Morgunblaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ                       !" 1* 3  $ ) () $ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÁGÆTA unga samfylkingarfólk í Reykjavík! Við í ungum framsókn- armönnum í Reykjavík skorum á ykkur í málþing um mögulega stefnuskrá ríkis- stjórnar Fram- sóknar og Sam- fylkingar undir forystu Halldórs Ásgrímssonar. Leggjum við til að hvor flokkur skipi þrjá fulltrúa og hist verði í kosningarmiðstöð ungra framsókn- armanna á Laugavegi 3 á laugar- daginn klukkan 15:00. Munum við leggja til góðar veitingar og jafn- framt fundarstjóra ef þess er ósk- að. Það er þó skoðun okkar að slíkt þyrfti ekki þar sem nýjasta útgáfan af stefnuskrá Samfylkingar hefur mörg málefni sem samhljóða sér vel við stefnuskrá Framsóknar- flokksins. Er það trú okkar að fulltrúar okkar gætu komist að nið- urstöðu sem eldri fulltrúar flokk- anna gætu nýtt í kjölfar kosninga. Þarna yrði einungis um hugmynda- vinnu að ræða og yrði augljóslega ekki bindandi fyrir flokkanna. Ágætu félagar. Við ungir fram- sóknarmenn trúum ekki öðru en ungt samfylkingarfólk í Reykjavík sé reiðubúið að mæta á málþing um myndun nýrrar miðjuríkisstjórnar. Hittumst á miðjunni! F.h. stjórnar ungra framsóknar- manna í Reykjavík: HAUKUR LOGI KARLSSON. Hittumst á miðjunni Frá Hauki Loga Karlssyni, for- manni Félags ungra framsókn- armanna í Reykjavíkurkjördæmi suður Haukur Logi Karlsson Á DÖGUNUM kærðu undirritaðir útgáfu Umhverfisstofnunar á starfs- leyfi fyrir álver á Reyðarfirði. Ástæða þess er að Alcoa hyggst spara sér að nota bestu fáanlegu mengunarvarnartækni, samsvar- andi þeirri sem Norsk Hydro hugð- ist nota, þvert á yfirlýsingar um að stefnt væri að sem „vistvænastri“ ál- bræðslu. Þegar starfsleyfið var gefið út voru skilyrði þess ekki í samræmi við niðurstöður mats á umhverfis- áhrifum. Krafa okkar er því að starfsleyfi verði fellt úr gildi og ein- ungis verði gefið út leyfi í samræmi við það umhverfismat sem til grund- vallar liggur. Rúm tuttuguföld brennisteinsmengun Í mati á umhverfisáhrifum var gert ráð fyrir um 830 tonna árlegri losun á SO2, þar af um 640 tonn frá rafskautaverksmiðjunni sem ekki mun rísa. Í umhverfismati fyrir ál- ver Norsk Hydro var því einungis gert ráð fyrir 190 tonna SO2 út- blæstri vegna 420 þúsund tonna ál- bræðslu, sem samsvarar um 145 tonnum af SO2 miðað við 320 þús- und tonna álbræðslu. Núverandi heimild til handa Alcoa nemur hins vegar um 3.900 tonna útblæstri á ári eða rúmlega tuttuguföldu því magni sem Norsk Hydro gerði ráð fyrir að losa frá álbræðslu sinni. Alcoa hyggst reisa tvo risaskorsteina til að uppfylla kröfur um að mengun fari ekki yfir tilskilin mörk á afmörkuðu þynningarsvæði umhverfis verk- smiðjuna. Engar viðhlítandi ráðstaf- anir verða hins vegar gerðar til að hreinsa brennisteinsmengunina úr útblástursloftinu. Athugasemd heilbrigðisnefndar Heilbrigðisnefnd Austurlands gerði athugasemdir við auglýstar starfsleyfistillögur. Þar var þess far- ið á leit við Umhverfisstofnun að stofnunin myndi segja til um hvor viðtakinn sé öflugri, loft eða sjór. Athygli vekur að í svari sínu kveður stofnunin ekki úr um hvor viðtakinn sé öflugri. Hins vegar heldur hún því fram að loftið sé „nægilega öfl- ugur“ viðtaki og því þurfi ekki að kanna hvort sjórinn henti betur. Þar sem hér er fyrst og fremst um losun á brennisteinsdíoxíðum að ræða er ekki ástæða til að ætla annað en að sjórinn sé mun öflugri viðtaki en loftið. Þetta vita sérfræðingar Um- hverfisstofnunar og hefðu þeir átt að svara heilbrigðisnefnd af faglegum heilindum í stað þess að bera á borð hálfsannleik. Stóraukin flúormengun heimiluð Á síðustu dögum áður en starfs- leyfið var gefið út bárust Umhverf- isstofnun ný gögn frá Alcoa. Í þess- um nýju gögnum kom fram að galli var á reiknilíkaninu sem notað var við dreifingarspá. Fyrirtækið taldi sig þar með ekki geta uppfyllt þau skilyrði sem auglýst voru. Í fram- haldi af þessu slakaði Umhverfis- stofnun á skilyrðunum til þess að 50% meiri flúoríðmengun myndi rúmast innan þeirra. Ráðherra hefur úrskurðarvald Úrskurður umhverfisráðherra í þessu kærumáli verður eitt af síð- ustu verkefnum ráðherrans á þessu kjörtímabili. Fróðlegt verður að sjá hvort ráðherra hafi dug til að krefja Alcoa um þá tækni sem gengið var út frá við fyrirliggjandi umhverfis- mat. GUÐMUNDUR ÁRMANNSSON, bóndi, Vaði, HÁKON AÐALSTEINSSON, skógarbóndi, Húsum, ÓLAFUR F. MAGNÚSSON, læknir, Reykjavík, og SVEINN AÐALSTEINSSON, viðskiptafræðingur, Reykjavík. Hefur umhverfis- ráðherra dug? Frá Guðmundi Ármannssyni, Há- koni Aðalsteinssyni, Ólafi F. Magn- ússyni og Sveini Aðalsteinssyni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.