Morgunblaðið - 12.02.2003, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 51
SÚ ÍMYND, sem Íslendingar hafa af
Norðmönnum er vægast sagt ekki að
þeir séu töff og í takt við tímann. En
þetta eru náttúrulega bara fordóm-
ar, sem hljómsveitir á borð við Röyk-
sopp og nú síðast tónlistarmaðurinn
Erlend Øye hafa og geta breytt.
Erlend er líkt og Röyksopp frá
Bergen í Noregi. Hann er ábyrgur
fyrir söngnum á tveimur þekktum
lögum hljómsveitarinnar, „Poor
Leno“ og „Remind Me“ en lögin er
að finna á frumraun Röyksopp, Mel-
ody A.M.
Erlend er ennfremur helmingur
hljómsveitarinnar Kings of Conven-
ience en hefur að undanförnu ein-
beitt sér að gerð rafrænnar tónlistar.
Á mánudaginn kom út fyrsta eigin-
lega sólóskífa hans, Unrest.
Þema plötunnar er heldur sér-
stakt, eirðarleysi og hverju það get-
ur skilað, eins og nafn plötunnar gef-
ur til kynna.
Tíu borgir og tíu lög
Erlend gerði plötuna á tímabilinu
júlí 2001 til júní 2002. Hann ferðaðist
til tíu borga þar sem hann samdi og
tók upp eitt lag í hverri borg, í sam-
vinnu við tónlistarmann á staðnum.
Alls eru því tíu lög á disknum, sem
tekin eru upp í New York, Connecti-
cut, Uddevalla, Róm, Barcelona,
Rennes, Turku, Bergen, Helsinki og
Berlín.
Lögin vinnur Erlend með tónlist-
armönnum á borð við Björn Torske í
Noregi, Schneider TM í Þýskalandi
og Mr. Velcro Fastener í Finnlandi.
Útkoman er skemmtileg raftón-
listarplata í anda níunda áratugar-
ins, með tíu lögum, sem öll tengjast í
gegnum seiðandi rödd Erlends.
„Röddin mín er eins og tómatsósa
frá Heinz. Það er hægt að nota hana
með öllu og allt bragðast það eins,“
segir Erlend og bætir við að „bjart-
sýnn dapurleiki“ einkenni margt
sem hann geri.
Þrátt fyrir að vera nokkuð sjóaður
í ferðalögum hefur Erlend ekki stigið
fæti á Ísland en hefur fullan hug á
því. „Veit einhver hver ég er á Ís-
landi?“ spyr þessi rólegi og hæverski
tónlistarmaður. Kannski ekki enn
sem komið er en það á vonandi eftir
að breytast.
Erlend hefur þó tengingu við Ís-
land því hann er kunnugur múm-lið-
um en hluti hljómsveitarinnar er bú-
settur í Berlín líkt og Erlend.
Kunni ekki að gera raftónlist
„Ein ástæða þess að ég lagðist í
ferðalög var að mig langaði til að
gera raftónlistarplötu. Vandinn var
að ég kunni ekki að gera raftónlist
sumarið 2001. Ég hafði samt unnið
með strákunum í Röyksopp og hefði
mest langað til að gera plötuna með
þeim. En ég vissi að þeir ættu eftir
að hafa nóg annað að gera og að plat-
an myndi ganga vel, eins og hefur
komið á daginn.“
Hann segir að samstarfið við
Röyksopp hafi gefið honum hug-
myndina að ferðast og leita að fólki á
borð við norsku sveitina til að vinna
með.
„Ég söng „Remind me“ með
Röyksopp eftir að hafa verið í burtu
frá Bergen í langan tíma. Ég hafði
verið að ganga um borgina áður en
ég fór í hljóðverið og fékk innblástur
frá augnablikinu. Söngurinn kom frá
þessu augnabliki og var tekinn upp
strax,“ segir Erlend og bætir við að
þetta hafi verið allt önnur vinnu-
brögð en með rólega gítardúettinum
Kings of Convenience.
Sköpunarkraftur borganna
„Þarna sá ég að ég gæti samið lög
á nýjan hátt. Mér datt í hug að ef ég
færi til nokkurra mismunandi borga,
þá fengi ég orkuna frá því að vera á
nýjum stað og hitta nýtt fólk. Að þá
færu hlutirnir að gerast,“ segir Er-
lend og virðist hafa haft rétt fyrir
sér.
