Morgunblaðið - 09.03.2003, Síða 55
KVIKMYNDIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. MARS 2003 55
2ja tíma flug, fjölmargar krár,
írska tónlistin og ótrúlegt úrval
verslana gera fer› til Dublin
a› ómótstæ›ilegum kosti.
Skemmtilegar sko›unarfer›ir
í bo›i.
Innifali›:
Flug, flugvallarskattar, gisting
me› morgunver›i í 4 nætur
og íslensk fararstjórn.
Úrval-Úts‡n
í tvíb‡li á Hótel Burlington.
52.120 kr.
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600
Selfossi: 482 1666 og hjá umbo›smönnum
um land allt. www.urvalutsyn.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
04
96
03
/2
00
3
Sta›grei›sluver›:
ÞAÐ runnu á menn tvær grínur, ef
ekki fleiri, þegar tilkynnt var að gal-
gopinn Adam Sandler myndi leika
aðalhlutverkið í fjórðu mynd undra-
barnsins Pauls Thomas Andersons.
Þessi rugludallur í mynd eftir björt-
ustu von bandarískrar kvikmynda-
gerðar, eftirlæti allra gagnrýnenda
sem gert hafði Búggí-nætur og
Magnólía!
Þetta var aðalumræðuefni dagsins
þegar Örvita af ást, eða Punch Drunk
Love kom fyrst fyrir augu almenn-
ings, en hún var sýnd sem ein af
myndunum í aðalkeppninni á kvik-
myndahátíðinni í Cannes í maí síðast-
liðnum. Gat Paul Thomas Anderson
gert níutíu mínútna langa róman-
tíska gamanmynd – Búggí nætur og
Magnólía voru báðar rúmlega þrír
tímar – og það sem menn höfðu
kannski enn meiri áhyggjur af; hvort
virkilega væri hægt að taka Adam
Sandler, af öllum mönnum, alvarlega
sem leikara. Vissulega var það eins
og að sjá Davíð versla í Bónus að sjá
Adam Sandler í Cannes, þessari
helstu hátíð „alvarlegrar“ kvik-
myndagerðar.
Í körfu í Cannes
„Ég er aðallega búinn að horfa á
MTV og vera í körfubolta með bróður
mínum,“ svaraði hann líka frönskum
blaðamanni þegar hann var spurður
hvað hann hefði haft fyrir stafni á
þessari virðulegu og sögufrægu kvik-
myndahátíð.
Hann var annars ósköp afslappað-
ur og venjulegur drengurinn, rétt
eins og leikstjórinn hans Anderson,
þar sem þeir voru á blaðamannafundi
um morguninn eftir allra fyrstu sýn-
inguna á myndinni; blaðamannasýn-
ingu sem hófst kl. 8 um morguninn.
Það lá greinilega vel á þeim enda
máttu þeir vera góðir með sig, vel-
þóknunin skein úr augum blaða-
manna sem greinilega voru hættir að
efast um þetta framandi samstarf eft-
ir að hafa séð myndina og sannfærst.
Forpokuðustu listaspírur úr röðum
kvikmyndarýna höfðu staðið sjálfa
sig að verki við að klappa fyrir
frammistöðu Sandlers, nokkuð sem
þeir héldu að þeir ættu aldrei eftir að
gera. Það var hreinn farsi að horfa
upp á þessar spírur sjá Sandler nýju
ljósi – þennan trúð úr Brúðkaups-
söngvaranum (Wedding Singer),
Stóra pabba (Big Daddy), Vatnsber-
anum (Waterboy) og Nicky litla
(Little Nicky) – allt í einu hafði hann
áunnið sér virðingu þeirra sem „vit-
ið“ eiga að hafa í kvikmyndaheimin-
um.
„Það er aðeins ein ástæða fyrir því
að ég fékk Sandler. Ég hef alltaf ver-
ið mikill aðdáandi hans, allt síðan
hann var í Saturday Night Life-sjón-
varpsþáttunum. Ég vildi spreyta mig
á gamanmynd og Sandler hefur alltaf
átt auðvelt með að koma mér til að
hlæja. Mér finnst hann fyndinn,“ við-
urkennir Anderson fúslega. „Göngu-
lag hans er fyndið og höfuð hans er
fyndið og eyrun á honum eru fyndin.
Ég hef reyndar ekki séð hann nakinn
en það gæti líka verið fyndið.“
„Til að vera alveg hreinskilinn er
alls ekkert fyndið við það að sjá mig
nakinn,“ bætir Sandler við og fram-
kallar enn hærri hlátrasköll en And-
erson hafði gert.
