Morgunblaðið - 21.02.2003, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.02.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ YFIRLÆKNIR á barna- og ung- lingageðdeild Landspítalans (BUGL) segir ástandið geðheilbrigðismálum barna skelfilegt. Stjórn Barnageð- læknafélags Íslands telur að neyðar- ástand ríki í geðheilbrigðismálum barna og ungmenna og segja að málið þoli enga bið. Aðspurður kveðst Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra ekki tilbúinn að svara því til hvaða að- gerða hægt sé að grípa með skjótum hætti. Af hálfu Landspítala – háskóla- sjúkrahúss verði farið grannt ofan í málið. „Ég ætla að sjá hvað út úr því kemur. Það er auðvitað grundvallar- aðtriði að fagmenn fari yfir það hvaða aðgerðir eru árangursríkastar í þessu,“ segir hann. Aukin eftirspurn er áhyggjuefni Jón segist taka þessi mál alvarlega en honum finnst umhugsunarefni hvers vegna eftirspurn eftir þjónustu við geðsjúk börn hafi vaxið svo mikið sem raun beri vitni. Hann vilji gera það sem hægt sé að gera til að bregð- ast við þessu en aukin eftirspurn sé áhyggjuefni og kveðst hann ekki hafa fengið fullnægjandi skýringu á henni. Spurður um áhrif þess að lögræðis- aldurinn var hækkaður úr 16 í 18 ár segir Jón að það sé aðeins hluti skýr- ingarinnar. Jón ræddi þessi mál við Magnús Pétursson, forstjóra Land- spítala – háskólasjúkrahúss, á reglu- bundnum fundi þeirra í gærmorgun. Segir Jón að Magnús hafi ákveðið að skoða sérstaklega starfsemi BUGL og ekki síst stöðu hennar í skipulagi spítalans. Varðandi samninga við einkarekna þjónustu barna- og ung- lingageðlækna segir Jón að málinu hafi verið vísað til Tryggingastofnun- ar ríkisins. Spurður hvort ekki hafi verið rætt um alvarlegt ástand í geðheilbrigðis- málum barna- og unglinga um margra ára skeið, bendir Jón aftur á að eftirspurnin eftir þjónustu hafi far- ið vaxandi. Þá hafi geðheilbrigðismál verið til umræðu eins lengi og hann muni, enda erfiður málaflokkur. Eitt af því sem Félag barnageðlækna benti á var að ekki hefði verið brugð- ist við hærri sjálfræðisaldri. Jón bendir hins vegar á að meira fjár- magn hafi verið sett í geðheilbrigð- ismál, 50 milljónir aukalega á síðasta ári, en það virðist ekki hafa dugað. Hann minnir á að geðheilbrigðismál- um barna- og unglinga sé sinnt á mörgum vígstöðvum, í heilsugæslu- stöðvum, hjá barnalæknum, sálfræð- ingum og fleirum. Þegar í óefni sé komið sé börnunum vísað á BUGL. Ástandið versnað á síðustu 2–3 árum Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlækn- ir á BUGL, segir ástandið skelfilegt. Um lengri tíma hafi ekki verið hægt að leggja inn bráðveika unglinga, svo vikum og mánuðum skipti, unglinga sem ekki geti sótt skóla vegna veik- inda sinna og foreldrar þurfi jafnvel að sitja yfir þeim allan daginn. Í vetur hafi að jafnaði 10–15 unglingar verið á biðlista til að komast á legudeild, þrátt fyrir að marga þeirra hafi þurft að leggja inn tafarlaust. Þar að auki séu 50–60 börn á biðlista göngudeild- ar. Ólafur segir að ástand í meðferð- armálum fyrir unglinga hafi versnað hægt og sígandi á síðustu 2–3 árum. „Þannig að manni svíður svolítið því þetta er ekki nýtt mál og það er margbúið að benda á þetta og reyna að fá breytingar en án árangurs.