Morgunblaðið - 12.02.2003, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert framsýnn friðarsinni.
Þú ert víðsýnn og sannfær-
andi og átt auðvelt með sam-
skipti. Á árinu hefst nýtt
tímabil í lífi þínu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert að endurskoða stefnu
þína og væntingar til lífsins.
Það er mikilvægt að þú gerir
þér grein fyrir því hvort
væntingar þínar byggi í raun
á vilja þínum eða vilja ann-
arra.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þetta er góður tími til að
hefja nám sem getur komið
þér vel í starfi. Þú hefur hug
á að læra nýja tækni eða
auka þekkingu þína.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert að hefja spennandi
tímabil lærdóms og mennt-
unar. Forvitni þín hvetur þig
til náms og ferðalaga.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú gætir lent í samninga-
viðræðum um sameiginlega
fjármuni og eignir. Þetta er
hentugur tími til að sinna
slíkum málum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú hefur þörf fyrir fjörugar
og krefjandi samræður sem
örva huga þinn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Á næstunni muntu hafa
óvenju miklar áhyggjur af
heilsu þinni. Þú gætir farið í
megrun, líkamsrækt eða
leitað annarra leiða til að
bæta heilsu þína.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú átt óvenju auðvelt með að
tjá þig. Gefðu sköp-
unarkrafti þínum lausan
tauminn og njóttu þess sem
þú ert að gera og skapa.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú munt eiga mikilvægar
samræður við fjölskyldu
þína og vini á næstu vikum.
Af þessum sökum mun hug-
ur þinn leita til fortíðarinnar
og æsku þinnar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þetta er ekki rétti tíminn til
að slaka á. Það er að færast
aukinn hraði í líf þitt og
hann mun vara næstu mán-
uði. Reyndu að laga þig að
þessu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Gerðu ráð fyrir auknum fjár-
útlátum þennan mánuðinn.
Þú ert að endurskoða gild-
ismat þitt og gerir það m.a.
með því að kaupa nýja hluti.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Sólin, Merkúr, Úranus og
Neptúnus eru allar í merki
þínu og það dregur fólk að
þér. Fólk leitar ráða hjá þér
um ýmis efni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Á komandi mánuði mun þér
ganga vel að vinna að eigin
rannsóknum. Þú þarft á friði
og ró að halda og því hentar
þér best að vinna upp á eigin
spýtur.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra stað-
reynda.
TIL að byrja með leggur
sagnhafi á ráðin út frá for-
sendum líkindafræðinnar.
En eftir því sem spilinu
vindur fram koma fleiri
sjónarmið til sögunnar:
Norður
♠ 1093
♥ ÁK105
♦ ÁG64
♣97
Vestur Austur
♠ G ♠ 762
♥ 94 ♥ D872
♦ 10532 ♦ K987
♣ÁG10865 ♣43
Suður
♠ ÁKD854
♥ G63
♦ D
♣KD2
Suður opnar á einum
spaða og verður svo sagn-
hafi í sex spöðum. AV segja
aldrei neitt. Vestur hefur
vörnina með laufás og gosa.
Setjum okkur í spor suð-
urs. Fyrsta hugdettan er
að reyna að trompa niður
tígulkónginn þriðja, en
svína svo í hjarta ef kóng-
urinn fellur ekki. Þetta er
augljóslega „prósentuleið-
in“. Til að byrja með er
spaðaásinn tekinn og gos-
inn fellur. Nú er taktískt að
spila tíguldrottningu og
kanna viðbögðin. Vestur
lætur hiklaust lítið og
sagnhafi tekur með ás og
stingur tígul hátt. Tekur
svo tvisvar tromp í viðbót
og slag á lauf. Þá kemur á
daginn að vestur hefur
byrjað með góðan sexlit í
laufi. Ekki sagði hann þó
neitt við einum spaða.
Hann sýndi heldur engin
viðbrögð við tíguldrottn-
ingunni og því aukast lík-
urnar sífellt á því að austur
sé með tígulkóng. Ef aust-
ur á hjartadrottningu líka
má ná á hann skemmtilegri
þvingun. Sagnhafi tekur
eitt tromp í viðbót og hend-
ir hjartatíu úr borði:
Norður
♠ --
♥ ÁK
♦ G6
♣ --
Vestur Austur
♠ -- ♠ --
♥ 94 ♥ D8(7)
♦ 105 ♦ K(9)
♣ -- ♣ --
Suður
♠ 4
♥ G63
♦ --
♣ --
Austur á eftir að henda
af sér í þessari stöðu. Ef
hann kastar hjarta, verður
gosinn slagur, en hendi
hann tígli má trompa niður
kónginn.
