Morgunblaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 22 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ INGÓLFSNAUST verður opnað í miðborginni í dag. Flestir þekkja bygginguna sjálfsagt betur sem Geysishúsið en í dag, þegar Höfuð- borgarstofa og Upplýsingamiðstöð ferðamála taka þar til starfa eftir gagngerar endurbætur á húsinu, fær það nýtt nafn sem dregið er af sögu sem rekja má allt aftur til landnáms. „Hér í Aðalstræti 2 var áður naust Reykjavíkurbóndans, allt aftur til daga Ingólfs Arnarsonar og þetta svæði var kallað Ingólfsnaust í göml- um heimildum,“ útskýrir Svanhildur Konráðsdóttir, forstöðumaður Höf- uðborgarstofu. „Aðalbátalendingin var hérna fyrir neðan í Grófinni og það er auðvelt að ímynda sér að Ing- ólfur hafi siglt hingað að enda var sjávarlínan nákvæmlega hér. Svo hafi hann gengið hér upp með, þar sem nú er Aðalstræti, og byggt sér sinn bæ.“ Hún segir bygginguna og lóðina ekki síður sögufræga fyrir þá versl- un sem þar var starfrækt. „Þetta er elsta verslunarlóðin í Reykjavík en hér voru verslanir alveg frá árinu 1779. Þá var ákveðið að flytja hús einokunarverslunarinnar til Reykja- víkur en það hafði verið áður í Örfir- isey. Hér var einnig Duus verslunin og svo mætti lengi telja. Þannig að þetta er hús og lóð með gríðarlega langa og merkilega sögu og vel við hæfi að leita til upprunans og end- urnefna þetta upp á gamla mátann: Ingólfsnaust.“ Bankað stíft á dyr Sem fyrr segir verður Ingólfs- naust nú athvarf Höfuðborgarstofu sem tók formlega til starfa um síð- ustu áramót. Höfuðborgarstofa er ný stofnun hjá Reykjavíkurborg sem sinnir ferða- og markaðsmálum, upplýsingamiðlun og framkvæmd auk þess sem hún hefur umsjón með stærri viðburðum borgarinnar á borð við Vetrarhátíð og Menningar- nótt. Þá nefnir Svanhildur að því að í ár muni stofan einnig koma að Hátíð hafsins auk þess sem hún tekur þátt í skipulagningu uppákoma á aðventu og svo mætti lengi telja. Stór þáttur í starfseminni verður rekstur Upplýsingamiðstöðvar ferðamála sem Reykjavíkurborg tók yfir um áramótin. „Þetta er mikil- vægasta upplýsingamiðstöð fyrir ferðaþjónustu á landinu því hér miðl- um við upplýsingum um ferðamögu- leika og ferðaþjónustu á öllu landinu – ekki bara í Reykjavík,“ segir Svan- hildur sem á von á því að mikil líf muni fylgja starfsemi Upplýsinga- miðstöðvarinnar í Ingólfsnausti. „Hún hefur dregið til sín um 120 þúsund gesti á ári og við finnum nú þegar hvað þetta hefur haft mikil áhrif á það að veita lífi inn á þetta svæði – ferða- mennirnir flæða hingað í miklum mæli nú þegar,“ segir hún og hlær. „Það var farið að banka hér mjög stíft á dyr strax þegar við vorum að byrja að koma okkur fyrir. Samhengið við menningar- stofnanirnar hérna skiptir líka mjög miklu máli, við Lista- safn Reykjavík- ur, Grófarhúsið, Borgarbóka- safnið og svo auðvitað við höfnina og skemmtiferðaskipin. Þannig að ég gæti ekki verið ánægðari með þessa staðsetningu og ég held að þetta sé mjög góð tíðindi fyrir miðborgina.“ Veitingastaður, gjald- eyrisbanki og verslanir Svanhildur leggur þó áherslu á að Upplýsingamiðstöðin sé alls ekki eingöngu fyrir ferðamenn, þótt vissulega hafi þeir verið stærsti hluti þeirra sem hafa leitað eftir þjónustu þangað. „Það er ákveðið metnaðar- mál hjá okkur að þessi upplýsinga- miðstöð verði líka fyrir höfuðborg- arbúa. Þetta er ferðamiðstöð fyrir allt landið og við erum með gríðar- lega mikið magn upplýsinga á ís- lensku um ferðamöguleika um allt land.