Morgunblaðið - 12.02.2003, Page 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 21
Hefurðu áhuga?
Komdu og kynntu þér málið!
Kynningarfundur á Hótel Loftleiðum
fimmtudaginn 13. febrúar kl. 19:00
Grafískri hönnun • Alþjóðaviðskiptum
Hefurðu íhugað að halda áfram námi í Danmörku?
Á dönsku eða ensku?
Ertu stúdent eða faglærð/ur
í fata-, málmtækni-,
raf- eða tölvugreinum?
Erhvervsakademi Syd í Sønderborg
býður upp á iðnfræðinám á:
Erhvervsakademi Syd í Kolding
býður upp á iðnfræðinám í:
Hönnunarsviði
Framleiðslu- og rekstrarsviði
Upplýsinga- og rafeindasviði
Tölvutæknisviði
HIÐ árvissa Þorrablót í heita pott-
inum í Sundlaug Borgarness var
haldið sl. föstudag. Þorrablótið er
haldið af hópi gesta sem hittist
reglulega í pottinum í hádeginu á
virkum dögum. Þetta mun vera í
sautjánda sinn sem hópurinn blót-
ar þorrann í pottinum. Viðstaddir
létu þess getið að reyndar hefði
pizza verið á boðstólum fyrir ári
síðan í stað þorramatar og var það
í mótmælaskyni við aðfarir Norð-
lenska sem yfirtók Goða og lagði
niður starfsemina í Borganesi. Í ár
var svo kominn tími til að end-
urnýja gamla og gilda siði og var
ekki annað að sjá en þorramat-
urinn stæði fyrir sínu.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Bragi Jónsson, Sigurbjörg Viggósdóttir, Guðmundur Sigurðsson, Hildur
Þorsteinsdóttir, Kristín Thorlacius, Sveinn Hálfdanarson, Auðbjörg Pét-
ursdóttir, Gunnar Kristjánsson og Einar Jónsson gæddu sér á fljótandi
þorramatnum. Ekki var annað að heyra en maturinn bragðaðist vel.
Þorri blótaður í
heita pottinum
Borgarnes
BYRJAÐ var að nota nýtt og glæsi-
legt íþróttahús í Vík í Mýrdal á
laugardag með körfuboltamóti milli
Drangs úr Vík og Ármanns frá
Kirkjubæjarklaustri, keppt var í
fimm flokkum. Salurinn er um
530m² og allur hinn glæsilegasti og
er þetta fyrsti íþróttasalurinn í
Vestur-Skaftafellssýslu sem er með
löglegan körfuboltavöll.
Húsið er að mestu leyti tilbúið þó
að enn eigi eftir að ljúka smávægi-
legum atriðum í frágangi þess. Það
er byggingarfélagið Klakkur í Vík
sem byggði húsið og tók byggingin
rúmt ár. Um leið og íþróttahúsið
var byggt var byggð viðbygging við
grunnskólann sem tekin var í notk-
un í haust.
Að sögn Steinþórs Vigfússonar,
formanns byggingarnefndar
íþróttahússins, kostaði það ásamt
skólahúsnæðinu 118 milljónir og er
byggt þannig að hægt er að byggja
síðar sundlaug við það og samnýta
sturtur og búningsklefa fyrir bæði
íþróttahúsið og sundlaugina. Einn-
ig er gert ráð fyrir gufubaði, ljósa-
bekk og lyftingasal í húsinu. Það
hefur verið langþráður draumur
margra Mýrdælinga að eignast al-
mennilegt íþróttahús, en eins og
mörg minni sveitarfélög á landinu
hefur Mýrdalshreppur ekki miklar
tekjur til framkvæmda. Af þeim
sökum var efnt til söfnunar í sveit-
arfélaginu til að hægt væri að fjár-
magna gólfið og þar með ljúka fyrr
við bygginguna. Gólfið ásamt körf-
um, mörkum og öðrum búnaði kost-
aði í kringum átta miljónir fullfrá-
gengið og greiddi jöfnunarsjóður
sveitarfélaga 40% af því. Þess má
geta að staðan er sú í dag að heima-
menn hafa náð að safna fyrir því
sem á vantaði af kostnaði við gólfið.
