Morgunblaðið - 14.02.2003, Síða 29
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2003 29
SUÐURNES
MIKLAR framkvæmdir eru fyr-
irhugaðar við gamla íbúðarhúsið á
Héðinshöfða á Tjörnesi næsta sum-
ar. Húsið var byggt árið 1880 af
Benedikt Sveinssyni sem var settur
sýslumaður í Þingeyjarþingi 8.
ágúst 1874, en frá 1876 bjó hann á
Héðinshöfða.
Hús þetta er eitt af fáum stein-
hlöðnum húsum frá 19. öld og hefur
lítið breyst að innan frá því að það
brann að hluta um aldamótin 1900.
Steinsmiður þessa húss var Stein-
þór Björnsson frá Litlu-Strönd og
voru veggirnir gerðir úr tilhöggnu
grjóti úr Reyðarárgili sem er
skammt frá bænum. Steinþór þessi
lærði steinsmíði í Kaupmannahöfn
og var hans fyrsta verk að byggja
tvílyft steinhús á Stóruvöllum í
Bárðardal þegar hann kom frá
námi og stendur það hús enn í dag.
Eigandi hússins, Jónas Bjarnason
bóndi á Héðinshöfða, hefur að und-
anförnu átt annríkt við að undirbúa
framkvæmdina, mála og glerja
glugga, en til stendur að gera húsið
alfarið upp að utan en halda innra
skipulagi óbreyttu. Jónas bjó síðast
í húsinu ásamt fjölskyldu sinni en
flutti í nýtt hús árið 1974 og síðan
þá hefur það verið notað sem
geymsla. Flest herbergi eru panel-
klædd að innan og hefur fúi ekki
komist inn í þau þar sem enginn
leki hefur komist að timbrinu. Um
tíma var þríbýlt í húsinu og eru inn-
réttingar sérstakar að því leyti að í
kjallaranum voru þrjú lítil eldhús
og síðan átti hver fjölskylda
ákveðnar vistarverur víðs vegar á
þremur hæðum byggingarinnar.
Svandís Sverrisdóttir, húsasmið-
ur á Húsavík, hefur lokið við að
smíða alla gluggana auk alls timb-
urverks í húsið, svo sem tréverk á
stafna, gluggalista, vindskeiðar
o.m.fl. Hún er einnig að smíða úti-
dyrahurð í húsið sem verður eins
og virðulegu húsi sæmir. Búið er að
sérpanta hurðarhúninn frá Svíþjóð.
Norðurhliðina þarf að mynst-
urmúra til þess að grjótið í veggn-
um haldi sér í upprunalegri mynd
og einnig þarf að múra hluta húss-
ins að sunnan þar sem grjótið er
byrjað að hrynja úr veggnum.
Að sögn Jónasar hefur torf, sem
hefur verið notað til þess að ein-
angra, víða rýrnað og á það við
bæði um veggi og þak. Þyrfti því að
taka allt torfið á þakinu og setja
steinull í staðinn. Einnig þarf að
koma einangrun í veggi þar sem
það er hægt.
Stafnar hússins voru hlaðnir en
eyðilögðust í eldinum og voru þá
endurbyggðir úr timbri og báru-
járni sem nú þarf að endurnýja auk
þess sem járnið á þakinu er illa far-
ið. Síðast var skipt um það upp úr
1950.
Ljóst er að hér er um mjög kostn-
aðarsama framkvæmd að ræða en
Jónas er bjartsýnn og ætlar sér að
bjarga þessu merkilega húsi sem
staðið hefur á Héðinshöfða í meira
en 120 ár.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Jónas Bjarnason fyrir framan gamla húsið á Héðinshöfða.
Gamla hús-
ið á Héðins-
höfða end-
urgert
Laxamýri
EINKENNILEGUR þefur barst um ganga grunn-
skólans einn daginn í liðinni viku og var ekki laust
við að sumum yrði hálfflökurt. Skýringuna á þessu
mátti finna í náttúrufræðistofu skólans en þar höfðu
fjórðubekkingar sett upp sýningu á hátt í 20 fiskteg-
undum í tengslum við þemavinnu sína: Við sjáv-
arsíðuna. Þó að Borgarnes sé við sjávarsíðu er þar
engin útgerð og því ekki auðvelt að ná í fisk. Jens
Jónsson, vélstjóri á Vigra RE 71, safnaði fiskinum
sem var veiddur á miðunum sunnan og vestan við
landið í janúar síðastliðnum og færði nemendum.
