Morgunblaðið - 03.04.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.04.2003, Blaðsíða 26
SUÐURNES 26 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ MYNDLISTARKONAN Sossa hef- ur heldur betur slegið í gegn hjá frístundamálurum í Reykjanesbæ. Hún kennir um þessar mundir spaðanotkun á málunarnámskeiði hjá Félagi myndlistarmanna í Reykjanesbæ og fór aðsóknin fram úr björtustu vonum. Nemendur Sossu eru hátt í þrjá- tíu en nemendafjöldi á námskeiðum hjá félaginu hafa fram að þessu verið frá 12 upp í 20. Það má því segja að Sossa hafi slegið aðsókn- armet. Þess má geta að nemendur eru allir úr röðum kvenna. Myndin var tekin þegar Sossa sýndi nokkrum nemenda sinna hvernig beita á spaðanum. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Svona á að beita spaðanum Reykjanesbær FULLTRÚAR Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsa sig í meginatriðum mótfallna tillögum um skipulagsbreytingar á Þjónustu- miðstöð Reykjanesbæjar. Kom það fram í bókun þeirra á bæjarstjórn- arfundi í vikunni. Bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins taldi vinnu- brögð meirihlutans í málinu slæleg. Viðar Már Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri umhverfis- og tækni- sviðs Reykjanesbæjar, hefur lagt fram tillögur um breytingar á Þjón- ustumiðstöð Reykjanesbæjar. Þær fela meðal annars í sér að sjö starfs- menn áhaldahússins flytjast með verkefnum til verktaka og að mið- stöðin flytjist í minna húsnæði. Í svörum Árna Sigfússonar bæjar- stjóra við nokkrum spurningum Samfylkingarinnar kom meðal ann- ars fram að áætlað er að breytingar á húsnæði Reykjanesbæjar á Fitjum sem Þjónustumiðstöðin fær til afnota kosti um 8 milljónir en að áætlað sölu- verðmæti núverandi húsnæðis mið- stöðvarinnar í Keflavík er 90 til 110 milljónir. Endurskoðað eftir þrjú ár Fram hefur komið að leitað verður til Íslenskra aðalverktaka um upp- byggingu þjónustu á svokölluðu þjón- ustuborði í nýrri Þjónustumiðstöð Reykjanesbæjar. Fram kom hjá Árna að áformað er að nýta þjónustu- borð Aðalverktaka á nóttunni og um helgar en reka eigið þjónustuborð á daginn. Fyrirkomulagið verði endur- skoðað eftir þrjú ár, þegar komin verði verksaga og reynsla og þá verði grundvöllur fyrir útboði þjónustunn- ar ef áhugi verði á því. Verið er að endurskoða samninga við verktaka um ýmis verk og ákveða hvaða verk verða boðin út að nýju. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar létu bóka að þeir væru í meginatrið- um mótfallnir tillögum að breyting- um á Þjónustumiðstöð Reykja- nesbæjar. Gagnrýna þeir að ekki standi til að viðhafa útboð eða leita á annan hátt eftir því hvort aðrir verk- takar hafi áhuga á að koma í þau verk sem nú sé verið að færa að fullu til verktakafyrirtækja. Meðal annars sem þeir nefna er að óljóst sé hvaða verktakar það verði sem eigi að sinna bráðaútköllum frá þjónustuborði Ís- lenskra aðalverktaka, hvort það séu þeir sem sinna slíkum útköllum á Keflavíkurflugvelli eða verktakar sem starfa í Reykjanesbæ. Kjartan Már Kjartansson, bæjar- fulltrúi Framsóknarflokksins, lýsti í upphafi fundarins vonbrigðum sínum með það sem hann nefndi