Hann er þó enn hluti af Kings of
Convenience. „Við ætlum að gera
nýja plötu í sumar, á svipuðum nót-
um og áður.“
Erlend tók sköpunarkraft borg-
anna og nýtti hann í hljóðverinu og
úr varð lag, eins og hann útskýrir
það.
„Það var bæði auðvelt og erfitt að
vinna alltaf með nýju fólki, sem er
ólíkt innbyrðis. Ég varð að læra inn á
það og kynnast þeirra sterkustu hlið-
um. Ég þurfti líka sjálfur að læra
margt varðandi samvinnu við fólk,“
játar hann.
Erlend hefur verið búsettur í Berl-
ín í um ár. „Borgin er ennþá í mótun.
Það er rými fyrir fólk með mismun-
andi hugmyndir og skoðanir.“
Hann segir Bergen vera þá norsku
borg, sem mest spennandi raftónlist-
in hafi komið frá síðustu ár. „Ég veit
ekki af hverju. Kannski af því að
borgin er frekar einangruð,“ segir
hann og nefnir að tónar frá Tromsö
hafi einnig borist víða.
Ný smáskífa og The Rapture
Hann gerir ekki mikið upp á milli
borganna, sem hann heimsótti. „Það
er gaman að fara út á lífið í Turku og
það er auðvitað frábært að vera í
New York,“ nefnir Erlend sérstak-
lega.
„Þegar ég var í New York sá ég
frábæra hljómsveit sem heitir The
Rapture. Við höfum líka spilað oft á
sömu stöðum þannig að ég þekki þá
vel núna,“ segir hann en hljómsveitin
er Íslendingum að góðu kunn eftir
síðustu Iceland Airwaves-tónlist-
arhátíð.
„Hljómsveitin er frábær. Þeir eru
að endurhljóðblanda lagið mitt
„Sheltered Life“,“ segir Erlend og
gleður það eflaust aðdáendur sveit-
arinnar hérlendis. „Ég hlakka til að
heyra útkomuna,“ segir hann en
smáskífan með laginu er væntanleg í
apríl.
Erlend stefnir á að hafa aðsetur í
Berlín eitthvað áfram en framundan
eru ferðalög tengd tónlistinni. Hann
spilar bæði sem plötusnúður og
ferðast um með fjögurra manna
hljómsveit.
„Ég hef mikið verið að spila sem
plötusnúður undanfarið. Ótrúlegt en
satt þá kaus þýskt tónlistartímarit
mig fjórða besta plötusnúð Þýska-
lands. Ég kann ekki einu sinni að
taktblanda. Ég spila bara hvern
smellinn á fætur öðrum, Michael
Jackson og New Order. Fólk var
kannski komið með leiða á gömlu
plötusnúðunum.“
Erlend Øye gefur út plötuna Unrest
Rödd eins og tómatsósa
Hann er norskur og var
valinn fjórði besti plötu-
snúður Þýskalands af
tónlistartímariti þrátt
fyrir að kunna ekki að
taktblanda. Inga
Rún Sigurðardóttir
ræddi við Erlend Øye,
annan helming Kings
of Convenience, sem
þekktastur er fyrir að
syngja með löndum
sínum í Röyksopp.
Margir kannast áreiðanlega við seiðandi rödd Erlends Øye úr lögum
Röyksopp en hann er norskur tónlistarmaður búsettur í Berlín.
ingarun@mbl.is
Platan Unrest með Erlend Øye kom
út á mánudag.
Nýr og betri
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12.
Búðu þig undir D-daginn 28. febrúar
Hverfisgötu 551 9000
Kvikmyndir.com
SV MBL
Sýnd kl. 10. B.i. 14.
kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i 12.
Tilnefningar
til Óskars-
verðlauna
þ. á. m. besta
mynd
13
6
Tilnefningar til Óskarsverðlauna
þ. á. m. Salma Hyaek sem besta
leikona í aðalhlutverki
GRÚPP-
ÍURNAR
Sýnd kl. 6 og 8.
CATHERINE ZETA - JONES
RENÉE ZELLWEGER RICHARD GERE
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i 12.
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 5,30. B.i. 12.Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14.
Frábær ævintýra
og spennumynd fyrir alla
fjölskylduna.
SV. MBL
Kvikmyndir.com
Búðu þig undir D-daginn 28. febrúar
RENÉE ZELLWEGER CATHERINE ZETA - JONES
RICHARD GERE
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15.
Tilnefningar
til Óskars-
verðlauna
þ. á. m. besta
mynd
13
YFIR 90.000 GESTIR
6Tilnefningar tilÓskarsverðlaunaþ. á. m. besta mynd