Höfðu flestir nemendur gagn og gaman af að sjá
þessar mismunandi tegundir sem lifa í sjónum um-
hverfis landið.
Fiskur til sýnis
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Krakkarnir í Grunnskóla Borgarness voru áhugasamir um
fiskinn þó þeim þætti hann ekki lykta sérlega vel.
Borgarnes
BÆJARSTJÓRN Grindavíkurbæj-
ar vinnur að því að leita leiða til að fá
til bæjarins fleiri gesti sem sækja
Bláa lónið. Tilefni þeirrar vinnu er
fyrirsjáanleg fækkun erlendra
ferðamanna inn í bæinn vegna þess
að Kynnisferðir eru hættar að koma
með farþega til Grindavíkur í sinni
daglegu ferð í Bláa lónið.
Kynnisferðir eru með daglegar
ferðir fyrir erlenda ferðamenn um
Suðurnes. Meðal annars er komið
við í Bláa lóninu og farið hefur verið í
hádegismat í Sjómannastofuna Vör í
Grindavík í tólf ár. Vegna þessara
ferða hefur veitingahúsið verið opið
á hverjum einasta degi ársins og
segir Sigurgeir Sigurgeirsson veit-
ingamaður að þessi viðskipti hafi
verið ákveðin kjölfesta í rekstrinum.
Hann staðfestir það að Kynnisferðir
hafi hætt að koma með þessa hópa í
hádegismat en dvelji þess í stað
lengur í Bláa lóninu og beini fólkinu í
mat þar. Hann segir að tekið sé fram
að engin óánægja sé með matinn eða
þjónustuna og segist vita að þetta sé
gert í óþökk leiðsögumanna og bíl-
stjóra. Hins vegar sé því haldið fram
að farþegarnir vilji dvelja lengur í
Bláa lóninu.
Sigurgeir segir að breytingin hafi
veruleg áhrif á reksturinn en hann
muni reyna með öllum ráðum að
bjarga sér. Allrahanda komi áfram
með hópa þangað og Kynnisferðir
muni halda áfram að koma með aðra
hópa. Þá hyggist hann ná til sín öðr-
um viðskiptum, nefnir sem dæmi
fólk sem áður borðaði í veitingahús-
inu Jenný við Bláa lónið en Bláa lón-
ið hf. hefur keypt staðinn og lokaði
honum sem almennum veitingastað.
Hins vegar kveðst Sigurgeir
óánægður með þá stefnu Bláa lóns-
ins hf. að gleypa allt sem að kjafti
komi, og að það rífi af öðrum í stað
þess að skapa sjálf ný viðskipti.
Vilja fá fleiri ferðamenn
Af þessu tilefni samþykkti bæjar-
stjórn Grindavíkur að fela nefndar-
mönnum bæjarins í samstarfsnefnd
Bláa lónsins og Grindavíkurbæjar að
leggja fyrir bæjarráð tillögu um
hvernig hægt sé að fjölga komum til
bæjarins meðal þeirra ferðamanna
sem sækja Bláa lónið.
Fulltrúar Framsóknarflokksins
vildu jafnframt láta kanna hvernig
unnt yrði að koma upp fyrirhuguð-
um veitingasal við Saltfisksetrið.
Þeirri hugmynd var vísað til bæj-
arráðs.
Daglegu ferðirn-
ar hættar að
koma við í Vör
Grindavík
BÆJARFULLTRÚAR Samfylk-
ingar og Sjálfstæðisflokks, sem
mynda meirihluta um stjórnun
Grindavíkurbæjar, hafa látið bóka
áhyggjur og vanþóknun vegna þess
sem þeir segja árásir og einelti odd-
vita Framsóknarflokksins á hendur
bæjarstjóra Grindavíkur.
Hart hefur verið tekist á í bæjar-
stjórninni á þessu kjörtímabili í kjöl-
far myndunar nýs meirihluta án að-
ildar Framsóknarflokksins og
ráðningar Ólafs Arnar Ólafssonar í
stöðu bæjarstjóra. Á fundi í lok síð-
asta mánaðar, eftir að meirihlutinn
samþykkti breytingar á skipulagi
tækni- og byggingafræðivinnu fyrir
bæjarfélagið, lögðu Hallgrímur
Bogason og Gunnar Már Gunnars-
son, fulltrúar Framsóknarflokksins,
fram tillögu um að víkja bæjarstjóra
úr starfi. Var hún felld og lýsti
meirihlutinn fullu trausti á bæjar-
stjóra.
