Morgunblaðið - 21.02.2003, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 21.02.2003, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2003 33 Forsætisráðherra Íslands Hvað fær forsætisráðherra Ís- lands til að stíga fram og lýsa yfir því að Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir sé forsætisráðherraefni tiltek- inna fyrirtækja, verslana eða ein- staklinga? Í yfirlýsingunni felst að þessar staðreyndir muni móta afstöðu hennar til mikilvægra mála í framtíðinni. Það muni skipta hana miklu sem ráðherra hvort Norðurljósum gangi vel að afla auglýsingatekna eða hvort sölutölur Útilífs í Glæsibæ, sem er sérverslun í eigu Baugs, séu undir væntingum eða ekki. Hverskonar málflutningur er þetta! Finnst fólki þetta vera for- sætisráðherra sæmandi? Ég þori að fullyrða að ekki einu sinni for- sætisráðherra sjálfur trúir þessu, hvað þá aðrir. Líklega var það til- viljun ein sem réð því að í kjölfar þessarar yfirlýsingar forsætisráð- herra var álit skattrann- sóknastjóra þess efnis, að annar hinna meintu útgerðarmanna ráð- herraefnisins hefði ekki skilað þeim greiðslum til samfélagsins sem honum bar, gert opinbert. Þar með fór umræðan smám sam- an að snúast um það hvort og hversu náin tengsl Ingibjargar Sólrúnar eru við viðkomandi per- sónu! Það þarf því ekki að koma á óvart í ljósi alls þessa að menn skuli nú þegar vera farnir að hug- leiða það í alvöru hvort fljótlega sé von á niðurstöðum úr annarri rannsókn, rannsókn ríkislög- reglustjóra á öðru máli. Það þyrfti ekki að koma á óvart. Þá vöktu athygli skrif stjórn- arformanns olíufélagsins Skelj- ungs, Benedikts Jóhannessonar, sem taldi vegna ummæla Ingi- bjargar Sólrúnar um að stjórn- málamenn eigi ekki að taka af- stöðu með eða á móti tilteknum fyrirtækjum, að í þeim fælist að hún tæki þá ekki heldur afstöðu gegn fyrirtækinu Norðurljósum hf. Þar sem hún gerði það ekki hafi hún um leið tekið afstöðu með fíkniefnasölum! Er nema von að spurt sé hvort allt sé í lagi! Framsóknar-íhaldið Það hefur verið forvitnilegt að lesa ummæli núverandi eða verð- andi þingmanna stjórnarflokk- anna undanfarið í tilefni af inn- komu Ingibjargar Sólrúnar í landsmálin. Þeir, sem hafa tjáð sig, hafa allir sem einn tekið und- ir yfirlýsingar og skrif sem vitnað er til hér að framan, auk þess að bæta inn í umræðuna nokkrum heimspekilegum sjónarmiðum. Þeir hafa m.a. fullyrt að komist Samfylkingin til áhrifa hafi þing- menn flokksins harðan og ein- beittan vilja til þess að ganga af landsbyggðinni dauðri! Til þess að sannfæra fólk enn frekar um þennan ásetning hafa óttaslegnir frambjóðendur þessara flokka, einkum Framsóknarflokks, reynt að lífga við gamlar hugmyndir um ævilanga andstöðu jafnaðarmanna við bændur, en sú hugmynd hélt Framsóknarflokknum lengi vel á lífi í dreifbýlinu. Í þessari um- ræðu hafa liðsmenn stjórnarflokk- anna þrammað í takt. Það er því ekki nema von að gömul hugmynd Hannesar Hólmsteins Giss- urarsonar um sameiningu þessara tveggja flokka hafi fengið byr undir báða vængi. Þá ætti það ekki að draga úr áhuga manna á hugmyndinni að formaður Fram- sóknarflokksins hefur ákveðið að flytja sig af landsbyggðinni og bjóða sig fram í Reykjavík. Það er því fleira núorðið