Morgunblaðið - 21.02.2003, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.02.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ HAGUR BANKA BATNAR Samanlagður hagnaður Íslands- banka, Landsbanka, Búnaðarbanka og Kaupþings banka nam 10.798 milljónum króna eftir skatta á síð- asta ári. Var hagnaðurinn 59% meiri en árið áður. Slæmt ástand á geðdeild Ekki hefur verið hægt að leggja bráðveika unglinga inn á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans svo mánuðum skiptir og dæmi eru um að foreldrar hafi þurft að sitja yfir börnum sínum allan daginn af þeim sökum. Ástandið er skelfilegt að mati yfirlæknis deildarinnar. Tillaga um gistináttagjald Gistináttagjald verður hugsanlega tekið upp á Íslandi sumarið 2004 til að byggja upp fjölsótta ferða- mannastaði. Lagt er til að gjaldið verði 100 krónur fyrir hverja gisti- nótt og tekjurnar gætu numið um 175 milljónum króna á ári. Ályktun um Írak felld? Ígor Ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, gaf til kynna í gær að Rússar myndu beita neitunarvaldi gegn tillögu um nýja ályktun í Íraks- málinu sem ráðgert er að leggja fram í öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna í næstu viku. Ívanov gagnrýndi einnig Bandaríkin fyrir að beita vopnaeftirlitsmenn þrýstingi til að fá þá til að leggja fram skýrslu sem hægt væri að nota sem „afsökun til að beita hervaldi“. Átján farast í flugslysi Átján manns fórust þegar Fokk- er-flugvél brotlenti í Pakistan í gær, nálægt landamærunum að Afganist- an. Ekki var vitað hvað olli slysinu, en slæmt veður var á þessum slóð- um. Má banna einkadans Hæstiréttur hefur staðfest að Reykjavíkurborg hafi mátt setja ákvæði í lögreglusamþykkt sem meðal annars bannar einkadans á nektarstöðum. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður ógilt ákvæð- ið. F Ö S T U D A G U R 2 1 . F E B R Ú A R 2 0 0 3 B L A Ð B  KARTÖFLUGEYMSLA VERÐUR SÝNINGARSALUR/2  MÚSÍK OG MJALTIR/2  DULARFULLU NÁMSKEIÐIN/4  LESBLINDA – MYND- RÆN HUGSUN Í ÞRÍVÍDD/6  BÚTASAUMUR/6  AUÐLESIÐ EFNI/8  MARGIR eru smeykir viðbylgjurnar sem farsím-ar gefa frá sér þar semekkert hefur verið sann- að um áhrif þeirra á heilsu manna. Fæstir þeirra grípa þó til ráðstafana heldur tala mismikið í hinn ómissandi farsíma. Hjónin Eva María Jónsdóttir dag- skrárgerðarmaður og Óskar Jón- asson kvikmyndagerðarmaður eru meðal þeirra fáu sem hafa tekið til sinna ráða þegar kemur að því að verjast farsímabylgjum og vekja af þeim sökum athygli þegar þau tala í farsímana sína sem hjá þeim eins og öðrum eru orðnir ómissandi tól. Óskar á heiðurinn af því að festa hlustunarpípu við farsíma með bút úr hjólaslöngu úr gúmmíi sem smeygt er utan um símann til að allt haldist á sínum stað. Þegar hann talar í sím- ann setur hann hlustunarpípu í eyrun en hún nemur hljóðið sem berst úr þeim hluta farsímans sem við berum yfirleitt upp að eyranu. Hann talar í símann á venjulegan hátt en mun- urinn er sá að síminn er hvorki upp við höfuðið né tengdur því með hand- frjálsum búnaði og notandinn verður því ekki fyrir farsímabylgjunum. Losnaði við þrálátan hausverk „Ég gerði þetta af illri nauðsyn,“ segir Óskar. „Ég var búinn að reyna allt til að losna við þrálátan hausverk. Þegar ég hætti að nota farsíma hætti ég að fá hausverk, það var beint sam- band þarna á milli.