Morgunblaðið - 12.02.2003, Page 41
AFMÆLI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 41
STÓRMEISTARINN Helgi Áss
Grétarsson teflir blindandi við 11
andstæðinga í einu í dag og reynir
þar með að slá Íslandsmetið sem
þeir Helgi Ólafsson og Dan Hans-
son eiga. Fæstir geta teflt eina
skák blindandi, en
það þarf óvenjulega
hæfileika til að geta
teflt margar skákir
samtímis, munað allar
stöðurnar og fundið
bestu leikina. Það
verður því mjög
spennandi að fylgjast
með þessari viður-
eign, sem fyrirhugað
er að hefjist klukkan
16:30 í höfuðstöðvum
Olís í Sundagörðum 2,
efstu hæð. Áhorfend-
ur eru velkomnir, en
verða þó að taka tillit
til þess að blindskák-
in krefst algerrar einbeitingar sem
allar truflanir hafa slæm áhrif á.
Movsesjan sigraði
í fyrstu skákinni
Sergei Movsesjan sigraði Hann-
es Hlífar Stefánsson í fyrstu skák
Olís-einvígisins. Hannes, sem hafði
svart, fékk verra tafl í kjölfar nýj-
ungar Movsesjan í byrjun tafls og
þrátt fyrir góða vörn og betri tíma
tókst honum ekki að jafna taflið og
varð að gefa eftir 41 leik.
Hvítt: Movsesjan
Svart: Hannes Hlífar Stefánsson
Sikileyjarvörn
1.e4 c5 2.Rf3 d6 3.d4 cxd4
4.Rxd4 Rf6 5.Rc3 Rc6 6.Bc4
6...Db6 7.Rb3 e6 8.0–0 Be7 9.Kh1
Dc7 10.Bd3 0–0 11.f4 a6 12.Df3 b5
13.Bd2 Bb7 14.Dh3 --
Movsesjan hefur undirbúið
þessa nýjung við eldhúsborðið
heima hjá sér, því að leikurinn
kom að bragði. Hugmyndin er
þekkt, hvítur hótar að opna skál-
ínu biskupsins á d3 til h7, með e4-
e5 á réttu augnabliki.
Þekkt er 14.Hae1, t.d. 14.-- b4
15.Re2 a5 16.Dh3 Ba6 17.Rbd4
Rd7 18.Rxc6 Dxc6 19.Rd4 Dc7
20.f5 e5 21.f6 Bxf6 22.Rf5 Bc8
23.He3 Rc5 24.Hg3 Kh8 25.Dh5 g6
26.Dh6 Bxf5 27.exf5 Bg7 28.Dh4
Rxd3 29.cxd3 Dc2 30.Bg5 De2
31.Kg1 Kg8 32.f6 Bh8 33.Dh6 og
svartur gafst upp (Klundt-Benkö,
Augsburg 1986).
14...Hfd8?!
Hrókurinn stendur ekki vel á d8
eins og framhaldið sýnir. Eðlilegra
virðist að leika 14. -- Hfe8 o.s.frv.
15.a4!? b4 16.Rd1! --
Þessi leikur er betri en 16.Re2,
því að nú kemst riddarinn til e3,
þar sem hann hefur góð tök á d5
og f5 (kemur í veg fyrir e6-e5).
16. -- d5 17.e5 Re4 18.Re3 Ra5?!
Betra virðist að leika 18...Hac8
19.Hae1 h6, t.d. 20.Bc1 He8
21.Rg4 Bf8 22.Bxe4 dxe4 23.Hxe4
Re7 24.He2 Bc6 25.Hd2 Bxa4
26.Rd4 með nokkuð jöfnu tafli.
19.Rxa5 Dxa5 20.f5! --
20...exf5
Það er varla um annað að velja.
Ef svartur tekur manninn, lendir
hann í tapaðri stöðu, t.d. 20...Rxd2
21.fxe6 Re4 22.Bxe4 dxe4 23.Hxf7
He8 24.Rf5 Bf8 25.Dg3 g6 26.Dh4
h5 27.Df6 og hvítur vinnur.
21.Dxf5 --
Slóvakinn fer ekki þá leið, sem
menn voru að skoða í skýringa-
herberginu, 21.Rxf5.