sem sameinar þessa flokka en sundrar. Niðurlag Öllum er ljóst að ummæli og skrif sem hér hefur verið vísað til að framan bera með sér tauga- veiklun og ótta vegna ótvíræðra vísbendinga úr skoðanakönnunum um að þjóðin sé orðin þreytt á stjórnarflokkunum. Það er ólík- legt að slík orðræða muni breyta hinu pólitíska landslagi, því hún felur í sér mikinn hroka og van- mat gagnvart öllum almenningi. Láti þeir ekki af þessu mun hún aðeins smækka hina minni. Við því mega þeir ekki. Orðræða óttans Eftir Lúðvík Bergvinsson „Ég þori að fullyrða að ekki einu sinni for- sætisráðherra sjálfur trúir þessu, hvað þá aðrir.“ Höfundur er alþingismaður. ALLAR framkvæmdir á vegakerf- inu auka á umferðaröryggi, hvort sem um er að ræða nýbyggingu vega og brúa eða endurbætur. Þær stórfelldu framkvæmdir sem nú eru fyrirhugaðar samkvæmt samgönguáætlun og því viðbót- arfjármagni sem ríkisstjórnin hef- ur ákveðið að veita til vegamála, munu því bæta öryggi vegakerf- isins og ætti þar af leiðandi að draga úr slysum. Fyrir utan ný- framkvæmdir og viðhald vega- kerfisins almennt er í þágu um- ferðaröryggis lögð áhersla á fækkun einbreiðra brúa og aukið umferðareftirlit á vegum sem stuðli að ábyrgri hegðun í umferð- inni. Nýframkvæmdir Samgönguáætlun gerir ráð fyrir miklum úrbótum í vegakerfinu. Vegagerðin hefur unnið áætlun um endurbætur á vegakerfinu þar sem hugað er sérstaklega að þeim stöðum sem úrbóta er þörf m.t.t. öryggis vegfarenda. Í því sam- bandi má nefna framkvæmdir á borð við mislæg gatnamót við Stekkjabakka, breikkun Reykja- nesbrautar, breikkun Vest- urlandsvegar í Mosfellsbæ, end- urbætur á vegi um Hellisheiði, þverun Kolgrafarfjarðar, veggöng milli Fáskrúðsfjarðar og Reyð- arfjarðar, uppbygginngu vegarins um Tjörnes og endurgerð Vest- fjarðavegar um Barðaströnd og í Djúpinu. Við hönnun nýrra umferð- armannvirkja eru öryggismál veg- farenda höfð að leiðarljósi. Reynslan sýnir að alvarlegum slysum í umferðinni fækkar mjög á þeim köflum þar sem vegir hafa verið endurgerðir og/eða veg- stæðum breytt. Vegakerfið sem við búum við hefur ýmsa ágalla sem verið er að sníða af eftir fremsta megni, enda víðast byggt upp miðað við aðrar kröfur en gerðar eru í dag m.a. meiri um- ferð og meiri hraða. Vissulega væri ákjósanlegt að það gengi hraðar fyrir sig en sníða verður stakk eftir vexti í þessum efnum sem öðrum. Einbreiðum brúm fækkar ört Á síðasta kjörtímabili hefur ver- ið unnið við að fækka einbreiðum brúm. Samkvæmt svari sem ég veitti á Alþingi fækkaði ein- breiðum brúm um 50 á árunum 1991–1995. Á árunum 1996–1998 fækkaði þeim um 80 og á árunum 1999–2002 fækkaði þeim einnig um 80. Samtals er því um að ræða 210 brýr á rúmum áratug. Um síðustu áramót var 71 ein- breið brú á hringveginum. Það er of mikið, en óumdeilanlega hefur verulegur árangur náðst á síðast- liðnum áratug í fækkun þeirra. Í nýrri samgönguáætlun er síðan gert ráð fyrir átaki í fækkun slíkra brúa enda forgangsatriði m.t.t. umferðaröryggis. Stefnt er að því að losna við þessar brýr sem fyrst úr þjóðvegakerfinu. Einn af meginþáttum í fækkun umferðarslysa er aukið forvarn- arstarf og aukið eftirlit með um- ferðinni og umferðarmann- virkjum. Á undanförnum árum hefur nokkuð áunnist