Morgunblaðið - 12.02.2003, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Hann segir ekki útlit fyrir að hægt verði að fara á
sjó fyrr en eftir helgi.
Mokveiði hefur verið hjá línubátum í Grindavík
að undanförnu, einkum hjá stærri bátum. Að
sögn Ómars hafa menn fiskað svo fremi sem þeir
hafa komist frá landi og t.a.m. fékk Dúddi Gísla
„VIÐ bíðum í rauninni bara í ofvæni eftir að hann
lægi,“ segir Ómar Davíð Ólafsson, vélstjóri á
línubátnum Dúdda Gísla GK. Ómar fór á sjó 4.
febrúar sl. og hefur ekki farið út síðan sökum
brælu. Í fyrradag náði ölduhæðin úti fyrir
Grindavík átta og hálfum metra þegar mest var.
rúm fimm tonn í síðasta róðri, mest af þorski.
Meðan ekki viðrar til sjósóknar dytta menn
hins vegar að bátunum, huga að landfestum og
setja í gang.
Á myndinni ræðast þeir við, Ómar t.h., og Þór-
hallur Benónýsson á línubátnum Gísla Einars GK.
Morgunblaðið /RAX
Beðið eftir að hann lægi
urðaverðs og nauðsynlegar leiðrétt-
ingar ekki náð fram að ganga hjá
Verðlagsstofu skiptaverðs. Þetta
gerist á sama tíma og fyrirtækin
taka á sig aukin útgjöld í samræmi
við ákvæði kjarasamninga.“
Arnar segir að fiskverð til sjó-
manna á vinnsluskipum og á fiski
sem seldur er beint á erlendum
markaði fylgi nokkuð gengissveifl-
um. Eins komi þessar sveiflur fram í
fiskverði á innlendum fiskmarkaði
en þær séu þó hægari. Í beinum við-
skiptum hafi fiskverð hinsvegar
hækkað og það auki mjög á vanda
fyrirtækjanna þegar afurðaverð fari
lækkandi með styrkingu krónunnar.
„Við áttum ekki von á þessari miklu
styrkingu krónunar. Mönnum er því
brugðið þegar þriðjungur af fram-
legðinni er horfinn á skömmum tíma.
Þetta veldur miklum erfiðleikum,
einkum í rækjuvinnslunni þar sem
reksturinn var mjög þröngur áður.
Þegar færri krónur fást fyrir afurð-
irnar getur það riðið baggamuninn í
rekstri nokkurra fyrirtækja. Við
gerum okkur hinsvegar grein fyrir
því að gengi krónunnar ræðst á
markaði og þess vegna fannst okkur
skilaboðin frá Seðlabankanum á
mánudag heldur rýr, þegar stýri-
vextir voru aðeins lækkaðir um
0,5%,“ segir Arnar.
nánast staðið í stað. Raunar hefur
verðið lækkað um 4,4% í saltfiski og
hækkað um 4,7% í landfrystum
þorski.
Arnar Sigurmundsson, formaður
SF, segir að þessi niðurstaða komi
heim og saman við framlegðarút-
reikninga SF, en þar hafi framlegð
minnkað um þriðjung á einu ári.
Hann segir að helstu ástæður
minnkandi framlegðar í fiskvinnslu
megi rekja til hækkunar á gengi ís-
lensku krónunnar á undanförnum
mánuðum. „Ástæða þess að verðþró-
un í þorski er sérstaklega tekin fyrir
í samantekt SF er einkum vegna
mikilvægis hans í útflutningi sjávar-
afurða og áhrifa á afkomuna. Svip-
aða sögu um breytingu á framlegð
má segja af vinnslu annarra fiskteg-
unda. Við þessar aðstæður hefur
hráefnisverð ekki fylgt lækkun af-
FRAMLEGÐ í fiskvinnslu, þ.e. það
sem eftir stendur til greiðslu hráefn-
is og vinnulauna í frystingu í landi,
hefur minnkað um rúmlega þriðjung
á einu ári. Hráefnisverð á þorski í
beinum viðskiptum og innlendum
fiskmörkuðum hækkaði um 15% á
árunum 2001 og 2002. Á sama tíma-
bili stóð skilaverð fyrir þorskafurðir
nánast í stað, samkvæmt samantekt
Samtaka fiskvinnslustöðva á þróun
hráefnisverðs á þorski á innlendum
fiskmörkuðum og í beinum viðskipt-
um.
Í upplýsingum frá SF kemur fram
að samanvegið hráefnisverð á slægð-
um þorski í beinum viðskiptum hefur
hækkað um tæp 29% á umræddu
tímabili en lækkað um rúm 7% á inn-
lendum fiskmörkuðum. Á sama
tímabili hefur skilaverð fyrir þorsk-
afurðir umreiknað í íslenskar krónur
Þriðjungslækkun á
framlegð í fiskvinnslu
Fiskverð í beinum viðskiptum hækkar
en færri krónur fást fyrir afurðirnar
!" #
$
#" %#
#"
' ( $!
