Morgunblaðið - 21.02.2003, Page 10

Morgunblaðið - 21.02.2003, Page 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ VIKTOR Kortsnoj er þekktur fyrir góða varnartaflmennsku og hann þurfti á henni að halda í skákinni við Stefán Kristjánsson á stórmóti Skákfélagsins Hróksins í gær. Hvítt: Stefán Kristjánsson Svart: Viktor Kortsnoj Skoski leikurinn 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rxc6 bxc6 6. e5 De7 7. De2 Rd5 8. c4 Db4+ 9. Rd2 Rf4 10. De3 Rg6 Nýjung. Þekkt er 10. …Re6 11. Bd3, t.d. 11. – Dc5 12. Rb3 Dxe3+ 13. Bxe3 a5 14. f4 a4 15. Rd4 Bb4+ 16. Kf2 Rxd4 17. Bxd4 c5 18. Be3 d6 19. Be4 Ha6 20. exd6 cxd6 21. f5 0–0 22. Bf4 He8 23. Kf3 g6 24. g4 a3 25. b3 Bc3 26. Had1 Be5 27. Hhe1, með betra tafli fyrir hvít (Rublevskij- Gligoric, Novi Sad 2000). 11. Bd3 Db6 12. Rf3 Bb4+ 13. Kf1 Be7 14. h4 Bb7 15. b4!? – Stefán er óhræddur við hinn aldna meistara. Til greina kemur 15. h5 Rf8 16. h6 g6 17. De2 Re6 18. Be3 c5 o.s.frv. 15. …Dxe3 16. Bxe3 f6 17. exf6 Bxf6 18. He1 0–0 19. h5 Re5 20. Rxe5 Bxe5 21. c5 a5 22. Hd1! – Hrókurinn er á leiðinn til d7 og hvítur virðist vera að ná afgerandi yfirburðum. Vandinn er sá, að tími til umhugsunar er orðinn lítill hjá honum. 22. – axb4 23. Bc4+ Kh8 24. Hxd7 Ba6 25. Bxa6 Hxa6 26. Hh4 Hxa2 27. Hxb4 h6 28. f4 Hc2 29. He4 Bc3! 30. Hde7 – Eftir 30. Hxc7 Ha8 31. Bf2 Ha1+ 32. Be1 Bxe1 33. Hxe1 Haa2 34. He8+ Kh7 35. Hcc8 Hc1+ 36. He1 Hxc5 37. He2 er jafnteflið á næstu grösum. 30. …Hf5! Kortsnoj finnur besta varnar- leikinn eins og hans er von og vísa. Ef hvítur nær kaupum á öðrum hróknum getur orðið erfitt fyrir svart að verja peðin á c7 og c6. 31. Hxc7 – Eða 31. g4 Hd5 32. Bf2 Hd1+: 33. Be1 Bxe1 34. Hxe1 Hdd2 35. H1e2 Hxe2 36. Hxe2 Hc4 37. He8+ Kh7, með jöfnu tafli. 31. …Hxh5 32. Kg1 He2 33. Hxc6 Hxe3 34. Hxe3 Bd4 35. Kf2 Bxc5 jafntefli. Kortsnoj náði jafn- tefli gegn Stefáni SKÁK Bragi Kristjánsson MINNIHLUTINN í borgarstjórn gagnrýndi gjaldskrárhækkun Strætó bs., sem tók gildi 10. febrúar sl., á fundi borgarstjórnar í gær. Einkum var deilt um hver bæri póli- tíska ábyrgð á hækkuninni, en flestir sem tóku til máls á fundinum, að nýj- um borgarstjóra undanskildum, einnig fulltrúar meirihlutans, virtust fyrst hafa frétt af hækkuninni í fjöl- miðlum. Meirihlutinn sagði það tví- skinnung hjá sjálfstæðismönnum að vera á móti gjaldskrárhækkuninni, þar sem þeir hefðu nýlega lagt til að framlög til fyrirtækisins yrðu skorin niður um 100 milljónir króna. Ákvörðunin sigldi fram hjá borgarkerfinu Kjartan Magnússon, Sjálfstæðis- flokki, sagði hækkunina hafa siglt fram hjá borgarkerfinu. Sérstakt væri að borgarfulltrúar læsu fyrst um hækkun af þessu tagi í dagblöð- unum, „sérstaklega þegar um er að ræða einhverjar mestu fargjalda- hækkanir í sögu almenningssam- gangna í Reykjavík. Að minnsta kosti frá tímum óðaverðbólgu. Frá síðustu fargjaldahækkun sem varð í júlí 2001 hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5% en fargjaldahækk- unin er nú allt að 25%,“ sagði hann. Þórólfur Árnason borgarstjóri sagði gjaldskrárhækkun einu leiðina sem stjórn Strætó bs. hefði til að bæta