Morgunblaðið - 12.02.2003, Síða 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 37
KIRKJUSTARF
Á FIMMTUDAGSMORGNUM frá
tíu til tólf hittast foreldrar ungra
barna á neðri hæð safnaðarheimilis
Háteigskirkju til skrafs og ráða-
gerða.
Hér er kjörið tækifæri fyrir þá
sem vilja kynnast foreldrum með
börn á sama reki. Mikil áhersla er
lögð á að foreldrar hafi nægan tíma
til þess að spjalla saman, hvort held-
ur börnin sofa úti í vagni eða leika
sér. Öðru hvoru er boðið upp á 20
mínútna fræðsluerindi eða breytt út
af vanalegri dagskrá með föndri
eða öðru. Þessar tilbreytingar
verða á eftirtöldum dögum í vor:
13. febrúar: Anna Björg Eyjólfs-
dóttir hjúkrunarfræðingur fjallar
um mataræði ungbarna og kynnir
nýjar áherslur.
27. febrúar: Kristín Jónasdóttir,
framkvæmdastjóri Barnaheilla,
fjallar um velferð og réttindi barna.
6. mars: Gunnur Hinriksdóttir
íþróttafræðingur ráðleggur hvern-
ig standa eigi að vali á skóm á börn.
3. apríl: Herdís L. Storgaard,
hjúkrunarfræðingur og fram-
kvæmdastjóri Árvekni, fjallar um
öryggismál barna.
10. apríl: Við búum til okkar eigin
súkkulaðipáskaegg.
15. maí: Ömmukaffi og anda-
brauð. Við göngum niður að Tjörn
og gefum öndunum brauð áður en
við setjumst inn á Ömmukaffi og
fáum vöfflur í boði Háteigskirkju.
Foreldramorgnar í Háteigskirkju
eru alla fimmtudagsmorgna frá síð-
asta fimmtudegi í ágúst og út júní-
mánuð. Á fimmtudögum sem ber
upp á almenna frídaga (skírdag,
sumardaginn fyrsta...) er ekki for-
eldramorgunn. Umsjón með for-
eldramorgnum í Háteigskirkju hef-
ur Guðrún Helga Harðardóttir,
barnastarf@hateigskirkja.is. Nán-
ari upplýsingar gefur starfsfólk Há-
teigskirkju í síma 511 5400.
Uppbygging og for-
varnir í atvinnumissi
Í DAG, miðvikudaginn 12. febrúar
kl. 13:30, verður haldinn fræðslu-
og umræðufundur um atvinnumissi
í safnaðarheimili Dómkirkjunnar,
Lækjargötu 14a (gengið inn frá
horni Vonarstrætis og Lækjargötu).
Að missa atvinnuna raskar hög-
um fólks á margan hátt, bæði fé-
lagslega, andlega og fjárhagslega.
Þess vegna getur verið gagnlegt að
koma saman og leiða hugann að því
hvernig hægt sé að bregðast við
mótlæti sem mætir okkur þegar við
missum vinnuna.
Á fundinum mun Þórunn Svein-
björnsdóttir varaformaður Eflingar
ræða um uppbyggingu og forvarnir
með námi og öðrum leiðum þegar
fólk hefur misst vinnuna og orðið
atvinnulaust. Í framhaldi mun þátt-
takendum gefinn kostur á um-
ræðum. Kærleiksþjónustusvið Bisk-
upsstofu býður alla velkomna.
Þess skal getið að kyrrðar- og
bænastund er í Dómkirkjunni kl.
12.10 og á eftir er boðið upp á léttan
hádegisverð.
Helgistund í
Grafarvogskirkju
HELGISTUND í hádegi kl. 12:00
alla miðvikudaga. Altarisganga og
fyrirbænir. Prestar safnaðarins
þjóna fyrir altari, orgelleikari
Hörður Bragason. Boðið er upp á
léttan hádegisverð á vægu verði að
lokinni stundinni. Allir velkomnir.
