Morgunblaðið - 12.02.2003, Qupperneq 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 23
„ÉG byrjaði í poppbandi þegar ég
var bara krakki, – spilaði á trommur,
þangað til krakkarnir fundu strák
sem var að læra á trommur; þá varð
ég að snúa mér að fiðlunni til að fá að
vera með, og fór bara að spinna og
leika mér á fiðluna, – ég held ég hafi
bara grætt á því.“
Una Sveinbjarnardóttir fiðluleik-
ari hefur orðið, nýkomin frá Berlín
þar sem hún lauk nýlega fyrri hluta
einleikaraprófs síns í fiðluleik, en í
kvöld kl. 20.00 heldur hún tónleika
ásamt Önnu Guðnýju Guðmunds-
dóttur píanóleikara í Karlakórshús-
inu Ými við Skógarhlíð. Ef marka
má framúrskarandi árangur og þær
viðurkenningar og verðlaun sem
Unu hafa hlotnast á námsferlinum
má þakka trommudrengnum margt;
– Una átti augljóslega erindi við fiðl-
una. Alls staðar hefur hún brillerað í
námi, – hún lauk Diplom-prófi í
Berlín fyrir tveimur árum með
hæstu einkunn, og hefur jafnframt
því að vera í skólanum leikið með
Útvarpshljómsveitinni í Berlín og
fleiri þekktum hljómsveitum ytra,
auk þess að vera um tíma kons-
ertmeistari hljómsveitar skólans.
Löngu áður en þetta var var hún
konsertmeistari Sinfóníuhljóm-
sveitar æskunnar hér heima. Hún
spilar jafnt kammermúsík sem sin-
fóníska músík, og hún hefur spilað
með Björk og ýmsum tónlist-
armönnum í popptónlist, – og hlust-
ar talsvert á djass.
„Ég er fyrst og fremst klassískur
fiðluleikari, en ég hef haft þá stefnu
að sérhæfa mig ekki í neinu einu.
Mér finnst gaman að spila barokk-
tónlist, og líka klassíska tónlist, en
er bara mikil alæta á tónlist. Maður
tapar engu á því að kynna sér mis-
munandi stíltegundir og stefnur í
tónlist og kafa svolítið inn í þær.
Þegar allt kemur til alls græðir mað-
ur á þessu, en maður þarf jafnframt
að taka aðra tónlist alvarlega og
bera virðingu fyrir því sem maður
fæst við hverju sinni. Sem dæmi:
Fyrir tuttugu, þrjátíu árum spiluðu
allir Bach eins og þeir væru að spila
Brahms. Í dag er þekkingin miklu
meiri og við vitum betur hvernig
ætlast var til að tónlist væri spiluð.
Við þurfum að bera virðingu fyrir
þessu, spila tónlistina eins og til var
ætlast, og höfum enga afsökun fyrir
því að „feika“ okkur í gegnum hana
eftir eigin geðþótta.“
Efnisskrá tónleikanna í kvöld er
fjölbreytt, og verkin öll úr uppá-
haldsverkasafni Unu. Nýjast er Im
Volkston, verk sem Atli Heimir
Sveinsson samdi sérstaklega fyrir
Unu, og hún frumflutti á prófinu
sínu frá Universität der Künste í
Berlín á dögunum. „Þetta er ramm-
íslenskt verk, byggt á tveimur þjóð-
legum stefjum. Það byrjar hægt, þar
sem fiðlan leikur mjög veikt en pí-
anóið mjög sterkt. Í milliköflunum
er unnið úr stefjunum, en lokakafl-
inn er byggður á seinna stefinu.“
Una leikur líka Sónötu í f-moll eftir
Prokofijev sem hún segist hafa mik-
ið dálæti á. „Þetta er stóra verkið á
prógramminu, en eftir hlé spilum við
litla sónötu í G-dúr eftir Bach fyrir
fiðlu og fylgirödd, þá Fantasíu eftir
Arnold Schönberg og loks Zigeuner-
weisen eftir Pablo de Sarasate.“
Fantasía Schönbergs er tólf tóna
verk, en Una segir það engu að síður
mjög rómantískt. Sígaunavísur Sar-
asates er verk sem Una hefur oft
spilað; – og verk sem allir sem á ann-
að borð hlusta á fiðlumúsík þekkja.
Það er einmitt þetta þar sem stefið
Til eru fræ birtist í miðkaflanum, –
mitt á milli virtúósískra tilþrifa fiðlu-
meistarans Sarasates. „Þetta verður
voða gaman; – samstarfið við Önnu
Guðnýju er frábært; – hún spilaði oft
með mér þegar ég var í Tónlistar-
skólanum hér heima, þannig að það
hefur reynt á samspilið áður.“
Una Sveinbjarnardóttir og Anna Guðný á tónleikum í Ými
Morgunblaðið/ÞorkellAnna Guðný Guðmundsdóttir og Una Sveinbjarnardóttir á æfingu í Ými.