í þessu efni en margt má þó enn til betri veg- ar færa. Þá ber að geta þess að í umferðaröryggisáætlun stjórn- valda 2001–2012 eru sett fram skýr markmið um fækkun slysa í umferðinni. Trú mín er að á næstu árum muni okkur takast að gera átak til að bæta hér enn frekar umferðaröryggi og því er í nýrri samgönguáætlun auknum fjármunum varið til framkvæmda og þeirra aðgerða sem eiga að auka öryggi í umferðinni. Framkvæmdafé stóraukið Samkvæmt samgönguáætlun verður varið meiri fjármunum til vegagerðar en áður hefur verið. Er þess að vænta að ástand vega um landið allt batni mikið næstu tólf árin og afkastageta vegakerf- isins aukist og umferðaröryggið verði meira. En til að ásætt- anlegur árangur náist í fækkun alvarlegra umferðarslysa er ör- yggi vegakerfisins ekki nægj- anlegt heldur verður einnig að eiga sér stað þjóðarátak um aukna ábyrgð og tillitssemi öku- manna. Umferðaröryggi hefur forgang Eftir Sturlu Böðvarsson „Er þess að vænta að ástand vega um landið allt batni mikið næstu tólf árin og afkastageta vegakerfisins aukist og umferð- aröryggið verði meira.“ Höfundur er samgönguráðherra. ur um- á sagði upp á eldur á a og að til þess mast að du þjóð- ð samn- a mætti a EES ann átti ddssyni ifsdótt- Halldóri erra. loknum a lögðu að þeir gegnum tíðina og góðan fund þar sem þeir hefðu m.a. rætt um stækkun Evr- ópusambandsins, EES og greiðslur Íslendinga til sambandsins. Spurð um afstöðu Svía til þessara við- ræðna sagði Lindh að þar sem Sví- ar ættu aðild að Evrópusamband- inu ættu þeir beina aðild að þessum viðræðum og styddu því kröfur ESB. Hún sagði Halldór þó hafa gert sér skýra grein fyrir afstöðu Íslendinga í málinu í morgun. Lindh sagði að þótt Svíar myndu fagna því að Íslendingar gengju í ESB, þar sem það myndi auka áhrifamátt Norðurlandanna innan sambandsins, væri ekki þar með sagt að Norðurlöndin myndu standa saman í öllum málum sem upp koma innan ESB, þar sem hver þjóð mundi ávallt setja eigin hags- muni í fyrirrúm. Ráðherrarnir ræddu einnig hval- veiðimálið á fundinum í morgun og sagði Lindh að þótt afstaða þjóð- anna væri augljóslega ekki sú sama hefði það ekki leitt til fjandskapar. Viðræður um málið hefðu verið vin- samlegar í morgun og hún vonaðist til að samningaviðræður héldu áfram og að þær skiluðu árangri. Þá sagðist hún fagna aðild Íslend- inga að Hvalveiðiráðinu undir öðr- um kringumstæðum. Íraksmálið var einnig rætt á fundi ráðherranna og sagði Lindh að af- staða Svía væri svipuð afstöðu Frakka þ.e. að þeir teldu að leita bæri allra leiða til að leysa Íraksdeil- una með friðsamlegum hætti og inn- an Sameinuðu þjóðanna. Svíar hefðu þó ekki útilokað stuðning við hugs- anlegar hernaðaraðgerðir reyndust aðrar leiðir árangurslausar. tofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála Morgunblaðið/Jim Smart du þegar Anna Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, flutti fyrirlestur í gær á opn- tofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands. mun Króatía skila inn nnu við Úkraínu og t í að lofa aðild. ðild Tyrklands. að er því ekki lengur ð Tyrkir uppfylli þau ætur sem við höfum erðum við að standa n, Carl Bildt og Uffe grein á dögunum að NATO. Hvernig líst ekki að segja