Morgunblaðið - 21.02.2003, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.02.2003, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Íslendingar munu sennilega fáaðild að Evrópusambandinuá tiltölulega skömmum tíma,ákveði þeir að sækja um aðild að sambandinu, ekki vegna þess að þeir muni fá undanþágur eða með- höndlun innan sambandsins heldur vegna þess að aðstæður kalla ekki á flókið aðlögunarferli. Þetta kom fram í fyrirlestri sem Anna Lindh, utanríkisráðherra Svía, hélt í Stofn- un stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands í dag. Lindh lagði áherslu á að hún vildi ekki reyna að hafa áhrif á það hvort Íslendingar sæktu um aðild að sam- bandinu þar sem það yrði að vera alfarið ákvörðun Íslendinga. Hún mundi hins vegar fagna aðild Ís- lendinga að sambandinu ef til henn- ar kæmi, m.a. vegna þess að það mundi styrkja stöðu Norður- landanna innan sambandsins. Þá sagðist hún í fyrstu ekki hafa lagt mikið upp úr samvinnu nágranna- þjóða innan sambandsins en að reynslan hefði sýnt sér að slík sam- vinna gæti aukið áhrifamátt þjóða í ákveðnum málum enda væri sam- vinna þjóða, sem hafa svipaðan bak- grunn, áberandi innan sambands- ins. Þetta breytti því þó ekki að ákveðnar þjóðir gætu einnig haft áhrif í öðrum málum þótt þær tækju sig út úr hópnum. Upptaka evru mikilvæg Anna Lindh vék einnig að fyrir- hugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um evruna í Svíþjóð og sagðist telja að það mundi draga úr áhrifamætti Svía innan Evrópusambandsins, höfnuðu þeir upptöku evrunnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni í haust. Lindh sagði að hún teldi upptöku evrunnar mikilvæga fyrir sænskt efnahagslíf auk þess sem hún ótt- aðist að Svíar yrðu að einhverju leyti afskrifaðir, sem fullgildir að- ilar sambandsins, höfnuðu þeir evr- unni. „Aðrar þjóðir munu spyrja hvað búi að baki og hvort við viljum í raun vera með,“ sagði hún. Lindh sagði áhrif lítilla þjóða vissulega vera minni en stærri þjóða innan sambandsins en að litl- ar þjóðir hefðu engu að síð talsverð áhrif innan þess. Þ hún deilur sjaldnast koma milli lítilla og stærri þjóða h milli mismunandi hagsmuna yfirleitt gætti mikils vilja t innan sambandsins að kom samkomulagi. Þannig reynd ir fremur að fá sitt fram með ingum en með því að beita sínum. Ræddu greiðslur vegna Sænski utanríkisráðherra í gær fundi með Davíð Od forsætisráðherra, Siv Friðlei ur umhverfisráðherra og H Ásgrímssyni, utanríkisráðhe Á blaðamannafundi að l fundi utanríkisráðherranna ráðherrarnir áherslu á a hefðu átt gott samstarf í g Anna Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, á fundi S Aðild Íslands myndi styrkja stöðu Norður- landanna Það komust færri að en vild um fundi í Odda á vegum St S víar hafa átt aðild að Evrópusambandinu í rúm átta ár en kannanir sýna þó að enn sé stór hluti þjóðarinnar hikandi í afstöðu sinni gagnvart ESB. Hver er skýringin á því? Það varð mikil viðhorfsbreyting til ESB þegar Svíar fóru með formennsku í ráðherraráðinu. Það að Svíar voru í formennsku og fundir ESB voru haldnir í Svíþjóð færði sambandið nær Svíum. Það má því segja að eftir formennskutímabilið hafi Svíar orðið fullgildir aðilar. Ég tel að nú séu flestir jákvæðir í garð sjálfrar aðildarinnar þó svo að skiptar skoðanir séu á aðild að EMU. – Kannanir sýna að þjóðaratkvæaðgreiðslan um evruna í haust gæti orðið tvísýn. Veldur það þér áhyggjum? Umræðan um EMU er varla byrjuð. Hættan er sú að ef við höfnum aðild dragi úr vægi Svía í ESB. Andstöðuna má meðal annars skýra með því að margir Svía vilja fara varlega. Þá halda margir að með því að gerast aðilar að EMU séum við að ganga inn í enn meiri samruna. Munurinn er hins vegar ekki svo mikill. – EMU-aðild hefur verið gagnrýnd harðlega út frá hag- fræðilegum