Morgunblaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 52
ÍÞRÓTTIR 52 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ VISSULEGA hafði maður heyrt þá samsæriskenningu að við myndum tapa viljandi hér í kvöld til þess að fá einn leik til viðbótar og fagna sigri á heimavelli á laugardag. Við erum hinsvegar meiri íþróttamenn en svo og það kom aldrei neitt ann- að til greina en að vinna,“ sagði Sig- urður Ingimundarson þjálfari Kefl- víkinga en hann var að landa þriðja Íslandsmeistaratitli sínum sem þjálfari liðsins á s.l. sjö árum. „Það eru svona leikir í hverri viku hjá okkur á æfingum og oft er meiri keppni á æfingum hjá okkur en í sumum leikjum okkar í deildinni.“ Sigurður vildi lítið gera úr því að hann hefði ekki fengið mikið hrós í gegnum tíðina sem þjálfari þar sem margir hafa litið á það sem sjálfsagt mál að vel mannað lið hans væri ávallt fremstu röð. „Ég spái ekkert í slíka hluti. Við erum ekki að sækjast eftir hrósi – það eina sem skiptir máli fyrir okkur eru verðlaun og titlar,“ sagði Sigurður en hann sagðist ætla að leika nokkra golf- hringi áður en hann tæki ákvörðun um framhaldið hjá sér en samn- ingur hans við Keflavík rennur út í vor. Sigurður sagði að neikvæð um- ræða hefði verið í gangi hvað varð- ar komu Edmund Saunders í byrjun árs en það hefði þjappað liðinu sam- an. „Við erum með einn erlendan leikmann og níu íslenska. Önnur lið hafa á að skipa tveimur til þremur erlendum leikmönnum og það er lít- ið sagt við því en við höfum fengið mikla gagnrýni fyrir að hafa fengið okkur erlendan leikmann.“ Grindvíkingar áttu í mestu vand-ræðum með að stöðva þá Ed- mund Saunders og Damon Johnson í einvíginu og brá Frið- rik á það ráð að leika „fljótandi“ svæðis- vörn frá upphafi. Vörnin skilaði ekki árangri í fyrsta leikhluta þar sem 10 stig skildu liðin að. Grindvíkingar mikla skorpu í öðrum leikhluta með Helga Jónas Guðfinnsson og Darell Lewis fremsta í flokki. Heimamenn náðu að minnka muninn jafnt og þétt þar sem ákefðin var mikil í vörninn- i.Staðan í hálfleik var 51:49 heimalið- inu í vil en sú sæla var skammvinn þar sem Keflvíkingar settu í gírinn í upp- hafi síðari hálfleiks og skoruðu þá 10 stig gegn 2. Segja má að þessi kafli hafi lagt grunninn að sigri þeirra blá- klæddu því liðið leit aldrei um öxl eftir það. Það kviknaði þó von í hjörtum Grindvíkinga er Damon Johnson fékk sína fjórðu villu um miðjan þriðja leikhluta. Merkisberar ungu kynslóð- arinnar í Keflavíkurliðinu, Jón Nor- dal Hafsteinsson og Magnús Gunn- arsson tóku við keflinu af Damon á þeim kafla sem Grindvíkingar ætluðu sér að ná yfirhöndinni. Jón með því að fiska ruðning á Darrell Lewis í stöð- unni 71:74 og í næstu sókn setti Magnús niður þriggja stiga skot – líkt og hann hefur svo margoft gert. Grindvíkingar gáfust ekki upp þrátt fyrir að munurinn væri þetta 7– 10 stig í 4. leikhluta en reynsla Kefl- víkinga vó þungt undir lokin þar sem þeir keyrðu upp að körfu Grindvík- inga og fengu dæmdar villur eða skoruðu auðveldar körfur. Keflavík hafði einfaldlega of sterku liði á að skipa fyrir Grindavík að þessu sinni og með 3:0 sigri í einvíg- inu sendu Keflvíkingar sterk skilaboð um að þeir væru einfaldlega bestir. Það er