Morgunblaðið - 12.02.2003, Side 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 47
Undanúrslit í kvöld 12. feb. kl. 19.30
HK — Fram
í Digranesi, Kópavogi.
Mætum öll.
Handhafar dómaraskírteina og HSÍ skírteina þurfa að
sækja miða í Digranes milli kl. 17 og 18.
Bikarinn 2003
FÓLK
ÍSLENDINGALIÐIÐ Haslum
gerði jafntefli við Follo, 26:26, í
millispili norsku 1. deildarinnar í
handknattleik um helgina. Daníel
Ragnarsson jafnaði metin fyrir
Haslum sjö sekúndum fyrir leikslok
en Haslum skoraði sex síðustu
mörk leiksins. Heimir Örn Arnar-
son skoraði sex mörk fyrir Haslum,
Daníel Ragnarsson fjögur og Theó-
dór Hjalti Valsson eitt.
STEVE Coppell, knattspyrnu-
stjóri Brighton, fer fögrum orðum
um landsliðsmanninn Ívar Ingi-
marsson, sem er kominn til félags-
ins sem lánsmaður frá Wolves. „Ív-
ar er frábær íþróttamaður og mun
falla vel inn í okkar hóp, sem er af-
ar mikilvægt fyrir okkur á þessu
stigi,“ sagði Coppell en Ívar lék
undir hans stjórn hjá Brentford og
spilaði hverja einustu mínútu með
liðinu í ensku 2. deildinni í fyrra.
ROY Keane, fyrirliði Manchester
United og fyrrverandi fyrirliði Ír-
lands, tilkynnti í gær að hann
myndi ekki gefa kost á sér framar í
landslið Írlands, að læknisráði.
Hann ætlar að nýta krafta sína ein-
göngu með Man. Utd í framtíðinni.
SERGIO Garcia frá Spáni segir
að hann setji stefnuna á að afreka
það sem engum öðrum atvinnukylf-
ing hefur tekist áður á þessu
keppnistímabili. Hinn 23 ára gamli
Garcia stefnir á að verða efstur á
stigalistanum á evrópsku- og
bandarísku mótaröðinni.
GARCIA sigraði á fyrsta mótinu
sem fram fór á keppnistímabilinu í
Bandaríkjunum í fyrra og endaði í
12. sæti á stigalistanum en í Evrópu
gekk honum betur og endaði í 3.
sæti. „ Ég hef sett mér þessi mark-
mið fyrir tímabilið. Það verður erf-
itt, ég veit að en ég ætlað að stefna
eins hátt og ég get. Það þýðir að-
eins eitt, efsta sætið á stigalistanum
á báðum vígstöðvum,“ segir Garcia.
SELWYN Reid lék ekki með
úrvalsdeildarliði Snæfells
gegn Keflvíkingum í bik-
arúrslitaleik liðanna sl. laug-
ardag þar sem Alþjóðakörfu-
knattleikssambandið, FIBA,
komst að þeirri niðurstöðu
að hann væri ekki gjald-
gengur með liðinu sem Evr-
ópuleikmaður en Reid er frá
Anguilla-eyjum í Vestur-
Indíum.
FIBA sendi KKÍ skeyti og
taldi Reid ekki hafa breskt
vegabréf og gæti hann því
ekki leikið á sama tíma og
Clifton Bush sem er Banda-
ríkjamaður. Aðeins má einn
leikmaður utan Evrópu leika
með íslenskum liðum hverju
sinni. Forráðamenn Snæfells
brugðu á það ráð að láta
Reid ekki leika til úrslita í
bikarkeppninni en á umboðs-
maður Reid benti FIBA hins-
vegar á að lögum í Bretlandi
hefði verið breytt á árinu
2002. Og því væri úrskurður
FIBA rangur.
Í gær kom tilkynning frá
FIBA um að eftir að sam-
bandið hafi endurskoðað
málið í ljósi nýrra gagna, þá
telst Reid hafa sömu réttindi
og Evrópubúar og er því
frjálst að leika með Snæfelli
sem slíkur.
Reid var því ekki talinn
vera Evrópuleikmaður í 6
daga og gat því ekki tekið
þátt í bikarúrslitaleiknum af
þeim sökum.
Reid lék
ekki
vegna
mistaka
FIBA
Það ræðst fyrst og fremst af þvíhvort Bjarki Sigurðsson leikur
með Aftureldingu eða ekki hvort liðið
á möguleika gegn Val,“ segir Viggó.
„Án Bjarka tel ég möguleika Aftur-
eldingar ekki mikla, en með honum
er tækifærið fyrir hendi. Viðureignir
þessara liða í gegnum tíðina hafa oft
verið jafnar og spennandi. Þá er og
þessi leikur síðasta tækifæri Aftur-
eldingar til þess að ná einhverjum ár-
angri eftir afspyrnu slakan árangur í
deildinni þar sem möguleikarnir á að
komast í úrslitakeppnina eru úr sög-
unni.
Að sama skapi hafa Valsmenn
möguleika á að sýna styrk sinn, en
liðið er mjög sterkt og á góðum degi á
það að vinna Aftureldingu, en staðan
í deildinni segir ekki alltaf alla sög-
una þegar komið er út í undanúrslit í
bikarkeppninni. Það veikir Valsliðið
að vera án síns Bjarka Sigurðssonar,
sem er meiddur, þar er vissulega
skarð fyrir skildi,“ segir Viggó.
