Morgunblaðið - 03.04.2003, Síða 56
ÍÞRÓTTIR
56 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LEIKMENN albanska landsliðsins í
knattspyrnu urðu af 12 milljónum
króna hver en sigur á Írum í Tirana
í 10. riðli undankeppni Evrópumóts
landsliða í knattspyrnu í gær hefði
tryggt þeim þessa upphæð í vasann.
Forsætisráðherra Albana hét á
leikmenn Albaníu fyrir leikinn á
móti Írum og lofaði þeim bón-
usgreiðslum að upphæð 95.000
pundum sem samsvarar um 12
milljónum króna. Áheit forsætis-
ráðherrans vöktu mikla athygli í
Albaníu enda er þjóðin talin sú fá-
tækasta í Evrópu þar sem meðal
mánaðarlaun eru um 4.000 krónur.
Leikmenn albanska landsliðsins
geta borið höfuðið hátt því marka-
laust jafntefli varð niðurstaðan í
leik þeirra á móti Írum og geta Írar
í raun þakkað fyrir stigið því Shay
Given, markvörður Íra, bjargaði
nokkrum sinnum meistaralega vel
og voru heimamenn óheppnir að
fara ekki með sigur af hólmi.
Albanar komu geysilega á óvart
um síðustu helgi þegar þeim tókst
að leggja Rússa, 3:1, úrslit sem eru
þau bestu í sögu albanska landsliðs-
ins frá upphafi, og jafnteflið á móti
sterku liði Íra í gær gefur til kynna
að Albanar eru á uppleið í knatt-
spyrnunni og ekkert lið getur bók-
að sigur á móti þeim. Staðan í 10.
riðlinum er reyndar mjög jöfn og
spennandi. Sviss er efst með 8 stig,
Rússland 6, Albanía 5 og Írland hef-
ur 4 stig í fjórða sæti.
Albanar misstu af
góðum bónus
JÓHANNES Karl Guðjónsson,
landsliðsmaður í knattspyrnu
hjá Aston Villa, segir að það sé
full harkalegt af Steve Bruce,
knattspyrnustjóra Birming-
ham, að kenna sér um allt sem
miður fór í viðureign grann-
liðanna í ensku úrvalsdeildinni
fyrir mánuði.
Jóhannes sagði í samtali á
heimasíðu Aston Villa í gær að
hann hafi tekið ábyrgð á sín-
um gerðum og borgað sína
sekt. „Það var ófaglegt af mér
að láta reka mig af velli og ég
sé eftir því að hafa fengið mitt
fyrsta rauða spjald á ferlinum
en það er ekki hægt að skrifa
allt annað sem gerðist í leikn-
um á minn reikning. Það er
fullhart að setja dæmið þannig
upp,“ sagði hann.
„Get orðið að gagni“
Jóhannes Karl hefur misst
af tveimur síðustu leikjum
Villa, einum vegna meiðsla og
öðrum vegna leikbannsins, en
hann er tilbúinn í slaginn gegn
Arsenal á laugardaginn kem-
ur. „Ég geri allt sem ég get til
að vinna aftur mína stöðu í lið-
inu því ég er sannfærður um
að ég get orðið því að gagni,“
sagði Jóhannes Karl á heima-
síðu Aston Villa.
Jóhannes
svarar
Bruce
liði sínu rétt upp eru það hans mistök
og ég viðurkenni það fúslega. Við
náðum aldrei að ógna marki Bosníu
og þessi úrslit eru mikil vonbrigði
fyrir okkur,“ sagði þjálfarinn en
Danir eru í öðru sæti riðilsins á eftir
Norðmönnum sem lögðu lið Lúxem-
borg á útivelli í gær, 2:0. Danir og
Norðmenn mætast á Parken hinn 7.
júní nk.
Noregur átti í vandræðum í fyrri
Landsliðsþjálfari Dana, MortenOlsen, tók alfarið á sig sökina í
viðtali við danska ríkissjónvarpið í
gær enda aðeins fjórir dagar frá því
að liðið lagði Rúmeníu að velli á úti-
velli, 5:2.
„Ég ber ábyrgðina á þessum úr-
slitum. Ég tók ákvörðun um að gera
fjórar breytingar á liðinu frá því í
síðasta leik og það voru mistök hjá
mér. Þegar þjálfari nær ekki að stilla
hálfleik gegn Lúxemborg en vara-
maðurinn Sigurd Rushfeldt skoraði
um miðjan síðari hálfleik og Ole
Gunnar Solskjær bætti við öðru
marki undir lok leiksins. Þetta er
fyrsta landsliðsmark Solskjærs í
rúmt ár. Þess má geta að Rushfeldt
kom inná fyrir Tore Andre Flo sem
hefur ekki skorað landsliðsmark í
rúm þrjú ár. Norðmenn eru efstir í
öðrum riðli með tíu stig og var lands-
liðsþjálfarinn Nils Johan Semb afar
ánægður með úrslitin úr leik Dana
og Bosníu í Kaupmannahöfn. „Við
verðum að taka lið Bosníu með í
reikninginn í framhaldinu en ég var
farinn að trúa því að við værum að
upplifa kvöld í Lúxemborg þar sem
ekkert myndi ganga upp hjá okkur.