„Ég er fyrst og fremst
klassískur fiðluleikari“
FÉLAG bókagerðarmanna hefur
afhent handritadeild Lands-
bókasafns Íslands handrita- og
bréfasafn hjónanna Hallbjarnar
Halldórssonar prentara og Krist-
ínar Guðmundsdóttur hár-
greiðslumeistara. „Það er kunnara
en frá þurfi að segja hvern sess þau
hjón skipuðu í menningarlífi ungs
og framsækins fólks hér í borg á
fyrri hluta nýliðinnar aldar, en
segja má að heimili þeirra gengi
næst Unuhúsi sem miðstöð þessa
hóps um árabil. Í því sambandi má
benda á að þeirra er víða getið í
minningafrásögnum rithöfundanna
Halldórs Laxness og Þórbergs
Þórðarsonar, svo tveir hinna þekkt-
ustu séu nefndir – enda mun í þessu
safni að finna áður ókunn bréf er
þeir hafa ritað og jafnvel annað
efni, svo sem prentsmiðjuhandrit
að greinum eða sögum – að
ógleymdum bréfum eða öðrum
handritagögnum frá öðru ónefndu
fólki, sem kannski eru í sjálfu sér
ekki síður athyglisverð þegar rýnt
er í sögu fyrri kynslóða,“ segir í
frétt frá Landsbókasafni.
Landsbóka-
safn fær
handrit og
bréf að gjöf
Sæmundur Árnason, formaður Félags bókagerðarmanna, afhendir Sigrúnu
Klöru Hannesdóttur Landsbókaverði gjöfina við athöfn í Þjóðarbókhlöðu.
Agatha Kristjánsdóttir sýnir nú ol-
íuverk í kaffistofunni Lóuhreiðri,
Laugavegi 59. Agatha hefur verið
meðlimur í myndlistarklúbbi áhuga-
manna um árabil og haldið fjölmarg-
ar sýningar.
Sýningin stendur til mánaðamóta.
Í DAG
13
.0
2
20.02
13.03
27
.0
2
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
1
1
/0
2
Á þessum tónleikum kemur fram glæsilegt tríó einleikara með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. Þessir frábæru hljóðfæraleikarar fá næg tækifæri til
að láta ljós sitt skína í skemmtilegum þríleikskonsert Beethovens.
Þrír magnaðir einleikarar
Tónleikar í gulu röðinni í Háskólabíói fimmtudaginn 13. febrúar kl. 19:30
Fáir fiðlukonsertar tuttugustu aldarinnar njóta jafn mikillar hylli
og Fiðlukonsert Barbers enda gætti höfundurinn þess að gæða
verkið bæði ljóðrænu og leikgleði. Þetta er snúinn konsert sem
afburðar fiðluleikarar ættu einir að taka til kostanna.
Sigrún og Fiðlukonsert Barbers
Drífðu þig!
Tónleikar í rauðu röðinni í Háskólabíói fimmtudaginn 20. febrúar kl. 19:30
Þorkell Sigurbjörnsson: Gangur
Ludwig van Beethoven: Þríleikskonsert
Gustav Mahler: Sinfónía nr. 1
Hljómsveitarstjóri: Thomas Kalb
Einleikarar: Judith Ingólfsson
Bryndís Halla Gylfadóttir
Vovka Stefán Ashkenazy
Eitt vinsælasta verk Ralph Vaughan-Williams, Lundúnasinfónían, hefur
aldrei verið flutt hér á landi og það sama gildir um verk Arvo Pärt, Cecilia,
verndardýrling tónlistarinnar. Hamrahlíðarkórinn fær að spreyta sig á
tónlist meistara Pärts, sem sjálfur er einlægur aðdáandi kórsins.
Lundúnasinfónían
Tónleikar í bláu röðinni í Háskólabíói fimmtudaginn 27. febrúar kl. 19:30
Atli Heimir Sveinsson: Via Dolorosa
Arvo Pärt: Cecilia
Ralph Vaughan-Williams: Lundúnasinfónían
Hljómsveitarstjóri: Tõnu Kaljuste
Hamrahlíðarkórarnir
Camille Saint-Saëns: Le rouet d'Omphale
Samuel Barber: Fiðlukonsert
Maurice Ravel: La mère l'oye
Maurice Ravel: La valse
Hljómsveitarstjóri: Gilbert Varga
Einleikari: Sigrún Eðvaldsdóttir
Vinsældir svítu 1 og 2 úr Pétri Gauti þarf ekki að tíunda, en fyrir þá sem
það ekki vita er flautukonsert Rautavaara ægifagurt verk, enda maðurinn
af mörgum talinn mesta norræna samtímatónskáldið. Þessir tónleikar eru
margbrotnir og athyglisverðir fyrir alla unnendur góðrar tónlistar.
Láttu koma þér á óvart
Tónleikar í gulu röðinni í Háskólabíói fimmtudaginn 13. mars kl. 19:30
Edvard Grieg: Pétur Gautur, úr svítu 1 og 2
Einojuhani Rautavaara: Konsert fyrir flautur - Dansar með vindunum
Robert Schumann: Sinfónía nr. 2
Hljómsveitarstjóri: Justin Brown
Einleikari: Hallfríður Ólafsdóttir
Pantaðu miða núna í síma 545 2500
Fjöldinn allur af frábærum tónleikum framundan