“ Óskar heyrði af manni sem talaði í farsímann sinn í gegnum hlustunarpípu og greip hug- myndina á lofti. Sá hafði ekki fest hlustunarpípuna við símann og til að tækið yrði handhægt datt Óskari í hug að nota teygjur. Þær runnu hins vegar af og hjólaslanga varð lausnin. Sterkt gúmmíið heldur hlustunarpíp- unni á sínum stað, bæði að ofan- og neðanverðu. Tækið er ekki beint fyrirferðarlítið eða þægilegt í notkun enda lítur Eva María á síma sem neyðartæki eins og pabbi hennar reyndi að segja henni þegar hún tal- aði ótæpilega í heimilissímann á ung- lingsárunum. Óskar prófaði handfrjálsan búnað á sínum tíma en hausverkurinn lagað- ist ekkert. „Handfrjáls búnaður er málmþráður úr símanum og upp í eyra og gerir ekki annað en að magna bylgjurnar eins og loftnet.“ Og eftir að hlustunarpípufarsíminn komst í gagnið fyrir u.þ.b. þremur árum hef- ur Óskar ekki fundið fyrir hausverk. Eva María átti ekki far- síma fyrr en fyrir um tveimur árum þegar það var orðið nauð- synlegt vegna vinn- unnar. Um ári eftir að hún byrjaði að nota farsíma að stað- aldri fór hún að finna fyrir hausverk og Óskar útbjó þá sams konar síma fyrir hana. Fleiri eiga ekki hlustunarpípufarsíma hann- aðan af Óskari Jónassyni og ekki stendur til að fjöldaframleiða tækið, að hans sögn. „Farsímafyrirtækin gætu nú samt framleitt eitthvað af sama tagi, bara nettara,“ segir hönn- uðurinn. Þau kannast bæði við að vekja at- hygli þegar þau tala í farsímana og útlendingar hafa m.a.s. tekið mynd af Evu Maríu að tala í símann! „Og margir gera grín að þessu en ég er ekkert viðkvæm fyrir því. Óskar fer meira í felur með þetta og er vanur því að fara afsíðis að tala í símann. Einu sinni hringdi hann í mig af kló- setti á sænskum flugvelli,“ segir hún brosandi. Þau halda því fram að nú sé eins lít- ið vitað um skaðsemi farsíma og um reykingar fyrir hundrað árum. Þau vilja því fara að öllu með gát þótt síma- framleiðendur keppist við að fullyrða að farsímar séu skaðlausir. Hlustunarpípa og hjólaslanga M orgunblaðið/Sverrir Óskar og Eva María með hlustunarpípu- farsímana góðu. Heimatilbúin vörn gegn farsímabylgjum Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Forystugrein 32 Viðskipti 14/16 Viðhorf 36 Erlent 17/19 Minningar 36/45 Höfuðborgin 20 Bréf 48 Akureyri 22 Dagbók 50/51 Suðurnes 24 Íþróttir 52/55 Landið 25 Fólk 56/61 Listir 26/27 Bíó 58/61 Menntun 28 Ljósvakamiðlar 62 Umræðan 31/46 Veður 63 * * * Kynningar – Blaðinu í dag fylgja „Stúdentablaðið“ sem dreift er um allt land og kynningarblaðið „Golf Digest“ sem er dreift um allt land, nema á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Tilraunir Baugs til að kaupa Arcadia vöktu mikla at- hygli hér heima og í Bretlandi. Guðrún Hálfdánardóttir rekur ævintýralega sögu úr heimi viðskiptanna. Á vélsleða í krapaelg Andrína Guðrún Erlendsdóttir sat í þrjá tíma föst á vélsleða úti í miðjum krapaelg og