Morgunblaðið - 12.02.2003, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 53
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5 og 8. B. I. 16.
Sýnd kl. 5, 8 og 10. / Sýnd kl. 8 og 10. / Sýnd kl. 8 og 10.
Náðu þeim í
bíó í dag.
í mynd
eftir Steven
Spielberg.
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal. / Sýnd kl. 4. Ísl. tal.
KRINGLAN ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
kl. 6, 8 og 10. B. i. 14. / kl. 8 og 10.8 B. i. 14. / kl. 6 og 8. B. i. 14.
Sýnd kl. 10.30.
leonardo dicaprio tom hanks
Radíó X
SV MBL
HK DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com Missið ekki af einni
skemmtilegustu mynd ársins.
Leonardo diCaprio og Tom
Hanks hafa aldrei verið betri.
KEFLAVÍK / AKUREYRI
Sýnd kl. 8. / Sýnd kl. 6.
ÁLFABAKKI
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 4 og 6
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI KRINGLAN
Kvikmyndir.isRadíó X
a.
Sýnd kl. 5. ísl. tal. / Sýnd kl. 8. enskt tal.
ÁLFABAKKI KEFLAVÍK AKUREYRI
Massive Attack
100th Window
Virgin
Fjórða plata Massive Attack. Síðasta
plata, Mezzanine, kom út 1998.
MASSIVE Attack eiga að baki
þrjár plötur sem allar eru meistara-
verk og ég er ekki fjarri því að þeim
hafi tekist það enn einu sinni með
100th Window, sem beðið hefur verið
eftir í hartnær fimm ár.
Það tekst nefnilega dálítið (eða öllu
heldur dámikið) á þessari plötu sem
jafnan misferst þegar listamenn eru í
samskonar stöðu og Massive Attack
eru í nú (Underworld og Stone Roses,
punktið niður hjá ykkur!). Hér er stíl
sveitarinnar nefnilega viðhaldið án
þess að hann hljómi
hallærislegur eða
um listræna stöðn-
un sé að ræða. Öll
lögin, sem flest eru
sex til átta mínútur
að lengd, rúlla
þannig áfram af miklu öryggi – hrynj-
andin er svöl og hæglætisleg, öll
stemning myrk og dulúðug. Heildar-
svipurinn er þægilegur og hlýr um
leið og hann er skuggalegur. Hljóð-
heimur Massive Attack er einstakur
og 100th Window er vel heppnuð út-
færsla á þeim styrk sem þar býr.
Þessi heimur er nú meira inn í sig en
áður, er einsleitari og gefur þetta
plötunni nokkuð sérstæðan sjarma.
Um leið nær hún ekki sömu hæðum
og t.d. Mezzanine en þetta er heldur
ekki þess lags verk. Gestasöngkonan
Sinead O’Connor fellur þá vel að
hljómunum sem hér eru ofnir og ar-
abískir strengir sömuleiðis.
Hljómarnir eru kunnuglegir, já, en
það er unnið með þá af natni og
innsæi fyrir því hversu langt er hægt
að ganga í þeim efnum. Þetta er þann-
ig fjarri endurvinnsla á fornri frægð.
Engu að síður grunar mig að þessi
plata verði sett niður af bæði hörðum
aðdáendum og þeim sem nýjabrumið
hugnast best. Það gerir biðin eftir
nýju verki og sú staðreynd að engar
listrænar breytingar hafa átt sér stað.
Gott og vel. En þær (hugsanlegu)
ásakanir hafa bara enga „laga“stoð.
Þessi plata, ein og óskipt, er frábær
og stendur glæst sem fjórða rósin í
hnappagat sveitarinnar (sem inni-
heldur víst bara einn liðsmann nú,
Robert „3D“ Del Naja). Innan raf- og
danstónlistarinnar er árangur sem
hér er staðreynd sjaldgæfur. Það er
því enn allt opið hjá Massive Attack
og máttur þeirra er enn sem áður
mikill.
Arnar Eggert Thoroddsen
Tónlist
Allt opið
SAMKVÆMT opinberri heimasíðu
Bjarkar Guðmundsdóttur
(www.bjork.com) vinnur hún að
nýrri plötu hér á landi um þessar
mundir. Fréttin er reyndar nokkuð
ruglingsleg en
fram kemur að
platan muni
heita Lake
Experience.