í bókun slæleg vinnubrögð meirihluta sjálf- stæðismanna vegna skipulagsbreyt- inganna, sérstaklega að starfsmönn- um áhaldahússins hafi verið sagt upp störfum áður en málið var kynnt og rætt í bæjarráði og bæjarstjórn. Tillögur um fækkun starfa í Þjónustumiðstöð til umræðu Samfylkingin á móti skipulagsbreytingum Reykjanesbær SKÓGRÆKTAR- og landgræðslu- félagið Skógfell í Vogum hefur eignast 15 hektara svæði á Háa- bjalla. Í gömlum skógarlundi sem þar er hafa mælst hæstu tré á Suð- urnesjum. Háibjallinn er hamrabelti við Snorrastaðatjarnir í Vatnsleysu- strandarhreppi og er svæðið á nátt- úruminjaskrá. Árið 1948 gáfu land- eigendur í Vogum Félagi Suðurnesjamanna í Reykjavík 15 hektara svæði þar til að rækta skóg. Var trjám plantað og hefur vaxið upp gróskumikill skógur. Þar eru hæstu tré sem mælst hafa á Suðurnesjum, voru um 13 metra þá þegar mælt var 1998. Starfsemi félagsins er aflögð fyr- ir mörgum árum og fyrir milli- göngu Skógræktarfélags Íslands var boðað til fundar í félaginu og samþykkt að afhenda það Skógfelli í Vogum til skógræktar og útivist- ar. Oktavía J. Ragnarsdóttir, for- maður Skógfells, segir að Háibjall- inn sé mjög gott svæði til ræktunar og mikilvægt fyrir skógræktarfélag að eiga sjálft land til að planta í trjám. Þá sé þarna áhugavert úti- vistarsvæði. Gera áætlun um landgræðsluskóga Skógfell er ungt skógræktar- félag, ekki orðið fimm ára, en marg- ir félagsmenn eru virkir í starfinu. Félagið hefur haft til afnota 10 hektara svæði við Grænhól, ofan við Brunnastaðahverfi, og þar hef- ur verið plantað trjám á hverju ári. Félagsmenn hafa einnig unnið að annars konar landgræðslu, borið hefur verið á og sáð í moldarflög og hirt um eldri trjáreiti í hreppnum. Oktavía segir að félagið sé að gera áætlun um plöntun land- græðsluskóga og hafi nú fleiri möguleika til notkunar þeirra plantna sem því fylgi en áður. Skógfell eignast skóg- ræktar- og útivistarsvæði Vatnsleysuströnd Stærstu tré á Suðurnesjum eru í þessum gamla lundi á Háabjalla. SKÓLAÁRIÐ í Menntaskólanum á Akureyri verður ekki fært til að sinni, en nokkrar umræður hafa orðið um að færa það til samræm- is við starfstíma annarra fram- haldsskóla. Samkvæmt reglugerð um starfstíma framhaldsskóla er gert ráð fyrir að upphaf og lok skólastarfs hvert ár sé á tíma- bilinu frá 22. ágúst til 31. maí. Menntaskólinn á Akureyri hefur að jafnaði verið settur um miðjan september og skólaslit á þjóðhá- tíðardaginn, 17. júní. Kostnaður við breytingar á skólaárinu er um 15 milljónir króna að því er fram kemur á heimasíðu MA. Tryggvi Gíslason skólameistari sendi nemendum, kennurum og starfsfólki bréf í gær þar sem fram kemur að við- ræður og bréfaskipti við mennta- málaráðuneytið hafi leitt í ljós að ráðuneytið geti ekki tekist á hend- ur þann kostnað á þessu ári. Hins vegar er gefið vilyrði fyrir fjár- veitingu á næsta ári verði það samþykkt og afgreitt á fjárlögum alþingis. Skólaárið í MA verður því óbreytt um sinn. Menntaskólinn á Akureyri Skólaárið breytist ekki „ÞETTA eru allt góðar myndir og nokkrar frábærar,“ sagði Þor- steinn Pétursson, lögreglumaður á Akureyri, við opnum