Morgunblaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 31
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 31 ÖSSUR Skarphéðinsson, for- maður Samfylkingarinnar, kynnti einkar athyglisverða og nútíma- lega menningarstefnu á nýaf- stöðnu menningarþingi flokksins. Flokkurinn ætlar m.a. að verja og treysta ritmálið, hornstein ís- lenskrar menningar, með niðurfell- ingu virðisaukaskatts af bókum. Þá mun sá víðförli útvörður nú- tímamenningarinnar sem tónlistin er, leystur úr fjötrum hæsta virð- isaukaskatts í heimi og færður til jafns við nauðsynjavöru. Í fyrr- nefndri menningarstefnu felst auk þessa viðurkenning á tónlist og tónlistariðnaði sem mikilvægri tekjuskapandi atvinnugrein sem ber að efla og hlúa að með bættu starfsumhverfi og sérstökum þró- unar- og útflutningssjóði. Síðastnefnda atriðið hefur reyndar verið eitt af fögrum fyr- irheitum núverandi ríkisstjórnar sl. tvö kjörtímabil sem, líkt og t.a.m. tónlistarhúsið hefur dagað uppi í dæmalausu dáðleysi. Þess í stað hefur ríkið kinnroðalaust inn- heimt af hverjum seldum geisla- diski virðisaukaskatt sem nemur a.m.k. tvöfalt hærri upphæð en þeir fá til skiptanna sem eyða vik- um og mánuðum við að semja, út- setja, flytja og hljóðrita viðkom- andi verk. Með nýrri menningarstefnu Samfylkingarinnar stendur þetta til umtalsverðra bóta. Sú stefna markar tímamót og er fagnaðar- efni þeim sem starfa á vettvangi sköpunar og lista og ekki síður öllu áhugafólki og velunnurum ís- lenskrar menningar og mennta. Því ber okkur að tryggja menning- arstefnu Samfylkingarinnar öruggt brautargengi í alþingis- kosningunum 10. maí næstkom- andi. Ný menningarstefna Samfylk- ingarinnar markar tímamót Eftir Jakob Frímann Magnússon „Því ber okkur að tryggja menning- arstefnu Samfylkingarinnar öruggt brautargengi í alþingiskosningunum.“ Höfundur er tónlistarmaður og skip- ar 7. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík, Suðurkjördæmi. ÞAÐ er ekki að ósekju að þessi fyr- irsögn er valin. Ofangreindan sunnu- dag um kl. 15.30 varð árekstur á Hellisheiðinni, nálægt þeim stað þar sem vegurinn liggur hæst. Þegar yfir lauk höfðu 16 bílar lent í árekstrinum, þar á meðal áætlunarbifreið og lög- reglubifreið. Tveir björgunarsveitar- menn, sem komið höfðu til aðstoðar við að flytja fólk niður af heiðinni, áttu fótum fjör að launa. Snögg við- brögð þeirra sjálfra björguðu þeim frá því að verða á milli bíla. Sama gilti um lögreglumenn á vettvangi. Þegar atburðarásin hófst var slæmt skyggni og vont veður, en það kom ekki í veg fyrir að ökumaður æki á nærri 70 kílómetra hraða framhjá umferðargreini Vegagerðarinnar skammt frá. Þessari grein fylgir út- prentun úr umferðargreininum sem sýnir hraða bifreiða og einnig vind- hraða á þeim stað. Eins og þú vænt- anlega tekur eftir, lesandi góður, mældist einn bíll aka á 76 km hraða á klukkustund kl. 15.32 þegar árekstr- arnir byrjuðu. Meðalhraðinn var hins vegar helmingi minni eða 38 km/klst. Vindhraði var 17 m/sek. Og vindhvið- an mældist 21–22 m á sek. Að sögn lögreglumanna og vegfarenda á árekstursstað sá vart út úr augum. Engu að síður má sjá af meðfylgjandi mynd, sem sýnir hraða einstakra bif- reiða, vindhraða og hraða vinds í mestu hviðum, að ástand veðurs versnaði og ökuhraði hélzt svipaður við umferðargreininn eftir tilkynn- inguna. Sú niðurstaða verður ein af þessu dregin, að ökumenn er óku um Hellis- heiði sunnudaginn 9. marz 2003 milli kl. 14 og 17, hafi ekki fylgt