Við áttum að skora 4–5 mörk í fyrri
hálfleik,“ sagði Semb.
Svíar náðu sér á strik á ný á úti-
velli gegn Ungverjum en þar var það
Marcus Ällback sem skoraði sigur-
markið á Ferenc Puskas-vellinum og
tryggði gestunum sigur, 2:1. Ällback
skoraði fyrsta mark leiksins á 34.
mínútu en Krisztian Lisztes jafnaði
fyrir Ungverja í síðari hálfleik. Sig-
urmarkið skoraði Ällback tveimur
mínútum eftir að heimamenn höfðu
jafnað. Þess má geta að Ällback er
varaskeifa í enska úrvalsdeildarlið-
inu Aston Villa sem Jóhannes Karl
Guðjónsson leikur einnig með. Äll-
back hefur nú skorað tólf landsliðs-
mörk í 29 leikjum.
Leikurinn var mikil lyftistöng fyr-
ir sænska landsliðið sem hefur þótt
leika illa í fyrstu tveimur leikjum
liðsins sem enduðu báðir með jafn-
tefli.
AP
Sergej Barbarez og Elvir Bolic, markaskorarar Bosníumanna, fagna.
Bosníumenn skelltu
Dönum á Parken
DANIR fengu óvæntan skell á heimavelli sínum, Parken í Kaup-
mannahöfn, í gær er liðið tapaði 2:0 gegn frísku liði Bosníu, en liðin
eru í öðrum riðli keppninnar. Bæði mörkin voru skoruð í fyrri hálf-
leik og var sóknarleikur Dana með eindæmum slakur frá upphafi til
enda – þar sem liðið ógnaði vart marki Bosníu allan leikinn. Danskir
stuðningsmenn höfðu ekki mikla ástæðu til þess að óttast landslið
Bosníu þar sem Danir höfðu ekki beðið ósigur í undankeppni EM í
síðustu 19 leikjum liðsins – en gestirnir sáu til þess að þagga niður í
sigursöngvum 30 þúsund áhorfenda á Parken.
BRESKIR fjölmiðlar sögðu frá því
í gær að Sir Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri Manchester United,
væritilbúinn með 10 milljóna punda
tilboð í írska miðjumanninn Damien
Duff, sem leikur með Blackburn, en
félagið er tilbúið að selja kappann og
mörg félög hafa sýnt honum áhuga.
Talið er að United hafi sigur í því
kapphlaupi.
GARETH Southgate, varnarleik-
maður Middlesbrough og enska
landsliðsins, er nú sterklega orðaður
við Newcastle þessa dagana og mun
félagið tilbúið að greiða 3 milljónir
punda fyrir hinn 32 ára gamla varn-
armann. Umboðsmaður Southgate
neitar þessum fréttum.
BOBBY Robson, knattspyrnu-
stjóri Newcastle, segist þó ætla að
selja tvo leikmenn, Carl Cort og Nik-
os Dabiza, áður en hann gerir tilboð í
Southgate.
FREDDY Shepherd, forseti New-
castle, segist ekki vita hvar þjálfar-
inn ætli að setja Southgate. „Við er-
um með níu varnarmenn, 12
miðjumenn og sex framlínumenn og
höfum keypt menn fyrir 290 millj-
ónir síðasta áratuginn og 100 millj-
ónir hafa farið í leikvöllinn. Einhvern
veginn tekst okkur alltaf að finna
réttu leiðina til að fjármagna réttu
hlutina á réttum tíma,“ sagði forset-
inn.
ANGHEL Iordanesc, landsliðs-
þjálfari Rúmeníu, stýrir rúmenska
landsliðinu í knattspyrnu til loka
riðlakeppni EM 2004, en hann sagði
starfi sínu lausu eftir stórtap Rúm-
ena á heimavelli gegn Dönum síð-
asta laugardag, 5:2. Þetta var
stærsta tap Rúmena á heimavelli í
hálfa öld.
MIRCEA Sandu, forseti knatt-
spyrnusambandes Rúmeníu, neitaði
í gær að taka uppsögn Iordanescu til
greina og sagði hann vera hæfan til
þess að stýra landsliðinu til loka
riðlakeppninnar í haust. Iordanescu
maldaði ekkert í móinn, heldur þvert
á móti samþykkti að draga uppsögn
sína til baka um stundarsakir.
ANDREAS Brehme, fyrrverandi
þjálfari Kaiserslautern, vann í gær
dómsmál sem hann höfðaði á hendur
félaginu í framhaldi af því að honum
var sagt upp snemma á leiktíðinni.
Dómstóllinn kvað upp úr með að
Kaiserslautern skuli greiða Brehme
um 85 millj. króna þar sem enn voru
tvö ár eftir að samningi Brehme við
félagið. Ekki bætir þessi niðurstaða
úr fjárhagsþrengingum Kaiserslaut-
ern sem þegar er í gjörgæslu vegna
skulda.
ROQUE Santa Cruz leikur ekki
meira með Bayern München á þess-
ari leiktíð vegna meiðsla í liðböndum
í vinstra hné. Hann hefur lítið sem
ekkert getað leikið í vetur.
FÓLK