sjónarmiðum og bent á að Svíar muni ekki geta brugðist við hagsveiflum með vaxtastýringu. Ég held að við munum áfram geta nýtt önnur hagstjórn- artæki í þessum tilgangi. Þó svo að seðlabankinn muni ekki lengur ráða vaxtastigi þá geta þing og ríkisstjórn tekið ýmsar ákvarðanir í ríkisfjármálum sem ættu að geta skilað sama ár- angri. – Tíu ný aðildarríki bætast við árið 2005. Hverju telur þú að stækkunin muni breyta? Ég held að breytingin verði ekki jafnmikil og menn halda. Þetta kallar hins vegar á að gera verður ákvarðanatökuferli skilvirkari innan sambandsins. Þá verður að huga að tungu- málaþættinum í innra starfi sambandsins. Borgarar og stjórn- málamenn tel ég að verði ávallt að fá að nota sitt tungumál en embættismenn gætu þurft að einskorða sig við færri. Þá yrðu ríki væntanlega að taka upp hópvinnu, t.d. varðandi for- mennsku í ráðherraráðinu. Auðvitað er ávallt einhver áhætta tengd stækkun og kostn- aður. ESB hefur hins vegar þegar tekið þátt í mikilli uppbygg- ingu í Austur-Evrópu. Nú mun öll Evrópa uppskera vegna þess. – Hvað um frekari stækkun? Nú knýja Búlgaría, Rúmenía og Tyrkland á um aðild og hvað á að gera við ríki á borð við Úkraínu og Hvíta-Rússland? Við eigum að gera þetta í áföngum. Rúmenía, Búlgaría og Tyrkland eru þegar á listanum og brátt m umsókn. Við eigum þegar nána samvin Hvíta-Rússland en við eigum að fara hægt – Það eru einnig skiptar skoðanir um að Við erum búin að lofa Tyrkjum aðild. Þa til umræðu. Skilyrði þess er hins vegar að skilyrði t.d. varðandi lýðræðislegar umbæ sett fyrir aðild. Ef Tyrkir uppfylla þau ve við loforð okkar. – Tveir þekktir fyrrum stjórnmálamenn Ellemann-Jensen, hvöttu til þess í blaðag Norðurlöndin öll myndu ganga í ESB og þér á þá hugmynd? Ég er þeirrar skoðunar að maður eigi e ríkjum fyrir verkum. Svíar eiga ekki að hvað þeim sé fyrir bestu. Slíkar yfirlýsinga gagnstæð viðbrögð. Hins vegar myndi ég Íslendinga og Norðmanna að ESB. Í Sví Það verður að af M Anna Lindh, utanríkisráðherra Svía. Anna Lindh, utanríkisráð- herra Svíþjóðar, ræddi við Steingrím Sigurgeirsson um Svía og ESB, Norðurlandasam- starf og Íraksdeiluna. ÓFREMDARÁSTAND Ýmsir hafa orðið til þess á und-anförnum árum að vekja at-hygli á bágri stöðu í geðheil- brigðisþjónustu fyrir börn og unglinga. Fyrir fjórum árum komu samtök foreldra barna og unglinga með geðraskanir í fyrsta sinn fram á sjónarsviðið og beindu sjónum al- mennings að því ófremdarástandi, sem þá ríkti í þjónustu við fárveik börn og unglinga; hvernig heimilis- líf þeirra var allt úr skorðum vegna þess að engin úrræði fengust og lífi og limum barnanna, sem um ræddi, var í sumum tilvikum í hættu stefnt. Á þeim tíma, sem síðan er liðinn, hafa ýmsar úrbætur verið gerðar á Barna- og unglingageðdeild Land- spítala háskólasjúkrahúss (BUGL) og aukið fé veitt til þjónustu við börn og unglinga, sem glíma við geðsjúkdóma. Nú virðist hins vegar blasa við að það hefur ekki dugað til, enda fer eftirspurn eftir geð- læknisþjónustu fyrir börn og ung- linga vaxandi. Að hluta til er sú aukning væntanlega tilkomin vegna þess að það er minna feimnismál en áður að viðurkenna að fjölskyldu- meðlimur eigi við geðsjúkdóm að stríða og þurfi á hjálp að halda. En er sú hjálp fyrir hendi, þegar fólk leitar eftir henni? Stjórn Barnageðlæknafélags Ís- lands hefur í bréfi til heilbrigðisráð- herra og landlæknis vakið athygli á stöðu mála á BUGL. Þar kemur m.a. fram að deildin sé að jafnaði yf- irfull og ekki óalgengt að 25–40% fleiri séu lagðir inn en þar er í raun rúm fyrir. Ítrekað hafi þurft að leggja börn inn á fullorðinsgeð- deildir, sem geðlæknarnir benda réttilega á að sé algert neyðarúr- ræði. Barnageðlæknarnir benda enn- fremur á að þjónustusamningur milli LSH, Barnaverndarstofu og Vogs, sem talinn er hafa