aðdáunarvert hve hlutverka- skiptingin í Keflavíkurliðinu er skýr og átta manna kjarni liðsins veit alveg nákvæmlega hvers er ætlast af hon- um. Jón Nordal, Gunnar Einarsson og Sverrir Sverrisson skila vörninni með sóma. Magnús, Falur og Guðjón skjóta þegar þeir fá frí skot og þeir Edmund Saunders og Damon John- son herjuðu undir körfunni. Grindavíkurliðið virtist ekki ná sér almennilega á strik í úrslitakeppnin- ni.Darrell Lewis og Guðmundur Bragason voru þeir leikmenn sem léku hvað jafnast í liði Grindvíkur á meðan skytturnar Páll Axel, Helgi Jónas og Guðlaugur Eyjólfsson tóku rispur en voru ekki nógu stöðugir. Síðasti kossinn? Guðjón Skúlason fagnaði titlinum innilega. Öflugir stuðningsmenn Keflvíkinga fögnuðu titlinum ákaflega. Morgunblaðið/Kristinn Hvar er boltinn? Guðmundur Bragason, Grindavík, og Damon Johnson virðast í vafa. Keflvíkingar eru bestir „Titlar eru það eina sem skiptir máli“ KEFLVÍKINGAR fögnuðu sjötta meistaratitli félagsins í körfu- knattleik karla í gær er liðið kláraði úrslitarimmu liðsins á útivelli gegn deildarmeistaraliði Grindvíkinga. Sigurður Ingi- mundarson þjálfari Keflavíkur virtist hafa svör við flestu því sem Friðrik Ingi Rúnarsson spil- aði út í þremur viðureignum lið- anna og það var aðeins í þriðja og jafnframt síðasta leik liðanna sem þeir gulklæddu virtust hafa trú á sigri en styrkur gestanna reyndist vera mikill þegar mest á reyndi þar sem liðið sigraði á ný og að þessu sinni 102:97. Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar „ÉG ætla ekki að lofa einu eða neinu en eins og mér líður núna þá býst ég við að hafa leikið minn síðasta leik í treyju nr. 12 með Keflavíkurliðinu,“ sagði Guðjón Skúlason fyrirliði Keflvíkinga. „Það er varla til betri tími á ferl- inum til þess að hverfa frá þessu, við unnum allt sem í boði var, Kjörísbikarinn, bikarkeppnina og þann stóra – Íslandsmeistaratit- ilinn. Ég hef verið í 20 ár í efstu deild og er mjög sáttur í dag við það sem ég hef lagt af mörkum. Veturinn var líka með eindæmum skemmtilegur,“ sagði Guðjón og taldi að tveggja mánaða gömul dóttir hans og átta ára sonur myndu helst draga frá körfu- knattleiksvellinum í framtíðinnni. „Það er erfitt að rífa sig frá þess- um félagsskap en allt hefur sinn tíma,“ sagði Guðjón en á svip- brigðum hans mátti greina að hann var í vafa um hvort hann gæti staðið við orð sín og lagt skóna á hilluna frægu enda er maðurinn aðeins 36 ára gamall. „Engar yfirlýsingar frá mér“ Falur Harðarson baðst undan því að vera spurður að því sama og félagi hans og fyrirliði hafði sagt. „Ég hef bara ekkert velt því fyrir mér hvort ég láti staðar numið núna. Það hefur bara verið mjög gaman að spila í vetur, ég hef verið heill heilsu eftir tvö mögur ár.“ Falur vildi þakka ÍR- ingum fyrir að hafa sett vekj- araklukkuna í gang þegar liðið vann þá í átta liða úrslitum keppninnar. „Eftir þann leik var allt annar bragur á okkur og í raun aldrei spurning um hvað við vildum gera í framhaldinu,“ sagði Falur og bætti því við að enginn myndi frétta af því þegar hann hætti. „Þegar ég hætti þá hætti ég bara og segi engum frá því.“ „Minn síðasti leik- ur í treyju nr. 12“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.