Foreldramorgn-
ar á fimmtu-
dögum í
Háteigskirkju
Háteigskirkja í Reykjavík.
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í
dag kl. 13–16.30. Handavinna, spilað,
föndrað. Gestur Árni Norðfjörð. Bílaþjón-
usta í símum 553 8500, 553 0448 og
864 1448.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka
við fyrirbænum í síma 520 9700.
www.domkirkjan.is
Grensáskirkja. Þorrahátíð aldraðra kl.
12.10. Helgistund, þorraveisla. Alfa-
námskeið kl. 19.30–22.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra
ungra barna kl. 10–12. Fræðsla: Um
skírnina, sr. Sigurður Pálsson sóknar-
prestur.
Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl.
11. Kvöldbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Kl. 12.10 bænagjörð
með orgelleik og sálmasöng. Allir vel-
komnir. Kl. 12.30 súpa og brauð í safn-
aðarheimilinu (kr. 300). Kl. 13–16 opið
hús fyrir eldri borgara. Söngur, spjall,
föndur og tekið í spil. Kaffiveitingar. Kl.
17–18.10 Krúttakórinn, 4–7 ára.
Laugarneskirkja. Kirkjuprakkarar (1.–4.
bekkur) kl. 14.10. Jóhanna G. Ólafsdótt-
ir guðfræðinemi og Hannes Guðrúnar-
son, tónlistarmaður og kennari, leiða
starfið ásamt sóknarpresti. TTT-fundur
kl. 16.15 (5.–7. bekkur). Andri Bjarna-
son og Þorkell Sigurbjörnsson leiða
starfið ásamt Sigurbirni Þorkelssyni
framkvæmdastjóra safnaðarins og hópi
ungra sjálfboðaliða. Fermingartími kl.
19.15. Unglingakvöld Laugarneskirkju og
Þróttheima kl. 20 (8. bekkur). Umsjón
hefur Sigurvin Jónsson guðfræðinemi og
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, tóm-
stundaráðgjafi hjá Þróttheimum. Adrena-
línhópurinn kemur saman kl. 20 á
Ömmukaffi, Austurstræti 20. Krakkar úr
9. og 10. bekk Laugalækjarskóla vel-
komnir. Rútufar heim að fundi loknum.
(Sjá síðu 650 í Textavarpinu.)
Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12.
Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lárus-
dóttir. Opið hús kl. 16. Kaffi og spjall.
Biblíufræðsla kl. 17. Rætt verður um
hirðisbréfin. Umsjón sr. Frank M. Hall-
dórsson. Fyrirbænamessa kl. 18. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Léttur hádegisverður eftir stundina.
Fríkirkjan í Reykjavík. Alfa-námskeið í
safnaðarheimilinu kl. 20. Kyrrðar- og
bænastund í kapellu safnaðarins í safn-
aðarheimilinu, Laufásvegi 13, 2. hæð,
kl. 12. Allir velkomnir.
Árbæjarkirkja. Kl. 12 kyrrðarstund í há-
degi. Orgeltónlist, altarisganga, fyrirbæn-
ir og íhugun. Kl. 13–16 opið hús.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu
eftir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir
7–9 ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir
10–12 ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á
vegum KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Unglingastarf KFUM&K
kl. 20–21.45. (Sjá nánar: www.digranes-
kirkja.is.)
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið
er upp á léttan hádegisverð á vægu verði
að lokinni stundinni. Allir velkomnir.
KFUM fyrir drengi 9–12 ára í Grafarvogs-
kirkju kl. 16.30–17.30. Kirkjukrakkar fyr-
ir börn 7–9 ára í Rimaskóla kl. 17.30–
18.30. TTT (10–12 ára) í Rimaskóla kl.
18.30–19.30. Æskulýðsfélag fyrir ung-
linga í 8.–9. bekk í Engjaskóla kl. 20–22.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10–
12. Opið hús kl. 12–14. Léttur hádeg-
isverður og stund með Þorvaldi Halldórs-
syni. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17. 12-
spora námskeið kl. 20.