bætt þjón- ustu við veik börn og unglinga tals- vert, sé í uppnámi og framtíð hans óljós. Þá hafi uppbygging geðheil- brigðisþjónustu fyrir börn og ung- linga á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri dregizt og sérhæfðri þjón- ustu við dreifðari byggðir sé mjög ábótavant. Loks bendir stjórn Barnageð- læknafélagsins á að einkarekin þjónusta barna- og unglingageð- lækna hafi átt undir högg að sækja vegna þess að Tryggingastofnun sé ekki reiðubúin að taka þátt í kostn- aði við hana. Þar með er vanda- málum, sem e.t.v. væri hægt að sinna annars staðar, velt yfir á BUGL. Þar bíða að jafnaði 10–15 mikið veikir unglingar eftir plássi á legudeild og 50–60 börn eru á bið- lista eftir göngudeildarplássi. Ólafur Ó. Guðmundsson, yfir- læknir Barna- og unglingageðdeild- arinnar, segir í samtali við Morg- unblaðið í dag að ástandið sé „skelfilegt“; ekki sé hægt að leggja inn bráðveika unglinga svo vikum og mánuðum skipti, en þeir geti ekki sótt skóla vegna veikinda sinna og foreldrar þeirra þurfi jafnvel að sitja yfir þeim allan daginn. Þessi staða er auðvitað með öllu óviðunandi og sérhvert foreldri get- ur séð sjálft sig í þeim sporum, sem foreldrar þeirra barna, sem eiga við erfið veikindi að glíma en fá ekki viðeigandi meðferð, standa í. Myndi heilbrigðiskerfið láta þessi börn bíða ef þau væru fótbrotin eða hefðu brennt sig? Hvers eiga þessi börn og fjölskyldur þeirra að gjalda? Ólafur Ó. Guðmundsson bendir réttilega á að tafir á því að barn eða unglingur fái þá læknisþjónustu, sem við á, geti orðið til þess að veik- indin verði illviðráðanlegri og hafi áhrif ekki aðeins á geðheilsu ung- lingsins sjálfs heldur allrar fjöl- skyldunnar. Niðurstöður rann- sókna sýna m.a. að unglingar, sem ekki fá viðeigandi meðhöndlun vegna geðraskana, eiga fremur á hættu en aðrir að leiðast út í vímu- efnaneyzlu, andfélagslega hegðun og afbrot, með tilheyrandi kostnaði fyrir einstaklinginn, fjölskyldu hans og samfélagið. Það er afar brýnt að brugðizt verði skjótt við þessum vanda. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra, landlæknisembættið og stjórnend- ur Landspítala – háskólasjúkrahúss viðurkenna vandann. Áður hefur hins vegar einnig verið ákveðið að setja málefni BUGL í forgang á LSH, án þess að það hafi skilað við- unandi árangri. Hér þurfa augljós- lega meiri fjárveitingar að koma til, bæði til spítalans og til einkarek- innar sérfræðiþjónustu á sviði barna- og unglingageðlækninga. Jafnframt hlýtur að koma til skoð- unar hvort BUGL eigi að fá aukið sjálfstæði innan spítalans til að þessi mál fái þá athygli, sem þau verðskulda. Af hálfu stjórnvalda hefur á und- anförnum árum komið fram mikil- væg viðurkenning á þeim vanda, sem geðsjúkdómar eru í samfélag- inu og mikilvægi þess að kljást við þá. Í stefnuræðu sinni á Alþingi haustið 2001 sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra: „Geðraskanir eru meðal algengustu sjúkdóma á Ís- landi. Það eru æði mörg íslenzk heimili, sem þurfa að kljást við þennan vanda, þótt það fari ekki alltaf hátt. Þessir sjúkdómar eru taldir valda meira vinnutapi og kostnaði fyrir samfélagið en flestir aðrir sjúkdómsflokkar, sem undir- strikar mikilvægi þess að bregðast við þeim af mikilli alvöru.“ Í kjölfar þessarar yfirlýsingar hafa komið fleiri fyrirheit ríkis- stjórnarinnar um að taka með festu á geðheilbrigðismálunum. Þar hef- ur á margan hátt verið vel að verki staðið en veruleikinn er sá, að meira þarf til. Það kostar mikla fjármuni að bæta geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga, en þau fjárútlát spara ýmsan annan kostnað fyrir samfélagið. Í þessum málum eins og ýmsum öðrum gildir að ef nógu snemma er gripið inn í, er hægt að afstýra óbætanlegum skaða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.