“ Stjórnendum geðsviðs Landspítal- ans, stjórn spítalans, lækningafor- stjóra og forstjóra hafi verið kunnugt um stöðuna. Aðspurður segir Ólafur að tafir á því að barn eða unglingur geti lagst inn á deildina valdi því að veikindi þeirra verða illviðráðanlegri. „Þetta hefur ekki bara áhrif á geð- heilsu unglingsins heldur allrar fjöl- skyldunnar. Ég veit að margir for- eldrar eiga í miklum vanda út af þessu,“ segir hann. Ástandið sé skelfi- legt fyrir nútímaþjóðfélag að eiga við, ekki síst ef miðað er við það að á Norðurlöndunum sé staða þessara mála miklu betri. Þar sé litið svo á að það sé góð fjárfesting að fjárfesta í geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn. Ódýrasta lausnin kostar tugi milljóna Á BUGL eru þrjár legudeildir; barnadeild, framhaldsmeðferðardeild fyrir börn og unglingageðdeild sem jafnframt er eina bráðamóttökudeild- in. Auk þess er ein göngudeild. Á ung- lingadeild er pláss fyrir níu unglinga, þar af eru tvö dagpláss. Spurður um til hvaða aðgerða væri hægt að grípa með skjótum hætti segir Ólafur að hugsanlega mætti færa göngudeild- ina annað og bæta við sex plássum á unglingadeild. Verði tekin ákvörðun um slíkt gæti framkvæmdum verið lokið á nokkrum mánuðum. Ólafur segir að ódýrasta lausn á húsnæðis- vanda kosti tugi milljóna en einnig þurfi tugi milljóna vegna aukins rekstrarkostnaðar. Ólafur segir að staða BUGL innan stjórnskipulags Landspítalans hefti framfarir á deildinni. Þrátt fyrir ábendingar og beiðnir um úrbætur frá því í haust hafi framkvæmda- stjórn spítalans fyrst tekið erindi þeirra formlega fyrir í þessari viku. „Þetta er merki um að eitthvað er að í stjórnskipulagi spítalans hvað varðar stöðu deildarinnar. Þetta hefur ítrek- að verið bent á og við teljum nauðsyn- legt að taka á þessu,“ segir hann. Starfsemi deildarinnar sé afar sér- hæfð og ólík annarri starfsemi á geðsviði spítalans. Því sé nauðsynlegt að hún lúti eigin stjórn. Eðlilegast væri að staða hennar væri svipuð og Barnaspítala Hringsins, þ.e. sjálf- stæðu sviði innan spítalans, eða hún yrði gerð að sjálfstæðri stofnun undir stjórn heilbrigðisráðuneytisins. Ekkert pláss á FSA Fyrir um tveimur árum fékk Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri viðbótarfjárveitingu til að auka þjón- ustu við börn og unglinga með geð- ræn vandamál en Halldór Jónsson, forstjóri FSA, segir að ekki hafi verið hægt að nýta þá fjárveitingu til fulln- ustu vegna húsnæðisskorts. Nú vinn- ur einn læknir á sjúkrahúsinu að þessum málum og sálfræðingur hefur störf í vor en Halldór segir að ráða þurfi einn lækni í viðbót og nokkra sálfræðinga. Engin vinnuaðstaða sé til á sjúkrahúsinu fyrir þetta starfs- fólk og því ekki hægt að ráða það til starfa. Barna- og unglingageðdeild FSA er ætlaður staður á einni af þremur hæðum sjúkrahússins sem ekki hafi verið lokið við að innrétta. Deildin mun þó aðeins þurfa hluta af hæðinni en Halldór segir að fari menn annað borð af stað verði að klára alla hæð- ina. Það kosti liðlega 100 milljónir en FSA eigi um 25 milljónir í fram- kvæmdasjóði. Rætt hafi verið við rík- isvaldið um fjárveitinu í 2–3 ár en enn hafi ekki tekist að tryggja fjármagn. Síðast hafi hann rætt málið við heil- brigðisráðherra fyrir um viku. Hall- dór vonast til að hægt verði að hefja framkvæmdir á þessu ári. Til þess þurfi FSA að fá heimild til fram- kvæmda og vilyrði fyrir fjárveitingu á næsta ári. Mun sinna Norðurlandi og jafnvel Austurlandi Ekki stendur til að opna sérstaka legudeild fyrir börn og unglinga með geðræn vandamál heldur verða þau lögð inn á barnadeild, eða aðrar deild- ir ef tilefni er til. Halldór segir að stór hluti af þjónustu deildarinnar felist í öðru en innlögnum. Þetta snúist um að sinna sjúklingum en til þess þurfi vinnuaðstöðu. Halldór segir augljóst að að einn læknir geti ekki sinnt öllu svæðinu sem heyri til FSA en með því að styrkja þjónustuna með fleira starfsfólki verði sjúkrahúsið í stakk búið til að sinna öllu Norðurlandi og væntanlega líka Austurlandi. Aðspurður segir Halldór að ofan- greind viðbótarfjárveiting hafi ekki verið lögð til hliðar heldur hafi pen- ingarnir verið nýttir í rekstur