Við nánari athugun er sú leið
lakari, þótt hvítur fái peð yfir og
virkari stöðu, eftir 21...Bf8 22.e6
fxe6 23.Bxe4 dxe4 24.Re7+ Bxe7
25.Dxe6+ Kh8
26.Dxe7 o.s.frv.
21...Hf8 22.e6 Dc5
Eftir 22...f6 23.Bxe4
g6 24.Rxd5 gxf5
25.Rxe7+ Kh8
26.Bxb7 Ha7 27.Rc6
Dc7 28.Rxa7 Dxb7
29.Be3 ætti hvítur að
eiga vinningsstöðu,
þótt málið sé ekki ein-
falt.
Reyndar gefur
23.Dg4 (í stað
23.Bxe4) hvíti mun
betra tafl.
23.exf7+ Kh8
24.Hae1 Had8 25.Bc1
Rf6 26.Dh3 Bc8 27.Dh4 Re4
28.Dh5 Be6
Eftir 28...d4 29.De2 dxe3
30.Bxe3 Dc6 31.Ba7 Bb7 32.Bxe4
Dxe4 33.Dxe4 Bxe4 34.Hxe4 Bf6
35.Hxb4 Hxf7 á hvítur tveimur
peðum meira og unnið tafl.
29.Rg4! --
Óvæntur og óþægilegur leikur.
Vegna hótunarinnar R-e5-g6+ á
svartur ekki um annað að velja en
að drepa riddarann.
29...Bxg4 30.Dxg4 Bf6 31.Bxe4
dxe4 32.De6! Hd6
Hvítur hótaði 33.Hxf6 og eftir
32...Dd6 33.Dxd6 Hxd6 34.Hxe4 a5
35.Be3 Hdd8 36.Bb6 Ha8 37.Hf5
fær hvítur unnið tafl.
33.Dxe4 Hc6 34.Be3 Dc4
Ekki gengur að leika 34...Dxc2
35.Dxb4 Hxf7 36.Hf2 Dc4
(36...Dd3 37.Db8+ Dd8 38.Dxd8+
Bxd8 39.Hxf7) 37.Bc5 He7 38.Bxe7
o.s.frv.
35.Bf4 Dxe4
Eða 35...Dxc2 36.Dxc2 Hxc2
37.Bd6 og hvítur vinnur, eða .
35...Dc5 36.Bd2 a5 37.De8 Hc8
38.Hxf6 gxf6 39.Bh6 o.s.frv.
36.Hxe4 g5
Svartur má enn ekki drepa peð-
ið á c2, vegna 36...Hxc2 37.He8
Hc8 38.Hxc8 Hxc8 39.Bd6 o.s.frv.
37.Be3 Kg7 38.Hxb4 Hxc2
39.Hb6 Be5
Eða 39...Hxf7 40.Hbxf6 Hxf6
41.Bd4 Hcc6 42.b4 Kg6 43.Hxf6+
Hxf6 44.Bxf6 Kxf6 45.a5 Ke7 46.b5
Kd7 (46...axb5 47.a6 b4 48.a7 b3
49.a8D) 47.b6 og hvítur vinnur
endataflið.
40.He6 Bf4
Eftir 40...Bxb2 41.Bxg5 Hcc8
42.Bh6+ Kh8 43.Bxf8 Hxf8 44.He8
Kg7 45.Hxf8 Kxf8 vinnur hvítur.
41.Bd4+ og svartur gafst upp,
því að hann á tveimur peðum
minna og tapað tafl, eftir 42.Hxa6
o.s.frv.
Þriðja skák einvígisins verður
tefld í dag og hefst klukkan 17.
Auk Olís er Guðmundur Arason
styrktaraðili einvígisins.
Helgi Áss reynir
við Íslandsmet í
blindskák í dag
SKÁK
Faxafen 12
OLÍS-EINVÍGIÐ
10.–15. febrúar 2003
Helgi Áss Grétarsson
dadi@vks.is
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930
Ókeypis lögfræðiaðstoð
öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012
frá okt.-apríl Orator, félag laganema
Faðir minn, Gestur
Guðmundsson, fædd-
ist í Rauðbarðaholti í
Hvammssveit í Dala-
sýslu 12. febrúar
1923.
Foreldrar hans
voru Sigríður Guð-
mundsdóttir og Guð-
mundur Eggertsson.