myndasýn- ingar barna á Glerártorgi. Þar sýna um 250 nemendur í þriðja bekk í öllum grunnskólum bæj- arins myndir sínar, sem unnar voru eftir heimsókn Þorsteins, sem ræddi við börnin um lög og reglur. Tvær stúlkur úr Giljaskóla, Sandra Ýrr Markúsdóttir og Bjarney Bjarnadóttir, opnuðu sýn- inguna formlega með því að klippa á lögregluborða. Markmiðið með heimsókn lög- reglunnar var að ræða um reglur sem verða að gilda í skólanum, á heimilinu, í leik og íþróttum, á ferðalögum og annars staðar. Einnig var rætt um hvað gerist ef slíkum reglum er framfylgt og eins ef þeim er ekki framfylgt. Þetta er þriðja árið sem nemendur 3. bekkjar vinna teikningar sem þessar og áherslan að þessu sinni lögð á að sýna hvernig farið er eftir reglum. Sýningin verður opin í um vikutíma og að henni lokinni verður einum nemenda úr bekk veitt viðurkenning fyrir athyglis- verðustu teikninguna. Auk mynd- anna var sett upp fræðsluefni fyrir bæði börn og fullorðna. Morgunblaðið/Kristján Sýningin var formlega opnuð með því að klippt var á borða frá lögregl- unni. F.v. Daníela, Laufey Elma, Sandra Ýrr, Bjarney, Sædís og Kara Lind. Myndasýning barna opnuð á Glerártorgi AKUREYRI Nú stendur yfir á Kaffi Karólínu í Kaupvangsstræti ljóðasýning úr ljóðabókum Jóhanns Árelíuzar skálds úr Eyrarvegi 35. Yfirskrift sýningarinnar er: Birtan lætur hendur standa fram úr ermum. Jó- hann hefur gefið út fjórar ljóðabæk- ur; blátt áfram, söngleikur fyrir fiska, Tehús ágústmánans og Par avion. Guðmundur Oddur prófessor í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands sá um uppsetningu ljóðasýn- ingarinnar. Hún stendur fram undir páska og er opin á afgreiðslutíma kaffihússins. Í DAG Kanadíski sagnaþulurinn Ruth Christie sem er nú á Íslandi á veg- um Þjóðræknisfélaga Íslands og Norður-Ameríku verður á Akureyri á morgun, föstudaginn 4. apríl, en hún fjallar þar m.a. um menningu frumbyggja Kanada og samskipti þeirra við íslensku land- nemana. Hún verður í Verkmenntaskólanum kl. 15 til 16 og ræðir þar um íslensku landnemana sem sóttu góð ráð til forfeðra hennar og nutu aðstoðar þeirra við að aðlagast lífi í nýju landi. Þá verður hún á Punktinum frá kl. 17 til 18 og fjallar um fatnað frum- byggja, skartgripi, sögur og siði sem liggja þar að baki, auk þess sem Ruth sýnir fingravefnað og perlu- saum. Um kvöldið, frá kl. 20 til 21, verður Ruth í Deiglunni og beitir þar sagnaaðferðum kanadísku frum- byggjanna og segir sögur úr þeirra menningarheimi. Laufáshópurinn, Gilfélagið, Punkturinn og Verk- menntaskólinn á Akureyri sjá um þessar dagskrár. Á MORGUN Á BARÁTTUFUNDI samtaka her- stöðvaandstæðinga á Norðurlandi sem haldin var á Kaffi Akureyri, sunnudag- inn 30. mars 2003 undir fyrirsögninni „Stöðvum stríðsglæpina. Mótmælum árásarstríði og aðild Íslands“ var eft- irfarandi ályktun samþykkt: „Fundurinn mótmælir árásarstríði Bandaríkjanna og fylgiríkja þeirra á Írak. Fundurinn krefst þess að ríkis- stjórn Íslands hætti stuðningi við árás- ina en taki þess í stað undir alþjóðlega kröfu um að árásarherinn verði kall- aður heim.“ Íraksstríði mótmælt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.