beið björgunar. Ragnhildur Sverrisdóttir ræðir við Andrínu. Nói albínói Kvikmyndin Nói albínói hefur notið góðs gengis á evr- ópskum kvikmyndahátíðum undanfarið og verður brátt frumsýnd hér heima. Ragna Sara Jónsdóttir hitti aðal- leikara myndarinnar, Tómas Lemarquis, að máli. Arcadia á sunnudaginn HEIÐA Jóhannsdóttir, sem sat aftan á vélsleða hjá unnusta sínum, telur sig heppna að hafa sloppið lifandi þegar sleði þeirra féll skyndilega tíu metra þar sem þau voru á ferð á Bláfjallasvæðinu. „Við vorum að snúa heim þegar við keyrðum ofan í gil sem við sáum ekki. Við féllum beint niður,“ segir Heiða. Áður höfðu þau verið á hægri ferð á vélsleðanum austanmegin við Bláfjallagarðinn – þeim megin sem engar lyftur eru. Í kring hefði verið sléttlendi og stígar fyrir skíðagöngumenn. Enginn var þarna á ferli þegar slysið varð. Heiða telur mikilvægt að vélsleðafólk sé á varðbergi gagnvart þeim hættum sem leynast. „Ég þakka guði fyrir að vera lifandi,“ segir Heiða sem þurfti að gista á spítala í fyrrinótt þar sem hún hlaut þungt höfuðhögg og hefur þurft að vera undir eftirliti læknis. Unnusti hennar slasaðist illa á báðum hnjám og blæddi bæði inn á liði og vöðva. Þau eru bæði óvinnufær. „Ég fékk höfuðhögg og rifbeinsbrotnaði.“ Heiða segir að þau hafi bæði fallið fram á stýrið, hann rak hnén í það og hún höfuðið. Við það brotnaði stýrið. „Við þurftum að keyra sleðann með hálfu stýri um sex kílómetra leið að bílnum. Síðan keyrðum við í algjöru áfalli í bæinn, á slysadeildina. Okkur var orðið svo kalt að við gátum ekki beðið eftir hjálp,“ segir Heiða. Hún segist hafa látið lögregluna vita af slysinu. Eng- ir aðrir vélsleðar hefðu verið á þessu svæði en hún vildi vara fólk við giljum sem þarna gætu leynst. Par á vélsleða á Bláfjallasvæðinu féll tíu metra Morgunblaðið/Sverrir Heiða Jóhannsdóttir og Egill Ragnar Sigurðsson þakka sínum sæla að ekki fór verr er sleðinn féll tíu metra. „Ég þakka guði fyrir að vera lifandi“ HÆSTIRÉTTUR sneri við dómi héraðsdóms frá því í nóvember og staðfesti að Reykjavíkurborg hefði mátt setja ákvæði í lögreglusam- þykkt sem m.a. bannar svonefndan einkadans á nektarstöðum. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður ógilt ákvæðið á þeirri forsendu að farið hefði verið út fyrir laga- heimildir með breytingum sem gerðar voru á lögreglusamþykkt fyrir Reykjavík. Hæstiréttur taldi á hinn bóginn að lög leyfðu yfirvöldum að fylgjast með sýningum á nekt- ardansi og ganga úr skugga um að allsherjarreglu og velsæmis væri gætt og að ekki færi fram refsiverð háttsemi í næturklúbbum. Nektardans leyfilegur en koma verður við eftirliti Forsaga málsins er að eigendur veitingahússins Austurvallar ehf., sem rekur skemmtistaðinn Óðal, höfðuðu mál á hendur Reykjavík- urborg og íslenska ríkinu þar sem þeir töldu að í ákvæði umræddrar lögreglusamþykktar væri vegið að atvinnufrelsi sem varið sé í stjórn- arskrá; fyrirtækið ræki löglega starfsemi og lögreglusamþykktir geymdu engar reglur sem heimiluðu stjórnvöldum takmörkun þess rétt- ar sem lög um veitinga- og gististaði og lög um lögreglusamþykktir