)
! D
A
(
B
E
# ( C
(E8%
D8.
B%8F
BJÖRK Guðmundsdóttir er langt
komin með vinnu á nýrri breið-
skífu, sem bera mun nafnið Lake
Experience. Að sögn starfsmanns
vefsíðu Bjarkar, www.bjork.com,
hyggst hún ljúka vinnu við plötuna
fyrir sumarið, en þá heldur hún í
tónleikaferðalag til Evrópu og
Bandaríkjanna. Útgáfudagur hefur
ekki verið ákveðinn.
Ný plata
með Björk
Upplifun/53
NOKKUÐ óvenjulegt mál rak á fjörur lögregl-
unnar í Ólafsvík síðdegis í gær. Um hálfsexleytið
kom kona akandi á Pajero-jeppa sínum að lög-
reglustöðinni og tilkynnti varðstjóranum að
köttur væri í bílnum hennar, en þó ekki inni í
honum heldur í vélinni. Þorði konan ekki að
kíkja ofan í vélina af ótta við það sem fyrir augu
kynni að bera.
Lögreglan fór út með konunni og opnaði vél-
arhlífina en enginn köttur var í vélinni og ekki
linnti ámátlegu vælinu í honum. Lögreglan gáði
þá undir bílinn en þar sást ekki nokkur köttur.
Þá var náð í vasaljós og farið aftur undir bílinn
og kom lögregla þá auga á köttinn uppi á bens-
íntanknum. Að sögn varðstjóra voru menn lengi
að baksa við að fá köttinn til að mjaka sér ofan
af tanknum, en það tókst þó að lokum.
Reyndist þetta vera köttur konunnar sem
hafði sníkt sér far með henni sem leið lá frá Rifi
til Ólafsvíkur, um 10 kílómetra leið.
Þegar lögreglan spurði konuna nánar út í
málið kom í ljós að hún hafði heyrt mjálmið í
kettinum alla leiðina meðan hún ók til Ólafs-
víkur en hélt framan af að kötturinn væri inni í
bílnum.
„Það er eiginlega stórmerkilegt að kötturinn
skyldi lifa þetta ferðalag af,“ sagði varðstjórinn.
Konan var að vonum himinlifandi að kötturinn
skyldi nást undan bílnum og fékk hann far með
konunni heim, í farþegarýminu að þessu sinni.
Kötturinn sat fastur á bensíntanknum
Kona leitaði aðstoðar
lögreglu vegna mjálms
í jeppabifreið sinni
UNGUR maður beið bana í vinnu-
slysi skömmu eftir hádegið í Reykja-
vík í gær.
Tilkynnt var um slysið til lögreglu
um klukkan 13.30. Maðurinn, sem
var fæddur 1973, féll niður af vinnu-
palli í Bryggjuhverfinu í Grafarvogi.
Hann kom niður á steinsteypt plan
eftir fallið og var fluttur á slysadeild,
en um klukkan 15 fékk lögreglan til-
kynningu um að hann væri látinn.
Tildrög slyssins eru ókunn en lög-
reglan vinnur að rannsókn málsins.
Ekki er hægt að birta nafn hins
látna.
Banaslys í
Grafarvogi
BJÖRGÓLFUR Guðmundsson
hyggst samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins gefa kost á sér í
bankaráð Landsbankans fyrir hönd
Samsonar eignarhaldsfélags ehf.,
sem í lok liðins árs gekk frá kaupum á
tæplega helmingshlut í bankanum.
Boðað hefur verið til aðalfundar
Landsbankans á föstudag. Áður hafði
komið fram í fréttum að Samson
myndi sækjast eftir því að fagaðilar,
sem ekki eiga í eignarhaldsfélaginu,
setjist í bankaráðið og að í fyrstu
myndi aðeins einn eigenda Samsonar
sækjast eftir kjöri í bankaráð.
Björgólfur
Guðmundsson
í bankaráð
AUGLÝSENDUR hafa tekið Bílum,
sérblaði Morgunblaðsins, vel. Í sér-
blaðinu, sem fylgir Morgunblaðinu í
dag, eru á þriðja hundrað bílar aug-
lýstir til sölu auk fjölda annarra aug-
lýsinga sem tengjast bílum og öðrum
ökutækjum. Í blaðinu er fjallað í máli
og myndum á 32 blaðsíðum um sport-
bíla, fólksbíla, jeppa, jeppabreytingar
og jeppaferðir, vélsleða og ýmsa hluti
sem tilheyra ökutækjum.
Auglýsa
á þriðja
hundrað bíla
í Bílum
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