Morgunblaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 55
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 55 ÞÝSKA handknattleiksfélagið Magdeburg hefur sett upp kveðjuleik fyrir Ólaf Stefánsson og Uwe Mäuer, sem yfirgefa það að þessu tímabili loknu. Sá leikur fer fram 1. júní og lið Magde- burgar í dag mætir liði félagsins sem varð EHF-meistari árið 1999. Þar mæta til leiks kappar á borð við Henning Fritz, Gueric Kerv- adec, Sven Liesegang og Vjatch- eslav Atavin, sem léku með Magdeburg á þeim tíma. Ólafur er á förum til Ciudad Real á Spáni í sumar en óvíst er hvar Mäuer leikur á næsta tíma- bili. Kveðjuleik- ur fyrir Ólaf og Mäuer FÓLK  LÁRUS Orri Sigurðsson, lands- liðsmaður í knattspyrnu, lofaði í gær stuðningsmönnum WBA því að liðið myndi ljúka keppni í úrvalsdeildinni með reisn þó ljóst væri að það myndi falla í 1. deildina á ný. „Það er enn góður andi í okkar herbúðum þrátt fyrir erfiða stöðu og við munum leggja okkur fram fyrir stuðnings- menn okkar, sem hafa verið stórkost- legir í allan vetur,“ sagði Lárus Orri.  FORSVARSMENN ítalska knatt- spyrnuliðsins Roma sögðu við sænska fjölmiðla í gær að liðið væri í viðræðum við hollenska liðið Ajax um kaup á sænska landsliðsfram- herjanum Zlatan Ibrahimovic. Ajax vill fá rétt rúman milljarð ísl. kr. fyrir Ibrahimovic en hann er aðeins 21 árs gamall.  SIGMAR Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi í Popptíví, var þulur á leik Fram og Hauka í úrslita- keppninni í handknattleik í gær- kvöld, en hann er bróðir Hjálmars, leikmanns Fram. Sigmar fór yfir strikið í æsingnum seint í leiknum, lýsti þá einu marki Haukanna sem „djöfulsins grís“ og fékk fyrir vikið aðvörun frá Óla Ólsen, eftirlitsdóm- ara, sem var ekki skemmt.  PORTÚGÖLSKU grannliðin Porto og Boavista standa vel að vígi eftir fyrri leiki undanúrslita UEFA- bikarsins í knattspyrnu sem leiknir voru í gærkvöld. Talsverðar líkur eru á að þau mætist í úrslitaleik keppn- innar sem yrði gífurlegur áfangi fyrir portúgalska knattspyrnu.  BRASILÍUMAÐURINN Derlei skoraði tvívegis fyrir Porto sem vann Lazio frá Ítalíu, 4:1, á heima- velli sínum. Það var þó Lazio sem náði forystu í leiknum með marki frá Claudio Lopez.  HENRIK Larsson, sænski fram- herjinn hjá Celtic, var bæði hetja og skúrkur þegar lið hans gerði jafn- tefli, 1:1, gegn Boavista á heimavelli sínum í Glasgow.  BOAVISTA komst yfir í byrjun síðari hálfleiks þegar belgíski varn- armaðurinn Joos Valgaeren sendi boltann í eigið mark. Mínútu síðar jafnaði Larsson, 1:1, en á 76. mínútu brást honum illilega bogalistin. Hann tók þá vítaspyrnu en Ricardo, mark- vörður Boavista, varði.  KEPPNI á fyrsta degi Masters- mótsins í golfi var frestað í gær vegna gífurlegrar rigningar en það átti þá að hefjast í Augusta í Banda- ríkjunum. Reynt verður að spila 36 holur í dag. Þetta er í fyrsta skipti í 64 ár sem fresta þarf keppni á mótinu. Tiger Woods á að hefja keppni kl. 13.50 að íslenskum tíma.  