Morgunblaðið - 12.02.2003, Page 39
ÍSLANDSPÓSTUR í samvinnu við
Valdísi Gunnarsdóttur hefur sett á
markað valentínusarkort í tilefni val-
entínusardags, sem er 14. febrúar ár
hvert. Sex mismunandi valentínus-
arkort eru í boði á öllum Shell-stöðv-
um á höfuðborgarsvæðinu og á póst-
húsum um allt land.
Fólki gefst kostur á að kaupa kort-
in gegn vægu gjaldi, segir í frétta-
tilkynningu. Burðargjald er innifalið
og því hægt að stinga þeim í næsta
póstkassa án mikillar fyrirhafnar.
Dagurinn verður kynntur yngri kyn-
slóðinni í sjónvarpsþættinum 70
mínútur á Popp-tíví. Ungt fólk á öll-
um aldri er hvatt til að senda eitt af
þessum kortum á Popp-tíví, skrifa
t.d. ljóð eða línu. Valin verður besta
og versta línan og eru verðlaun í
boði.
Kort á
valentín-
usardegi
Röskva, samtök félagshyggju-
fólks við Háskóla Íslands, er 15 ára í
dag, 12. febrúar. Í tilefni afmælisins
munu frambjóðendur Röskvu í gegn-
um árin hittast á efri hæð Kaffi Sól-
ons í Bankastræti kl. 21. Nokkrir for-
menn Röskvu í gegnum tíðina troða
upp og aðrar uppákomur verða
óvæntar. Allir eru velkomnir.
Viðskiptaþing Verslunarráðs Ís-
lands verður haldið í dag, miðviku-
daginn 12. febrúar, undir yfirskrift-
inni Árangur fyrir Ísland. Þingið
hefst kl. 13 á Grand Hóteli Reykjavík.
Á þinginu verður kynnt stefnumótun
Verslunarráðs fyrir Ísland 2003–
2010. Erindi halda: Auk ræðu Boga
Pálssonar, formanns Verslunarráðs,
og Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra munu þeir Ingimundur Sigfús-
son sendiherra, Sigurður Helgason,
forstjóri Flugleiða, og Sigurður Ein-
arsson, forstjóri Kaupþings, segja frá
hugmyndum sínum um hvernig best
megi tryggja árangur fyrir Ísland.
Viðskiptaþing er öllum opið en skrán-
ing fyrirfram er nauðsynleg.
Í DAG
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 39
Hveragerðisbær
Eftirtaldar lóðir eru nú
lausar til umsóknar
Kjarrheiði 5 — 972,6 fm einbýlishúsalóð.
Kambahraun 53 — 1.036,3 fm einbýlishúsalóð.
Austurmörk 18a — 1.654,0 fm verslunar-,
þjónustu- og iðnaðarlóð.
Sunnumörk 2 — 15.339,6 fermetra verslunar-
og þjónustulóð.
Verði tvær eða fleiri umsóknir um einstaka lóð
mun fulltrúi sýslumanns draga á milli umsækj-
anda. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif-
stofu bæjarins, Hverahlíð 24, Hveragerði, og
á heimasíðu Hveragerðisbæjar,
http://www.hveragerdi.is/, undir flipanum
„eyðublöð“.
Bæjartæknifræðingur.
TIL LEIGU
Bílskúr/geymsluhúsnæði
Óska eftir að taka á leigu bílskúr eða geymslu-
húsnæði með góðri aðkomu.
Áhugasamir sendi svar til auglýsingadeildar
Mbl. eða á box@mbl.is, merkt: „B — 13339.“
LÓÐIR
S M Á A U G L Ý S I N G A RI
DULSPEKI
Huglækningar/heilun
Sjálfsuppbygging. Samhæfing
líkama og sálar. Áran. Fræðslu-
miðlun.
Halla Sigurgeirsdóttir,
andlegur læknir.
Uppl. í síma 553 8260
milli kl. 18.00 og 19.00.
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur,
Síðumúla 31,
s. 588 6060.
Miðlarnir, spámiðlarnir og hug-
læknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen, Ingibjörg Þeng-
ilsdóttir, Erla Alexanders-
dóttir og Garðar Björgvins-
son michael-miðill starfa hjá
félaginu og bjóða félagsmönn-
um og öðrum upp á einkatíma.
Upplýsingar um félagið, einka-
tíma og tímapantanir eru alla
virka daga ársins frá kl. 13—
18. Utan þess tíma er einnig
hægt að skilja eftir skilaboð á
símsvara félagsins.
Netfang: mhs@vortex.is .
Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur
starfar í nánum tengslum við Sál-
arrannsóknarskólann á sama stað.
SRFR.
KENNSLA
CRANIO-NÁM
2003-2004
A-hluti 22.-27.feb. Námsefni á
ísl. Ísl. leiðbeinendur. Uppl.
Gunnar, s. 564 1803/699 8064.
www.canio.cc
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 18 1832128
I.O.O.F. 7 18321271/2 FI.
I.O.O.F. 9 1832128½ 9.II
HELGAFELL 6003021219 IV/V GLITNIR 6003021219 I
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Háaleitisbraut 58—60
Samkoma í Kristniboðssaln-
um í kvöld kl. 20:00.
