Morgunblaðið - 14.02.2003, Page 48

Morgunblaðið - 14.02.2003, Page 48
DAGBÓK 48 FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr.eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Halifax, Silvia og Bremon koma í dag. Mánafoss og Hanseduo fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Bremon kom í gær. Mannamót Aflagrandi 40. Bingó í dag kl. 14. Árskógar 4. Kl. 13– 16.30 opin smíða- og handavinnustofan, kl. 13.30 bingó. Þorrablót annað kvöld, húsið opn- að kl. 17. Bingó í dag. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–16 hárgreiðsla, kl. 9– 16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 13–16 spilað í sal. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 hár- greiðsla, og opin handavinnustofa. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9–12 applikering, kl. 10–13 opin verslunin. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, mynd- list, gifs o.fl., kl. 9.30 gönguhópurinn Gönu- hlaup leggur af stað, kaffi á eftir göngunni, kl. 14 brids og spilað. Korpúlfar Grafarvogi samtök eldri borg- ara.Vatnsleikfimi kl. 14 í Grafarvogslaug. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 10 hár- greiðsla, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 11 leikfimi, kl. 13 „opið hús“, spilað á spil. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Kl. 9.30 og 13 glerbræðsla, kl. 14 spænska. Myndút- skurður-birkirætur og vatnslitamyndir, sýn- ing Annýjar í Garða- bergi opin kl. 13–17. Félag eldri borgara í Kópavogi. Bingó spilað í Gullsmára 13 kl. 14. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli Flatahrauni 3. Pútt og brids kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Dagsferð í Fljótshlíð 26. feb. Ekið austur að Fljótsdal, margir merkir staðir skoðaðir. Brottför frá Ásgarði kl. 10, kaffi- hlaðborð í Hest- heimum, skráning haf- in. Uppl. á skrifstofu félagsins eða í s. 588 2111, opið frá kl. 10–16. Aðalfundur FEB verður haldinn sunnud. 23. feb. í Ás- garði og hefst kl. 13.30. Gerðuberg, fé- lagsstarf, kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 9.30 sund- og leik- fimiæfingar í Breið- holtslaug, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 13.30 kóræfing. Nám- skeið í postulínsmálun eru á mánu- og þriðjud., nokkur pláss laus. S. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 málm- og silf- ursmíði, kl. 9.15 vefn- aður, kl. 13 bókband. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 glerlistahópur, kl. 10 ganga, kl. 14–15 bingó. Postulíns- námskeið: Getum bætt við nokkrum á fyr- irhugað postulíns- námskeið sem er að hefjast, upplýsingar í s. 564 5260. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, útskurður, fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 11 spurt og spjallað, kl. 14 kemur Guðjón Friðriksson sagnfræðingur og ræð- ir um bók sína sem kom út fyrir jólin um Jón Sigurðsson og svarar spurningum. Kaffihlað- borð. Allir velkomnir. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 og kl. 12.30 postulín. Fótaaðgerð, hár- greiðsla. Norðurbrún 1. Kl. 9–13 tréskurður, kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 10–11 boccia. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–14.30 handavinna, kl. 10–11 kántrýdans, kl. 11–12 stepp, kl. 13.30–14.30 sungið við flygilinn, kl. 14.30–16 dansað. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla og myndlist, kl. 9.30 bókband og morg- unstund, kl. 10 leikfimi og fótaaðgerð, kl. 12.30 leirmótun, kl. 13.30 bingó. Bridsdeild FEBK Gjá- bakka. Brids kl. 13.15 í dag. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13 kl. 10 á laug- ardögum. Ungt fólk með ungana sína. Hitt húsið býður ungum foreldrum með börnin sín á fimmtud. kl. 13–15 á Loftið í Hinu húsinu, Póst- hússtræti 3–5. Seyðfirðingafélagið. Sólarkaffi verður í Gjá- bakka í Kópavogi 16. mars kl. 15. Í dag er föstudagur 14. febrúar, 45. dagur ársins 2003. Valentínusdagur. Orð dagsins: Takið því hver annan að yður, eins og Kristur tók yður að sér, Guði til dýrðar. (Róm. 15, 7.) Reykvíkingar eru fórn-arlömb. Og skelfilegt hvernig með þá er farið. Það er alltaf verið að beina fjármunum ríkisins annað en til Reykjavík- ur. Og flytja stofnanir út á land. Ef svo heldur fram sem horfir verða bráðum engar stofnanir eftir í Reykjavík.     