Spilið kom upp á lands-
liðsæfingu á sunnudaginn,
en slemma var ekki sögð,
svo ekki reyndi á „lestr-
argáfur“ keppenda. Ellefu
slagir fengust á báðum
borðum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 12.
febrúar, er fimmtug Alda
Ólafsdóttir Wessman, þing-
freyja á Hótel Loftleiðum,
Hrísmóum 1, Garðabæ.
Eiginmaður hennar er
Ragnar Wessman. Þau eru
að heiman í dag.
90 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 16. febrúar
verður níræð Guðfinna
Karlsdóttir, Knútsstöðum í
Aðaldal. Guðfinna verður
heima með heitt á könnunni
og vinir og vandamenn sem
vilja gleðja hana með því að
láta sjá sig eru hjartanlega
velkomnir.
70ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 12.
febrúar, er sjötug Kristín A.
Samsonardóttir, Þver-
brekku 6, Kópavogi. Hún
tekur á móti gestum laug-
ardaginn 15. febrúar milli kl.
17 og 19 í sal Þjóðdansafélag
Reykjavíkur, Álfabakka 14.
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 12.
febrúar, verður áttræð Sig-
ríður Guðmundsdóttir frá
Hurðarbaki, Austurvegi 31,
Selfossi. Eiginmaður henn-
ar er Jón Sigurðsson. Þau
verða að heiman á afmæl-
isdaginn en Sigríður sendir
öllum ættingjum og vinum
bestu kveðjur.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 e5 5. Rb5 d6 6. R1c3
a6 7. Ra3 b5 8. Rd5 Rce7 9.
c4 Rxd5 10. exd5 bxc4 11.
Rxc4 Rf6 12. Be3 Hb8 13.
Be2 Be7 14. a4 O-O 15. O-O
Bb7 16. Rb6 Rd7 17. a5 f5 18.
f3 Rxb6 19. Bxb6 Dd7 20. b4
Bd8 21. Be3 Bf6 22. Hb1 Df7
23. Bc4 Hfc8 24. Dd3 Ha8 25.
Hfc1 Dh5 26. Bb3 Bg5 27.
Dd2 Bxe3+ 28.
Dxe3 Df7 29.
Db6 Bxd5 30.
Dxa6 Hxc1+ 31.
Hxc1 Hxa6 32.
Hc8+ De8 33.
Hxe8+ Kf7
Staðan kom
upp í einvígi 13
ára undrabarns-
ins Sergey Kar-
jakin (2.547) frá
Úkraínu og rúss-
nesku skák-
drottningarinnar
Alexöndru Ko-
senjuk (2.456)
sem lauk fyrir
skömmu í Sviss.
Undrabarnið
knáa lauk skákinni á snilld-
arlegan máta. 34. Ha8!! og
svartur gafst upp enda verð-
ur hann manni undir eftir
34...Hxa8 35. Bxd5+. 3. skák
Olís-einvígisins hefst kl.
17.00 í höfuðstöðvum Olís,
Sundagörðum 2. Atlaga
Helga Áss Grétarssonar að
Íslandsmetinu í blindskák-
arfjöltefli hefst kl. 17.15 á
sama stað og Olís-einvígið.
Áhorfendur eru hjartanlega
velkomnir en Guðmundur
Arason styrkir þessa skák-
veislu ásamt Olís.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
FRÉTTIR
RÖSKVA, samtök félagshyggjufólks
við Háskóla Íslands, hefur kynnt
framboðslista sinn fyrir stúdenta-
ráðs- og háskólafundarkosningar
2003. Framboðslista Röskvu skipa
eftirfarandi:
Til stúdentaráðs: 1. Valgerður B.
Eggertsdóttir, lögfræði, 2. Alma Ýr
Ingólfsdóttir, stjórnmálafræði, 3.
Grétar H. Gunnarsson, guðfræði, 4.
