Morgunblaðið - 14.02.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 43. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2003 mbl.is
Uppnám
eftir tapið
Enska landsliðið skammað eftir
tap fyrir Ástralíu Íþróttir 53
Menntaskólinn við Hamrahlíð setur
upp Örlagasystur í Austurbæ Fólk 60
Lagskipt eins
og lasagna
Gísli Rúnar Jónsson stílfærir
farsann Allir á svið Menning 30
Ævintýrin
gerast enn
RANNSÓKN skattrannsóknarstjóra ríkisins á
skattskilum Jóns Ólafssonar á árunum 1996–
2001 og á bókhaldi og skattskilum Jóns Ólafs-
sonar & Co sf., hefur leitt í ljós þá niðurstöðu að
vanframtaldar tekjur, eignir, söluhagnaður og
hlunnindi, á því tímabili sem rannsóknin náði til,
nemi samanlagt um 3,2 milljörðum kr.
Niðurstöður rannsóknarinnar, sem hófst 21.
febrúar á seinasta ári, eru birtar í tveimur
skýrslum embættisins og hafa lögmenn Jóns
Ólafssonar afhent skattrannsóknarstjóra and-
mæli hans. Þar er niðurstöðum rannsóknarinn-
ar harðlega mótmælt sem röngum og málsmeð-
ferð embættisins er gagnrýnd.
Getur verið brot á hegningarlögum
Í skýrslu skattrannsóknarstjóra kemur fram
að embættið telur að vanframtaldar tekjur Jóns
Ólafssonar á tímabilinu sem rannsóknin náði til
séu tæpar 208 milljónir kr., vanframtalin bif-
reiðahlunnindi séu 7,4 milljónir kr., vanframtal-
in önnur hlunnindi séu 7,3 milljónir kr., van-
framtalinn söluhagnaður sé að lágmarki 1,284
milljarðar kr. og vanframtaldar eignir séu um
500 milljónir.
Samhliða rannsókn skattrannsóknarstjóra á
skattskilum Jóns Ólafssonar, gerði embættið
sjálfstæða rannsókn á bókhaldi og skattskilum
félagsins Jóns Ólafssonar & Co. sf. fyrir rekstr-
arárin 1998 og 1999. Kemst embættið að þeirri
niðurstöðu að söluverðmæti eignarhluta skatt-
aðilans í Fjölmiðlun hf. til Inuit Enterprises
Ltd., með aðsetur á Bresku Jómfrúreyjum, hafi
numið að lágmarki rúmum 1,3 milljörðum króna
og að vanframtalinn söluhagnaður hafi numið
rúmlega 1,2 milljörðum kr.
Er því m.a. haldið fram að telja verði að Jón
Ólafsson og Símon Á. Gunnarsson, löggiltur
endurskoðandi, hafi af ásetningi rangfært bók-
hald og skattframtal skattaðilans í tengslum við
sölu á eignarhlut Jóns Ólafssonar & Co. í Fjöl-
miðlun hf. Er þessi meðferð á viðskiptunum í
bókhaldi talin geta brotið gegn ákvæðum laga
um bókhald, laga um ársreikninga og almennra
hegningarlaga. Þá sýnist að sú háttsemi Jóns og
Símonar að standa skil á röngum skattframtöl-
um fyrir skattaðilann kunni að varða þá refsingu
skv. 5. mgr., sbr. 107. gr. laga nr. 75/1981, um
tekju- og eignarskatt og 262. gr. hegningarlaga.
Segir fulla skattskyldu í Bretlandi
Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður
vísar á bug í andmælum fyrir hönd Jóns Ólafs-
sonar að Jón hafi vanframtalið tekjur sínar og
stundað skattsvik. Fram kemur í andmælum
hans að bresk skattyfirvöld hafi staðfest að Jón
beri fulla skattskyldu í Englandi. Ragnar gagn-
rýnir málsmeðferð skattrannsóknarstjóra harð-
lega, segir hann hafa misbeitt valdi sínu við
rannsóknina, brotið gegn lögum um meðferð op-
inberra mála og gegn meðalhófsreglu stjórn-
sýsluréttarins.
Niðurstöðu rannsóknar skattrannsóknar-
stjóra á bókhaldi og skattskilum Jóns Ólafsson-
ar & Co. er einnig mótmælt sem rangri og órök-
studdri í andsvörum við skýrsluna.
Fram kemur í skýrslu skattrannsóknarstjóra
að rannsókn á bókhaldi og skattskilum Norður-
ljósa samskiptafélags hf. og tengdra félaga hafi
leitt í ljós, að vel á annan tug einstaklinga hafi
þegið greiðslur vegna starfa sinna í þágu félag-
anna á árunum 1996–2001, án þess að gerð hafi
verið grein fyrir þeim launagreiðslum sem slík-
um í bókhaldi og launauppgjöf félaganna til
skattayfirvalda.