„Dóminn getur enginn flúið“,
Jónas Þórisson talar.
Heitt á könnunni á eftir.
Allir hjartanlega velkomnir.
Í kvöld kl. 20.00
Hjálparflokkur.
Allar konur velkomnar.
Skyggnilýsingarfundur
á vegum Sálarrannsóknarfélags-
ins í Hafnarfirði fer fram fimmtu-
daginn 13. febrúar í Góðtempl-
arahúsinu kl. 20.30.
Skyggnilýsinguna annast María
Sigurðardóttir.
Aðgöngumiðar verða seldir í
Góðtemplarahúsinu í kvöld,
miðvikudagskvöldið 12. febrúar,
frá kl. 18—19 og við innganginn
fyrir fundinn frá kl. 19.30—
20.30.
Stjórnin.
Skíðagönguferð á Nesjavelli
15. - 16. feb. 2003
Á laugardeginum er gengið af
Hellisheiði um Ölkelduháls á
Nesjavelli. Gangan tekur um
5-6 klst. með kaffistoppum. Á
Nesjavöllum verður kvöld-
máltíð og þar bíður heiti pott-
urinn og uppbúin rúm.
Á sunnudeginum er gengið í
Dyradal inn Marardal yfir
Húsmúla og endað við Kol-
viðarhól. Dagleiðin er um 6
klst. Brottför frá BSÍ kl. 08.30.
Fararstjóri: Hákon Gunnars-
son
Verð 8.900/10.200.
Sjá nánar á www.utivist.is
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
mbl.is
ATVINNA
KIWANISKLÚBBURINN Skjálf-
andi hefur í gegnum tíðina stutt
ötullega Björgunarsveitina Garðar
á Húsavík. Þær eru orðnar marg-
ar gjafirnar sem björgunarsveitin
hefur fengið frá Skjálfanda og nú
bætist við þær nýr nætursjónauki
af fullkomnustu gerð, utanborðs-
vél á slöngubát og flotgalli.
Það var Sigurgeir Aðalgeirsson
sem fyrir hönd Skjálfanda afhenti
Friðriki Jónssyni, formanni Garð-
ars, gjafabréf upp á 550.000 krón-
ur ætlaðar til kaupa á áðurgreind-
um hlutum.
Sigurgeir sagði við þetta tæki-
færi að Húsvíkingar og nærsveit-
armenn hefðu verið duglegir í
flugeldakaupum fyrir síðustu ára-
mót en Skjálfandi hefur séð um
sölu þeirra á Húsavík allt frá
stofnun klúbbsins eða í þrjátíu ár.
Afrakstur flugeldasölunnar gerir
klúbbnum síðan kleift að styrkja
góð málefni eins og björg-
unarsveitina og að venju hefði
verið haft samband við sveitina og
spurst fyrir um hvað hana van-
hagaði helst um og var þetta
þrennt efst á óskalistanum.
Sigurgeir sagði að lokum að
þeir Kiwanismenn vonuðust til að
þessi tæki kæmu björgunarsveit-
inni að góðum notum en þó jafn-
framt að ekki kæmi til þess að það
þyrfti að nota þau.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Frá vinstri eru Sigurgeir Aðalgeirsson, Friðrik Jónsson, Guðmundur Flosi
Arnarson og Karl V. Halldórsson.
Björgunarsveitinni Garðari
færðar góðar gjafir
Húsavík. Morgunblaðið.
Feldenkrais-námskeið verður hald-
ið laugardaginn 15. og sunnudaginn
16. febrúar í sal FÍH, Rauðagerði 27,
Reykjavík. Leiðbeinandi verður Sibyl
Urbancic. Um er að ræða kerfi ein-
faldra hreyfinga sem henta öllum. Í
lok tímans fara fram umræður, þar
sem spurningum er svarað. Þrjár
kennslustundir verða hvorn dag: kl.
10–11.30, kl. 12–13.30 og kl. 14.–16.
Opið verður frá kl. 9. 30. Verð er 5.000
kr. fyrir allt námskeiðið, 2.500 kr. fyr-
ir einn dag, 1.000 kr. fyrir stakan tíma
og skólaafsláttur er 50%. Námskeiðið
fer fram á íslensku og er öllum opið.
Þeir sem áhuga hafa á einkatímum
geta sótt þá virka daga fyrir hádegi til
27. febrúar í Söngskólanum í Reykja-
vík, Snorrabraut 54. Upplýsingar og
skráning er á skrifstofu FÍH.
Á NÆSTUNNI
Rannsóknastofa í kvennafræðum
heldur opinberan fyrirlestur á morg-
un, fimmtudaginn 13. febrúar, kl. 16
í stofu 101 í Lögbergi. Oddný Mjöll
Arnardóttir lögfræðingur flytur fyr-
irlesturinn „Jafnrétti og bann við
mismunun í Mannréttindasáttmála
Evrópu“. Í fyrirlestrinum fjallar
Oddný m.a. um jafnræðisreglur 14.
gr. Mannréttindasáttmála Evrópu
og 1. gr. viðauka nr. 12 við sáttmál-
ann sem ekki hefur enn tekið gildi.
