Morgunblaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Næring ekki
refsing Buxnadagar
Vinnufatabúðin
FRAMUNDAN eru fram-
kvæmdir á tímabilinu 2003 til
2009 sem kosta um 315,5 millj-
arða króna. Þetta kom fram í
máli Tryggva Þórs Herbertsson-
ar, forstöðumanns Hagfræði-
stofnunar Háskóla Íslands, á
fundi á vegum Landsbankans í
gær.
Þessi kostnaður slær hátt í
40% af landsframleiðslu sem er
svo hátt hlutfall að það er nánast
óþekkt í heiminum, að sögn
Tryggva Þórs.
Forstöðumaður Hagfræði-
stofnunar segist ekki telja rúm
fyrir frekari vaxtalækkanir hjá
Seðlabanka Íslands heldur muni
vextir frekar hækka á næstunni.
Í máli Tryggva kom fram að
raungengið er 4,6% yfir 10 ára
meðaltali um þessar mundir sem
gerir útflutningsgreinum erfiðara
um vik. Þetta háa raungengi
mun sennilega flýta hagræðingu
í sjávarútvegi. En hátt gengi
mun, ásamt miklum óvissutím-
um, kreppa að ferðamannaiðnaði
og þjónustugreinum tengdum
ferðamennsku.
315,5
milljarða
fram-
kvæmdir
Kostnaður/12
BANASLYS varð á Sauðárkróki
síðdegis í gær þegar malarflutn-
ingabíll og pallbíll rákust harka-
lega saman á Strandvegi. Tveir
voru í pallbílnum og er talið að
farþegi í honum, 22 ára karlmaður,
hafi látist samstundis, samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar á Sauð-
árkróki.
Ökumaður pallbílsins, rúmlega
þrítugur karlmaður, hlaut alvar-
lega áverka og eftir að hafa fengið
aðhlynningu á sjúkrahúsinu á
Sauðárkróki var hann fluttur suð-
ur til Reykjavíkur með sjúkraflug-
vél sem kom frá Akureyri. Fór
hann beint í aðgerð á Landspít-
alanum í Fossvogi vegna alvar-
legra höfuðáverka. Samkvæmt
upplýsingum læknis á gjörgæslu-
deild í gærkvöldi er líðan öku-
mannsins eftir atvikum.
Ökumaður malarflutningabílsins
var einn á ferð og slasaðist hann
ekki alvarlega. Tildrög slyssins
eru óljós en eru í rannsókn lög-
reglunnar á Sauðárkróki. Malar-
flutningabíllinn er mikið skemmd-
ur en pallbíllinn, sem var í eigu
verktaka er nýlega hóf fram-
kvæmdir við breikkun Strandveg-
ar, er gjörónýtur eftir slysið.
Ekki er unnt að birta nafn hins
látna að svo stöddu.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Malarflutningabíllinn og pallbíllinn skullu harkalega saman á Strandvegi.
Banaslys á Sauðárkróki
EKKI var gengið endanlega frá
samkomulagi EFTA-ríkjanna og
Evrópusambandsins um aðlögun
EES-samningsins að stækkun ESB
á samningafundi í Brussel í gær-
morgun vegna óvæntra mótmæla
Írlands og Póllands. Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra segist
þó viss um að ekkert geti komið í
veg fyrir að samningunum verði lok-
ið.
Pólland vill lægri tolla og
stærri innflutningskvóta
Öllum að óvörum settu fulltrúar
Póllands sig upp á móti fyrirliggj-
andi samkomulagi í gærmorgun og
kröfðust betri samnings fyrir Noreg
og Ísland; að tollur á ferskum laxi
yrði afnuminn og innflutningskvótar
fyrir síldarafurðir stækkaðir. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins vísuðu fulltrúar Póllands einkum
til hagsmuna fiskvinnslu þar í landi,
en gerðu einnig athugasemdir við að
framkvæmdastjórn ESB hefði ekki
haft væntanleg aðildarríki sam-
bandsins nógu mikið með í ráðum
við samningagerðina.
Aukinheldur gerði Írland athuga-
semdir við samkomulagið, en á þver-
öfugum forsendum, þ.e. að innflutn-
ingskvótar fyrir síld væru of stórir.
Írar veiða sjálfir talsvert af síld og
selja til annarra ESB-landa.
Breytingar ekki líklegar
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sagði í samtali við Morgun-
blaðið að Ísland hefði lagt mikla
áherzlu á það í samningunum við
ESB að fá innflutningskvóta á heil-
frystri síld. „Við vildum sjá þennan
kvóta hærri og erum auðvitað
ánægðir með að eiga bandamenn í
því,“ segir Halldór. „Ég hef hins
vegar ekki trú á að það verði veru-
leg breyting á því samkomulagi,
sem nú liggur fyrir.“
Utanríkisráðherra segir ljóst að
ekki verði endanlega gengið frá
samkomulagi við ESB fyrr en eftir
páska. „Það skiptir þó ekki öllu máli,
því að aðalatriðið er að staðfesting-
arferlið [varðandi stækkun EES
annars vegar og stækkun ESB hins
vegar] eigi sér stað samhliða,“ segir
Halldór.