Anderson er ekki heldur eins og
maður hafði ímyndað sér, því á fasi
hans var greinilegt að þar færi maður
sem tæki sig sko ekki hót alvarlega,
heldur væri í einhverjum eigin heimi,
með sitt sjö daga skegg, reytta hár og
makindalega bros. Og hann flissaði
yfir nákvæmlega öllu sem sagt var á
fundinum, sérstaklega því sem
Sandler sagði. Honum þykir hann
greinilega fyndinn.
Kveikjan að myndinni Örvita af ást
er grein sem Anderson las í tímarit-
inu Time um verkfræðinginn David
Phillips sem fékk ótrúlega hugdettu
er hann sá auglýst að afsláttarmiðar
á flugfargjöldum fylgdu ákveðinni
búðingstegund. Phillips tók sig til og
keypti 12.150 pakka af búðingnum og
vann sér þannig inn 1,25 milljónir
flugmílna, sem eru fleiri flugferðir en
hann mun nokkru sinni geta nýtt sér
um ævina, og það fyrir aðeins 200
þúsund krónur, upphæðina sem hann
þurfti að punga út fyrir búðingnum.
Þetta dæmalausa uppátæki er út-
gangspunkturinn fyrir titilpersónu
myndarinnar, Barry Egan (Sandler),
uppátækjasaman, einrænan og feim-
inn ungan mann með lítið sjálfstraust
en stórt hjarta. Þetta þótti Anderson
gráupplögð söguhetja í rómantísku
gamanmyndinni sinni og auðvitað
fannst honum þurfa konu eins og
bresku Emily Watson til að falla fyrir
honum.
„Hann kom bara í heimsókn til mín
einn daginn með tvær myndbands-
spólur undir höndum, sagði mér að
hann vildi fá mig til að leika í sinni
næstu mynd og setti svo myndböndin
í tækið mitt, sem reyndust vera eldri
myndir hans. Ég horfði á þær, fannst
þær frábærar og sagðist meira en til í
að vinna með honum. Við byrjuðum
að tala saman og eitthvað small, eins
og gerist þegar góðir félagar kynn-
ast,“ sagði Sandler um fyrstu kynni
sín af Anderson og á þann veg, að
honum tókst að erta hláturtaugar
manna í öðru hverju orði, nokkuð
sem grínista af guðs náð er einum
lagið. „Hann sagði: „Gerum eitthvað
saman sem hvorugur okkar hefur
gert áður.“ Svo sagði hann að Emily
ætlaði að vera með og ég sagði: „Það
hljómar vel.““
Adam og Emily
Anderson segir hvatann á bak við
það að hann ákvað að gera Örvita af
ást fjórþættan; í fyrsta lagi að leika
sér með búðingshugmyndina, öðru
lagi löngunin til að gera rómantíska
gamanmynd, í þriðja lagi tækifæri til
að vinna með Sandler og Watson og í
fjórða lagi að geta sannað fyrir sjálf-
um sér og öðrum að hann gæti gert
90 mínútna langa mynd sem virkar.
Watson, sem stödd var í slagtogi
með Sandler og Anderson þennan
morgun, segist ekki hafa átt í neinum
vandræðum með að ákveða hvort hún
vildi hlutverkið. „Í fyrsta lagi er afar
auðvelt að leika konu sem fellur fyrir
Adam,“ segir hún og gjóar augunum
til hans og Sandler roðnar í alvöru.
„Svo fannst mér yndislega kærkomið
að fá að leika konu sem væri ekki sí-
grátandi eða létist ekki í lokin.“
„Þetta var í fyrsta skipti sem ég
kyssti mótleikkonu og kærastan mín
varð ekki reið. Hún bara hallaði höfð-
inu niður á aðra öxlina og sagði
„ahhh“.“
Degi Sandlers og Andersons lauk
með formlegri frumsýningu á Örvita
af ást í Lumiére kvikmyndahúsinu
við La Croisette um kvöldið. Frakk-
inn hafði fallið í stafi yfir Sandler
þennan dag. Hver veit nema kominn
sé til sögunnar arftaki dáðasta Kana í
Frakklandi, háðfuglinn Jerry Lewis.
Paul Thomas Anderson leikstýrði Adam Sandler í rómantísku myndinni Örvita af ást
„Hann er með
fyndin eyru“
Háðfuglinn Adam Sandler og leikstjórinn
Paul Thomas Anderson eiga sameiginlegt að vera
ekki allir þar sem þeir eru séðir. Á meðan
spaugarinn þráði að sanna sig sem alvöru leikari
var það æðsti draumur sénísins að gera léttgeggj-
aða rómantíska gamanmynd, helst með Sandler.
