Morgunblaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 18
AP Þjófar í Bagdad á leið burt með teppi sem þeir hafa rekist á í miðborginni. HÚS að minnsta kosti fimm ráðu- neyta í Bagdad og gamli markaður- inn í miðborginni voru í gær í ljós- um logum og víða í borginni virtist ríkja algert stjórnleysi og ring- ulreið, að sögn AFP-fréttastof- unnar. Brennandi bílaflök komu í veg fyrir að óbreyttir borgarbúar kæmust um stærstu brúna yfir Tígris. Ekki hefur verið fjarlægt sorp í tíu daga og vegna mikilla hita er daunninn mikill. Víða er ekkert rafmagn í Bagdad og fara ræningjahópar einkum á kreik eftir sólarlag, almennir borg- arar halda sig nú flestir innan dyra. Engir slökkviliðsmenn eða lög- reglumenn voru á ferli en í gær bár- ust fregnir af því að bandarískir hermenn hefðu fengið skipun um að reyna að halda uppi lögum og reglu. „Þeir stela öllu steini léttara,“ sagði bandaríski liðþjálfinn John Kelley í samtali við fréttamann AP. „Þegar ég kom fyrst hingað á stað- inn sagði ég að þeir stælu öllu nema eldhúsvaskinum. En þá leit ég við og sá einmitt mann rogast með vask.“ Annar hermaður sagði að svo mikið væri um rán og þjófnað að útilokað væri að hermennirnir gætu stöðvað athæfið. Þeir væru allt of fáir til þess, annar hermaður sagði að þjófar og spellvirkjar væru að valda meira tjóni en sjálft innrás- arliðið. Kona sem sagðist ekki þora að gefa upp nafn sagðist vona að bandarísku hermennirnir kæmu aftur á lögum og reglu. „Glundroð- inn kom okkur öllum á óvart. Allt er stjórnlaust. Við getum ekki sofið af því að við erum svo hrædd við að okkar eigið fólk ráðist á okkur.“ Einn þjófanna, Omar Amir, lauk deginum með því að stela nýrri dýnu sem hann fann á opinberri skrifstofu. „Mig vantar hana, ég á enga,“ sagði hann og brosti breitt. Fleiri þjófar sendu Bandaríkjaher- mönnum bros, létu byrði sína síga eitt andartak, drógu fingurinn yfir barkann með lýsandi hreyfingum og hvísluðu „Saddam“ en hurfu síð- an á brott með þýfið. Brotist var inn í hús Tariq Aziz, fyrrverandi aðstoðarforsætis- ráðherra, og eigur hans tættar í sundur. Þjófar sýndu hins vegar hvergi áhuga á að eignast ritsafn Saddams sem margir ráðamanna eiga á heimili sínu. Alþjóðanefnd Rauða krossins segir að æstur, vopnaður múgur hafi ráðist til inngöngu í sjúkrahús í Bagdad og látið greipar sópa. Var öllu lauslegu stolið, þar á meðal sjúkrarúmum, raftækjum og lækn- isáhöldum og jafnvel sjúkrabíl. Þá hafi orðið að loka fleiri sjúkra- húsum vegna ofbeldisverka og grip- deilda. Sagði talsmaður Rauða krossins að fólk þyrði ekki lengur að fara á sjúkrahús. Annar talsmaður Rauða krossins sagði að starfsaðstaða samtakanna hefði þó batnað frá því fyrr í vik- unni. Þá varð Rauði krossinn að hætta starfsemi sinni í borginni tímabundið eftir að kanadískur starfsmaður samtakanna var skot- inn. „Mig vantar hana, ég á enga“ Glundroði í Bagdad og þjófar og ræningjar stela öllu steini léttara AP Tvær konur með stolin húsgögn í Bagdad í gær. Múgurinn lét greipar sópa um opinberar byggingar og heimili fyrrverandi ráðamanna. AP Slasað barn sem verið er að flytja á al-Kindi-sjúkrahúsið í Bagdad. Reuters Karlmaður í fátækrahverfinu Sadd- amborg með hurð sem hann rændi á skrifstofu Baath-flokksins. Reuters Íraki í Bagdad gengur framhjá líki sem hulið hefur verið með teppi. ÖRUGGT er talið að a.m.k. 1.139 óbreyttir borgarar hafi fallið í átök- unum í Írak undanfarnar þrjár vik- ur, og sú tala kann reyndar að vera mun hærri. Erfitt er hins vegar að fjölyrða um heildartölu fallinna, þ.e. þegar liðsmenn íraska hersins eru taldir með, enda engar upplýsingar fyrir hendi um hversu margir tóku þátt í átökunum. Bardögum er ekki enn lokið í Írak en í gær var ljóst að 101 bandarísk- ur hermaður hafði fallið í átökunum. Um 30 breskir hermenn höfðu fallið. Þetta er skv. upplýsingum sem lágu fyrir í gærmorgun. Þegar rætt er um hversu margir Írakar féllu í stríðinu vandast hins vegar málið, enda ekki alltaf auðvelt að skera úr um hver er óbreyttur borgari og hver er hermaður. Í frétt The New York Times segir t.d. að starfsfólk sjúkrahúsa í Basra giski á að það hafi séð á bilinu 1.000 og 2.000 lík. Sum voru greinilega lík hermanna; þ.e. viðkomandi lík voru klædd einkennisbúningi. Jafnframt var stundum auðvelt að greina, að um óbreyttan borgara var að ræða; þ.e. um var að ræða konur, börn eða gamalmenni. Í öðrum tilfellum var svarið ekki eins augljóst; þannig bárust til spít- alans lík manna á herskyldualdri sem klædd voru fatnaði óbreyttra borgara. Vitað er hins vegar að sum- ir liðsmanna Lýðveldisvarðarins, sérsveita Írakshers, höfðu kastað herklæðum sínum í því skyni að leynast fyrir hersveitum banda- manna. Þá er ómögulegt að vita hversu margir íraskir hermenn hafa fallið. Bandaríkjaher segir að liðssveitir Írakshers í Bagdad hafi gjörtapað í bardögum í borginni. Einu sinni var talið að þessar sveitir teldu um tíu þúsund manna herlið og því vaknar spurningin hvar þessir hermenn séu núna. Eru þeir allir fallnir eða brast flótti í þetta lið? Hundruðum þúsunda íraskra hermanna breytt í duft? Mark Burgess, sem stundar rann- sóknir við Center for Defense In- formation í Washington, segir úti- lokað að giska á hversu margir Írakar hafa fallið. Hann segir að ofsalegar sprengjuárásir banda- manna hafi sennilega gert að dufti tugi ef ekki hundruð þúsund íraskra hermanna. Sumir hafi jafnframt brunnið eða séu grafnir í rústum húsa. Einnig er haldið úti vefsíðu, www.iraqbodycount.net, þar sem unnið er upp úr tölum um fjölda fall- inna borgara sem sagt hefur verið frá í hinum ýmsu fjölmiðlum, bæði á Vesturlöndum og í arabaheiminum. Í gær var talan sögð á bilinu 1.139 til 1.375 en umsjónarmenn síðunnar segja aðeins um tilkynnt dauðsföll hér að ræða, mjög líklegt sé að mun fleiri óbreyttir borgarar hafi týnt lífi í átökunum. Tala fallinna gæti skipt tugþúsundum Ljóst að á bilinu 1.139 og 1.375 óbreyttir borg- arar hafa fallið í átökum í Írak Washington. AFP. STRÍÐ Í ÍRAK 18 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.