Morgunblaðið - 21.02.2003, Síða 58

Morgunblaðið - 21.02.2003, Síða 58
58 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Njósnarinn Alex Scott er að fara í sitt hættulegasta verkefni til þessa...með ennþá hættulegri félaga! Búðu þig undir D-daginn 28. febrúar Sýnd kl. 8 og 10.20. Frábær svört kómedía með stórleikurunum Jack Nicholson og Kathy Bates sem bæði fengu tilnefningar til Óskarsverðlauanna í ár fyrir leik sinn í myndinni. 2 Tilnefningar til Óskarsverðlauna:Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson.Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates. RADIO X SV MBL  Kvikmyndir.co m  SG DV SV. MBLKvikmyndir.com HK DV Tilnefningar til Óskarsverð- launa þ. á. m. besta mynd13 Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 6. Stórskemmtileg teiknimynd eftir frábærri sögu Astrid Lindgren. Sýnd kl. 8 og 10.20. Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10. B.i. 12. Sýnd kl. 3.45 og 5.50.Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. 400 kr. Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT Búðu þig undir D-daginn 28. febrúar Njósnarinn Alex Scott er að fara í sitt hættulegasta verkefni til þessa...með ennþá hættulegri félaga! Sýnd kl. 8. B.i. 16. Sýnd kl. 4, 8 og 10.10. B.i. 16. kl. 4.Sýnd kl. 8. Bi. 12 ára. kl. 7.30 og 10.45. Frábær mynd sem frá leikstjóranum Martins Scor- sese meðstórleikurunum Leonardo DiCaprio, Daniel Day-Lewis og Cameron Diaz. Tilnefningar til Óskarsverðlauna, þ.á.m.besta mynd og besti leikstjóri10 ÞEIR eru mættir aftur blessaðir vin- irnir Móglí og Balli, og það í sama stuðhamnum og þeir voru í í fyrri myndinni. Í upphafi myndar ganga hlutirnir þó ekki svo greitt fyrir þá félaga. Þannig er nefnilega mál með vexti að – einsog þið munið öll – hann Móglí heillaðist af stúlkunni Shantí í lok seinustu myndar og elti hana inn í þorpið. Nú býr hann sem sagt manna á meðal hjá Shantí og fjölskyldu. En honum þykir mannalífið leiðinlegt, ekkert nema vinna og aftur vinna, sækja vatn og meiri leiðindi. Hann vill vera frjáls, leika sér og syngja, sveifla sér í trjánum og fljóta á bak- inu niður ána með vini sínum Balla. Já, skógurinn handan árinnar togar fastar og fastar í litla villistrákinn. Og í skóginum röltir um raulandi einmana björn sem saknar vinar síns og söng- og dansfélaga. Já, Balli læt- ur sig dreyma um að ráðast inn í þorpið til að sjá vin sinn Móglí aftur. Jafnvel þótt hann viti að mennirnir ráðist strax á hann. Skógarlíf er ein af allra bestu Disn- ey-myndunum og er vinsældir henn- ar ekki síst einstakri tónlist að þakka. Í Skógarlífi 2 er reynt að halda í tón- listarstílinn með því að fá Lorraine Feather og Paul Grabowsky til að semja hressa djassslagara, en einnig má heyra gömlu góðu lögin inn á milli. Íslenskt fagfólk í raddsetningu gerir vel að vanda, en sjálfan Balla leikur söngvarinn og leikarinn Egill Ólafsson. Hinn ungi Gísli Gíslason talar fyrir Móglí, Karen Halldórs- dóttir er Shantí, Rafn Kumar leikur litla bróður hennar Ranjan, Valdimar Flygenring er Bakír og Pálmi Gests- son ljær tígrisdýrinu ógurlega Seri Kan rödd sína. Balli og Móglí með nýjum vinum: Shantí og Ranjan. Saman á ný Sambíóin frumsýna Disney-teiknimynd- ina Skógarlíf 2 (Jungle Book 2). Leik- stjóri: Steve Trenbirth. Enskar leik- raddir: Phil Collins, Jim Cummings, John Goodman, Tony Jay, Bob Joles, Haley Joel Osment. Íslenskar leikraddir: Egill Ólafsson, Gísli Gíslason, Karen Halldórsdóttir, Rafn Kumar, Valdimar Flygenring, Pálmi Gestsson, Eggert Þor- leifsson, Rúrik Haraldsson, Magnús Jónsson, Hjálmar Hjálmarsson, Harald G. Haralds. Leikstjóri: Júlíus Agnarsson. Þýðandi: Jón St. Kristjánsson. ÞAÐ ER alltaf stórviðburður þegar Martin Scorsese, einn virtasti leik- stjóri dagsins í dag, kemur með nýja mynd. Þótt New York sé svo sann- arlega hans svæði, þá þykir myndin ólík því sem áður hefur komið frá honum, og þá ekki síst persónurnar. En kvikmyndin New York gengin (Gangs of New York) hefur ekki brugðist