 5. mars
Óttast afleiðingar
stríðs við Persaflóa
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Keflavíkurflugvöllur
KOMINN er til starfa heilsugæslu-
læknir í Grindavík. Hóf hann störf
hjá Heilbrigðisstofun Suðurnesja
um mánaðamótin.
Læknir hefur ekki verið starfandi
í Grindavík frá því allir heilsugæslu-
læknar á Suðurnesjum sögðu upp
störfum og hættu á síðasta ári.
Læknirinn, Jacek Kantorski, kemur
af Landspítala Íslands–háskóla-
sjúkrahúsi þar sem hann var að ljúka
sérnámi í heimilislækningum.
Krabbameinslæknir ráðinn
Tveir læknar eru á heilsugæslu-
stöðinni í Keflavík, eins og verið hef-
ur undanfarnar vikur. Sigríður Snæ-
björnsdóttir, framkvæmdastjóri
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja,
segir að Sigurður Árnason krabba-
meinslæknir hafi verið ráðinn í 80%
starf hjá stofnuninni sem yfirlæknir
og starfi hann bæði á sjúkrahúsinu
og heilsugæslustöðinni. Þá sé búið að
fá innkirtlasérfræðing til að starfa í
móttöku einu sinni í viku og vonast
sé til að hægt verði að auka þjónustu
barnalækna. Loks getur hún þess að
næringarfræðingur hafi verið ráðinn
í hlutastarf.
Sigríður segist gjarnan vilja fá
fleiri heimilislækna til starfa en það
sé ekki hægt eins og er. Hún segir að
þrátt fyrir fámennið á heilsugæslu-
stöðinni gangi þokkalega að veita
fólki þjónustu.
Heilsu-
gæslulæknir
kominn
til starfa
Grindavík
ÁGÚST GK 95, skip Þorbjarnar
Fiskaness hf. í Grindavík, er á leið
heim frá Póllandi. Í skipasmíðastöð
í Gdynia var skipinu breytt úr
nóta- og togveiðiskipi í línu- og
netaskip. Verður skipið stærsta
línuveiðiskip landsmanna, um 600
brúttótonn.
Skipið hélt af stað frá Póllandi
síðastliðinn sunnudag og er vænt-
anlegt til Grindavíkur næstkom-
andi laugardag. Áður en haldið var
af stað var farið í reynslusiglingu
sem gekk vel, að því er fram kemur
á heimasíðu Þorbjarnar Fiskaness.
Þegar Ágúst kemur til Grindvík-
ur verða sett tæki í skipið, meðal
annars línuspil, ískerfi, beitning-
arvél, kælikerfi og aðgerðarlína. Í
skipinu verður kælilest sem mun
taka 370 ker fyrir krapaísaðan fisk
og tekur hvert þeirra 460 lítra.
Ágúst GK á heim-
leið eftir breytingar
Grindavík
„ÞETTA var frekar rólegt og engin
mál komu upp sem hægt var að
hrista upp í,“ segir Hallvarður V.
Rúnarsson sem nýlega sat sinn
fyrsta fund í bæjarstjórn Sandgerð-
is. Hann er með yngstu bæjarfulltrú-
um í sögu Sandgerðisbæjar en upp-
lýsingar liggja ekki fyrir um það
hvort hann er sá alyngsti.
Hallvarður er varabæjarfulltrúi
Sandgerðislistans og tók sæti á fund-
inum í forföllum Ólafs Þór Ólafsson-
ar, bæjarfulltrúa listans. Þeir stóðu
að þessu nýja framboði í vor og fengu
einn mann kjörinn. Hallvarður segist
hafa haft áhuga á að hrista upp í hlut-
unum þegar hann tók þátt í að bjóða
fram listann. Síðan hafi vinnan orðið
málefnalegri og menn séð að ýmis-
legt þyrfti að bæta í bæjarfélaginu.
Hann segir að hvorki hann né
Ólafur Þór hafi séð sig í því hlutverki
að leiða framboðið en þeir sátu síðan
uppi með það og hafa nú báðir setið
fund bæjarstjórnar.
Hallvarður segir að ekki hafi orðið
harðar umræður á hans fyrsta bæj-
arstjórnarfundi og engin mál komið
upp sem hægt hefði verið að hrista
upp í.
