Morgunblaðið - 14.02.2003, Síða 15

Morgunblaðið - 14.02.2003, Síða 15
gögnum úr bókhaldi Skífunnar, Ís- lenska útvarpsfélagsins, Fjölmiðlun- ar, Sýnar, Norðurljósa og Spors vegna sömu tekjuára, upplýsingum og gögnum sem hald var lagt á á skrifstofum Stöðvar 2 hinn 21. febr- úar í fyrra, skýrslutökum af Jóni og skýrslutökum af fjölda manns sem með einum eða öðrum hætti hafa tengst Jóni Ólafssyni og fjármála- umsvifum hans og/eða Norðurljós- um. Auk þess byggir skattrannsókn- arstjóri á upplýsingum og gögnum frá breskum skattayfirvöldum og grein sem birtist í tímaritinu Skýi ár- ið 2001 og viðtali við Sigurð G. Guð- jónsson forstjóra Norðurljósa, sem birtist í Morgunblaðinu 27. júlí í fyrra. Í skýrslunni kemur fram að við rannsókn málsins hafi í nokkrum til- vikum komið upp sú staða að tölu- verðar tafir hafi orðið á framgangi rannsóknarinnar, m.a. hafi Jón ekki látið embættinu í té öll gögn sem óskað hafi verið eftir og erfiðleikum hafi verið háð að fá Jón til að mæta til skýrslutöku. Auk þess hafi verið erf- iðleikum bundið að afla upplýsinga og gagna frá Símoni Ásgeiri Gunn- arssyni, endurskoðanda Jóns, og því verið synjað að veita umbeðin gögn með þeim röksemdum að Símon væri bundinn þagnarskyldu. Lyktir urðu þó þær að Símon afhenti umbeðin gögn hinn 26. júní í fyrra. Hornsteinn að umsvifum Í þriðja kafla er fjallað um starf- semi og umsvif skattaðilans (Jóns Ólafssonar). Þar segir m.a. að stjórn- unar- og eignartengsl Jóns við Skíf- una, Íslenska útvarpsfélagið, Fjöl- miðlun, Sýn og Norðurljós séu hornsteinn að umsvifum Jóns hér á landi. Auk þeirra tengsla hafi Jón verið ráðandi eignaraðili og/eða stjórnarformaður eftirtalinna félaga: Jóns Ólafssonar og Co., Mola, Lang- spils, Inn, Sonic, Bíós, Byggingar- félagsins Arnarness, Veraldarvefj- arins, Borgarvefjarins, OREO og Krókháls 6. Orðrétt segir í skýrlunni: „Á því tímabili sem rannsókn skattrann- sóknarstjóra ríkisins tekur til verða miklar breytingar á fyrirkomulagi fjárfestinga Jóns. Í lok ársins 1997 stendur Jón að stofnun lögaðila, Inuit Enterprises Ltd., í gegnum breskan banka, Rotschild Trust Corporation Limited. Tilgangur með stofnun og starfrækslu þessa lög- aðila virðist annars vegar hafa verið að láta endurgjald vegna starfa Jóns renna til þessa lögaðila, en hins veg- ar að færa þangað eignarhluti sem Jón átti í innlendum félögum, nánar tiltekið með því að láta lögaðilann festa kaup á flestum rekstrartengd- um eignum Jóns í tengslum við um- svif hans á Íslandi, oft gegn mjög lágu verði … Þetta gerir Jón í fram- haldi af þeirri ákvörðun að fara út í það sem hann nefnir skattalega fyr- irhyggju „Tax Planning“, að hans sögn að ráðum innlendra og erlendra sérfræðinga í þessum málum. Fyrirkomulag eignarhalds Jóns er með þeim hætti að allar eignir í hlutabréfum eru í eigu Jóns beint og án nokkurra milliliða, ef frá er talin eign Jóns Ólafssonar og Co. Allar þær eignir sem eru í hlutabréfum og fram koma á myndinni voru síðan seldar til Inuit Enterprises Ltd., sem stofnað var á Bresku Jómfrúr- eyjum í Karíbahafi í árslok 1997. Orðrétt segir í skýrslunni: „Inuit Enterprises Ltd. er skráð fyrir öll- um hagsmunum tengdum Norður- ljósum samskiptafélagi og fjárfest- ingum tengdum því. Í gegnum það félag rennur ennfremur allt endur- gjald fyrir störf Jóns. Þetta félag er skráð fyrir eignarhlutum í NLC Holding SA, sem er eigandi Norður- ljósa samskiptafélags hf., Tal hf., Tal Holding SA, Inn hf., og Krókháls ehf. Samkvæmt ársreikningum Inuit eru bókfærðar eignir lögaðilans sam- tals að fjárhæð USD 31.675.840. Miðað við sölugengi dollars 5. apríl 2001, kr. 92,75, eru bókfærðar eignir lögaðilans kr. 2.936.264.660, en skuldir engar.