Á MORGUN
að hraðað sé nauðsynlegum verk-
legum framkvæmdum eins og í
samgöngubótum, en þau störf
sem skapast við það eru mjög
einhæf og leysa því aðeins hluta
vandans. Því er nauðsynlegt að
grípa til fleiri aðgerða og þar
liggur beinast við að fjölga störf-
um í velferðarþjónustunni þar
sem um fjölbreytt störf er að
ræða og þar sem víða eru óleyst
verkefni.
Einnig er mikilvægt að horft sé
til ungs fólks sem er að koma út á
vinnumarkaðinn en atvinnuleysið
hefur aukist mikið meðal þess.
Hyggja þarf að því hvort hægt er
að stofna til sérstakra átaksverk-
efna til að forða ungu fólki frá
langtíma atvinnuleysi.
En það eru ekki bara ríki og
sveitarfélög sem þurfa að axla
ábyrgð. Fyrirtæki á almennum
markaði þurfa einnig að taka þátt
í því að stuðla að stöðugu at-
vinnuástandi. BSRB telur því
mjög alvarlegt að á sama tíma og
fyrirtæki eru að skila milljarða
hagnaði segi þau upp fólki í
stórum stíl eins og brögð hafa
verið að.“
BSRB hefur sent frá sér ályktun
vegna stöðu atvinnumála. Banda-
lagið lýsir yfir áhyggjum vegna
þeirrar þróunar sem átt hefur sér
stað undanfarna mánuði á vinnu-
markaði. Atvinnuleysi hefur auk-
ist mjög mikið og eru nú rúmlega
6.000 manns án atvinnu.
„Mikilvægt er að ríki og sveit-
arfélög bregðist við þessu ástandi
strax og grípi til markvissra að-
gerða til að vinna gegn atvinnu-
leysinu. BSRB telur rangt að ein-
blínt sé á verklegar framkvæmdir
á borð við vegagerð eingöngu
heldur verði einnig að horfa til
velferðarþjónustunnar og þeirra
verkefna sem brenna á þar. Víða í
velferðarþjónustunni hefur verið
gengið of langt í niðurskurði og
fækkun starfa undir merkjum
svokallaðrar hagræðingar. Þetta
hefur einnig verið fylgifiskur
markaðsvæðingar almannaþjón-
ustu. Í kjölfarið hefur hins vegar
komið fram að álag á starfsfólk
hefur aukist og er í mörgum til-
fellum óhóflegt. Við þessu þarf að
bregðast strax og fjölga starfs-
fólki.
BSRB telur vel koma til álita
Uppbyggingu í
stað atvinnuleysis
Lýst eftir stefnu í
málefnum háskóla
RÖSKVA, samtök félagshyggju-
fólks við Háskóla Íslands, hefur
sent fulltrúum allra stjórnmála-
flokka eftirfarandi áskorun í tilefni
af kosningum til Alþingis í maí nk.
„Málefni háskóla á Íslandi hafa
verið mikið í umræðunni síðustu
vikur og mánuði. Samkeppnisstöðu
skóla á háskólastigi hefur borið þar
hæst en Röskva hefur lengi bent á
þá skökku samkeppnisstöðu sem
Háskóli Íslands býr við í saman-
burði við hina svokölluðu einka-
skóla. Einnig hefur verið rætt mik-
ið um rannsóknaþátt háskóla og
skort á skilgreiningu og aðgrein-
ingu á rannsóknaháskólum og
kennsluháskólum.
Í tilefni af alþingiskosningum í
maí n.k. lýsir Röskva eftir stefnu
allra stjórnmálaflokka í málefnum
háskóla. Bæði hvað varðar sam-
keppnisstöðu þeirra og einnig
hvernig tekið skuli á mismunandi
stöðu og hlutverkum háskóla í land-
inu.
Einnig hvetur Röskva stjórn-
málaflokkana til að setja mennta-
mál í öndvegi í komandi kosning-
um.“
Krafist hærri
atvinnu-
leysisbóta
Á STJÓRNARFUNDI í Bárunni,
stéttarfélagi var samþykkt ályktun
um atvinnuleysisbætur, en félagið
skorar á ráðamenn að hækka atvinnu-
leysisbætur til jafns við lágmarkslaun
verkafólks sem starfa eftir samning-
um Samtaka atvinnulífsins og Starfs-
greinasambands Íslands. Lágmarks-
laun nema núna 93.000 þúsund kr.
„Það er alveg ljóst að sá launamað-
ur sem lendir í þeirri ógæfu að missa
atvinnu sem hann hefur haft og fær
ekki annað en atvinnuleysisbætur sér
til framfærslu, getur ekki staðið við
skuldbindingar sínar. Hvernig á að
vera hægt að lifa á ríflega 77.000 þús-
und krónum á mánuði. Hvernig á sá
einstaklingur að greiða húsaleigu eða
afborgun af íbúð og annað sem nauð-
synlegt er hverjum einstaklingi til að
lifa?“ segir í ályktun félagsins.