Margir hafa lagst á eitt og gefið
misstórar gjafir, allt eftir efnum og
ástæðum, en enn vantar þó ýmis
tæki, t.d. öll tæki í líkamsræktar-
sal.
Þetta íþróttahús veldur mikilli
breytingu í allri íþróttakennslu í
Mýrdalnum en hingað til hafa
íþróttir verið kenndar og iðkaðar í
félagsheimilinu Leikskálum. Ríkti
því mikil gleði og eftirvænting þeg-
ar fyrsta mótið var haldið.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Hart var tekist á í körfuboltaleik Drangs úr Vík og Ármanns frá Kirkjubæj-
arklaustri í nýja íþróttahúsinu í Vík en Drangur sigraði með 7 stiga mun.
Heimamenn
gáfu sjálfum sér
gólfið í húsið
Fagridalur
Byrjað að nota nýtt íþróttahús í Vík í Mýrdal
ANDAKÍLSSKÓLI er fámennur
grunnskóli á Hvanneyri en þar
hefur verið öflug þróunarvinna
undanfarin ár þar sem lögð er
áhersla á að nemendur tileinki sér
ábyrgan lífsstíl og virðingu gagn-
vart mönnum, dýrum og umhverfi
sínu. Lögð er áhersla á þætti eins
og neyslu og umhverfi, flokkun
úrgangs, almenn útgjöld, ábyrga
hegðun, virðingu og samábyrgð.
Áhersla hefur verið á tengsl
heimabyggðar við starf nemenda í
skólanum. Umhverfi skólans hefur
verið nýtt til útikennslu og mikið
lagt upp úr því að nemendur
kynnist þeirri starfsemi sem fer
fram í stofnunum á Hvanneyri og
nærumhverfi. Sérfræðingar frá
Landbúnaðarháskólanum hafa
veitt kennurum ráðgjöf og frætt
nemendur. Þá hafa nemendur
einnig sótt starfsnám til stofnana
og fyrirtækja í nágrenni skólans.
Skólinn hlaut umhverfisvið-
urkenninguna Grænfánann sl. vor
fyrir framúrskarandi vinnu að
umhverfismálum. Skólar geta sótt
um Grænfánann ef þeir taka þátt
í og ljúka verkefnum sem miðast
að því að efla vitund nemenda,
kennara og annarra starfsmanna
skólans um umhverfismál. Í skól-
anum hefur verið unnið í anda
Grænfánans af fullum krafti í vet-
ur og getur hann nú státað af því
að í skólanum eru einungis notuð
umhverfisvæn hreinsiefni, einnota
borðbúnaður heyrir sögunni til,
mjólkurvél hefur tekið við af
mjólkurfernum. Þá hafa nem-
endur tekið þátt í því að minna
starfsmenn og nemendur á að
spara rafmagnið með því að
slökkva á ljósum í skólanum.
Borgarfjarðarsveit tekur þátt í
Staðrdagskrá 21 og má líta á
þessa vinnu sem framlag Anda-
kílsskóla til þess að mæta þeim
markmiðum sem þar eru sett á
oddinn.
Þess má geta að skólinn hefur
lagt ríka áherslu á samskipti við
aðra skóla að þessum málefnum.
Andakílsskóli er í Comeniusar-
samstarfi við skóla frá Póllandi,
Ítalíu og Spáni að verkefnum sem
lúta að umhverfismennt. Nem-
endur hafa einnig sótt umhverf-
isráðstefnur til annarra landa
ásamt kennurum. Tilgangurinn
með þessu samstarfi við skóla í
öðrum löndum er að efla víðsýni
nemenda og auðvelda þeim að
átta sig á því að við erum hluti af
stærri heild. Undanfarin þrjú ár
hefur skólinn fengið styrk frá
Þróunarsjóði grunnskóla og
Sparisjóði Mýrasýslu til að vinna
að þessu þróunarstarfi.
Andakílsskóli handhafi
Grænfánans
Skorradalur
Ljósmynd/Pétur Davíðsson
Skólinn fékk græna flaggið sl. vor.