LOUIS Van Gaal, hollenski þjálf- arinn sem rekinn var frá Barcelona í vetur, hefur sýnt mikinn áhuga á að taka við stöðu knattspyrnustjóra Fulham, samkvæmt frétt í enska blaðinu Independent í morgun. Morgunblaðið/Árni Sæberg Guðjón Finnur Drengsson, hornamaður Fram, er tekinn föstum tökum af Haukamanninum Robertas Pauzuolis í viðureign liðanna. Eradze varði alls 28 skot og áttusóknarmenn FH-inga ekkert svar við stórleik hans á milli stang- anna en hafa verður í huga að vörn Vals- manna var afar öflug og hvað eftir annað sigldi sókn Hafnar- fjarðarliðsins í strand. Leikurinn var nánast endurtekning frá leiknum að Hlíðarenda á þriðjudaginn. Valsmenn með blóð á tönnunum og sérlega vel stemmdir á meðan FH-ingar virtust mjög ráðþrota í leik sínum. Valsmenn hófu leikinn með látum, komust í 5:1 og liðnar voru 14 mínútur af leiknum þegar stuðningsmenn FH-inga gátu fagnað öðru marki sinna manna. Seinni hálfleikur hófst með sama hætti og sá fyrri. Baráttuglaðir og fullir sigurvilja skoruðu Valsmenn þrjú fyrstu mörkin og náðu fimm marka forskoti, 13:8, og útlitið því dökkt hjá heimamönnum. Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari FH-inga, brást við með þeim hætti að taka Snorra Stein og Markús Mána úr um- ferð og þó svo aðeins hafi hægt á Vals- mönnum í sókninni og FH-ingar hafi náð að minnka muninn í þrjú mörk. „Við spiluðum okkur ekki í færi og skotin voru mörg hver ansi döpur en það verður ekki af Roland tekið að hann lokaði markinu á löngum köfl- um. Það er auðvitað gríðarlega sorg- legt að enda tímabilið núna. Við vor- um komnir á góða siglingu en létum svo slá okkur algjörlega út af laginu. Ég get samt ekki annað en hrósað Valsliðinu og ef það heldur áfram svona þá fer það mjög langt,“ sagði Arnar Pétursson, leikstjórnandi FH. Valsmenn voru afar vel að sigrinum komnir og ljóst er að Geir Sveinsson, þjálfari Vals, hefur undirbúið sína menn af kostgæfni og blásið nýju lífi í sitt lið. Í sterkri liðsheild má segja að Roland Eradze hafi gert gæfumuninn en markvarsla hans vó ansi þungt. Vörnin var eins og áður er lýst frábær þar sem Ragnar Ægisson lék stórt hlutverk í hjarta hennar ásamt því að Hjalti Pálmason náði algjörlega að klippa á Loga Geirsson. Þá skilaði Freyr Brynjarsson frábærri frammi- stöðu. Hann var óþreytandi í að trufla sóknarleik FH og nýtti færi sín vel. Markús Máni og Snorri áttu báðir fín- an leik og voru ógnandi en liðsheild Valsmanna var öflug samhent og það ásamt sigurvilja, baráttu og vel út- færðum leik skilaði öruggum sigri. „Strákarnir sýndu hvað í þeim býr og ég var virkilega ánægður með hvernig þeir spiluðu. Það tók okkur of langan tíma að vinna okkur út úr lægðinni sem við lentum í en með þessum tveimur leikjum á móti FH held ég að við höfum náð að sanna það fyrir okkur sjálfum hvað við getum gert. Við vorum geysilega vel ein- beittir, sigurviljinn og hungrið var til staðar og það má segja að leikurinn hafi verið nær endurtekning á fyrri leiknum. Við áttum að vera búnir að gera út um leikinn í fyrri hálfleik en sigri okkar var ekki ógnað og góður varnarleikur ásamt frábærri mark- vörslu lagði grunninn að sigrinum,“ sagði Geir Sveinsson, þjálfari Vals. Valsmenn lokuðu á FH FRÁBÆR markvarsla Rolands Eradze, markvarðar Vals, ásamt mjög öflugum varnarleik Hlíð- arendaliðsins lagði grunninn að öruggum sigri Valsmanna á FH- ingum, 21:15, í Kaplakrika og þar með er Valur kominn í und- anúrslitin þar sem liðið glímir við ÍR en þriðja árið í röð verða FH-ingar að sætta sig við