Lauslega
þýtt, þá kemur
þetta fram á
vefnum:
„ …spennt. Já.
Lag á dag.
Lag á
dag …Enginn
friður. Það er
sköpun nýrrar
plötu …Bráð-
um? Já, vinn
hörðum hönd-
um næstu vik-
ur og mánuði.
Áður en sum-
artónleikarnir
hefjast. Við er-
um skilin eftir. Skilin eftir með engin
lög. En tvenns konar upplifun. Ekki
áður heyrt. Ekki lög. Kannski smá-
skífur …Vatnsplatan? Já, þetta er
vatnsplatan …“
Morgunblaðið hafði samband við
talsmann Bjarkar hjá www.bjork-
.com.
„Björk ætlar að halda tónleika í
Evrópu og Bandaríkjunum í sumar.
Hún er byrjuð að taka upp nýja plötu
og það gengur bærilega. Hún ætlar
að afhenda hana áður en hún leggst í
ferðalög.“
Skv. sömu heimild hyggst hún sem
sagt klára alla vinnu fyrir túrinn en
óráðið er með útgáfudag plötunnar.
Aðspurður af hverju vinnan sé svona
hröð segir heimildarmaður að Björk
sé stöðugt semjandi.
„Vespertine var t.d. löngu klár
fyrir útgáfudag. Það eru útgáfufyr-
irtækin sem eru með einhverjar
markaðsmeldingar með sjálfan út-
gáfudaginn.“
Þetta skjóta vinnsluferli styður
reyndar það sem Björk lýsti yfir í
Kastljósi um daginn, þ.e. að hana
langaði til að vinna næstu plötu hrað-
ar en Vespertine.
Þess má geta að í gær var sér-
stakur Bjarkardagur hjá sjónvarps-
stöðinni MTV Europe þar sem meðal
annars var sýnt sérstakt viðtal sem
stöðin tók hérlendis fyrir stuttu.
Ný Bjarkarplata
Upplifun í
vatni
TENGLAR
.....................................................
www.bjork.com
í burðarliðnum
Hvaða dularfullu
skilaboð eru þetta
á heimasíðu
Bjarkar Guð-
mundsdóttur?
TÍSKUVIKAN í New York þar sem
sýnd er tískan fyrir næsta haust og
vetur stendur enn yfir. Sýningar
Carolinu Herrera og Oscar de la
Renta voru fyrir glæsilegar konur
með nóg fé handa á milli og hlutu
ágætis viðtökur. Að þessu sinni
verður litið til hönnuða sem höfða
til heldur yngri aldurshóps en það
eru Marc Jacobs og Betsey John-
son.
Jacobs er áhrifamikill hönn-
uður og oftar en ekki ratar það
sem hann sýnir á sýningarpöll-
unum í New York í búðir í Kringl-
unni, á Laugaveginum og í
Smáralind.
Stjörnur í tónlistar-, tísku- og
kvikmyndaheiminum eru fasta-
gestir hjá Jacobs og sitja í fremstu
röð. Í þetta sinnið fylgdust P.
Diddy, Liv Tyler, Kristin Davis,
Clare Danes, Anna Sui og Helena
Christensen með.
Sýning hans var poppuð og í
anda sjöunda áratugarins undir
áhrifum frá hönnuðum á borð
við Paco Rabanne. Litirnir voru
sterkir og litasamsetningar
sérstakar, rautt og fjólublátt
saman og blátt og appelsínu-
gult. Engin löngun til að
blandast inn í bakgrunninn
þar, enda hafa rokkstjörnur
og leikarar yfirleitt litla þörf
í þá áttina.
Betsey Johnson sýndi á
mánudaginn og kallaðist sýn-
ingin Betseyville. Sýningin var
litrík og ungæðisleg eins og
hennar er von og vísa.
Sýningarstúlkurnar sem búa í
Betseyville ganga ekki sviplausar
um pallana heldur brosa og blikka
augum.
Þannig að það er aldeils líf í tusk-
unum í New York þessa dagana, að
minnsta kosti hjá Jacobs og John-
son.
AP
Marc
Jacobs
Betsey
Johnson
Tískan fyrir haust/vetur 2003–4 í New York
Líf í tuskunum