Aðspurður hvort framkvæmda-
stjórn ESB hafi gefið EFTA-ríkj-
unum einhverja tryggingu fyrir því
að málið verði leyst gagnvart Írlandi
og Póllandi, segir Halldór: „Það er
út af fyrir sig engin trygging en það
verður ekki til baka snúið með þessa
samninga. Það er ekkert, sem kem-
ur í veg fyrir að þeim verði lokið.“
Samkomulag við ESB um EES næst ekki fyrir páska
Ráðherra viss um að
ekki verði aftur snúið
Noregur–ESB: 0–2/10
TÆPLEGA fjórðungur 9 ára barna í
Reykjavík telst of þungur og af þeim eru
5,5% sem teljast eiga við offituvandamál að
stríða, samkvæmt niðurstöðum nýrrar
rannsóknar á holdafari og lifnaðarháttum 9
ára barna í Reykjavík sem kynntar voru í
gær. Börnum sem teljast of feit hefur fjölg-
að um 13% á fjórum árum en fjöldi þeirra
var 4,8% árið 1998. Þá kom í ljós að um 48%
barna stunda íþróttir eða hreyfingu nær
aldrei eða sjaldnar en vikulega fyrir utan
skyldutíma í skólum.
Hópur fræðimanna frá Háskóla Íslands
og Kennaraháskóla Íslands framkvæmdu
rannsóknina síðastliðið haust í fjórum skól-
um í Reykjavík. Úrtakið var 308 börn en
þátttökuhlutfall var 76%. Markmiðið var að
kanna holdafar með því að finna út líkams-
þyngdarstuðul, mæla líkamsfitu, íþrótta-
iðkun, hreyfingu og lífsvenjur 9 ára barna.
Hreyfingarleysi aðalorsökin
Offita og hreyfingarleysi meðal barna og
unglinga eru orðin alvarlegt heilbrigð-
isvandamál, að mati aðstandenda rann-
sóknarinnar. Telja þeir að bregðast verði
við því m.a. með aukinni fræðslu og fjöl-
breyttara íþróttastarfi.
Vandinn á fyrst og fremst rætur að rekja
til hreyfingarleysis en í minna mæli til mat-
aræðis. Stúlkur eru þyngri en drengir og
þeir hreyfa sig einnig mun meira en stúlk-
urnar, sérstaklega stunda þeir frekar
íþróttir sem ekki eru skipulagðar af skól-
anum eða íþróttafélögum.
Fjórðungur
9 ára barna
of þungur
Morgunblaðið/Sverrir
VINKONURNAR Andrea Atladóttir, Hanna Katrín
Friðriksson og Una Steinsdóttir, sem allar léku með
landsliði kvenna í handbolta, aðallega á árunum
1985 til 1995, eiga ýmislegt annað sameiginlegt en
áhugann á boltanum. Stjórnunarstörfin, sem þær
gegna hjá stórum fyrirtækjum, eru kannski eðlilegt
framhald viðskiptafræðimenntunar þeirra, en að
allar skyldu eignast tvíburadætur sem fyrstu börn
er ein af undarlegum tilviljunum lífsins.
Eins og nærri má geta hvetja þær stöllur dætur
sínar til íþróttaiðkunar. Elísabet og Margrét,
tveggja ára, eru byrjaðar í Litla íþróttaskólanum,
Agnes og Bríet eru að verða fjögurra ára og æfa
fimleika með ÍBV í Vestmannaeyjum, og Sóley og
Stefanía, næstum átta ára, slá hvorki slöku við
djassballettinn né sundið hjá Sundfélagi Keflavík-
ur.
Mæðrunum ber saman um að gildi íþrótta, sér-
staklega keppnisíþrótta, sé ótvírætt. Ekki síst fyrir
stelpur.
Boltinn til tvíburadætranna
Daglegt líf/B2
KEFLAVÍK varð Íslandsmeistari í körfuknattleik karla
í gærkvöldi þegar liðið lagði Grindavík, 102:97, í þriðja
og síðasta úrslitaleik þeirra í Grindavík. Fjögur ár eru
liðin síðan Keflavík varð Íslandsmeistari í karlaflokki
síðast en þetta er önnur vegsemd félagsins á skömmum
tíma því á dögunum varð kvennalið þess einnig Íslands-
meistari með glæsibrag.
Rík ástæða var til að fagna að leikslokum eins og þeir
gerðu Sigurður Ingimundarson þjálfari og lærisveinn
hans, Arnar F. Jónsson, þegar flautað var af í Grindavík.
Keflvíkingar urðu
Íslandsmeistarar
Íþróttir/52 Morgunblaðið/Kristinn