Morgunblaðið - 14.02.2003, Page 14

Morgunblaðið - 14.02.2003, Page 14
Morgunblaðið/Sverrir FORMLEGA hófst rannsókn skatt- rannsóknarstjóra ríkisins með því að Jóni Ólafssyni var sent bréf, dagsett 21. feb. 2002, þess efnis að hafin væri rannsókn á skattskilum hans fyrir umrædd ár. Samhliða því hóf skattrannsókn- arstjóri ríkisins rannsókn á bókhaldi og skattskilum Íslenska útvarps- félagsins, Sýnar, Skífunnar og Norð- urljósa vegna sömu ára, 1996–2001, með því að leggja hald á mikið magn gagna sem tengjast störfum Jóns í þágu félaganna og hans eigin, á skrifstofu Jóns og fleiri skrifstofum í starfsstöð Norðurljósa á Krókhálsi. Framkvæmd rannsóknarinnar Að rannsókn þessari unnu eftir- taldir starfsmenn skattrannsóknar- stjóra ríkisins: Ásgeir Jón Ásgeirsson, rannsóknarmaður, Erla Skúladóttir, lögfræðingur, Garðar G. Gíslason, forstöðumaður, Gunnar Th. Kristjánsson, verkefnastjóri, Hlynur Leifsson, rannsóknarmaður, Jens Svavarsson, forstöðumaður, Ómar Ingi Bragason, rannsóknarmaður, Sigurður Jensson, verkefnastjóri, Sæmundur Grétarsson, rannsóknarmaður, Vigdís Guðmundsdóttir, rannsóknarmaður. Auk þeirra tóku eftirtaldir starfs- menn þátt í vettvangsaðgerðum: Berglind Helgadóttir, skrifstofumaður, Elísabet Unnsteinsdóttir, skrifstofumaður, Hafsteinn Hafsteinsson, rannsóknarmaður, Kristján Jóhannsson, verkefnastjóri, Sigurður Fannar Ólafsson, rannsóknarmaður. Í upphafi skýrslunnar þar sem fjallað er almennt um skattaðilann, segir m.a.: „Skattaðilinn er Jón Ólafsson Friðgeirsson, kt. 060854- 5219, Stigahlíð 82, 105 Reykjavík. Rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins nær til tekjuáranna 1996– 2001.“ Þau ár sem rannsóknin tekur til var Jón Ólafsson stjórnarformað- ur Skífunnar, Íslenska útvarps- félagsins, Fjölmiðlunar hf. og Sýnar hf., auk þess sem Jón varð svo stjórnarformaður Norðurljósa sam- skiptafélags hf. við stofnun þess fé- lags á árinu 1998, en það félag tók síðan yfir starfsemi Fjölmiðlunar hf. á árinu 1999. Skattrannsóknarstjóri ákvað að eigin frumkvæði, að því er fram kem- ur í skýrslunni, að hefja rannsókn á skattskilum Jóns. Grunur vaknaði „Við áðurgreinda athugun vaknaði grunur um að skattframtöl Jóns um- rædd ár væru efnislega röng og að á skorti að Jón hefði gert viðhlítandi grein fyrir tekjum sínum, eignum og söluhagnaði á skattframtölunum. Í ljósi áralangrar opinberrar umfjöll- unar í ljósvakamiðlum, dagblöðum og tímaritum um umfangsmikil fjár- málaumsvif Jóns, eignarhalds hluta- fjár í hinum ýmsu lögaðilum og stjórnunarlegrar stöðu hans í fjöl- mörgum lögaðilum, þótti athugunar- vert að samkvæmt skattaframtali hans gjaldárið 1999 væru einu skatt- skyldu tekjurnar … tilgreindar stjórnarlaun að fjárhæð 600.000 krónur,“ segir orðrétt í skýrslunni. Í skýrslunni kemur fram að þegar líða tók á rannsóknina, þótti ljóst að ekki væri efni til sérstakrar umfjöll- unar um framtals- og skattskil Jóns vegna tekjuársins 1996 og einnig er umfjöllun um tekjuárið 1997 tak- mörkuð, því rannsóknin beinist fyrir það ár fyrst og fremst að einum við- skiptum sem gerð var grein fyrir á skattaframtali Jóns fyrir það tekju- ár, en það var sala hans á Skífunni. „Rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins hefur leitt í ljós að tilhögun fjármálaumsvifa og skattskila Jóns frá og með árinu 1998, hvort