Kópavogskirkja. Starf með 8–9 ára
börnum í dag kl. 16.45–17.45 í safn-
aðarheimilinu Borgum. Starf með 10–12
ára börnum TTT á sama stað kl. 17.45–
18.45.
Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 19 Alfa-nám-
skeið í safnaðarheimili Lindasóknar,
Uppsölum 3.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjart-
anlega velkomnir. Tekið á móti fyrirbæna-
efnum í kirkjunni í síma 567 0110.
Æskulýðsfundur fyrir unglinga 14–15 ára
kl. 20. Röð biblíulestra hefst kl. 19.30.
Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar.
Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra
ungra barna kl. 10–12. Heitt á könnunni.
Fjölmennum. Opið hús fyrir eldri borgara
kl. 13–16 í samstarfi við Félag eldri borg-
ara á Álftanesi. Notalegar samverustund-
ir með fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður
eða Erlendur sjá um akstur á undan og
eftir.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar í safn-
aðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 10–12. Hitt-
umst og spjöllum. Heitt á könnunni og
djús fyrir börnin. Allir foreldrar velkomnir
með eða án barna.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyr-
irbænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í
Ljósbroti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í dag kl. 12. Boðið er upp á súpu
og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Hægt er að koma fyrirbænaefnum til
sóknarprests eða kirkjuvarðar. Opið hús
fyrir eldri borgara í dag kl. 13. Gott tæki-
færi til að hittast, spjalla saman, spila
og njóta góðra veitinga. Verið velkomin.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgn-
ar í dag kl. 10–12.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 20
Arna Skúladóttir hjúkrunarfræðingur flyt-
ur erindi í safnaðarheimili Landakirkju
um svefnvenjur barna. Þegar barnið fer
að sofa. Allir foreldrar velkomnir. Þátt-
tökugjald kr. 500.
Lágafellskirkja. Foreldramorgnar í safn-
aðarheimili kirkjunnar í Þverholti 3, 3.
hæð, frá kl. 10–12. Umsjón hafa Arndís
L. Bernharðsdóttir og Þuríður D. Hjalta-
dóttir. AA-fundur kl. 20.30 í Lágafells-
kirkju. Unnið í 12 sporunum.
Keflavíkurkirkja. Fermingarundirbúning-
ur hefst að nýju í Kirkjulundi. Kirkjan opn-
uð kl. 12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í
kirkjunni kl. 12.10. Samverustund í
Kirkjulundi kl. 12.25, súpa, salat og
brauð á vægu verði, allir aldurshópar.
Umsjón: Sigfús Baldvin Ingvason. Æfing
Kórs Keflavíkurkirkju frá kl. 19.30–
22.30. Stjórnandi Hákon Leifsson.
Njarðvíkurkirkja. Foreldramorgunn í
Safnaðarheimilinu kl. 10.30 í umsjá
Kötlu Ólafsdóttur og Petrínu Sigurðar-
dóttur. Baldur Rafn Sigurðsson.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í
síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Lofgjörð, lestur orðsins, fróðleik-
ur og samvera. Allt ungt fólk velkomið.
Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58.
Samkoma kl. 20. Dóminn getur enginn
flúið. Jónas Þórisson talar. Allir velkomn-
ir.
Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl.
10. Opið hús, kaffi og spjall, safi fyrir
börnin. ÆFAK, yngri deild, kl. 20.
Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 20 hjálp-
arflokkur. Fundur fyrir konur.
Safnaðarstarf
Nú er Sigurfinnur
móðurbróðir minn fall-
inn frá á tíræðisaldri
og langar mig að minn-
ast Sigga frænda með
nokkrum orðum.
Foreldrar Sigurfinns voru Jósef-
ína Þorfinnsdóttir og Ólafur Sæ-
mundsson, og ólst Sigurfinnur upp í
Reykjavík ásamt systrum sínum
Önnu Ástrós og Svanhvíti Unni, sem
fylgja nú bróður sínum til hinstu
hvílu, en þriðja systirin Jónína Mar-
grét er látin.
