Morgunblaðið - 14.02.2003, Page 24

Morgunblaðið - 14.02.2003, Page 24
VIÐSKIPTI 24 FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Kringlan 6 - Stóri Turn - 550 2000 www.sphverdbref.is Besta ávöxtun skuldabréfasjóða 2002 Skuldabréfasjóður SPH Verðbréfa, skv. Lánstrausti hf. 13,2% ÚTSALA! 15% mósaík 20% Versace 30 og 40% aðrar flísar Stórhö fða 21 - Sími 545 55 00 Varaformaðurinn keypti sjö milljónir KJARTAN Gunnarsson, varafor- maður bankaráðs Landsbanka Íslands hf., keypti í gær sjö millj- ónir að nafnverði hlutafjár í Landsbanka Íslands á genginu 3,76. Samkvæmt frétt á vef Kaup- hallar Íslands er eignarhlutur Kjartans að teknu tilliti til eign- arhlutar fjárhagslega tengdra að- ila eftir viðskiptin 48.273.781 kr. að nafnverði. TAP af rekstri Íslandssíma hf. á árinu 2002 nam 1.090 milljónum króna eftir skatta. Árið áður var tap félagsins 990 milljónir. Í tilkynningu frá Íslandssíma segir að kaup félagsins á Halló-Frjálsum fjarskiptum hf. og Tali hf. á árinu 2002 setji mikinn svip á reksturinn og afkomuna. Rekstrartekjur hafi numið tæpum þremur milljörðum króna en rekstrargjöld rúmum þremur milljörðum. Samanlagðar rekstrartekjur eininganna þriggja hafi hins vegar numið um 5.250 millj- ónum króna en rekstrargjöld um 4.750 milljónum. Vöxtur rekstrar- tekna sé um 22% en á sama tíma sé áætlað að vöxtur heildarveltu á ís- lenskum fjarskiptamarkaði hafi numið um 3%. Segir í tilkynningunni að saman- lögð afkoma félaganna þriggja komi ekki fram í ársreikningi Íslandssíma fyrir árið 2002 þar sem Halló og Ís- landssími séu gerð upp saman frá 1. júlí 2002 og Tal og Íslandssími frá 1. október. Áætlanir Íslandssíma gera ráð fyrir að rekstrartekjur félagsins á yf- irstandandi ári muni nema um 6.000 milljónum króna og að hagnaður fyr- ir afskriftir, fjármagnsliði og skatta verði 1.500–1.600 milljónir, sem muni þá vera tæplega eins milljarðs króna aukning frá árinu 2002. Tilgreint er í tilkynningu Íslands- síma að fimm atriði skýri að stórum hluta 1.090 milljóna króna tap félags- ins á árinu 2002. Þar muni mest um kostnað vegna sameiningar félag- anna þriggja upp á 486 milljónir króna. Þá hafi eignarhlutir í öðrum félögum verið færðir niður um 149 milljónir, viðskiptavild afskrifuð um 97 milljónir, framlag í afskriftasjóð viðskiptakrafna sé 69 milljónir og niðurfærsla á birgðum og búnaði nemi 39 milljónum. Samanlagt nemi þessi kostnaður um 840 milljónum króna. Heildarkostnaður Íslandssíma vegna samruna félaganna þriggja er áætlaður um 850 milljónir. Nettóskuldir um 4,5 milljarðar Í tilkynningu Íslandssíma segir að þrátt fyrir tap á rekstri sé eiginfjár- staða félagsins sterk. Í lok ársins hafi eigið fé numið 4.802 milljónum króna og eiginfjárhlutfallið sé því 38%. Nettóskuldir Íslandssíma hækk- uðu um 4.406 milljónir króna frá árs- lokum 2001 til ársloka 2002. Þar af eru 1.900 milljónir vegna kaupa á hlutabréfum í Tali. Sú skuld verður greidd upp samfara útboði á auknu hlutafé síðar á þessu ári. Það útboð er sölutryggt að fullu. Þá eru skuldir að fjárhæð rúmlega 2.000 milljónir tilkomnar vegna samruna við Halló- Frjáls fjarskipti og Tal. Nettóskuldir að teknu tilliti til væntanlegs hluta- fjárútboðs síðar á árinu nema því um 4.554 m.kr. Fjárfestingar Íslandssíma námu 4.430 milljónum króna á árinu 2002 samanborið við 1.589 milljónir árið áður. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum voru 476 millj- ónir og fjárfestingar í öðrum félögum 3.966 milljónir. Tap Íslandssíma hf. á árinu 2002 tæpur 1,1 milljarður Kaupin á Halló og Tali setja svip á afkomuna ,   (( - .   $/                                      !""   $  % %          & '    #$ $   ! (  ) '     (  ) ' *   & +      *   %  $, !#  $##  $    %!     " ""  %! ",  0*12 034562  * !  /  / RÍFLEGA helmingur af sölu Öss- urar hf. fer fram í Bandaríkjunum en gert er ráð fyrir að það hlutfall breytist á næstunni. Í ársuppgjöri félagsins má sjá söluaukningu á öll- um mörkuðum en sala eykst hlut- fallslega meira í Evrópu og á Norð- urlöndum en í Bandaríkjnum. Einungis 1% sölunnar fer fram hér á landi. Sala á öðrum mörkuðum nem- ur um 8%. Forstjóri Össurar, Jón Sigurðsson, sagði á fundi til kynn- ingar á afkomu félagsins í gær að Össur hygðist leggja mesta áherslu á Vestur-Evrópu og Bandaríkin á næstunni og ekki leggja út í miklar fjárfestingar á öðrum mörkuðum, s.s. í Asíu. „Við ætlum að vera þar sem möguleikarnir eru mestir. Ætl- um okkur að fara mjög hægt í fjár- festingar annars staðar.“ Eiginfjárstaða Össurar er afar góð og sagði forstjórinn að fyrirtæk- ið væri að leita að heppilegu fyrir- tæki til að kaupa og stuðla þannig að ytri vexti félagsins. Þá sagði hann að haldið verði í það markmið að innri vöxtur félagsins verði 20% á árinu og hagnaður á hlut (EPS) aukist um 15%. Framlegðarmarkmiðið náðist ekki á síðasta ári. Fallið hefur verið frá þeirri stefnu Össurar að birta nákvæmar áætlanir um afkomu líkt og félagið gerði fyrir síðasta ár. „Við teljum það ekki þjóna hagsmunum okkar hluthafa að birta svo nákvæmar áætlanir,“ sagði Jón. Á fundinum kom fram að kostn- aður við rannsóknir og þróun jókst um rúm 39% milli áranna 2001 og 2002 og sölu- og markaðskostnaður um 33%. Hins vegar dróst skrifstofu- og stjórnunarkostnaður saman um rúm 11%. Að sögn forstjórans hefur gengi krónunnar veruleg áhrif á kostnað en Össur færir allan kostnað í dollurum. Hann sagði það því nauð- synlegt fyrir félagið að skera niður kostnað hér heima þegar gengi krón- unnar er hátt. Hins vegar sagðist hann ekki gera ráð fyrir að dregið yrði mikið úr útgjöldum til rann- sókna og þróunar á nýjum vörum. Morgunblaðið/Þorkell Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, sagði sölu á stoðtækjum og öðrum vörum fyrirtækisins hafa aukist meira í Evrópu en í N-Ameríku. Össur fer hægt í fjárfestingar á nýjum mörkuðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.