heldur tengd eignum eða tekjum, virðist hafa verið í samræmi við fyrirfram ákveðna áætlun sem m.a. virðist hafa haft að markmiði að koma Jóni und- an skattgreiðslum. Fram hefur kom- ið af hálfu Jóns við rannsókn máls- ins, að það hafi verið í samræmi við ráðleggingar innlendra og erlendra sérfræðinga á vegum hans,“ segir í skýrslunni. Margþætt rannsókn Rannsókn skattrannsóknarstjóra beindist aðallega að eftirtöldum þáttum:  Greiðslum vegna starfa Jóns í þágu Íslenska útvarpsfélagsins, Sýnar, Skífunnar og Norðurljósa/ Fjölmiðlunar á árunum 1998– 2001.  Hlunnindum vegna afnota af bif- reiðum í eigu Íslenska útvarps- félagsins og/eða Norðurljósa.  Greiðslum Norðurljósa og tengdra félaga á kostnaði sem Jón hefur stofnað til og var gjaldfærð- ur í bókhaldi umræddra félaga.  Greiðslum vegna starfa Jóns í þágu félagsins Kundkraft í Sví- þjóð.  Hlutabréfaviðskiptum Jóns (hluta slíkra viðskipta).  Kaupum og sölu fasteigna og framtalsgerð vegna þeirra.  Einkafyrirtækjum Jóns, sem skráð eru erlendis.  Aðgerðum er varða tilhögun á fjárhagslegum umsvifum og skattskilum Jóns í tengslum við tekjumyndun og eignatilfærslur. Í skýrslunni kemur fram að skatt- rannsóknarstjóri byggir rannsókn sína á skattframtölum Jóns vegna áranna 1997–2001, upplýsingum og Skýrsla skattrannsóknarstjóra ríkisins á skattskilum Jóns Ólafssonar árin 1996—2001 Telur vanframtalið um rúma tvo milljarða króna Í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins til Jóns Ólafssonar til and- mæla sem fjallar um rannsókn embættisins á skattskilum Jóns árin 1996—2001 kemur m.a. fram að embættið telur að vanframtaldar tekjur Jóns á tímabilinu séu tæpar 208 milljónir króna, vanframtalin bifreiðahlunnindi séu 7,4 milljónir króna, vanframtalin önnur hlunnindi séu 7,3 milljónir króna, vanframtalinn söluhagnaður sé að lágmarki 1,284 milljarðar króna og vanframtaldar eignir séu um 0,5 milljarðar króna. AGNES BRAGADÓTTIR kynnti sér skýrslu skattrannsóknar- stjóra, sem send var Jóni Ólafssyni til andmæla hinn 7. nóvember sl. 14 FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Telur vanframtalið um rúma tvo milljarða króna Fyrsta grein: Gerð er grein fyrir innihaldi og niðurstöðum í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins um rannsókn embættisins á skatt- skilum Jóns Ólafssonar, stjórnarformanns Norðurljósa samskiptafélags hf.  14—17 Skýlaust brot á öllum reglum um hlutlægni Önnur grein: Gerð er grein fyrir andmælum til skattrannsóknarstjóra ríkisins, sem Ragnar Aðalsteinsson hrl. hefur sent skattrannsókn- arstjóra ríkisins fyrir hönd Jóns Ólafssonar, þar sem hann segir m.a. að allar reglur um hlutlægni hafi verið brotnar af skattrannsókn- arstjóra.  18—20 Telur söluhagnað vanframtalinn um 1,2 milljarða króna Þriðja grein: Gerð er grein fyrir innihaldi og niðurstöðum í skýrslu skattrannsóknarstjóra á bókhaldi og skattskilum Jóns Ólafssonar & Co. sf. fyrir rekstrarárin 1998 og 1999, þar sem helsta niðurstaða er sú að Jón Ólafsson hafi vanframtalið söluhagnað um 1,2 milljarða.  21—22 Niðurstöðunni mótmælt sem rangri Fjórða grein: Gerð er grein fyrir andmælum Jóns Ólafssonar & Co. við skýrslu skattrann- sóknarstjóra um rannsókn embættisins á bók- haldi og skattskilum félagsins.  23 Yfirlit

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.