Morgunblaðið - 11.04.2003, Qupperneq 24
SUÐURNES
24 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
UPPTAKA svokallaðrar fyrningar-
leiðar á kvóta sjávarútvegsfyrir-
tækja myndi leiða til þess að sjávar-
útvegurinn ætti sér enga framtíð
sem sjálfstætt rekin atvinnugrein
og fyrirtækin myndu verða gjald-
þrota, misfljótt eftir útfærslu. Eirík-
ur Tómasson, forstjóri Þorbjarnar-
Fiskaness hf. í Grindavík, byggir
þetta álit sitt á útreikningum á
áhrifum fyrningarleiðar á nokkur af
helstu sjávarútvegsfyrirtækjum
landsins.
Á aðalfundi Þorbjarnar-Fiska-
ness hf. í gær fögnuðu stjórnendur
og hluthafar besta rekstrarárangri í
sögu félagsins. Hagnaður síðasta
árs, eftir skatta, var rúmur millj-
arður, sem er 22,5% af tekjum.
Gengishagnaður af skuldum félags-
ins ræður þar mestu um. „Niður-
staða ársins í heild er félaginu mjög
hagstæð. Hagnaður hefur aldrei
verið meiri, framlegð rekstrar og
veltufé frá rekstri með því besta
sem gerist, í hlutfalli við tekjur, og
ávöxtun eigin fjár var mjög góð,“
sagði Eiríkur Tómasson forstjóri í
skýrslu sinni til aðalfundarins.
Fundurinn samþykkti að greiða
hluthöfum 17% arð af nafnverði
hlutafjár en á síðasta ári var greidd-
ur út 8% arður.
Hins vegar kom fram hjá for-
stjóranum að horfur í rekstri fyrir
áriði 2003 væru lakari en var í upp-
hafi síðasta árs. Nefndi hann styrk-
ingu krónunnar og veikingu mark-
aða fyrir afurðir félagsins. Þó er
reiknað með að reksturinn skili
hagnaði á árinu.
Fyrning er þjóðnýting
Eiríkur fjallaði mikið um um-
hverfi sjávarútvegsins og gagnrýndi
harðlega hugmyndir sem eru uppi
um breytingar á kvótakerfinu.
Nefndi hann tillögur frá landsfundi
Sjálfstæðisflokksins um að byrja að
reyna sóknarmark á ný, með sér-
stakri ívilnun dagróðrabáta sem róa
með línu. Einnig gagnrýndi hann
úthlutun byggðakvóta.
Eiríkur gagnrýndi harkalega
hugmyndir Samtaka iðnaðarins,
Samfylkingarinnar og Vinstri
grænna um upptöku svokallaðrar
fyrningarleiðar kvóta og birti út-
reikninga sína á áhrifum hennar á
rekstur sjávarútvegsfyrirtækja.
„Rökin hjá flutningsmönnum þess-
arar aðferðar eru alltaf þau sömu
[...] af því að einhver hefur selt
veiðiheimildir þá skuli refsa þeim
sem eftir eru og keyptu af þeim sem
seldu, með því að skattleggja þá eða
svipta þá veiðiheimildum á skipuleg-
an hátt og selja frá ríkinu á ný. Það
á að hengja bakara fyrir smið, enn
einu sinni. Þetta er þjóðnýting eins
og tíðkaðist í einræðisríkjum sósíal-
ismans.“
Í útreikningum sínum á áhrifum
fyrningarleiðar tekur Eiríkur með-
alútkomu rekstrar fjögurra stórra
sjávarútvegsfyrirtækja undanfarin
þrjú ár, sem hann segir að hafi ver-
ið mjög góð ár, og miðar við að fyr-
irtækin kaupi alltaf þá aflahlutdeild
sem þau væru svipt árlega, á verði
sem er heldur lægra en var um síð-
ustu áramót. Við þetta kemur í ljós,
að hans mati, að sjávarútvegurinn á
sér enga framtíð, sem sjálfstætt
rekin atvinnugrein, verði þessari að-
ferð beitt. Framlegð rekstrar verð-
ur í flestum tilvikum neikvæð og að-
ferðin leiðir mishratt til gjaldþrots
fyrirtækjanna, eftir því hvort miðað
er við 5, 10 eða 20% fyrningu á ári.
„Það er alger nauðsyn að sjávar-
útvegur fái að búa við stöðugleika í
pólitísku umhverfi, nógu mikill er
óstöðugleikinn sem búa verður við
hvað varðar gengisskráningu, og
einnig á atvinnugreinin í harðri
samkeppni á markaði með vörur
sínar. Eilífar umræður um að
breyta þurfi starfsumhverfinu, taka
atvinnuréttinn af þeim sem stunda
atvinnurekstur í sjávarútvegi [...]
taka athygli starfsmanna og stjórn-
enda í sjávarútvegi frá því sem ætti
að vera aðalatriðið, sem er upp-
bygging fyrirtækjanna, að tryggja
starfsöryggi starfsmanna og sam-
keppnin um sölu afurðanna á er-
lendum mörkuðum,“ sagði Eiríkur.
Eiríkur Tómasson vill að útvegurinn búi við stöðugleika í pólitísku umhverfi
Fyrningarleið myndi gera
fyrirtækin gjaldþrota
Árni Vilhjálmsson, stjórnarformaður Granda, og Tómas Þorvaldsson, sem
lengi stýrði Þorbirni hf., ræða saman við upphaf aðalfundarins í gær.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Eiríkur Tómasson flytur aðalfundi Þorbjarnar-Fiskaness hf. skýrslu.