Skarphéðinn Guðmundsson hitti þá kauða í
Cannes og kættist yfir kerskni þeirra.
skarpi@mbl.is
Örvita af ást eða Punch Drunk Love
var frumsýnd hér á landi á föstudag.
Emily Watson þótti auðvelt að leika konu sem fellur fyrir Adam Sandler.
Sandler, Anderson, Watson og
Philip Seymour Hoffman – stjörnur
myndarinnar Örvita af ást.
Reuters
KVIKMYNDIR
Háskólabíó – Norrænir bíódagar
LILJA AÐ EILÍFU/LILJA 4-EVER Leikstjórn og handrit: Lukas Moodysson.
Kvikmyndataka: Ulf Brantås. Aðal-
hlutverk: Oksana Akinshina, Artyom
Bogucharsky, Lyubov Agapova, Liliya
Shinkaryova, Elina Benenson, Pavel
Ponomaryov, Tomas Neumann. 109 mín.
Svíþj./Danm. Sandrews Metronome
2002.
Ó, GUÐ minn góður! Þvílík kvik-
mynd. Maður er alveg miður sín eftir
hana. Eiginlega langar mig ekki að
skrifa um hana, því ég vil ekki hugsa
um hana, þá fer ég bara aftur að
gráta. Lukas Moodysson sýndi með
fyrstu mynd sinni Árans Åmål
(Fucking Åmål) að þar var Svíþjóð
búin að eignast alvöru leikstjóra sem
mikils mátti vænta af. Og Lukas sýn-
ir með þessari þriðju mynd sinni
Lilja að eilífu að hann er ótrúlega
snjall, hæfileikaríkur, smekkvís,
ábyrgðarfullur og þenkjandi lista-
maður. Hún fjallar um Lilju, 16 ára
stelpu sem býr í litlu þorpi í fyrrum
Sovétríkjunum, en mamma hennar
hverfur til Bandaríkjanna. Líf henn-
ar er ömurlegt þar sem hún býr í
skítakompu, án peninga, allslaus og
vonlaus. Eini vinur hennar er hinn
11 ára Volodja, og saman eiga þau
ágætar stundir. Þegar Lilja kynnist
síðan Andreij glæðist lítil von í
brjósti hennar um betra líf, enda
býður Andreij henni vinnu í Svíþjóð.
Myndin er einstaklega samúðar-
full meðhöndlun á því sérlega við-
kvæma og alvarlega máli sem man-
sal er. Efnislega er myndin
tímabært tímamótaverk, sorglegt,
áhrifaríkt, köld gusa í andlitið fyrir
okkur öll. Það er ekki skrítið að í um-
fjöllun sinni á þessu máli hafi
Moodysson valið að fjalla um fórn-
arlamb á unglingsaldri, þótt vissu-
lega séu þau oft eldri og jafnvel vel
menntuð. Moodysson hefur mikla
samkennd með börnum, einsog sést
hefur í fyrri myndum hans. Hann
hefur einstaka sýn inn í sálarlíf Lilju,
skilur vonir hennar og væntingar og
sýnir á átakanlegan hátt hvernig
vonleysið nær tökum á henni og
hvernig hún brotnar niður. Við skilj-
um Lilju, sjáum það sem hún sér og
vonum með henni – jafnvel þegar við
vitum að það er engin von. Oksana
Akinshina er algerlega sannfærandi
og heillandi sem Lilja, og félagi
hennar Artyom Bogucharsky er ekki
síðri sem Volodja. Það er hreint
ótrúlegt hversu vel Moodysson get-
ur fengið alls óvana krakka til að
leika, og það krakka sem hann getur
ekki einu sinni talað almennilega við!
Ég býst við að myndin sé raunsæ-
isleg lýsing á því eymdarlífi sem
margir mega lifa í Rússlandi. Rúss-
um þykir víst Moodysson alhæfa um
of, enda er hryllilegt hvernig komið
er fram við börn í myndinni, hversu
tilfinningasljótt fólk er gagnvart
náunganum og í rauninni dýrslegt.
En ég sé þetta frekar sem sammann-
lega mynd, og lít svo á Moodysson sé
ekki að dæma heldur að segja að fólk
eigi hvergi að þurfa að búa við slíkar
aðstæður og grípa til þeirra örþrifa-
ráða sem það gerir.
Lilja að eilífu er ein átakanlegasta
og sorglegasta mynd sem ég hef séð,
hvergi sést í ljósglætu. Ég vil ekki
einu sinni hugsa til þess hversu
margar konur og mörg börn lifa
svona vonlausu, undankomulausu og
frelsissviftu lífi. En ætli það sé ekki
einmitt það sé Moodysson vill að ég
geri – hugsi smá?
Hildur Loftsdóttir
Engin von,
ekkert