reksturinn. Hann sagðist hafa vitað af hækkuninni áður en hún kom til framkvæmda en sagði ákvörðunina algjörlega stjórnar byggðasamlagsins Strætó bs., sem Reykjavíkurborg ætti í félagi við önnur sveitarfélög á höfuðborgar- svæðinu. Kjartan sagði það stórpólitískt mál að hækka gjaldskrá hjá stræt- isvögnunum. Greinilegt væri að borgarstjóri hefði stutt þessa hækk- un því stjórn Strætó hefði aldrei gengið gegn vilja hans sem æðsta embættismanns borgarinnar, þar sem borgin ætti stærstan hlut í fyr- irtækinu, eða um 67%. „Þarna virðist algjörlega hafa verið farið fram hjá samgöngunefnd og borgarstjóri ákveður nánast upp á sitt eindæmi að hækka gjöld svo rosalega hjá strætó, sem við stöndum frammi fyr- ir nú,“ sagði Kjartan. Stjórn Strætó bs. tæki vissulega ákvörðunina, en það væri gert í umboði eigenda og Reykjavík væri stærsti eigandinn. „Þessu tek ég ekki orðalaust“ Þórólfur sagði þetta óeðlilegar ásakanir á sig persónulega, það væri stjórn Strætó bs. sem hefði með gjaldskrárhækkunina að gera. Benti borgarstjóri einnig á að ákvörðunin hefði verið tekin þann 31. janúar, eða degi áður en hann hóf störf. „Hvern- ig í ósköpunum átti ég að vita um þessa hækkun áður en ég hóf störf. Á ég að vera skyggn? Þetta stendur í fundargerðinni, það er 31. janúar. Ýmsu var nú reynt að klína upp á mig áður en ég hóf störf hér en þessu tek ég ekki orðalaust.“ Þórólfur sagði byggðasamlög lúta sjálfstæðum stjórnum og þessi ákvörðun hefði aldrei komið á hans borð. „Eigandi, hvort sem er í hluta- félagi eða byggðasamlagi, getur aldrei gripið fram fyrir gerðir stjórn- ar. Þetta hélt ég að væri á hreinu og þyrfti ekki að stafa ofan í menn,“ sagði Þórólfur. Tilhæfulaus inngrip gætu ekki talist til stjórnvisku, milli aðalfunda lytu byggðasamlög kjörn- um stjórnum. „Borgarstjóri grípur ekki einn inn í ákvarðanir sem stjórn byggðasamlags tekur sem eru tekju- aukandi fyrir byggðasamlagið og þar af leiðandi sparnaður fyrir Reykja- víkurborg,“ sagði borgarstjóri. Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálf- stæðisflokki, sagði það stórfrétt ef þessi túlkun Þórólfs væri rétt, ef stjórnir byggðasamlaga og hluta- félaga í eigu borgarinnar væru ekki í neinum tengslum við kjörna sveitar- stjórnarmenn og bæru enga ábyrgð á því sem þar fer fram. „Ég tel ekki að valdsvið borgar- stjóra nái til þess að grípa inn í sam- þykktir þegar þær hafa verið teknar af stjórnum byggðasamlaga eða hlutafélaga. [...] Ég hef hvergi sagt, ef það er verið að leggja mér þau orð í munn, að meirihluti við stjórn borg- arinnar eða að borgarfulltrúar hafi ekkert um þessi mál að segja, það hef ég aldrei sagt,“ sagði Þórólfur. Árni Þór Sigurðsson, forseti borg- arstjórnar, sagðist telja að stjórn Strætó bs. hefði átt að kynna hækk- unina fyrir aðildarsveitarfélögunum og sagði hækkunina að meðaltali nema 12%. „Það er auðvitað ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei haft sérstakan áhuga á almennings- samgöngum,“ sagði Árni Þór. Þau ár sem Sjálfstæðisflokkurinn var í meirihluta hefði allt miðast við að menn kæmust leiðar sinnar með einkabílum en almenningsvagnarnir