“ (Miðað við gengi dollars 5. febrúar sl. kr. 77,21 væru bókfærðar eignir lögaðilans kr. 2.445.691.606 – innskot blaðamanns.) Eignir seldar úr landi Síðan segir: „Þannig hefur Jón Ólafsson Friðgeirsson selt ákveðnar eignir, m.a. eignarhluta sína í Skíf- unni ehf. og Spori ehf., úr landi til Inuit Enterprises Ltd. á nafnverði, sem síðan selur eignirnar áfram til Norðurljósa samskiptafélags hf., sem einnig er í eigu Inuit Enter- prises Ltd. að stórum hluta, á mark- aðsvirði, sem er margfalt nafnvirði viðkomandi eignarhluta. Söluverð eignarhlutanna úr landi er þannig einungis lítið brot af söluverðinu inn í landið aftur.“ Síðar segir: „Með stofnun Inuit Enterprises Ltd. virðist Jón stíga fyrsta skrefið í að færa eignarhald sitt í fjárfestingum til erlendra lög- aðila. Eftir það hlutast Jón til um stofnun fjölmargra erlendra lög- aðila, að því er virðist til að halda ut- an um þær fjárfestingar sem farið er í af hans hálfu í tengslum við umsvif hans hér innanlands. Þessi fram- gangur er í samvinnu við innlenda og erlenda banka, s.s. Kaupþing Lux- embourg, Íslandsbanka hf. og Rot- schild Trust Company. Verður ekki betur séð en þetta sé þáttur í þeim áformum Jóns er hann kýs að kalla „skattalega fyrirhyggju“.“ Skattrannsóknarstjóri telur óhjá- kvæmilegt að líta svo á, að miðstöð fjárhagslegrar umsýslu Jóns sé á Ís- landi, þar sem hlutfall þeirra fjár- festinga af heildarumsvifum Jóns sé mjög hátt og nefnir máli sínu til stuðnings að ef heildareignir Inuit Enterprises séu skoðaðar út frá drögum að ársreikningi vegna rekstrarársins 5. apríl 2000 – 5. apríl 2001, megi sjá að fjárfestingar sem ekki tengist Íslandi séu u.þ.b. 6%. Skattrannsóknarstjóri gerir grein fyrir því í skýrslu sinni hvernig eign- arhaldsfélagið NLC Holding SA verður til í nóvember 2000, þegar Kaupþing Luxembourg stofnar fé- lagið í Lúxemborg og var hlutafé fé- lagsins þá tæplega 1,7 milljarðar króna. Félagið var stofnað fyrir hönd hluthafa Norðurljósa samskipta- félags og voru öll hlutabréf Norður- ljósa keypt af NLC Holding á nafn- verði, og söluandvirðið greitt með hlutabréfum í NLC Holding. Orðrétt segir svo í skýrslunni: „Það sem í raun gerist er að hluthafar Norður- ljósa samskiptafélags hf. selja allan eignarhlut sinn í félaginu á kr. 1.683.305.500 til eins aðila, þ.e. NLC Holding SA. Á sama tíma liggur fyrir verðmat frá Kaupþingi hf., dagsett 29. nóvember 2000, þess efnis að heildarverðmæti Norðurljósa sam- skiptafélags hf. er kr. 8.750.000.000 milljónir. (8,75 milljarðar króna – innskot blm.) Þetta þýðir með öðrum orðum að hluthafar í Norðurljósum samskiptafélagi hf., innlendir sem erlendir, selja eignarhlut sinn í félag- inu á verði sem er langt frá raun- verulegu virði félagsins.... Ljóst er því að það eru miklir hagsmunir fyrir Jón Ólafsson Frið- geirsson að koma grundvallareign sinni, þ.e. eignarhlutanum í Norður- ljósum samskiptafélagi hf., í þann farveg að ekki eru greiddir neinir