því boðorði umferðarlaganna að aka í samræmi við aðstæður, að minnsta kosti meiri hluti þeirra. Almenningur hrekkur illa við þegar fréttir um árekstur 16 bíla berast. Það er eðlilegt. Hið um- hugsunarverða í málinu er hve marg- ir telja sig geta ekið hratt þegar skyggni er lítið sem ekkert og taka þar með ekki tillit til annarra í um- ferðinni og valda sjálfum sér og öðr- um hættu, eins og glöggt kom í ljós. Vissulega fór betur en á horfðist í fyrstu, en búast má við því að eigna- tjón hafi vart orðið undir 10 milljón- um króna, auk minniháttar meiðsla, sem vonandi hafa ekki alvarlegar af- leiðingar. Hvað er þá til ráða? Ökumenn verða skýlaust að virða skyldur sínar samkvæmt umferðarlögum og aka í Svarti sunnudagurinn 9. marz 2003 Eftir Rögnvald Jónsson og Ólaf Helga Kjartansson „Margir telja sig geta ekið hratt þegar skyggni er lítið sem ekkert.“ Rögnvaldur er framkvæmdastjóri tæknisviðs Vegagerðarinnar og Ólafur Helgi er sýslumaður á Selfossi. Rögnvaldur Jónsson Ólafur Helgi Kjartansson samræmi við aðstæður samkvæmt 36. grein þeirra. Sú spurning vaknar hvort bregðast skuli við aðstæðum, sem þeim er þarna komu upp, með því að grípa til lokunar svo komið verði í veg fyrir stórslys. Það er óneitanlega hastarlegt, en með tilliti til þessa svarta sunnudags virðist fátt annað til ráða. En það má ekki gleyma því að margt fólk var í hættu statt, þótt svo vel hafi viljað til að í rútunni sem flutti mörg börn hafi verið bílbelti og þau öll bundin í sæt- um. Vegagerðin og lögreglan hafa í sameiningu skoðað atburðarásina við þennan árekstur og reynt að gera sér grein fyrir því hvað gerðist eins og að framan greinir og íhuga jafnframt viðbrögð til þess að koma í veg fyrir viðlíka slys í framtíðinni. En fyrst og femst er því beint til ökumanna að aka Hellisheiði, sem er einn fjölfarn- asti fjallvegur landsins, með varúð þegar veður og færð eru viðsjárverð. En skjótt skipast veður í lofti eins og dæmið hér að framan sannar. Akið ævinlega varlega á vegum úti. G Ú S T A HVERFISGÖTU 21 • SÍMI 552 8755 • FAX 562 3188 • www.fbm.is • fbm@fbm.is Sumir KOMAST ekki á aðalfund – EN HVAÐ MEÐ ÞIG? Aðalfundur FBM verður haldinn laugardaginn 12. apríl nk. á Grand Hótel v/Sigtún, kl. 10. Morgunkaffi er milli 9 og 10 og einnig verður boðinn matur í fundarhléi. o Aðalfundarmál og önnur mál. Nefndir sem fjallað hafa um aðild FBM að ASÍ og um nýtt nafn á FBM skila áliti. Reikningar, fundargerðir, tillögur um laga- breytingar og aðrar framkomnar tillögur liggja frammi á skrifstofu FBM frá og með 3. apríl 2003. Fyrir fundinum liggja lagabreytingar. Laugardagskaffi í Valhöll Fylgist með næstu fundum á xd.is Allir velkomnir Upplýsinga- og fræðslunefnd Sjálfstæðisflokksins heldur opna spjallfundi í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardags- morgnum fram að kosningum. Annar fundurinn verður á morgun, laugardaginn 8. mars, kl. 11.00. Gestur fundarins verður Davíð Oddsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Sími 515 1700 Upplýsinga- og fræðslunefnd Þriðji fundur verður á morgun, laugardaginn 15. mars, kl. 11 00. Gestur fundarins verður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir alþingismaður. Gestir á morgun kl. 11 verða Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra og Sigríður Anna Þórðardóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis. EES-samningurinn: Góður kostur fyrir Ísland
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.