Morgunblaðið - 14.02.2003, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Íslenska útvarpsfélagsins við Jón
Ólafsson frá því í ársbyrjun 1998
þegar Jón varð starfandi stjórnar-
formaður en Hreggviður Jónsson
tók við af honum sem forstjóri fé-
lagsins, kemur fram að Jón fái sem
stjórnarformaður í laun kr. 600.000 á
mánuði, auk bílafríðinda, ákveðnar
greiðslur vegna ferða- og dvalar-
kostnaðar, 10% lífeyrisgreiðslur,
áskriftir að blöðum, greiðslur vegna
heimilissíma, bílasíma og GSM-síma,
auk iðgjalda af líf-, veikinda-, slysa-
og ferðatryggingu. Jafnframt heldur
hann samningsbundnum greiðslum
vegna ráðgjafastarfa, sem samið var
við Jón um á árinu 1995. Þessi samn-
ingur tók aldrei formlegt gildi, en í
skýrslu skattrannsóknarstjóra kem-
ur fram að efnislega hafi hann komið
til framkvæmda lítið breyttur.
Stýrði fjárhæð reikninga
Í mars 1998 byrjaði Rotschild á
Guernsey að senda reikninga til Ís-
lenska útvarpsfélagsins, Spors, Skíf-
unnar og Sýnar í nafni Inuit Ent-
erprises Ltd. vegna ráðgjafastarfa
Jóns. Fram kemur í skýrslu skatt-
rannsóknarstjóra að Jón Ólafsson
stýrði fjárhæð þessara reikninga,
texta og til hvaða félaga senda átti
reikningana hverju sinni. Á árinu
1999 var gerður samningur við Jón
Ólafsson sem var því sem næst efn-
islega samhljóða ofangreindum
drögum, með þeirri breytingu þó að
tilgreint var að Inuit Enterprises
Ltd. tæki við endurgjaldi vegna
starfa Jóns. Á árinu 1999 var einnig
gerður annar samningur í nafni Inuit
Enterprises Ltd. sem tók yfir allt
endurgjald vegna svokallaðra
ráðgjafastarfa Jóns fyrir Norðurljós
samskiptafélag hf., en það félag varð
á því ári móðurfélag Íslenska út-
varpsfélagsins, Skífunnar og Sýnar,
en áður hafði Spor verið sameinað
Skífunni.
Greiðslur til Inuit Enterprises
Ltd. vegna ráðgjafastarfa Jóns
Ólafssonar námu:
Árið 1998 kr. ................. 31.705.788
Árið 1999 kr. ................. 52.309.854
Árið 2000 kr. ................. 49.594.623
Árið 2001 kr. ................. 70.480.700
Í kaflanum þar sem fjallað er um
ráðgjafagreiðslur til Jóns Ólafssonar
segir m.a.: „Fyrir liggur frá því í júní
1998 minnisblað „Memorandum“ á
milli Jóns og Sigurjóns Sighvatsson-
ar þar sem fram kemur að Íslenska
útvarpsfélagið skuli greiða Jóni
USD 175.000 á ári (13,5 milljónir
króna að núvirði – innskot blm.) og
komi sú greiðsla til viðbótar við aðr-
ar greiðslur sem Jón fær frá Ís-
lenska útvarpsfélaginu. Enn fremur
kemur fram að Íslenska útvarps-
félagið hf. skuli greiða í lífeyrissjóð
fyrir Jón 10% af framangreindri
fjárhæð. Þá skuli Jón fá bíl til afnota
fyrir sig í London, til viðbótar þeim
sem hann hafi til afnota á Íslandi.