Á bæjarstjórnarfundi í þessari
viku létu fulltrúar Samfylkingarinn-
ar bóka eftirfarandi: „Að gefnu til-
efni og vegna framgöngu oddvita
framsóknarmanna vill Bæjarmála-
félag Samfylkingarfélags Grindavík-
urlistans lýsa yfir vanþóknun á
störfum oddvita framsóknarmanna
vegna síendurtekinna árása á bæj-
arstjóra og hans störf. Það er ósk
bæjarmálafélagsins að oddviti fram-
sóknarmanna láti af persónulegum
árásum á bæjarstjóra og fleiri emb-
ættismenn bæjarins enda er það
ekki íbúum Grindavíkur til fram-
dráttar.“
Við sama tækifæri létu bæjar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins bóka:
„Fulltrúar D-lista í bæjarstjórn lýsa
yfir áhyggjum vegna þeirrar til-
hneigingar oddvita framsóknar-
manna að leggja nýráðinn bæjar-
stjóra Grindavíkurbæjar í einelti.
Það er ljóst að uppá síðkastið hefur
verið brotið blað í umfjöllun bæjar-
stjórnar á málefnum bæjarfélagsins
þar sem oddviti framsóknarmanna
hefur kosið að beina síendurtekinni
ósanngjarnri og órökstuddri gagn-
rýni sinni á störf bæjarstjóra. Og
verða slík vinnubrögð að teljast með
öllu óviðunandi.“
Skamma oddvita
minnihlutans
Grindavík
Sérstætt þorrakvöld verður í kvöld
á veitingahúsinu Vitanum í Sand-
gerði. Eftir þorramatinn taka Pétur
Kristjánsson og hljómsveit hans við
og skapa stemningu frá sjöunda og
áttunda áratug síðustu aldar.
Kvöldið hefst með þorrahlaðborði og
þjóðlegum skemmtiatriðum
sem eru í höndum Einars Arnar og
Torfa Ólafssonar. Þegar líða tekur á
kvöldið taka Pétur Kristjánsson og
hljómsveit hans við. Í tilkynningu
frá Vitanum segir að einstakt tæki-
færi gefist til að heyra bestu lögin
frá sjöunda og áttunda áratugnum,
lög Bítlanna, Rolling Stones, Kinks,
Pelikan, Paradísar og Start.
Í DAG
HÚSFÉLAGIÐ ehf. átti lægsta til-
boð í frágang gólfa í austursal Duus-
húsa í Keflavík. Býðst félagið til að
vinna verkið fyrir tæpar 3,9 milljónir
kr. sem er um 75% af kostnaðaráætl-
un. Gert var ráð fyrir að verkið
myndi kosta tæpar 5,2 milljónir kr.
þannig að lægsta tilboð er um 1,3
milljónum undir kostnaðaráætlun.
Fagtré ehf. átti tilboð sem er litlu
hærra en tilboð Húsfélagsins og
Smiðshöggið ehf. það þriðja lægsta.
Undirbúa
frágang gólfa
í austursal
Keflavík
Lara Verð frá 8.900.000 kr.
Princesa Maria Verð frá 10.993.267 kr.
Glæsilegar 2ja og 3ja herb. íbúðir
Stutt í alla þjónustu. Sameiginleg sundlaug. Nokkurra
mínútna akstur í bæinn.
Þetta glæsilega parhús
er mjög vandað og staðsett í göngufæri frá stórkostlegri
strönd og nálægt allri þjónustu, verslunum, veitingastöðum,
börum og golfvöllum. Hverfið er með eigin sundlaug.
Í húsnum eru tvö eða þrjú herbergi. Hvert hús er með
bílastæði og garði.
ATLAS INTERNATIONAL
Hluti af Atlashópnum hefur verið staðsettur í Torrevieja í 24 ár. Höldum sýningu á fasteignum frá sólarströnd Costa Blanca.
ÞITT HEIMILI Á
COSTA BLANCA
SPÁNI
VIÐ BJÓÐUM YKKUR HJARTANLEGA VELKOMIN Á KYNNINGARFUND UM HELGINA
15. OG 16. FEBRÚAR Á HÓTEL SÖGU, A SAL, 2. HÆÐ KL. 12-17.
Ókeypis aðgangur. Sími 896 2047, Laddi. Komið, sjáið og fáið fría bæklinga!
A f m æ l i s t i l b o ð
Í tilefni 25 ára afmælis Atlas International
fylgja húsgögn frítt með öllum eignum.
Ungbarnanudd fyrir barnið þitt
Heilsusetur Þórgunnu
Skipholti 50c • s. 562 4745 – 896 9653.