Um viðureign HK og Fram í
Digranesi er Viggó viss um að það
sama verði upp á teningnum, það
verði barist fram á síðustu sekúndu.
„Framliðið er ágætt en hefur verið
nokkuð brokkgengt í vetur. Þegar
það nær vel saman þá leikur það vel.
Mikil barátta einkennir HK-liðið sem
eins og Valur á eflaust eftir að njóta
þess að vera á heimavelli í undan-
úrslitaleikjunum. Það er ekki ósenni-
legt að heimavellirnir ráði miklu um
það hvaða lið mætast í úrslitum bik-
arkeppninnar að þessu sinni,“ sagði
Viggó. „Það er því sennilegast að
Valur og HK mætist, en þó er aldrei
hægt að slá neinu föstu í þessum efn-
um.“
Leikmenn Fram og HK þekkja vel
þá stemningu sem fylgir úrslitaleik í
bikarkeppni, en Fram lék til úrslita
við Hauka í fyrra og HK árið á und-
an. „Menn eru alltaf tilbúnir að
leggja allt í sölurnar þegar svona
langt er komið í keppninni, allir vilja
komast í úrslitaleikinn. Þetta verða
því fyrst og fremst spennandi viður-
eignir þar sem ekki er hægt að slá
neinu föstu um úrslit leikjanna, það
verður hart tekist á fram á síðustu
stundu,“ segir Viggó Sigurðsson,
þjálfari bikarmeistara Hauka.
Morgunblaðið/Kristinn
Björgvin Páll Gústavsson, markvörður HK, varð að sjá á eftir þessum knetti fara fram hjá sér og
hafna í netinu – í leik gegn ÍR á dögunum. Hann verður í sviðsljósinu í kvöld í bikarleik gegn Fram.
Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, spáir í undanúrslitin
Það verður allt
lagt í sölurnar
„ÞAÐ er óhætt að lofa spennandi leikjum í undanúrslitunum. Stað-
reyndin er einfaldlega sú að þegar menn eru farnir að sjá glitta í
bikarinn þá leggja þeir sig alla fram til að komast alla leið í úrslita-
leikinn,“ segir Viggó Sigurðsson, þjálfari bikarmeistara Hauka, um
viðureignir Vals og Aftureldingar og HK og Fram í undanúrslitum
bikarkeppni HSÍ sem fram fara í kvöld. Viggó stýrði Haukum til sig-
urs í bikarkeppninni í fyrra og í hitteðfyrra en varð að bíta í það súra
epli að falla úr leik í 16-liða úrslitum að þessu sinni fyrir Aftureld-
ingu. Hann afskrifar ekki möguleika Aftureldingar.
GÚSTAF Bjarnason, landsliðsmaður í hand-
knattleik, sem leikur með Minden í þýsku úr-
valsdeildinni, þarf að gangast undir aðgerð á
öxl og er fyrirséð að hann leikur ekki meira
með Minden á tímabilinu. Samningur Gústafs
við Minden rennur út í sumar og hefur hann
tekið ákvörðun um að flytja heim. For-
ráðamenn Minden hafa þegar fundið eft-
irmann Gústafs. Sá er Lars Rassmussen,
danskur hornamaður sem leikur með Ajax/
Farum og er sem stendur markahæstur í
dönsku 1. deildinni.
„Hægri öxlin hefur verið að angra mig síð-
an ég fór næstum því úr axlarlið í leik með
Minden á móti Nettelstedt í lok desember. Það
hefur komið í ljós að liðþófinn er skaddaður
auk þess sem vöðvinn er togn-
aður og mér sýnist aðgerð
óumflýjanleg. Það er ljóst að
tímabilið er þar með búið hjá
mér,“ sagði Gústaf í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Gústaf hefur leikið í Þýska-
landi fimm síðustu árin,
fyrstu tvö með Willstätt og
undanfarin þrjú keppn-
istímabil með Minden, sem er í mikilli fall-
hættu í þýsku deildinni. „Þetta er búinn að
vera fínn tími og lærdómsríkur en okkur fjöl-
skyldunni finnst tímabært að koma heim í
sumar. Við ætluðum okkur ekki að vera leng-
ur úti nema í fjögur til fimm ár.“
Gústaf Bjarnason úr leik
og hættir hjá Minden
Gústaf
Meistarakeppni á ný
MEISTARAKEPPNI Knattspyrnusambands Íslands hefur verið
endurvakin og verður leikin bæði í karla- og kvennaflokki í ár. Ís-
landsmeistarar KR og bikarmeistarar Fylkis í karlaflokki mætast í
Egilshöll 16. mars en dagsetning fyrir kvennaleikinn liggur ekki
fyrir. Þar leika Íslands- og bikarmeistarar KR gegn Breiðabliki,
sem varð í öðru sæti úrvalsdeildar, en á ársþingi KSÍ um helgina
var samþykkt að þegar sama lið ynni bæði stóru mótin yrði það lið
númer tvö í deildinni sem tæki þátt í meistarakeppninni, ekki tap-
liðið úr bikarnum, sem var Valur. Þá er ekki lengur skilyrði að
keppnin fari fram á grasi. Meistarakeppni karla fór síðast fram ár-
ið 1998 en þá vann ÍBV sigur á Leiftri, 2:1, á Laugardalsvellinum í
byrjun október. Frá þeim tíma hefur ekki verið pláss fyrir keppn-
ina en með tilkomu knattspyrnuhúsanna hefur staðan gjörbreyst.