Með samningi, dagsettum 12.
mars 1999, eru greiðslur frá Íslenska
útvarpsfélaginu hf. vegna starfa
Jóns hækkaðar úr USD 175.000 í
192.600 (tæpar 15 milljónir króna –
innskot blm.). Samningurinn er
gerður í nafni Inuit Enterprises Ltd.
annars vegar og Íslenska útvarps-
félagsins hf. hins vegar.“
Síðar í sama kafla kemur fram að
þeir Jón Ólafsson og Sigurjón Sig-
hvatsson, tveir stærstu hluthafarnir
í Norðurljósum, hafi samið sín á
milli, hinn 14. júlí 1999 um greiðslu á
launum og svonefndum ráðgjafa-
greiðslum. Fram kemur að þessi
samningur tryggði Jóni Ólafssyni
USD 600.000 á ári (46,2 milljónir
króna að núvirði, en var á þávirði 45
milljónir króna – innskot blm.) í
heildargreiðslur frá Norðurljósum
samskiptafélagi hf. og dótturfélög-
um, auk afnota af tveimur bifreiðum,
greiðslu á tryggingum, ferða- og
uppihaldskostnaði, áskriftar að fjöl-
miðlum og alls símakostnaðar. Auk
þess var samið um að Inuit Enter-
prises Ltd. fengi USD 50.000 (3,75
milljónir á þávirði – innskot blm.)
greidda fyrirfram fyrsta dag hvers
mánaðar vegna stjórnarformennsku
hjá Norðurljósum og síðar stjórnar-
formennsku í Northern Lights
Communication SA, í Lúxemborg,
þegar eignarhald í hlutum félaga-
samsteypunnar væri komið þangað.
„Í sérstökum þjónustusamningi,
dagsettum 21. júlí 1999, sem gerður
er í nafni Inuit Enterprises Ltd. ann-
ars vegar og Fjölmiðlunar hf. (móð-
urfélags Norðurljósa – innskot blm.)
hins vegar eru þessi efnisatriði fest
frekar niður,“ segir orðrétt í skýrsl-
unni.
Niðurlag 7. kafla skýrslunnar
fjallar um fjárhæð skattskyldra
tekna. Þar segir m.a.: „Í töflu nr. 7.6
hér á eftir getur að líta samantekt
skattrannsóknarstjóra ríkisins á
reikningum þeim sem gefnir hafa
verið út í nafni Inuit Enterprises
Ltd. samkvæmt framangreindu árin
1998–2001, gjaldfærðir hafa verið í
bókum viðkomandi félaga og greidd-
ir. Það er niðurstaða rannsóknar
skattrannsóknarstjóra ríkisins, að
um sé að ræða tekjur sem hafi í
reynd tilheyrt Jóni persónulega sem
launamanni og því skattskyldar í
hans hendi sem slíkar. Fyrir liggur
að ekki var gerð grein fyrir
greiðslum þessum í launauppgjöf til
skattyfirvalda af hálfu félaganna,
ekki haldið eftir af þeim til stað-
greiðslu opinberra gjalda og Jón
ekki talið þær fram í skattframtölum
sínum. Samkvæmt samantektinni er
um að ræða kr. 31.705.788 vegna
tekjuársins 1998, kr. 52.309.854
vegna tekjuársins 1999, kr.
49.594.623 vegna tekjuársins 2000 og
kr. 70.480.700 vegna tekjuársins
2001, eða samtals kr. 204.090.965
vegna allra áranna.“
Í skýrslunni kemst skattrann-
sóknarstjóri að þeirri niðurstöðu að
fyrir árin 1998, 1999, 2000 og 2001
hafi Jón Ólafsson vanframtalið bif-
reiðahlunnindi sem metin eru á 7,4
milljónir króna, en Jón hafi við
skýrslutöku svarað því til að þessi
hlunnindi vegna bifreiðarinnar í
Bretlandi yrðu talin fram á framtöl-
um fyrir hann í Bretlandi, en
gleymst hafi að telja fram hlunnindi
vegna afnota hans af bifreiðum á Ís-
landi. Greint er frá því að Jón hafi
vantalið tekjur á skattframtölum sín-
um vegna bifreiðahlunninda allt frá
árinu 1992.