hefðu nánast verið félagsmálaaðstoð. Ekki meirihluti fyrir hækkun Árni Þór minnti á að Sjálfstæð- ismenn hefðu þann 19. desember, þegar fjárhagsáætlun ársins 2003 var til umræðu, lagt til að framlög til Strætó bs. yrðu minnkuð um 100 milljónir króna. „Ekki var sú tillaga til þess fallin að efla almenningssam- göngur eða styrkja fyrirtækið, þvert á móti,“ sagði Árni Þór. Kjartan kallaði eftir svari um hvort R-listinn hefði lagt pólitíska blessun á hækkun fargjaldanna. „Hér virðist hafa verið bolað í gegn mikilli hækkun á fargjöldum Reyk- víkinga sem ekki virðist vera meiri- hluti fyrir í borgarstjórn,“ sagði Kjartan. Helgi Hjörvar, R-lista, sagðist hafa frétt af hækkuninni eftir að ákvörðunin var tekin. Sér væri þó ekki kunnugt um annað en að full og algjör samstaða hefði verið í stjórn byggðasamlagsins. Sveitarfélögin sem eiga Strætó bs. bæru þannig sameiginlega ábyrgð á ákvörðuninni. Hann sagði að þar á meðal væru sveitarfélög þar sem Sjálfstæðis- menn væru í meirihluta, sér væri ekki kunnugt um annað en þeir hefðu einnig stutt ákvörðunina fylli- lega. Ólafur F. Magnússon, F-lista, sagðist eindregið mótfallinn gjald- skrárhækkuninni. Hann sagði mik- ilvægt að snúa vörn í sókn í þessum málaflokki, almenningssamgöngur væru ekki síst samfélags- og um- hverfismál og því hefði hann á sínum tíma verið mótfallinn tillögu sjálf- stæðismanna um að lækka framlög til Strætó bs. Til að auka aðsókn þurfi fargjöldin að vera lág, sérstak- lega fyrir börn og lífeyrisþega. Hart deilt um pólitíska ábyrgð á gjaldskrárhækkun Strætó bs. í borgarstjórn Reykjavíkur Fréttu af hækkun- inni í fjölmiðlum SENDIBIFREIÐ með hengivagni stórskemmdist í gærmorgun er hún fór útaf Snæfellsvegi í Berserkja- hrauni og valt niður 8–9 metra há- an vegkant. Tveir menn voru í bíln- um og slösuðust ekki en kvörtuðu undan eymslum undan bílbeltum. Óhappið varð klukkan 11 í Kálfa- dal við svonefnt Smáhraun, í vest- urjaðri Berserkjahrauns, á norðan- verðu Snæfellsnesi, um það bil einn kílómetra frá veginum um Vatna- leið. Mennirnir í bifreiðinni vinna hjá Aðalskoðun hf. og voru þeir að flytja búnað til Grundarfjarðar sem notaður er til að skoða stóra bíla. Tildrög þess að bifreiðin fór út af veginum og valt eru óljós, að sögn lögreglu, en þá var talsverð hálka á veginum. Vildi það til happs að bíll- inn var ekki á mikilli ferð. Krana- bifreið þurfti til að ná bílnum og tengivagninum upp á veg aftur og var því verki ekki lokið fyrr en um klukkan 15. Valt niður vegkant BÓKIN Samvinnuhreyfingin í sögu Íslands er komin út, en í dag er 101 ár síðan hreyfingin var stofn- uð. Bókin hefur að geyma sex fyr- irlestra sem fluttir voru í október 2002 í tilefni af aldarafmæli Sam- bands íslenskra samvinnufélaga á því ári. Fjórir fyrirlestranna eru eftir Helga Skúla Kjartansson sagnfræðing sem rannsakað hefur ítarlega sögu hreyfingarinnar. Fyrir utan almennt inngangserindi er þar rætt um samvinnuhreyf- inguna sérstaklega með hliðsjón af sveitunum, félagsmálunum, stjórn- málunum og samkeppni. Loks fjallar Jónas Guðmundsson um fall Sambandsins og framtíð félagslegs reksturs og Jón Sigurðsson um samtíð og framtíð samvinnustarfs, en þeir eru fyrrverandi rektorar við Samvinnuháskólann. Bókin er gefin út af Áhugahópi um samvinnusögu og Sögufélag- inu. Samvinnu- hreyfingin í sögu Íslands komin út Morgunblaðið/Sverrir Reynir Ingibjartsson, Gerður Steinþórsdóttir, Helgi Skúli Kjartansson, Jón Sigurðsson og Loftur Guttormsson kynntu bókina um samvinnustarfið. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur fengið bréf frá lögmanni fyrrverandi kennara við Menntaskólann á Laug- arvatni þar sem óskað er eftir við- ræðum við fulltrúa ráðuneytisins til að fara yfir mál mannsins og komast að samkomulagi um hæfilegar bætur fyrir tjón sem hann hafi hlotið vegna starfsloka sinna sem kennari við skólann. Ráðuneytið hefur leitað eft- ir því að ríkislögmaður taki að sér milligöngu í málinu. Hæstiréttur sýknaði ríkið fyrir nokkru af kröfum kennarans um að staðið yrði við skuldbindingar í tengslum við starfslokasamning sem við hann var gerður um mitt ár 2001. Maðurinn hefur átt við veikindi að stríða og fóru skólayfirvöld á Laug- arvatni fram á það að hann léti af störfum gegn því að honum yrðu greiddar fullnaðarbætur vegna starfslokanna, samtals rúmar 5 milljónir og hann féllst á það. Hann fékk ekki greidda pen- ingana og þegar ljóst var að mennta- málaráðuneytið hafði framsent samninginn til ríkislögmanns og ósk- að eftir áliti um gildi hans höfðaði maðurinn mál fyrir héraðsdómi þar sem hann krafðist þess að fá greitt í samræmi við samninginn. Á launaskrá síðan í ágúst 2001? Ríkið taldi á móti að samningurinn væri ekki skuldbindandi þar sem ekki hefði verið fengin fyrir honum formleg heimild, ekki hefði heldur verið leitað eftir heimild í fjárauka- lögum fyrir 2001 eða fjárlögum 2002. Dómur gekk í Héraðsdómi í apríl 2002 þar sem kröfur kennarans voru teknar til greina. Ríkið áfrýjaði dómnum og féllst Hæstiréttur á rök ríkisins í málinu. Fram kemur í dómsniðurstöðu að báðum aðilum hafi mátt vera ljóst að engin formleg heimild hafi verið fyrir gerð samn- ingsins. Einn dómari skilaði séráliti og taldi að staðfesta bæri dóminn. Í grein sem Ragnar Halldór Hall, hæstaréttarlögmaður og lögmaður mannsins, ritaði í Morgunblaðið fyr- ir skömmu bendir hann á að Hæsti- réttur taki ekki afstöðu til þess hvort stefndi kunni að eiga rétt á greiðslu vegna brotthvarfs síns úr skólanum heldur einungis að lagaheimild hafi skort til að greiða manninum sam- kvæmt samningnum. Þá veltir Ragnar upp þeirri spurningu hvort dómur Hæstaréttar þýði að maður- inn eigi inni laun hjá Menntaskólan- um síðan í ágúst 2001 þar eð samn- ingurinn um starfslok hans reyndist ekki skuldbindandi fyrir ríkissjóð. Að sögn Guðmundar Árnasonar, ráðuneytisstjóra í menntamálaráðu- neytinu, hefur fjármálaráðuneytið jafnframt leitað eftir því að málið verði ekki til lykta leitt nema að áður verði kallað eftir afstöðu mennta- málaráðuneytisins til málsins. Búið sé því að marka málinu ákveðinn far- veg. Fyrrverandi kennari við ML krefst bóta Ríkislögmanni falið að hafa milligöngu í málinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.