Á uppvaxtarárum Sigurfinns var
ástand oft erfitt, atvinnuleysi og
kreppa, sem setti svip sinn á ís-
lenskt þjóðfélag á þeim arum, og
lífsbaráttan var hörð. Sigurfinnur
kynntist því snemma erfiðum kring-
umstæðum, sem hafa eflaust mótað
hann að nokkru leyti. En dugnaður
hans kom snemma í ljós, því hann
var vel af Guði gerður, hraustur og
sterkur. Hann fékk snemma mikinn
áhuga á kappróðri, en á þeim árum
var sú íþrótt, sem mér finnst hin
eðlilegasta hjá þjóð, sem á flest
komið undir sjónum, talsvert vinsæl.
Siggi æfði kappróður stíft með
Glímufélaginu Ármanni og var í
kappróðrarsveit félagsins í nokkur
ár og fór með félaginu til keppni í
Danmörku.
Eftir hefðbundið skólanám fór
hann í Iðnskólann í Reykjavík til
náms í húsgagnasmíði, sem hann
lauk með góðum árangri. Hann vann
síðan lengi á Húsgagnaverkstæði
Þorsteins Sigurðssonar á Grettis-
götu, eða þar til það hætti starfs-
semi, en Þorsteinn heitinn Sigurðs-
son reyndist Sigga ætíð ákaflega
vel. Réðst Siggi þá til Ragnars Har-
aldssonar og vann þar meðan heils-
an leyfði. Er það gott vitni um sam-
viskusemi og tryggð Sigga að hann
vann aðeins á tveimur vinnustöðum
um ævina. Nú er það gjarnan svo að
þegar fólk hættir störfum vil það af
einhverjum ástæðum gleymast, þeg-
ar daglegu samneyti við vinnufélaga
sleppir. En ekki hjá Ragnari, sem
hélt áfram sambandi við Sigga,
heimsótti hann og færði stundum
gjafir til hins síðasta. Er mér full-
kunnugt um að hann mat mikils um-
hyggju Ragnars.
Áður en Sigurfinnur festi ráð sitt
leigði hann herbergi hjá foreldrum
mínum á Hverfisgötu 98, þannig að
ég hafði dagleg samskipti við Sigga
frænda um árabil. Hann var litlum
frænda sínum ákaflega góður, enda
barngóður að eðlisfari. Minnist ég
enn hve ég hlakkaði til að taka upp
jólagjafirnar hans, sem voru vegleg-
ar mjög.
Árið 1949 kynntist Sigurfinnur
stúlku frá Norðfirði, Esther Svan
Jónsdóttur. Felldu þau hugi saman
og gengu í hjónaband 4. júní það ár
og flutti Siggi nú af Hverfisgötunni,
er hann og Esther stofnuðu heimili,
en udirritaður erfði herbergið hans
Sigga frænda, sem varð minn íveru-
staður þangað til ég stofnaði heimili
sjálfur. Esther reyndist Sigga ákaf-
lega vel. Þau voru samhent hjón,
hún var harðdugleg, mikil húsmóðir
og flink í allri matargerð. Auk hús-
móðurstarfsins vann Esther árum
saman utan heimilisins. Minnist ég
enn hve góðar kökurnar hennar
Estherar voru.
SIGURFINNUR
ÓLAFSSON
✝ SigurfinnurÓlafsson fæddist
í Reykjavík 12. sept-
ember 1912. Hann
lést á Landspítalan-
um við Hringbraut
15. janúar síðastlið-
inn og var útför hans
gerð frá Bústaða-
kirkju 27. janúar.
Siggi og Esther áttu
ekki börn saman en ár-
ið 1956 urðu þau þeirr-
ar gæfu aðnjótandi að
ættleiða nýfæddan
dreng, Gunnar Sigur-
finnsson, sem kom eins
og sólargeisli inn í líf
þeirra og færði þeim
mikla hamingju og ólst
Gunnar upp við mikið
ástríki foreldra sinna.