aðdáendum sínum og gagn- rýnendur hafa lofað hana. Myndin er tilnefnd til tíu Óskarsverðlauna, þ. á m. besta myndin, besti leikstjórinn og besta handritið. Aðalhlutverkin eru í höndum stærstu stjarnanna. Leonardo Di- Caprio sem átt hefur glæsilega end- urkomu þetta árið, fer með hlutverk Amsterdam Vallon. En með honum í liði er snilldarvasaþjófur, Jenny Everdeane, sem fegurðardísin Cam- eron Diaz leikur. Sjálfur Daniel Day- Lewis, sem löngu var hættur að leika í kvikmyndum, hefur ekki staðist til- boð Scorsese og leikur hér illmennið William Cutter, eða Bill slátarara. Og nema hvað? Hann uppskar Ósk- arstilnefningu sem besti leikari í aðal- hlutverki fyrir vikið. Myndin er byggð á atburðum sem áttu sér stað í New York, en er víst lítið minnst á í sögubókum. Árið er 1846 og borgin er ein sú allra hættu- legasta í heiminum, þar sem glæpir og ofbeldi ráða lofum og lögum. Við sjáum írska innflytjendur berjast undir stjórn Priest Vallon í blóðugum bardaga við innfædda af enskum upp- runa um yfirráð á Manhattan- eyjunni, þar sem Priest Vallon lætur lífið. Árið 1863 kemur Amsterdam Vallon, ungur maður, út af mun- aðarleysingjahæli og eina markmið hans er að hefna dauða föður síns. Myndin þykir mikið kvikmynda- legt afrek. Hún var mjög erfið í fram- leiðslu, þar sem tíminn þaut áfram í rándýrum tökustöðum í Cinecitta í Róm. Kostnaðurinn var yfirgengileg- ur, en mörgum þykir hver dalur hafa verið þess virði, því myndin sýni á hreinskilinn hátt hvernig glæpir og lýðræði í Ameríku urðu til. Diaz og DiCaprio í innilegum faðmlögum í New York. Blóði drifin sagan Laugarásbíó, Smárabíó og Borgarbíó Ak. frumsýna New York gengin (The Gangs of New York). Leikstjóri Martin Scorsese. Aðalhlutverk Leonardo Di- Caprio, Daniel Day-Lewis, Cameron Diaz, John C. Reilly, Jim Broadbent, Liam Neeson, Henry Thomas, Brendan Gleason. ÞAÐ er sjálfsagt mörgum spennu- fíklinum ánægjuefni að kvikmynd- in Hringurinn eða (The Ring) verður frumsýnd í Sambíóunum í kvöld. Hér er leikstjórinn Gore Verb- inski heldur betur að skipta um gír. Við þekkjum hann fyrir róm- antísku ástarspennumyndina Mexíkanann (The Mexican) og fjölskyldufarsann Músaveiðarnar (The Mousehunt). Hringurinn er langt frá því að líkjast fyrirrenn- urum sínum enda um sannkallaða hrollvekju að ræða, eða sálfræði- trylli af bestu gerð. Myndin er eft- irgerð vinsælustu japönsku kvik- myndar frá upphafi, Ringu, sem byggist á samnefndri skáldsögu Kôji Suzuki, en nú er það Ehren Kruger (Arlington Road, Scream 3) sem skrifar handritið. Í Hringnum segir frá blaðakon- unni Rachel Keller, sem er nýfrá- skilin með ungan son. Nýlega fannst ung frænka hennar látin, og þykir líklegt að hún hafi dáið úr hræðslu. Þegar Rachel fréttir að þrír vinir frænkunnar hafi dáið á sama tíma, fer hún að rannsaka málið. Hún fréttir af myndbands- spólu sem sögð er drepa mann sjö dögum eftir að maður horfir á hana, og kemst yfir eintak af spól- unni. Hún fær Nóa, fyrrverandi eiginmann sinn, í lið með sér, og nú er að komast fljótt að leynd- ardómi myndbandsins til að flýja hin illu yfirvofandi örlög. Ein heitasta stjarnan í Holly- wood, Naomi Watts, leikur Rachel sjálfa. Í 15 ár hefur Naomi unnið í Hollywood, en það var ekki fyrr en fyrir tveimur árum að hún fékk bitastætt hlutverk og það hvorki meira né minna en aðalhlutverkið í Mulholland Drive eftir David Lynch. Þar sýndi hún slíkan stjörnuleik að nú bítast þeir um stúlkuna leikstjórarnir þar vestra. Nóa leikur einnig ungur leikari á uppleið að nafni Martin Hend- erson sem einhverjir ættu að þekkja sem Nellie í mynd Johns Woo Windtalkers. Þannig að ef myndin er alveg að taka mann á taugum má bara einbeita sér að fegurð og hæfileikum aðalleik- aranna. Hringurinn er endurgerð á samnefndri japanskri mynd. Mynd- band sem drepur! Sambíóin frumsýna hrollvekjuna Hring- inn (The Ring). Leikstjórn Gore Verb- inski. Aðalhlutverk Naomi Watts, Mart- in Henderson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.