að falla út í 8-liða úrslitunum. Guðmundur Hilmarsson skrifar Mönnum var heitt í hamsi er þeirmættu til leiks og var hart tek- ist á frá fyrstu mínútu, oft gengið út á ystu nöf. Jafnt var fyrstu mínúturnar en þegar heimamenn stóðu af sér að spila einum færri í 8 mín- útur náðu þeir 10:6 forystu. Þegar svo Akureyringurinn Andreus Stelmokas fékk rautt spjald fyrir brot áttu Kópa- vogsbúar von á að hagur þeirra vænk- aðist enn frekar. Svo varð ekki því þeir fóru heldur illa að ráði sínu þar til KA jafnaði 11:11 en HK hafði samt 14:12 í hálfleik. Eftir hlé var leikurinn í járnum en hægt og bítandi náðu norðanmenn undirtökunum – brostu á meðan þungt var yfir HK-mönnum. Engu að síður munaði aldrei meiru en tveimur mörkum þar til fimm mín- útur voru eftir. Þá slokknaði neistinn í sókn HK og það var eins og gestirnir væru einmitt að bíða eftir því, sigldu framúr og tryggðu sér sigur. „Við höfðum líklega ekki næga trú á sigri, vorum nokkrum sinnum komnir í góða stöðu og gátum gert hana enn betri en það má ekki gefa færi á sér, þá koma KA-menn alveg vitlausir,“ sagði Árni Stefánsson þjálfari HK eftir leikinn. „Ég skil ekki að setja óreyndustu dómarana á leik, sem vitað var að yrði hrikalegur og af hverju milliríkjadómarar okkar voru ekki á þessum leik. Mér fannst þeir dæma illa og það bitnaði á okkur en er auðvitað ekki hlutlaus. Mér fannst að eftir verðskuldað rautt spjald á Stelmokas hafi dómarar hætt að dæma á KA-menn. Auðvitað verðum við samt líka að leita skýringa hjá okkur sjálfum. Strákarnir eiga ýmis- legt ólært en þegar litið er til baka get ég ekki annað en verið stoltur eftir veturinn, bikarmeistarar og 5. sæti í deildinni, sem HK hefur aldrei náð áður.“ Björgvin Gústafsson í markinu átti góðan leik og einnig Arnar Freyr Reynisson, sem kom inná eftir hlé. Samúel Árnason skilaði sínu að venju og Ólafur Víðir Ólafsson átti góða spretti. „Við lögðum upp með að láta HK- menn ekki brjóta okkur niður með öskrum og barsmíðum því það gera þeir einmitt,“ sagði Jónatan Magnús- son fyrirliði KA eftir leikinn. „Við er- um miklu betri en þeir í handbolta og ætluðum ekki að bugast á útivelli. Við þolum alveg að vera undir því við vitum sjálfir að við komum alltaf til baka og fyrst að HK náði ekki meiri forystu eftir að við vorum mikið reknir útaf fyrir hlé vissum við að ef það yrði jafnt í lokin hefðum við betur því við erum sterkari á taugum. Við þessir ungu stóðumst prófið þegar reynsla liðsins minnkaði mikið eftir að Stelmokas var rekinn útaf enda langbesti maðurinn í deildinni.“ Liðs- heildin skóp sigur KA. Liðið hélt allt- af áfram og beið þar til mótherjar þess gáfu aðeins eftir. Egidijus Petk- evicius varði mjög vel, Ingólfur Ax- elsson kom ferskur inná og Baldvin Þorsteinsson var drjúgur eins og Arnór Atlason. KA tók HK á lokasprettinum HÆGT var að ganga að einu vísu þegar HK fékk KA í heimsókn í öðr- um leik liðanna í 8 liða úrslitum í gærkvöldi – það yrði engin logn- molla. Sú varð líka raunin en eftir gríðarlega baráttu í hörkuleik hafði KA 28:24 sigur með fjórum síðustu mörkum leiksins, sem skilar þeim í undanúrslit. Mótherjar þeirra verða Fram eða Haukar. Stefán Stefánsson skrifar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.