tryggðu. Hæstiréttur sýknaði ríki og Reykjavíkurborg af báðum kröfum eigenda veitingastaðarins, þ.e. að breytingin á lögreglusamþykktinni yrði dæmd ógild og sömuleiðis af kröfu þeirra um að viðurkennd yrði skaðabótaskylda vegna þess tjóns sem breytingin á lögreglusamþykkt- inni hefði valdið þeim. Hæstiréttur taldi að þótt nektar- dans væri leyfður lögum samkvæmt væri engu að síður heimilt að setja þeirri atvinnustarfsemi almennar skorður í þágu velsæmis og allsherj- arreglu. Í 3. gr. laga um lögreglu- samþykktir fælust ótvíræðar heim- ildir til að setja um þetta reglur í lögreglusamþykkt og bæri lögreglu að hafa eftirlit með því að þeim reglum væri fylgt og að ekki ætti sér stað refsiverð háttsemi á veit- ingastöðum. Einkasýningar á nekt- ardansi færu fram í lokuðu rými inn- an veitingastaðanna og yrði slíku eftirliti þar ekki við komið. Fyrr- nefnd breyting á lögreglusamþykkt- inni fæli ekki í sér bann við nekt- ardansi en áskildi aðeins að nektardansara væri bannað að loka að sér með viðskiptamanni meðan á sýningu stæði og fara um meðal áhorfenda á staðnum. Borgin mátti banna einkadans BANDARÍSKA blaðið New York Post birti nýverið frásögn þar sem rakið er hversu hagkvæmt sé að kaupa merkjavörur í íslenskum verslunum. Sagt er að Reykjavík, sem sé ekki lengra frá New York en San Francisco, sé best geymda leyndarmál tískuheimsins. Í greininni er lögð fram tillaga að tveggja daga verslunarleið- angri. Fylgja upplýsingar um vörur, verð, heimasíður, hús- númer og hvaðeina sem getur leiðbeint ferðalöngum. Sagt er að merkjavörur á Íslandi séu um 30% ódýrari og við bætist end- urgreiddur skattur ef keypt er fyrir meira en fjögur þúsund krónur í einni verslun. Þar sé einnig að finna grípandi hönnun heimamanna og ekki spilli fyrir að allir tali góða ensku. Ferðaáætlunin gengur út á það að byrja efst á Laugaveginum. Fyrst er komið við í Gallerý Sautján þar sem götutískuna er að finna. Aðeins neðar er GK og þá er mælt með Burberry kaupum á kallana. Trefill og rykfrakki í innkaupapokann þar. Ferðin heldur áfram. Næsti stoppistaður er skóbúðin 38 þrep og sígildir skór á konur sagðir á góðu verði. Önnur skóbúð, Kron, er sögð sportlegri. Þá er mælt með MaxMara á Hverfisgötunni. Í greininni segir að líklega séu bestu kaupin hjá Sævari Karli og mælt með Armani jakkafötum á þúsund dollara. Fram kemur að hægt sé að spara enn meiri pening með því að kaupa vörur hannaðar af Ís- lendingum. Fólk á að byrja á ELM við Laugaveg þar sem þrjár konur hanna falleg föt. Hand- gerðir íslenskir skartgripir eru sagðir frægir og hægt sé að skoða sýningu í skartgripaversluninni Or. Eggert Feldskeri er sagður sjá landanum fyrir loðfeldinum og Ástþór Helgason fyrir skart- gripum sem hægt sé að borða. Til þess að hvíla sig á milli þessara viðburðaríku daga er mælt með gistingu á Hótel Borg og næringu á Apótekinu. Ef tími gefist til sé hægt að dilla sér á Astró en vinsælasti staðurinn til að hanga yfir drykk sé Kaffibar- inn. Mælir með merkjavöru á Íslandi New York Post fjallar um íslenska verslun
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.