Persónulegur kostnaður
Þá er greint frá því að við rann-
sókn skattrannsóknarstjóra hafi
komið í ljós að Norðurljós sam-
skiptafélag og/eða tengd félög hafi
greitt fyrir Jón persónulegan kostn-
að hans, sem telja beri honum til
tekna. Sé um að ræða greiðslu á líf-
tryggingariðgjöldum og greiðslu á
launum vegna starfsmanna sem
unnu fyrir Jón persónulega, eða
þáðu laun frá Norðurljósum sam-
skiptafélagi hf. og/eða tengdum fé-
lögum vegna þeirra starfa.
Orðrétt segir: „Samkvæmt fram-
burðum starfsmanna Norðurljósa
samskiptafélags hf. og tengdra fé-
laga, … liggur fyrir að starfsmaður-
inn Ingunn Halldórsdóttir sá m.a.
um persónuleg málefni Jóns og fjöl-
skyldu hans. Hefur hún sjálf borið
um það. Ingunn var ritari hjá Skíf-
unni og síðar Norðurljósum og þáði
þaðan launagreiðslur sínar. Ber að
telja Jóni til tekna að hafa notið
þeirra starfa án endurgjalds. Ekki
liggur fyrir nákvæmlega hversu
mikill hluti af störfum Ingunnar hef-
ur verið í þágu Jóns persónulega …
Ingunn hefur borið, að langmestur
hluti starfa hennar hafi verið vegna
starfa fyrir Jón. Þá hefur Hreggvið-
ur Jónsson borið að um 70–80% af
störfum Ingunnar hafi verið unnin
samkvæmt fyrirmælum Jóns … Að
þessu virtu þykir ekki óvarlegt að
miða við, að u.þ.b. helmingur af
störfum Ingunnar fyrir Jón, eða 35%
af heildarstörfum hennar, hafi verið í
þágu Jóns og fjölskyldu hans per-
sónulega.“
Fyrir tekjuárin 1998–2001 telur
skattrannsóknarstjóri því að Jóni
beri að telja sér til tekna tæpar fimm
milljónir króna, vegna starfa Ing-
unnar í hans þágu og fjölskyldu
hans.
Fram kemur í skýrslunni að Norð-
urljós hafi ráðið aðstoðarmanneskju,
Barbel Gamsu, fyrir Jón með aðset-
ur í London á árinu 2001 og greitt
henni laun. Hún starfaði hjá Jóni í
nokkra mánuði og samkvæmt gögn-
um málsins sýnast störf hennar hafa
verið fólgin í að vera Jóni og fjöl-
skyldu hans til aðstoðar á heimilinu,
„nánar tiltekið gæta barnanna á
heimilinu, … sjá um að framreiða
máltíðir fyrir þau, fylgjast með
heimanámi þeirra og öðrum skyldum
gagnvart skólum þeirra og tóm-
stundastarfi, auk þess að gæta
þeirra í hvívetna þegar foreldrar
þeirra … væru í burtu, hvort heldur
Skattframtal vegna
tekjuársins 1997
Skattrannsóknarstjóri telur að Jón
Ólafsson hafi vanframtalið sölu-
hagnað vegna eignarhluta sinna í
Skífunni ehf. um sem nemur kr.
1.187.100.000.
Skattframtal vegna
tekjuársins 1998
Skattrannsóknarstjóri telur að Jón
Ólafsson hafi vanrækt að gera grein
fyrir tekjum að upphæð kr.
31.705.788, bifreiðahlunnindum að
upphæð kr. 426.667, hlunnindum að
upphæð kr. 1.305.200 og söluhagnaði
að upphæð kr. 97.120.250.
Skattframtal vegna
tekjuársins 1999
Skattrannsóknarstjóri telur að Jón
Ólafsson hafi vanrækt að gera grein
fyrir tekjum að upphæð kr.
52.309.854, bifreiðahlunnindum að
upphæð kr. 1.749.164 og öðrum
hlunnindum að upphæð kr. 1.214.860.