skattar af hugsanlegri sölu eignar- hlutans. Horfa verður því á söluverð Norðurljósa samskiptafélags hf. og þessa framkvæmd í heild sinni í því ljósi, þ.e. að með því að selja eign- arhlutana á nafnverði þá myndast ekki neinn söluhagnaður fyrir eig- endur félagsins og nýr eigandi alls hlutafjár er eignarhaldsfélag í Lúx- emborg. Jón Ólafsson Friðgeirsson hefur með sambærilegum hætti flutt eignir sínar yfir í Inuit Enterprises Ltd., að því er virðist til þess eins að komast hjá skattlagningu á söluhagnaði af raunvirði eignanna.“ Með lögheimili á Íslandi Í 4. kafla skýrslunnar er fjallað um skattskyldu skattaðilans á Íslandi. Þar segir m.a.: „Jón Ólafsson Frið- geirsson hefur öll þau ár sem rann- sókn skattrannsóknarstjóra ríkisins tekur til, að frátöldu því síðasta, staðið skil á skattframtölum til skatt- stjórans í Reykjavík, þar sem gerð hefur verið grein fyrir tekjum, eign- um og skuldum … Engu að síður hefur Jón greint frá því, við skýrslu- töku … að hann hafi í samvinnu við erlenda ráðgjafa sína komist að þeirri niðurstöðu, að honum hafi bor- ið að telja fram til skatts í Bretlandi, þar sem hann hafi verið þar búsettur í nokkur ár ásamt fjölskyldu sinni. Væri annað tveggja búið að telja fram fyrir hann þar, eða því rétt ólokið … Þegar þessi skýrsla er rituð hafa engin skattagögn borist til breskra skattyfirvalda, svo vitað sé … Skattrannsóknarstjóri ríkisins tel- ur, … að Jón sé með lögheimili á Ís- landi, sé með fasta atvinnustöð og umfangsmikinn atvinnurekstur, sé umboðsmaður erlends ríkis, (Jón er ræðismaður Indónesíu á Íslandi – innskot blm.) hafi sjálfur talið fram til skatts hér á landi og ekki talið fram eða gegnt skattskyldu annars staðar, auk annarra atriða, að Jón eigi ótvírætt að bera ótakmarkaða skattskyldu á Íslandi þann tíma sem um ræðir.“ Því næst er rætt um þann mögu- leika að Jón Ólafsson hafi einungis takmarkaða skattskyldu hér á landi og þá segir m.a.: „Teljist Jón ekki hafa ótakmarkaða skattskyldu hér á landi, … ber hann þá takmarkaða skattskyldu á grundvelli 3. gr. l. 75/ 81. Þannig verður að telja skylt að greiða tekjuskatt af svonefndum „ráðgjafagreiðslum“ sem Jón/Inuit Enterprises Ltd. … hefur þegið vegna starfa Jóns … Að því er varðar skattlagningu söluhagnaðar af hlutabréfum, þá skulu allir aðilar sem hafa tekjur, þar með talinn söluhagnað, af íslenskum hlutabréfum, stofnbréfum eða öðr- um réttindum til hlutdeildar í hagn- aði eða af rekstri íslenskra fyrir- tækja, greiða tekjuskatt af þeim tekjum … Hér gætu þó komið til skoðunar ákvæði 5. tl. 13. gr. tví- sköttunarsamnings Íslands og Bret- lands,... Þá skulu allir aðilar sem eiga fast- eignir, lausafé, hlutabréf, stofnbréf eða aðrar eignir hér á landi, greiða eignarskatt af þeim eignum sam- kvæmt 9. tl. 3. gr. l. 75/1981.“ Í 6. kafla skýrslu skattrannsókn- arstjóra er gerð ítarleg grein fyrir stofnun aflandsfélagsins (Offshore Company) Inuit Enterprises Ltd. á Bresku Jómfrúreyjum í árslok 1997 og tilgangur félagsins rakinn. Í nið- urstöðum þess kafla segir m.a.: „Til- gangur með stofnun og starfrækslu þessa lögaðila virðist annars vegar hafa verið að láta endurgjald vegna starfa Jóns fyrir Íslenska útvarps- félagið hf., Spor ehf. (síðar hf.), Sýn hf. og síðar Norðurljós samskipta- félag hf. renna til þessa lögaðila. Hins vegar að færa þangað eignar- hluti, sem Jón átti í innlendum fé- lögum og eignast síðan á árinu 1998 og síðar,... Flestar lykileignir og endurgjald vegna starfa Jóns eru þannig látnar renna til lögaðila sem skráður er er- lendis og lýtur með því ekki lögsögu íslenskra skattyfirvalda. Markmið þessa fyrirkomulags er, að því er virðist, að koma starfstengdum greiðslum og eignatekjum hjá skatt- lagningu hér á landi.