öðrum ð segja Íslendingum ar vekja yfirleitt upp auðvitað fagna aðild íþjóð eru hins vegar ekki uppi nein áform um aðild að NATO. Hver svo sem nið- urstaðan verður þá tel ég mikilvægt að eiga öflugt svæðis- bundið samstarf. Ég tel ekki að Norðurlandasamstarfið hafi veikst, þvert á móti hefur aðild Eystrasaltsríkjanna hleypt í það nýju lífi. Við vorum svolítið barnaleg þegar við vorum ný- gengin í ESB hvað svæðisbundið samstarf varðar. Fljótlega sáum við hins vegar að flest ríki sambandsins eru í einhverju slíku samstarfi – Það hefur lengi verið markmið ESB að taka upp sameig- inlega stefnu í öryggis- og varnarmálum. Sýnir Íraksdeilan ekki að það er nær ómögulegt. Og er slík stefna æskileg í ljósi hlutleysistefnu Svía? Það má segja að við séum ekki hlutlaust ríki heldur ríki sem stendur utan hernaðarbandalaga. Hins vegar eigum við aðild að ESB sem er pólitískt bandalag. Það tekur tíma að byggja upp sameiginlega stefnu. Hún verður hins vegar ekki eina ut- anríkisstefna aðildarríkjanna heldur einmitt sú sameiginlega. Ég tel til dæmis mikilvægt að til verði annar sterkur aðili í al- þjóðasamstarfinu þannig að ekki verði einungis eitt ríki sem hefur áhrif um allan heim. Íraksdeilan reyndist okkur hins vegar ofviða. Það olli mér miklum vonbrigðum. Hins vegar komum við aftur saman til fundar og náðum að samræma sjónarmiðin. Vandinn er auðvit- að sá að mál á borð við Írak er mjög samtvinnað mati einstakra ríkja á sínum öryggishagsmunum. Á Balkanskaga, til dæmis í Makedóníu, höfum við náð miklum árangri. – Íraksdeilan virðist hafa skipt Evrópuríkjunum í fylkingar hvað stuðning við Bandaríkin varðar. Óháð því hvort við styðjum Bandaríkin í þessu máli eða ekki er mikilvægt að við byggjum upp eigin mátt. Í þessu máli er hins vegar mikilvægast hvernig hægt er að afvopna Íraka. Ég vona að hægt verði að gera það án valdbeitingar í gegnum eft- irlitsmennina. Ef beita verður hervaldi er hins vegar mik- ilvægt að það verði gert í umboði Sameinuðu þjóðanna. – Hversu lengi er hægt að bíða? Eins lengi og vopnaeftirlitsmennirnir telja að starf þeirra skili árangri. Ef þeir meta stöðuna sem svo að þeir komist ekk- ert áfram verður hins vegar að kalla þá heim. Það er þó líka ljóst að Írakar munu ekki sýna samstarfsvilja ef ekki er til staðar hótun um beitingu hervalds. – Þessa stundina er verið að semja um nýja stjórnarskrá Evrópusambandsins. Hverjar eru áherslur Svía varðandi framtíð ESB? Við viljum ekki að ESB verði að eins konar Bandaríkjum Evrópu. Við teljum hins vegar rétt að beita meirihlutaat- kvæðagreiðslum í auknum mæli en alls ekki alltaf. Við viljum ræða hvernig hægt sé að búa til fleiri störf og frá hreinna loft. Það eiga að vera ákveðin málefni sem reka þróunina áfram. Ef menn fara of greitt þá getur það haft þveröfug áhrif. – Það má skilja af tillögunum að ESB gæti farið að hafa úr- slitaáhrif varðandi mótun skattastefnu og félagslegrar stefnu í aðildarríkjunum. Við getum ekki sætt okkur við að ESB ákveði skattastefnu einstakra ríkja. Grundvallarstefnan í öryggismálum og í efna- hagsmálum verður áfram að vera á könnu einstakra aðild- arríkja. fvopna Íraka Morgunblaðið/Sverrir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.