sjúkra- hússins. Án þeirra hefði rekstrarhalli FSA orðið enn meiri en ljóstað sjúkrahúsið sé, eins og fleiri heil- brigðisstofnanir, rekinn með halla. Það takmarki þó ekki vilja hans til að ráða fleiri starfsmenn. Jón Kristjánsson vonast til að ár- angur náist í húsnæðismálum FSA fljótlega. Aðspurður hvort til greina komi að nota eitthvað af þeim 6,3 milljörðum sem ríkisstjórnin ætlar að veita til að stemma stigu við atvinnu- leysi á næstu 18 mánuðum til fram- kvæmda við FSA, segir Jón að ákveð- ið að ráðstafa þeim peningum til vegagerðar og menningarhúsa. Yfirlæknir barna- og unglingageðdeildar segir ástandið í geðheilbrigðismálum barna vera skelfilegt Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Ekki nýtt vanda- mál og margbúið að benda á það 10–15 bráðveikir unglingar eru jafnan á biðlista eftir að komast á legudeild barna- og unglingageðdeildar Landspítalans og tugir barna bíða þess að komast á göngudeild. Heilbrigðisráðherra bíður eftir tillögum frá Landspítalanum. KRISTÍN Anna Jónsdóttir á tvö börn sem hafa þurft á þjónustu barna- og unglingageðdeildar (BUGL) að halda. Tíu ára sonur hennar er ofvirkur, með athygl- isbrest og hefur auk þess þjáðst af þunglyndi og kvíða. Í apríl 2002 vís- aði barnalæknir honum inn á dag- deild barna- og unglingageðdeildar enda var vanlíðan hans orðin mikil. Jafnframt fékk hann lyf en Kristín segir að þau hafi lítið virkað. Engin leið hafi verið að koma honum inn á BUGL í apríl og henni var tjáð að hann kæmist líklega inn um jólin. Eftir því sem leið á sumarið hafi líð- an sonar hennar stöðugt versnað. Honum hafi liðið ákaflega illa, stundum verið árásargjarn og í rauninni varla húsum hæfur. Um vorið hafi hún þurft að taka frí í 17 daga frá vinnu vegna veikinda hans og nánast allt sumarfríið hafi verið notað til sinna honum. Um haustið hafi hún loks komið stráknum inn „með frekjunni“ en þá hafi í raun verið um algjört neyðarástand að ræða. Sonur hennar fór á göngu- deild BUGL og hlaut þar meðferð og frekari greiningu. Segir Kristín að hann hafi tekið greinilegum framförum. Biðin hafi hins vegar tekið á, bæði fyrir soninn og aðra í fjölskyldunni. „Maður varð alveg uppgefinn en svo komst jafnvægi á þegar hann fékk réttu meðferðina,“ segir hún. Engin greining – engin sérkennsla Átta ára gömul dóttir Kristínar er með asberger-heilkenni og er of- virk. Kristín segir að hún hafi þurft að bíða í 6–7 mánuði eftir greiningu á BUGL. Henni hafi síðan verið vís- að í taugasálfræðilegt mat og það hafi tekið um ár að bíða eftir því. Þá hafi henni verið vísað á ráð- gjafar- og greiningarstöð ríkisins, sú bið hafi þegar tekið 6–7 mánuði og enn sé beðið. Biðin hafi í sjálfu sér lítil áhrif á líðan dóttur hennar, hún sé frekar róleg og að því leyti öðruvísi en sonurinn. Það sem sé verst við biðina sé að vita ekki hvað ami að börnunum og þar með sé ekki hægt að bregðast á réttan hátt við veikindunum. Til dæmis fái grunnskólar ekki úthlutað fé til sérkennslu fyrr en greining liggi fyrir. Tafir á greiningu þýði því að börnin fái ekki kennslu við hæfi. Kristín tekur fram að hún sé afar ánægð með þá þjónustu sem börn hennar hafi fengið á BUGL – þegar hún loksins fékkst. Læknar á deild- inni hafi greinilega mikið að gera og stundum sé ótrúlega erfitt að ná í þá. „Þeir eru allir af vilja gerðir, það vantar ekki. Það er bara erfitt að komast að,“ segir hún. Sem dæmi um álagið nefnir hún að læknar svari oft skilaboðum klukkan átta eða níu á kvöldin og þeir taki á móti börnum á laugardögum. „Þetta er náttúrulega ekki í lagi,“ segir Kristín. Móðir tveggja barna segir þjónustuna ekki vera í lagi Löng bið eftir meðferð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.