Eins og hálfs árs
fluttist hann að Nýp á
Skarðsströnd ásamt
foreldrum sínum og
systkinum árið 1924,
og þar ólst hann upp
framundir tvítugsald-
ur er hann flutti til Reykjavíkur.
Hann giftist Kristínu Katarínus-
dóttur árið 1946 og er ég einkabarn
þeirra. Þau bjuggu nokkur ár í
Reykjavík en fluttust í Kópavog ár-
ið 1947 og áttu þar heima í um 50
ára skeið, þar til þau fluttu aftur til
Reykjavíkur fyirr nokkrum árum, í
Sigtún 33.
Faðir minn vann við verslunar-
störf í Reykjavík og Kópavogi alla
tíð eftir að hann flutti suður, þar til
hann fór á eftirlaun. Hann vann í
versluninni Geysi í Hafnarstræti í
8 ár. Verslunarstjóri hjá Kron í
Reykjavík í 2 ár og síðan hjá
Mjólkursamsölunni í Reykjavík í
36 ár, sem umsjónarmaður mjólk-
urbúða samsölunnar í 22 ár og síð-
an sölumaður hjá því fyrirtæki.
Faðir minn hefur alla tíð haft
mikinn áhuga á félagsmálum og
vann mikið að þeim málum í Kópa-
vogi. Hann var einn af aðalstofn-
endum Ungmennafélagsins Breiða-
bliks, í stjórn þess í 17 ár,
formaður í 5 ár, og er heiðursfélagi
þess, var 12 ár í stjórn Ungmenna-
sambands Kjalarnesþings, formað-
ur í 2 ár og var nokkur ár í vara-
stjórn Ungmenna-
félags Íslands. Honum
var veitt gullmerki
Íþróttasambands Ís-
lands fyrir störf að
ungmenna- og íþrótta-
málum. Þá var hann
um árabil í stjórn
Framsóknarfélags
Kópavogs, formaður
þess um eitt ár.
Faðir minn var yfir
tuttugu ára skeið
matsmaður fasteigna í
Kópavogi og einnig
virðingarmaður húsa-
trygginga í Kópavogi.
Eftir að hann hætti störfum hef-
ur hann ásamt móður minni dvalist
lengst af hjá mér á Írlandi, þar
hefur hann unað sér vel meðal ann-
ars við trjá- og blómarækt, ásamt
fleiru.
Faðir minn hefur verið hraustur
alla tíð og er enn við mjög góða
heilsu. Hefur góða sjón og styrka
hönd. Hann hefur mjög góða rit-
hönd og hefur nokkuð átt við
skrautritun til þessa dags.
Ég óska honum til hamingju með
afmælið og vona að hann megi enn
um sinn njóta góðra heilsu og
ánægjulegra ævidaga.
Gestur Valgeir Gestsson.
GESTUR
GUÐMUNDSSON
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Prag er nú orðinn einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga til að sækja heim enda
ein fegursta borg heimsins sem geymir mörg hundruð ára sögu á hverju horni og
mannlíf og andrúmsloft sem á ekki sinn líka í Evrópu. Gullna borgin, borg hinna
þúsund turna, gimsteinn Evrópu, borg töfranna, það er ekki að undra að þessari
stórkostlegu borg hafi verið gefin öll þessi nöfn. Heimsferðir bjóða nú einstakt
tækifæri til að kynnast þessari ótrúlegu
borg með beinu flugi í vor. Í boði eru
góð 3 og 4 stjörnu hótel og spennandi
kynnisferðir um kastalahverfið og
gamla bæinn, eða til hins einstaklega
fagra heilsubæjar Karlovy Vary, með
íslenskum fararstjórum Heimsferða.
Helgarferð til
Prag
6. mars
frá kr. 39.950
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 25.450
Flugsæti til Prag, 10. mars, með 8.000 kr.
afslætti ef bókað fyrir 15. febrúar. Flug
og skattar. Gildir frá mánudegi til
fimmtudags. Fyrstu 300 sætin.
Verð kr. 39.950
Flug og hótel í 4 nætur. M.v. 2 í herbergi
á Quality Hotel, 6. mars. Skattar
innifaldir.
Flug fimmtudaga og mánudaga í mars og apríl
www.nowfoods.com