Morgunblaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 9 Röndóttir gallajakkar og buxur Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030. Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. 10—15. Bankastræti 14, sími 552 1555 Ný sending af stuttkápum og bolum Gott verð Stórglæsileg ný sending Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00. RAFVÉLA VERKSTÆÐI Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík Sími: 577 4500 • www.velaland velaland@velaland.is d es ig n. is 2 00 3 Laugavegi 46, sími 561 4465 Opið mán.-fös. frá kl. 10-18, laug. frá kl. 10-16. Ný sending frá Helgartilboð: 25% afsláttur af Uno-peysum og Thing-skokkum Kjólar - kjólar - kjólar Galla, spari, hversdags Fyrir flottustu fljóðin Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222 Opið: mán.-fim. frá kl. 10-18.30 fös. frá kl. 10-19.30 - lau. frá kl. 10-16.30 Vinningar í aukaútdráttum Ferð fyrir tvo í eina viku til Prag eða Dublinar að verðmæti 90.000 kr. 16819 - 36116 - 29106 - 37383 - 136670 - 44997 - 28249 - 34621 Ferð fyrir tvo í eina viku til Mallorka eða Portúgals að verðmæti 150.000 kr. 25339 - 54915 - 68998 - 135522 Leiðrétting Vinningar í happdrætti Slysavarnafélagsins Landsbjargar 2003 LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ sér ekki ástæðu til að vara við notkun á getnaðarvarnarstaf sem hefur verið á markaði hér á landi í nokkur ár. Að sögn Vilborgar Ingólfsdóttur, yf- irhjúkrunarfræðings hjá Landlækn- isembættinu, er hlustað eftir öllum ábendingum sem embættinu berast en hingað til hafi ekkert gefið ástæðu til þess að vara sérstaklega við notkun stafsins eða að leggja til að hann verði tekinn af markaði. Stafurinn er settur undir húð á upp- handlegg og á að duga í þrjú ár. Reynir Tómas Geirsson, yfir- læknir og prófessor á kvennasviði LSH, segir að stafurinn sé örugg getnaðarvörn en hann þurfi að vera rétt upp settur. Hann segir að ekki eigi að vera mikill vandi að fjar- lægja stafinn en sé hann settur of djúpt geti verið erfiðara að ná hon- um og þurft smá aðgerð. Reynir segir að flestar konur sem noti stafinn finni ekki til neinna fylgikvilla af hans völdum en um það bil ein af hverjum fimm konum geti orðið fyrir óþægindum vegna milliblæðinga eða óreglulegra blæð- inga. Þær aukaverkanir hafi hins vegar ekkert með öryggi getnaðar- varnarinnar að gera. Hann segir stafinn hafa orðið að hálfgerðri tískubólu hér á landi sem hafi leitt til þess að konur sem hefðu getað notað aðra heppilegri getnaðarvörn hafi verið að sækja í að nota þessa vörn. „Stafurinn er fyrst og fremst hugsaður sem viðbót við aðrar getn- aðarvarnir, enn ein aðferðin sem konur og karlar eiga völ á. Hann er góður fyrir konur sem af einhverj- um ástæðum geta illa nýtt sér aðrar getnaðarvarnir, svo sem pilluna eða lykkju,“ segir Reynir. Hann segir stafinn reynast þeim konum best sem séu á seinni hluta frjósemisskeiðs, um og upp úr fer- tugu, þær fái oftast engar blæðing- ar og hafi lítil eða engin óþægindi af stafnum. Reynir segir að um 500 konur hafi fengið stafinn settan upp hér á landi og ætla megi að hann hafi verið tekinn hjá um 100 þeirra, en hinar hafa hann enn og líki vænt- anlega ágætlega við hann. „Þetta er góð og örugg getnaðar- vörn þar sem við á. Ein af hverjum fimm konum lenda í vandræðum vegna blæðingavandamála og óska eftir að stafurinn sé fjarlægður en aftur á móti gengur fjórum af hverj- um fimm vel að nota stafinn,“ segir Reynir. Fjórar af hverjum fimm konum þola getnaðarvarnarstafinn vel DÓMS- og kirkjumálaráðu- neytið hefur gefið út upplýs- ingabækling fyrir ungt fólk sem mun kjósa í fyrsta sinn til Alþingis hinn 10. maí nk. Tilgangur bæklingsins er að upplýsa unga kjósendur um framkvæmd kosningarathafn- arinnar, útskýra nýja kjör- dæmaskipan og hvetja unga kjósendur til þátttöku í alþing- iskosningum. Bæklingurinn er sendur til alls ungs fólks sem er fætt á tímabilinu 9. maí 1981 til og með 10. maí 1985. Einnig er hægt að nálgast bæklinginn á Netinu undir slóðinni www.- kosning2003.is. Bæklingur fyrir nýja kjósendur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.