Það var því fagnaðar-efni þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir til- kynnti að hún ætlaði í framboð til Alþingis Ís- lendinga til að berjast fyrir hagsmunum Reyk- víkinga. Það hefur þing- mönnum Reykvíkinga yf- irsést til þessa; þeir hafa ekki séð trén fyrir skóg- inum – Reykvíkinga fyr- ir þjóðinni.     Og óréttlætið helduráfram. Nú ætlar rík- isstjórnin að verja 6,3 milljörðum á næstu 18 mánuðum til að sporna gegn atvinnuleysi. Nýr borgarstjóri í Reykjavík, Þórólfur Árnason, gagn- rýndi að einungis millj- arður rynni til vega- framkvæmda í Reykja- vík, þar sem þó byggju flestir.     Ekki er ljóst hvortborgarstjóri var á leið út á land í sum- arbústað þegar viðtalið var tekið, eins og þegar honum bauðst staða borgarstjóra. Það getur eiginlega ekki verið, því hann er Reykvíkingur, og eins og allir vita þjóna vegirnir úti á landi ekki Reykvíkingum. Reykvíkingar eru alltof uppteknir við að mót- mæla Eyjabökkum og Kárahnjúkum á Aust- urvelli til þess að komast nokkurn tíma austur.     Til hvers að splæsabundnu slitlagi í landsbyggðina eða veg- um yfir höfuð? Hvaða máli skiptir þótt for- stöðumaður Hag- fræðistofnunar segi það þjóðhagslega hagkvæmt að bæta samgöngur? Það sem er hagkvæmt fyrir þjóðina þarf ekki nauð- synlega að vera hag- kvæmt fyrir Reykvík- inga.     Að vísu væri hægt aðbenda á að hundruð Reykvíkinga hafa setið föst á Hellisheiði og í Þrengslum í stórviðrum og beðið eftir björgun. Því hljóti 200 milljóna vegabætur á Hellisheiði og 500 milljónir í Suður- strandarveg, sem trygg- ir færa leið frá Suður- landi til Reykjavíkur í nánast hvaða veðri sem er, að vera hagsmuna- mál Reykvíkinga.     Nei, eina réttlætið væriauðvitað að Hver- gerðingar stæðu straum af framkvæmdum á Hellisheiðinni. Bændur í Jökuldal stæðu straum af veglagningu niður Arnórsstaðamúlann. Því öll vötn renna til Reykja- víkur. Og allir vegir líka. STAKSTEINAR Hvers eiga Reykvík- ingar að gjalda? Víkverji skrifar... VALENTÍNUSARDAGURINNer í dag. Víkverji hefur ekki haft hugmynd um það, frekar en aðrir, hvaðan þessi dagur kemur. Ekki er nein íslenzk hefð fyrir honum. Vík- verji hefur bara tekið eftir því und- anfarin ár að í febrúar fara að dynja á honum alls konar auglýsingar frá blómaverzlunum, skartgripaverzl- unum, sælgætisframleiðendum, undirfatasölum og meira að segja frá Póstinum í tilefni Valentínus- ardagsins. Víkverja hefur fundizt að bóndadagurinn, konudagurinn og mæðradagurinn dygðu alveg til að auka sölu á vörunum, sem um ræðir, en hið frjálsa framtak leitar víst sí- fellt að tækifærum til að auka hjá sér veltuna. x x x TIL AÐ bæta úr vanþekkingusinni leitaði Víkverji svara við því á Netinu hver væri uppruni Val- entínusardagsins, og fann þau á for- síðu vefjarins Brúðkaup.is. Sá pistill er svo óborganlegur hvað varðar mál, stíl og efnisinnihald að Víkverji sér sig knúinn til að birta upp úr honum orðrétt: „Valentínusardag- urinn nálgast, dagur elskhuga. Rekja má uppruna Valentínusar- dagsins aftur til forn Rómverja en þá héldu þeir hátíð ræktunar og uppskeru þann 15. febrúar hvers árs. Seinna innleiddu Kristnir menn þessa hátíð og héldu upp á píslavott- inn heilaga Valentínu þann 14. febr- úar. Sögum ber ekki saman um kyn og afrek þessa dýrlings. Þessa sögu fannst höfundi áhugaverð og nokk- uð trúverðug. Valentína var tekin af lífi fyrir það eitt að hafa gifst á launi manni sem var meðlimur í róm- verska hernum, en það var yfirlýst stefna að hermenn ættu að vera ein- hleypir og tileinka hernum lífi sínu. Eftir að Valentína hafði þjáðst og kvalist vegna ástar sinna og tekin að lífi fyrir slíkar tilfinningar varð hún ósjálfrátt verndari ástarinnar. Þetta er hinn rómantíski uppruni Valent- ínusardagsins, að deyja fyrir ást- ina.