“ Fram kemur í þessum kafla að Jón hafi borið við skýrslugjöf hjá skatt- rannsóknarstjóra að hann sé ekki eigandi Inuit Enterprises Ldt. held- ur sé hann hagnaðaraðili (Beneficial Owner) eða sá sem njóti ábatans verði lögaðilinn leystur upp og þá komi hagnaður til skattalegrar með- ferðar í því landi sem hann sé búsett- ur í þegar það gerist. Síðar segir: „Samstarfs- og við- skiptamenn Jóns hafa greint frá því við skýrslugjöf hjá skattrannsóknar- stjóra ríkisins, að Jón hafi komið fram f.h. Inuit Enterprises Ltd. hér á landi og hafa þeir talið hann eig- anda lögaðilans. Þá liggja enn frekari gögn fyrir sem bera með sér að Jón sé form- legur eigandi Inuit Enterprises Ldt. Fram kemur í bréfi frá Rotschild hinn 21. janúar 1998, að í ljósi þess að Jón stofnar ekki sjóð utan um eignir sínar þá séu hlutabréf Inuit Ent- erprises Ltd. færð Jóni til ráðstöf- unar … Öll atriði sem hér hafa verið talin leiða til þeirrar niðurstöðu að Jón sé ekki einvörðungu hagnaðaraðili, svo sem hann hefur borið, heldur bein- línis eigandi Inuit Enterprises Ltd.“ Sjöundi kafli skýrslunnar fjallar um rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins á starfstengdum greiðslum vegna tekjuáranna 1998–2001. Þar er rakinn framburður margra þeirra sem kvaddir voru til skýrslugjafar. Í kaflanum er yfirlit yfir reikninga sem Inuit Enterprises Ltd. gaf út á árunum 1998–2001 vegna ráðgjaf- arstarfa Jóns Ólafssonar, en samtals námu reikningarnir á þessu fjögurra ára tímabili rúmum 204 milljónum króna. Í drögum að ráðningarsamningi             ! "     $%    &  ' # () *+ '   ( , -.,/  0 1   1 # 2+ 3'   (  )4) -.,/  0 -0         56 ! )   78!0 ' # () 7 /  ) +0 78!0 ' # () '   ( 7 /     4  9 :& )  )   1      ,  %(&  # 1 .   %(&  )  ;0($(#+  7  3 < ( )# 1 # ,   ) ) ' # )# = # ($ # ,  ) 4 )  ) # -.,/  0           !   "# $   %&'  (  ) *  + ,-   >>?($ >>@?A:   >>@? BB #( C@B #( C3@ #( D &    :   &6) C3E<F     CF# #>>9 )  &-(!  0 $G& ! #! $   9  #A9  G((     ())  ) 3 G((  ) (0 )# ; )+ 1)5 09  )     )  9  #4 : ) ; )+ 1)5 0 ) #      ! 6)) &   & >>@# ,  )  (   H&G )I! ) ($ #3 #3 ' # )9  # $7   ( ) 9 # )    G    CBE #(#&&  >>@<CBB#,  )    ())G#         !" # $  ,  ) 7       (    3  (( ())  J BB #(#& >>@3   >>># ,  )6C#BEE #(#0  ($   )  &    ) 7   #  %   & " -.,/  0 . ,      / / "  "  # .  ) )( .  )     .  ) :   .  ) :  # .  )    .  )    .  )      #@3   F3 B3E 3F >3  KC3F 3 3C E>3 C3 3E L CFF3K  E3F C3K F3E C >3F B3B B3            1(& '(() '((* '((( +,,, +,,'   $   M )  ' L     ' "  A)   A:   # ' # )  ($  ! "  N+ = O  )9 & # ( (#(=  ()) ( ) $(   -     ,  ) ) ) &) $  ,  )3      ##)  $A((  4   #  ,  ) ) )  &     0 3##. ( ) # # H( I!  ,  ) PK#$ CBBQ CE> #( .!/   0   12  '((34+,,' R> R> R>@ R>> RBB RB +567 8,63 8'6) 7+68 5(63 ),67 #( ,  )4# ) # ! " #N+ ! "  MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2003 15

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.