Tímabundinn maður
Hallvarður er fæddur og uppalinn
í Sandgerði og hefur tekið mikinn
þátt í félagsmálum, meðal annars í
grunnskóla og fjölbrautaskóla þar
sem hann var varaformaður. Þá situr
hann í stjórn Félags ungra jafnaðar-
manna á Suðurnesjum.
Hann hefur ekki mikinn tíma fyrir
félagsstörf um þessar mundir vegna
anna í vinnu. Hallvarður starfar við
forfallakennslu við Grunnskóla
Sandgerðis fyrir hádegi og er stuðn-
ingsfulltrúi í dagvist fyrir fatlaða í
Ragnarsseli í Keflavík eftir hádegi.
Þá vinnur hann aðra hvora helgi við
dagvist fatlaðra í Lyngseli í Sand-
gerði og hina helgina í sambýli fyrir
fatlaða í Njarðvík.
21 árs varabæjarfulltrúi
situr sinn fyrsta fund
Ekki hægt
að hrista upp
í neinu
Sandgerði
HREPPSNEFND Gerðahrepps
hefur áhuga á frekari uppbyggingu í
þágu aldraðra á eignarlóð Garðvangs
í Garði. Stjórn Dvalarheimila á Suð-
urnesjum vill bíða með umfjöllun um
þessar hugmyndir vegna úttektar á
stöðu öldrunarmála á Suðurnesjum
sem verið er að ráðast í. Hrepps-
nefnd Gerðahrepps óskaði eftir því
við stjórn Dvalarheimila á Suður-
nesjum að hafinn yrði undirbúningur
að byggingu þjónustuíbúða á lóð
Garðvangs. Stjórnin taldi ekki tíma-
bært að ræða beiðni hreppsins og
vísaði í því efni til mikilvægis þess að
stefnan í öldrunarmálum á Suður-
nesjum lægi fyrst fyrir. Dvalarheim-
ili á Suðurnesjum hafa samþykkt að
eiga aðild að slíkri stefnumörkun.
Á síðasta fundi hreppsnefndar
Gerðahrepps var samþykkt sam-
hljóða að leggja áherslu á að þau
sveitarfélög sem standa að rekstri DS
nái samkomulagi hið fyrsta um að
hefja undirbúning og framkvæmdir
að frekari uppbyggingu íbúða aldr-
aðra og þjónusturýmis sem tengist
Garðvangi þjónustulega. Bent er á
upplýsingar frá þjónustuhópi aldr-
aðra þar sem fram komi að brýn þörf
sé fyrir þjónustuhúsnæði og hjúkr-
unarrými.
Vilja frekari
uppbygg-
ingu við
Garðvang
Garður
VERIÐ er að kanna möguleika á að
bæta við ferðum almenningsvagna í
Reykjanesbæ um helgar.
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar og
SBK hf. standa að þessari könnun.
Gert er ráð fyrir tveimur til fjórum
ferðum á dag, á laugardögum og
sunnudögum, og er óskað eftir ábend-
ingum íbúa um það á hvaða tíma dags
hentugast sé að ferðir séu farnar.
Unnt er að koma ábendingum á fram-
færi með því að senda tölvupóst á
straeto@reykjanesbaer.is.
Hugað að
strætóferðum
um helgar
Reykjanesbær
NÝ stjórn og varastjórn var kosin á
aukaaðalfundi Heimis, félags ungra
sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ.
Georg Brynjarsson er nýr formað-
ur félagsins.
Að venju skipti stjórn með sér
verkum á fyrsta stjórnarfundi en
þá var Guðmundur Jóhann Árna-
son kjörinn varaformaður, Árni
Árnason ritari og Pétur Örn Helga-
son gjaldkeri. Meðstjórnendur eru
Hermann Helgason, Rúnar Sigur-
vinsson og Kristján Pétur Krist-
jánsson.
Varastjórn skipa Íris Ósk Val-
þórsdóttir, Björgvin Árnason, Atli
Már Gylfason, Védís Hervör Árna-
dóttir og Andri Örn Víðisson. Þessu
til viðbótar valdi stjórn félagsins í
þrjár nefndir, bæjarmálanefnd,
málefnanefnd og félagsnefnd. Með
þessu er ætlunin að gefa áhugasöm-
um félagsmönnum tækifæri á því
að taka þátt í starfi félagsins og efla
það fyrir komandi kosningabaráttu,
segir í fréttatilkynningu frá Heimi.Nýkjörin stjórn Heimis í Reykjanesbæ.
Georg Brynjarsson
kosinn formaður
Reykjanesbær
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