“ Eftir breytingarnar á húsinu má segja að það samanstandi af fram- húsinu við Aðalstræti, tengibygging- unni sem er úr gleri og gamla pakk- húsinu sem er Vesturgötumegin en í því síðastnefnda verður fjölbreytt starfsemi að sögn Svanhildar. „Í kjallarnum verður veitingastaður sem væntanlega mun sérhæfa sig í fiskréttum og á hæðinni þar fyrir of- an verður Rammagerðin með sér- verslun sem verður væntanlega opn- uð 1. júlí. Síðan eru uppi hugmyndir um að fyrir ofan Rammagerðina verði öflugt netkaffi eða eitthvað slíkt. Þá ætlar Bláa lónið að vera með sína fyrstu verslun í Reykjavík hér í húsinu, við erum með gjaldeyr- isbanka fyrir peningasendingar og gjaldeyrisviðskipti og fleiri smærri sölu- og þjónustuaðliar munu koma inn í húsið á næstu mánuðum.“ Formlega opnun Ingólfsnausts verður kl. 17 í dag þar sem borg- arstjórinn í Reykjavík og samgöngu- ráðherra munu flytja ávörp auk þess sem nýtt ferðavefsvæði borgarinnar, visitreykjavik.is, verður tekið í notk- un. Von er á um 400 boðsgestum á opnunina að sögn Svanhildar en byggingin og Upplýsingamiðstöðin verður síðan opin fyrir almenning alla daga þar á eftir. Höfuðborgarstofa flytur starfsemi sína í Aðalstræti 2 Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Upplýsingamiðstöð ferðamála dregur til sín um 120 þús- und heimsóknir ferðamanna á ári en Svanhildur leggur áherslu á að hún sé ekki síður hugsuð fyrir Íslendinga sem hyggja á ferðalög innanlands. Fær nafnið Ingólfsnaust í stað Geysishússins Miðborg Morgunblaðið/Halldór Kolbeins „Hér var áður naust Reykjavíkurbóndans,“ segir Svanhildur Konráðs- dóttir sem er hæstánægð með nýja staðsetningu Höfuðborgarstofu. ÞÆR Sofía Ýr Eiðsdóttir, Fjóla Kristín Auðunsdóttir og Kara Rut Hanssen, sem allar eru í 7. bekk í Borgaskóla í Grafarvogi, voru ekk- ert að tvínóna við að gæða sér á glóðvolgum pitsunum sem þær bök- uðu í skólanum í gær. Pitsubakst- urinn var hluti verkefna nemenda á þemadögum, sem haldnir voru í unglingadeild skólans nú í vikunni. Fyrir utan það að læra að baka flatbökur spreyttu krakkarnir sig á því að mála á gler, skipta um dekk, steikja hamborgara og fara í blindrabolta svo eitthvað sé nefnt. Margir góðir gestir litu við og deildu fróðleik sínum með nemend- um, s.s. Haraldur Örn Ólafsson fjallagarpur og Stefán Karl Stef- ánsson leikari. Var það mál manna að dagarnir hefðu heppnast einstaklega vel enda til mikils að vinna þar sem um fyrstu þemadaga, sem haldnir hafa verið í skólanum, var að ræða. Dekkja- skipti og flatbökur Grafarvogur Morgunblaðið/Jim Smart FORELDRAR og starfsfólk Lækj- arskóla í Hafnarfirði hafa sent undirskriftalista til bæjaryfirvalda þar sem því er mótmælt að bygg- ingu íþróttamannvirkja við skólann verði frestað. Mótmælin voru til umræðu fund- ar bæjarráðs í gær þar sem fulltrú- ar meirihlutans bókuðu að tillögum um mögulegar flýtiframkvæmdir, m.a. uppbyggingu kennslusund- laugar, hefði verið vísað til af- greiðslu stjórnar Fasteignafélags Hafnarfjarðar. „Nánari skoðun á framkvæmdaáætlun íþróttaaðstöðu við Lækjarskóla er því í fullri vinnslu og niðurstaða mun liggja fyrir við framlagningu nýrrar 3ja ára framkvæmdaáætlunar nú á næstunni.“ Bæjarráðsmenn Sjálfstæðis- flokksins tóku hins vegar undir mótmælin enda væri þörfin á íþróttamannvirkjum ótvírætt til staðar. „Bæjarráðsmenn Sjálf- stæðisflokksins telja það forkast- anlegt að tala eilíflega um flýti- framkvæmdir og það jafnvel um verk sem þegar var ákveðið að ráð- ast í,“ segir í bókun þeirra. Mótmæla frestun íþróttamannvirkja Hafnarfjörður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.