Rakel Dögg Óskarsdóttir, líffræði, 5.
Pétur Ólafsson, sagnfræði/stjórn-
málafræði, 6. Silja Jóhannesdóttir,
stjórnmálafræði, 7. Sigurbjörn
Gunnlaugsson, viðskiptafræði, 8.
Hannes Óli Ágústsson, bókmennta-
fræði, 9. Þorbjörg Sæmundsdóttir,
véla- og iðnaðarverkfræði, 10. Eyj-
ólfur Þorkelsson, læknisfræði, 11.
Þóra Gunnlaugsdóttir, hjúkrunar-
fræði, 12. Albertína Elíasdóttir, sál-
fræði/fjölmiðlafræði, 13. Valgeir
Bjarnason, ferðamálafræði, 14. Guð-
rún Ása Björnsdóttir, lífefnafræði,
15. Óli Halldór Konráðsson, hag-
fræði, 16. David Nacho Arjona Pé-
res, ensku, 17. Sæunn Stefánsdóttir,
viðskiptafræði, og 18. Kolbrún Bene-
diktsdóttir, lögfræði.
Í efstu sætum til háskólaráðs eru:
1. Eiríkur Gíslason, umhverfis- og
byggingarverkfræði, 2. Kristín
Laufey Steinadóttir, lyfjafræði, 3.
Ingvi Snær Einarsson, lögfræði, 4.
Pétur Ólafsson, sagnfræði/stjórn-
málafræði, 5. Valgerður B. Eggerts-
dóttir, lögfræði, 6. Gunnar Örn
Heimisson, íslensku, 7. Kamilla Ingi-
bergsdóttir, hagnýtri fjölmiðlun/
mannfræði, 8. Gestur Óskar Magn-
ússon, lögfræði, 9. Lára Kristín
Skúladóttir, viðskiptafræði.
Framboðslisti Röskvu
ÚR ÍSLANDSLJÓÐI
Ég ann þínum mætti í orði þungu,
ég ann þínum leik í hálfum svörum,
grætandi mál á grátins tungu,
gleðimál í ljúfum kjörum.
Ég elska þig, málið undurfríða,
og undrandi krýp að lindum þínum.
Ég hlýði á óminn bitra, blíða,
brimhljóð af sálaröldum mínum.
Einar Benediktsson
LJÓÐABROT
lið-a-mót
1.990
Reykjavík
Árbæjarapótek
Borgar Apótek
Garðs Apótek
Grafarvogs Apótek
Hringbrautar Apótek
Laugarnes Apótek
Rima Apótek
Landsbyggðin
Borgarness Aótek
Stykkishólms Apótek
Apótek Ólafsvíkur
Ísafjarðar Apótek
Siglufjarðar Apótek
Dalvíkur Apótek
Apótek Austurlands
Hafnar Apótek
Apótek Vestmannaeyja
Apótek Keflavíkur
TILBOÐ
Extra
sterkt
Fyrir fólk á öllum aldri
LANDSÝN
skógrækt, landgræðsla og skipulag
Ráðstefna á Kirkjubæjarklaustri 26.-27. febrúar 2003
Suðurlandsskógar, Landgræðsla ríkisins og Skógrækt ríkisins
standa fyrir ráðstefnu um skipulag við mismunandi landnýtingu
svo sem skógrækt og landgræðslu.
Breyttar áherslur í landnýtingu hér á landi kalla á umræður
um viðhorf og vinnubrögð í skipulagsmálum.
Ráðstefnan verður sett
miðvikudaginn 26. febrúar kl. 13:00 og er öllum opin.
Upplýsingar er að finna
á heimasíðu Suðurlandsskóga www.sudskogur.is
Tekið er við skráningu hjá Suðurlandsskógum,
netfang hronn@sudskogur.is
Nánari upplýsingar fást hjá Suðurlandsskógum, sími 480 1800.
Þátttöku þarf að tilkynna í síðasta lagi miðvikudaginn 19. febrúar.
CRANIO-NÁM • 2003-2004
A stig 22.-27. febrúar
Námsefni á íslensku, íslenskir leiðbeinendur.
Upplýsingar og skráning hjá Gunnari í síma 564 1803 og 699 8064.
C.C.S.T College of Cranio-Sacral Therapy. www.cranio.cc