“ x x x ÞAR höfum við það á kjarnyrtriíslenzku; að deyja fyrir ástina, það er innihald Valentínusardags- ins. Víkverji sér nú í nýju ljósi „Val- entínusarauglýsingu“ í Morgun- blaðinu í gær, um skræpóttar hnefa- leikara-nærbuxur sem konur eru hvattar til að gefa mönnum sínum í tilefni dagsins. Fyrir Víkverja rifj- aðist upp heilræðið sígilda: Alltaf vera í hreinum nærbuxum, það er aldrei að vita hvenær maður gæti lent í slysi og dáið. Morgunblaðið/Jim Smart Ef menn eiga á hættu að deyja fyrir ástina er rétt að vera í hreinum nærbuxum. Fyrirspurn HAFA ráðamenn gleymt að lækka eignaskattinn? Ég er ekkja í gömlu húsi og var mér lofað að eigna- skatturinn yrði lækkaður en ég var að fá álagn- inguna og get ekki séð að neitt hafi breyst. Getur einhver svarað því hvern- ig þessi breyting verður? Kona. Hvar fæst kanínukjöt? ER einhver sem getur bent mér á hvar hægt er að kaupa kanínukjöt? Þeir sem gætu gefið mér upp- lýsingar hafi samband í síma 553 1025. Gagnslaus samkoma ÉG vil koma á framfæri óánægju minni með sam- komuna í Smáralindinni þar sem prédikarinn ætl- aði að losa fólk við sjúk- dóma. Ég fór og ætlaði að losa mig við sjúkdóm sem ég hef haft síðan ég var krakki en ég finn enga breytingu og fæ ennþá köst. Vil ég vara fólk við slíkum samkomum. Þór Ólafsson. Lambakjötið of feitt Landbúnaðarráðherra er oft að ráðleggja fólki að borða lambakjöt. Fór ég því og keypti mér kótilett- ur í Hagkaup en þær voru lítið annað en bein og fita. Var ég óánægð með þetta og bað kjötvinnslumann- inn að skera mestu fituna af fyrir mig. Fress í óskilum GELTUR fress, ca. 1 árs, svartur með hvíta bringu og hvítar tær, er í óskilum á Digranesvegi 81. Hann er eyrnamerktur en ólar- laus. Upplýsingar í síma 891 8289 eða 567 1807. Köttur á flækingi ÞESSI köttur, sem er ómerktur, er á flækingi í Seljahverfi, Bakkaseli og nágrenni. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hann eru beðnir að hafa samband í síma 557 3461 eða 617 6453. Kvenmannsgleraugu í óskilum LJÓSBRÚN Donnu Kar- an-kvenmannsgleraugu í brúnni öskju fundust í miðbænum fyrir rúmri viku. Upplýsingar í síma 867 7855. Dýrahald Dísarpáfagaukur týndist í Grafarvogi DÍSARPÁFAGAUKUR hvarf frá heimili sínu í Breiðuvík í Grafarvogi eftir hádegi sl. sunnudag. Hann er hvítur með gulan fjaðratopp og appelsínu- gula bletti sitt hvorum megin á hausnum. Þeir sem hafa orðið hans varir vinsamlega látið vita í síma 866 0082. Læða fæst gefins SEX mánaða læða, svört, fæst gefins á gott heimili. Uppl. í síma 557 8487. Því spyr ég: er ekki hægt að framleiða lamba- kjöt sem er ekki með svona mikilli fitu. Eldri borgari. Desemberuppbót Í DESEMBER eiga allir að fá desemberuppbót en maðurinn minn sem er at- vinnulaus og á bótum fékk ekki desemberuppbót. Mér var sagt að þeir sem væru atvinnulausir hafi aldrei fengið desem- beruppbót. Þeir sem lifa á atvinnuleysisbótum og með börn þyrftu kannski mest á þessu að halda. Laufey. Tapað/fundið Barnagleraugu í óskilum BARNAGLERAUGU fundust á bílastæði í Mjóddinni 10. febrúar sl. Upplýsingar í síma 567 0711. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Ómar LÁRÉTT 1 vegna þess, 4 fletja fisk, 7 fimur, 8 ástríki, 9 guð, 11 forar, 13 bylur, 14 læðast, 15 sálda, 17 svöl, 20 iðn, 22 örlög, 23 við- bjóður, 24 fíflið, 25 mannsnafn. LÓÐRÉTT 1 drepa, 2 fæðir kópa, 3 magurt, 4 falskur, 5 end- urtekið, 6 hægt, 10 fisk- inn, 12 forsögn, 13 agnúi, 15 gana, 16 aflaga, 18 dá- in, 19 blundi, 20 hafi upp á, 21 stara. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 löðrungur, 8 fílum, 9 fúska, 10 Syn, 11 sigla, 13 amman, 15 stegg, 18 salli, 21 rok, 22 lygna, 23 örgum, 24 landskuld. Lóðrétt: 2 öflug, 3 romsa, 4 nefna, 5 ufsum, 6 ofns, 7 hann, 12 lag, 14 móa, 15 sálm, 16 eigra, 17 grand, 18 skökk, 19 legil, 20 ilma. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.