Skattframtal vegna
tekjuársins 2000
Skattrannsóknarstjóri telur að Jón
Ólafsson hafi vanrækt að gera grein
fyrir tekjum að upphæð kr.
45.594.623, bifreiðahlunnindum að
upphæð kr. 2.712.210, hlunnindum að
upphæð kr. 1.356.172, kaupum og
eignarhaldi á fasteign í London að
upphæð kr. 197.234.000, sölu á fast-
eign í London og kaupum og eignar-
haldi á íbúðarhúsnæði í Frakklandi að
upphæð kr. 36.260.800.
Skattframtal vegna
tekjuársins 2001
Skattrannsóknarstjóri segir að Jón
Ólafsson hafi ekki staðið skil á skatt-
framtali vegna tekjuársins 2001.
Skattstjóri hefur áætlað Jóni tekju-
skatts- og útsvarsstofn kr.
20.000.000, sem að viðbættu álagi,
kr. 2.860.639, nemur kr. 22.860.639
og eignarskattsstofn kr.
100.000.000, sem að viðbættu kr.
15.000.000 álagi nemur kr.
115.000.000. Skattrannsóknarstjóri
telur að Jón hafi vanrækt að gera
grein fyrir tekjum vegna starfa sinna,
að upphæð kr. 74.292.999, dagpen-
ingum að fjárhæð kr. 64.003 og arð-
greiðslum af hlutafé kr. 115.357, bif-
reiðahlunnindum að fjárhæð kr.
2.512.791, öðrum hlunnindum að fjár-
hæð kr. 3.409.018 og að Jón hafi
vanrækt að gera grein fyrir fast-
eignum í London, Cannes og Reykja-
vík að verðmæti kr. 269.297.800.
Skattskil
Rannsókn skattrannsóknarstjóra á
bókhaldi og skattskilum Norðurljósa
samskiptafélags hf. og tengdra félaga
leiddi í ljós, að því er greint er frá í
skýrslunni, að vel á annan tug ein-
staklinga hefur þegið greiðslur vegna
starfa sinna í þágu félaganna á ár-
unum 1996–2001, án þess að gerð
hafi verið grein fyrir þeim launa-
greiðslum sem slíkum í bókhaldi og
launauppgjöf félaganna til skatta-
yfirvalda.
„Hlaupa þær greiðslur á mörgum
tugum milljóna króna. Hafa slíkar
duldar launagreiðslur átt sér stað með
skipulegum hætti innan félaganna.
Hafa stjórnendur félagsins borið, að
Jón hafi innleitt þetta fyrirkomulag
gagnvart þeim. Fyrir liggur að einn af
starfsmönnum þessum, stjórnandi hjá
félögunum, hefur þegið greiðslur með
líkum hætti og Jón, þ.e. innheimt
greiðslur vegna hluta af störfum sín-
um í þágu félagasamsteypunnar í
gegnum erlent félag sem hann er
eignaraðili að. Hefur sá starfsmaður
borið við skýrslugjöf hjá skattrann-
sóknarstjóra ríkisins, að Jón Ólafsson
Friðgeirsson hafi boðið honum að haga
innheimtu á hluta tekna sinna með
þessum hætti. Sá starfsmaður hefur
nú óskað eftir því við skattyfirvöld,
að þær greiðslur verði skattlagðar
sem tekjur hans, ásamt öðrum duldum
launagreiðslum. Þá hafa sex aðrir ein-
staklingar, fyrrverandi og núverandi
starfsmenn Norðurljósa samskipta-
félags hf. og tengdra félaga, á sama
hátt óskað eftir því við skattyfirvöld
að fá að koma að leiðréttingu á skatt-
skilum sínum vegna vanframtalinna
dulinna launagreiðslna frá Norður-
ljósum samskiptafélagi hf. og tengdum
félögum,“ segir í skýrslunni.
Þáðu duldar greiðslur