Morgunblaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 59
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 5.50 og 10. B.i 12.
Sýnd kl. 8. B.i 12
HK DV
Kvikmyndir.com
SV MBL
HJ MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 10. B.i 14.
Epísk stórmynd í anda The English Patient. Frá
leikstjóra Elizabeth. Með stórstjörnunum Kate
Hudson og Heath Ledger. Missið ekki af þessari!
COMEDIAN
Sýnd kl. 6. ensk. tal.
RABBIT PROOF FENCE
sýnd kl. 6. enskt. tal.
ELSKER DIG FOR EVIGT
Sýnd kl. 6. isl texti.
GAMLE MÆND I NYE BILER
sýnd kl. 8. ísl. texti.
EL CRIMEN DEL PADRE AMARO
sýnd kl. 8. ensk. texti.
PINOCCHIO
Sýnd kl. 10.20. ísl. texti.
BOWLING FOR COLUMBINE
Sýnd kl. 5.50 og 10. ísl. texti.
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i 12.
HOURS
ÓHT Rás 2
BESTA HEIMILDARMYNDIN
ÓSKARSVERÐLAUN
www.laugarasbio.is
RADIO X
KVIKMYNDIR.COM
SG DV
ÓHT RÁS 2
Sýnd kl. 4. Ísl. tal. Tilboð 400 kr. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 5.30.
Þegar röðin er komin að þér
þá flýrðu ekki dauðann!
Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 og Miðnætursýning kl. 12. Miðaverð 750 kr.
SV MBL
Jackie Chan og Owen Wilson
eru mættir aftur ferskari en
nokkru sinni fyrr í geggjaðri
grínspennumynd.
Sýnd kl. 8 og 10.
FRUMSÝNING
400
kr
HEIMSFRUMSÝNING
Miða
verð
750
kr
SCOOTER eru núverandi
konungar evrópoppsins,
takfastri og stuðvænni
partítónlist sem góð er til
skankahristinga, veri það í
næturklúbbum eður líkams-
ræktarstöðvum. „Stuð,
stuð, þrumustuð“ er dags-
skipunin, svo vitnað sé í Ðe
lónlí blú bojs.
Jæja, hvernig líkar ykk-
ur svo við Ísland (eða „Há
dú jú læk Æsland?“)?
„Ja…við vorum bara að
koma. Það er frábært út-
sýni frá hótelinu okkar.
Fjöll og snjór og svona.
Virkilega fallegt. Þegar við
vorum að lenda sáum við
landslagið út um flugvél-
argluggann og þetta er
allt, allt öðruvísi en maður
á að venjast í Þýskalandi.
Við hlökkum til að geta
ferðast aðeins og skoðað
landið.“
Hvernig líst ykkur á tón-
leikana?
„Þetta er dálítið skrítið.
Við vitum ekkert hvað við
erum að fara út í.“
Hvernig er svo að vera
konungar evrópoppsins?
„Ha ha ha…ég þakka
hrósið. Ja…við höfum bara
alltaf vandað okkur við að
vera heilir í því sem við
gerum. Við erum alltaf að
semja og reynum að finna
nýja fleti á þessu. Það er
lykilatriði að hafa gaman
af þessu og við ferðumst
mikið og höldum mikið af
tónleikum. Okkur finnst
mjög mikilvægt að leika á
tónleikum og forðumst að
rotta okkur of mikið saman
í hljóðverinu.“
Tónleikar ykkar þykja
mikil stuðveisla…
„Já, það hefur alltaf ver-
ið svoleiðis. Allt frá byrjun.
Við höfum alltaf a.m.k. tvo
dansara og hugmyndin er
að breyta tónleikunum í
eitt risastórt partí. Þetta
hefur samt aldrei verið
þaulskipulagt í þær áttir.
Stuðið verður bara alltaf
svo mikið!“
Þið voruð að gefa út nýja
plötu er það ekki?
„Jú, hún heitir The
Stadium Techno Exper-
ience og er nýkomin út.“
Eru einhverjar áherslu-
breytingar á plötunni?
„Við erum með fleiri
sungin lög en áður hefur
verið. Við fáum fjóra gesta-
söngvara til liðs við okkur.
Þegar við byrjum að semja
fyrir nýja plötu þá er aldr-
ei nein hernaðaráætlun í
gangi. Við bara byrjum og
sjáum hvað setur. Svona
þróaðist þetta núna og enn
sem komið er höfum við
fengið góð viðbrögð frá
aðdáendum.“
Svo virðist sem þið séuð
mikil fagmenn í því sem
þiðgerið – um leið og
kímnigáfan er ekki langt
undan. Er það rétt?
„Já – auðvitað. Sumpart
er þetta hrein fagmennska
en við höfum aldrei glatað
húmornum fyrir þessu og
því að hafa gaman af
þessu. Það er mjög mik-
ilvægt. Það er ekki hægt
að búa til partítónlist án
þess að vera partídýr sjálf-
ur. Við lifum eftir boð-
skapnum og skemmtum
okkur um hverja helgi. Það
er eftir-á-partí eftir alla
tónleika. Í því umhverfi
fáum við líka allar góðu
hugmyndirnar. Svo einfalt
er það nú.“
„Eruð þið tilbúin?!“
H.P. Baxxter ætlar að leiða
tæknóteitið í Höllinni í kvöld.
TENGLAR
......................................
www.scootertechno.com
arnart@mbl.is
Þýska tæknósveitin Scooter rífur þakið af Laugardalshöll í kvöld
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30
og standa til 01.00. Miðaverð
er 3.900 kr en hægt er að nálg-
ast miða í útibúum Símans. DJ
Ívar Amore hitar upp. Að-
göngumiðinn gildir einnig sem
aðgangsmiði í eftir-á-partíið á
Nasa til kl. 02.00.
Skellibjöllurnar í Scooter eru mættar til
landsins. Arnar Eggert Thoroddsen heyrði
hljóðið í H.P. Baxxter, teitisforverði.