Jón Ólafsson sendi frá sér yfirlýsingu í gær,
þar sem hann segist hafa heimilað lögmönnum
sínum að afhenda Morgunblaðinu öll gögn varð-
andi skattamál sitt og JÓCÓ ehf. „enda hef ég
ekkert að fela hvorki gagnvart íslenskum né
enskum skattayfirvöldum, sem hafa úrskurðað
mig sem enskan skattþegn frá árinu 1998 að
telja. Með því að afhenda Morgunblaðinu öll
gögn svo blaðamenn þar geti unnið úr þeim
fréttir vonast ég til að sögusögnum um stórfelld
skattsvik mín linni og ég fái notið þeirra mann-
réttinda á Íslandi að vera saklaus þar til sekt
mín hefur verið sönnuð með þeim hætti sem lög
kveða á um,“ segir í yfirlýsingunni.
Rannsókn skattrannsóknarstjóra á skattskilum Jóns Ólafssonar og Jóns Ólafssonar & Co. sf.
Vanframtaldar fjárhæðir
taldar nema 3,2 milljörðum
Ásökunum um undanskot harðlega mótmælt í andmælum
Rannsókn og andmæli 14–23
VOPNAEFTIRLITSMENN Sameinuðu þjóðanna leituðu í gær gereyð-
ingarvopna nærri bænum Khan Bni Saad í Írak, sem er 30 km norður af
Bagdad. Á meðan reyndi þessi íraski maður að tryggja sér tekjur með sölu
eggja á útimarkaði í Khan Bni Saad. Íbúar Íraks munu sjálfsagt fylgjast
grannt með fundi öryggisráðs SÞ í dag.
Reuters
Selur Írökum egg
ÍRAKAR sögðust í gær vænta þess
að niðurstöður skýrslu sem Hans
Blix, yfirmaður vopnaeftirlitsnefnd-
ar Sameinuðu þjóðanna, flytur ör-
yggisráði SÞ í dag yrðu þeim hag-
stæðar. Skýrslunnar er beðið með
eftirvæntingu en margir telja að
vitnisburður Blix um það hvort
Írakar hafi sýnt viðleitni til að af-
vopnast, líkt og öryggisráðið hefur
gert kröfu um, kunni að ráða úrslit-
um um hvort til hernaðaríhlutunar
komi í Írak.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að ekki
væri sjálfgefið að Írak yrði lagt í
rúst þó að gerð yrði árás á landið til
að bola Saddam Hussein frá völd-
um. „Ég vona að átökin verði
skammvinn og að þau miðist fyrst
og fremst gegn leiðtogum landsins,
en ekki samfélaginu í heild,“ sagði
Powell er hann kom fyrir þingnefnd
í Washington.
Powell verður viðstaddur fund
öryggisráðsins í dag og kveðst hann
þar ætla að spyrja franska og
þýska starfsbræður sína hversu
langan tíma þeir vilji gefa Saddam,
en Frakkar og Þjóðverjar vilja að
vopnaeftirlitið verði útvíkkað. „Er-
uð þið aðeins að tefja fyrir í þeim
tilgangi að koma Saddam Hussein
úr klípunni? Um þetta ætla ég að
spyrja þá,“ sagði Powell.
Skýrslu Blix beðið
með eftirvæntingu
Eldflaugar/26
Schröder ver/27
Bagdad, Washington. AFP.
JAPANIR vöruðu í gær við því að
þeir myndu ráðast að fyrra bragði
gegn Norður-Kóreu ef fyrir lægju
skýrar vísbendingar um að stjórnvöld
í Pyongyang
hygðust skjóta
eldflaugum á Jap-
an. Sagði Shigeru
Ishiba, varnar-
málaráðherra
Japans, að of seint
yrði að bregðast
við ef eldflaugar
Norður-Kóreu-
stjórnar væru
þegar á leið til Japans.
Frá þessu var sagt á fréttasíðu
BBC. Ummæli Ishibas vekja athygli
en þau eru til marks um hversu mikil
spenna er hlaupin í deilur um kjarn-
orkuáætlanir Norður-Kóreustjórnar.
Ummælin koma ennfremur í kjölfar
yfirlýsinga Norður-Kóreumanna
þess efnis að þeir séu færir um að ráð-
ast gegn bandarískum skotmörkum,
hvar sem þau eru í heiminum.
Ishiba sagði mikilvægt fyrir Jap-
ana að þróa eldflaugavarnir, til að
geta varist hugsanlegum árásum frá
Norður-Kóreu, og að efla hernaðar-
mátt landsins þannig að Japan sé ekki
jafn háð Bandaríkjunum og það er nú.
Í ágúst 1998 skutu Norður-Kóreu-
menn eldflaug af gerðinni Taepod-
ong-1 yfir Japan, en þannig gerðu
þeir lýðum ljóst, að vopn þeirra væru
nægilega langdræg til að geta valdið
óskunda á vesturströnd Japans.
Hóta að ráðast
á N-Kóreu að
fyrra bragði
Shigeru Ishiba