Ský dró fyrir sólu
Sigga frænda árið
1997, þegar Esther lést
eftir langvarandi veik-
indi, og harmaði Siggi
eiginkonu sína mjög. Siggi var nú
orðinn einn aftur, en Gunnar sonur
þeirra var þá búinn að stofna sitt
eigið heimili.
Siggi hélt áfram heimilishaldi um
árabil í íbúð þeirra á Álfhólsvegi 125
í Kópavogi, eða þar til heilsan leyfði
slíkt ekki lengur. Seinustu árin
dvaldist hann á sambýlinu á Skjól-
braut í Kópavogi, þar sem hann naut
frábærrar umönnunar og var mjög
sáttur við dvölina þar og eru starfs-
fólki sambýlisins hér færðar þakkir.
Þegar ég minnist Sigga frænda
kemur margt upp í hugann. Siggi
var einn af þeim mönnum, sem allt
lék í höndunum á. Hann var frábær í
sinni iðn, húsgagnasmíðinni, gat
smíðað nánast allt og gert við allt.
Siggi fékk snemma mikinn áhuga á
skáklistinni, varð slyngur skákmað-
ur og fylgdist með skákinni til hins
síðasta. Á unglingsárum mínum
kenndi hann mér mannganginn. Ár-
in sem Siggi og Esther bjuggu á Há-
teigsvegi 4 var oft skroppið þangað
til að tefla. Ef ég man rétt tókst mér
aðeins tvisvar eða þrisvar að vinna
skák á Sigga, en hefi alltaf haft þann
grun að hann hafi leyft mér að vinna
sig, en ég varð aldrei slyngur í skák-
inni. Eitt atvik líður mér aldrei úr
minni. Þá var ég að tefla við Sigga,
þungt hugsi, hallaði mér fram og
studdi báðum olnbogum á hnén.
Skyndilega gerðist eitthvað, sem
varð til þess að höfuðið á mér féll
niður á skákborðið, en munir féllu
úr hillum. Hér reyndist um að ræða
snarpan jarðskjálftakipp, upprunn-
inn í Sveifluhálsi við Kleifarvatn.
Annað helsta áhugamál Sigga var
stangveiði, sem lék eins og annað í
höndum hans. Hann var virkilega
slyngur veiðimaður og fór hann
ásamt föður mínum oft til veiða á
sumri hverju. Sjálfum var mér í blóð
borin mikil veiðigleði, en ég minnist
enn þegar ég stóð hágrenjandi á úti-
tröppunum á Hverfisgötu 98, vegna
þess að ég fékk ekki að fara með
þeim fyrir æsku sakir. Síðar meir
fór ég í nokkrar veiðiferðir með
Sigga frænda mér til mikillar
ánægju, enda kenndi hann mér ým-
islegt, sem átti eftir að nýtast mér.
Sigurfinnur Ólafsson var einn af
þessum hógværu mönnum, sem
unnu sín verk samviskusamlega án
óþarfa hávaða. Aldrei heyrði ég
hann hallmæla nokkrum manni, og
aldrei heyrði ég hann kvarta yfir
einu né neinu, lét hverjum degi
nægja sína þjáningu, með sínu ein-
staka jafnaðargeði, þótt stundum
væri erfitt hjá þeim Esther vegna
veikinda. Hann var hófsamur og
nægjusamur alla ævi, gerði ekki
miklar kröfur og var einn af þessu
lítilláta fólki, sem kann að gleðjast
yfir því smáa í sátt við Guð og menn.
Að leiðarlokum sendum við Birna
og börnin okkar samúðarkveðjur til
aðstandenda, en minningin um góð-
an dreng dregur úr sorg okkar.
Megi alvaldur blessa og varðveita
sál Sigurfinns Ólafssonar og láta hið
eilífa ljós lýsa honum.
Svavar Davíðsson.
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu-
síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda
þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn
einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að
það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.