Grindavík
NÁNARA samstarf Þorbjarnar-
Fiskaness og Granda myndi
styrkja fyrirtækin til að takast á
við framtíðina, segir Eiríkur Tóm-
asson forstjóri Þorbjarnar-
Fiskaness hf.
Á aðalfundi félagsins í gær
mættu fulltrúar Granda hf. í
fyrsta skipti sem stórir hluthafar.
Þeir komu inn í fyrirtækið fyrir
nokkrum mánuðum með kaupum
á 24% eignarhlut og er Grandi nú
stærsti einstaki hluthafinn. Þór-
arinn Þ. Jónsson stjórnarformaður
rakti þær miklu breytingar sem
orðið hafa á hluthafahópnum og
bauð Grandamenn velkomna.
Á fundinum tók Kristján Lofts-
son, stjórnarmaður í Granda, sæti
í stjórn Þorbjarnar-Fiskaness í
stað Stefáns Kristjánssonar sem
ekki gaf kost á sér til endurkjörs.
Áfram eru í stjórn Þórarinn Þ.
Jónsson formaður, Gunnar Tóm-
asson varaformaður, Árni Magn-
ússon og Ólafur Rögnvaldsson.
Eiríkur Tómasson forstjóri
sagði í skýrslu til fundarins að í
kjölfar eignaraðildar Granda hefði
tekist ágætis samstarf milli fyr-
irtækjanna. Þannig hefðu þau átt
viðskipti með hráefni til vinnslu í
vetur, báðum til hagsbóta.
„Hverju fram vindur um nánara
og meira samstarf verður tíminn
að leiða í ljós, en ég minni á að
það hefur verið stefna eigenda
Þorbjarnar-Fiskaness að stækka
frekar [...] og við höfum verið
reiðubúnir að skoða samstarf og
jafnvel sameiningu, ef það horfir
til styrkingar starfsemi félagsins
hér í Grindavík og á Suðurnesjum,
og jafnvel víðar, því að stækkandi
fyrirtæki í sjávarútvegi eru í
auknum mæli með starfsemi á
mörgum stöðum á landinu. Það er
ekkert launungarmál að nánara
samstarf Þorbjarnar-Fiskaness og
Granda myndi færa eigendum
þessara félaga mun sterkara fyr-
irtæki til að takast á við framtíð-
ina saman, en til þess þarf að ná
samkomulagi um mörg megin-
atriði, og má segja að ekki hafi
reynt á það ennþá, en mjög góður
andi er í samskiptum stjórnenda
félaganna,“ sagði Eiríkur.
Nánara sam-
starf myndi
styrkja
fyrirtækin
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
hefur fallist á hugmyndir lækna hjá
Heilsugæslunni í Reykjavík um að
veita tímabundna læknisþjónustu
við heilsugæslustöðvar á Suðurnesj-
um. Ráðuneytið hafnar þó hug-
myndum sem verið hafa uppi um að
stjórnun og rekstur heilsugæslu-
stöðvanna verði færð undir Heilsu-
gæsluna í Reykjavík.
Í bréfi til Heilsugæslunnar í
Reykjavík fellst Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra á tillögur
heilsugæslulækna í Reykjavík um
tímabundna þjónustu þeirra við
heilsugæslu á Suðurnesjum en eins
og kunnugt er hafa ekki fengist
heimilislæknar til starfa eftir að
læknarnir þar sögðu upp störfum á
síðasta ári. Ráðherra setur þó þau
skilyrði fyrir samþykki sínu að ein-
ungis verði um læknisþjónustu að
ræða en ekki þjónustu annarra heil-
brigðisstarfsmanna og að um verði
að ræða verktakasamning milli
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og
Heilsugæslunnar. Einnig að eftirlit,
samhæfing og yfirstjórn þjónust-
unnar verði á hendi þriggja manna
ráðs sem skipað verði fulltrúa ráðu-
neytisins, forstjóra Heilsugæslunn-
ar í Reykjavík og framkvæmda-
stjóra Heilbrigðisstofnunar Suður-
nesja.
Með þessum skilyrðum hafnar
ráðherra skilyrðum lækna um
breytta stjórnun og rekstur heilsu-
gæslunnar á Suðurnesjum. Í sam-
tali við Morgunblaðið tekur ráð-
herra fram að framkvæmdastjóri
og annað starfsfólk Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja njóti fulls
trausts ráðuneytisins.
Hafnar skilyrðum lækna
Keflavík
FYRSTA ferð ársins með hvala-
skoðunarskipinu Moby Dick var
farin frá Keflavík í fyrradag.
Ferðin heppnaðist vel, farþeg-
arnir sáu hvali og höfrunga.
Að sögn Helgu Ingimundar-
dóttur sem gerir út Moby Dick er
hvalurinn venjulega kominn í
Garðsjó í lok mars eða byrjun apr-
íl og hefjast hvalaskoðunarferð-
irnar venjulega í fyrrihluta apríl-
mánaðar. Í fyrstu ferðinni ár var
hópur Breta sem var í dagsferð
hér á landi og franskir skóla-
krakkar. Helga segir að ferðin
hafi heppnast vel. Mikið líf væri í
Garðsjó, mikið súlukast væri til
sannindamerkis um það. Enda sáu
gestirnir í ferðinni bæði hval og
höfrunga, meðal annars langreyði.
Að sögn Helgu eru bókanir í
hvalaskoðunina svipaðar og und-
anfarin ár, en þó sérstaklega góð-
ar fyrir fyrri hluta sumarsins.
Farþegar í fyrstu hvalaskoðunarferð ársins ganga um borð í Moby Dick.
Hvalir og höfrungar
sáust í fyrstu ferð
KeflavíkBERGUR Örn Gunnarsson hefur
verið kjörinn nýr formaður Nem-
endafélags Fjölbrautaskóla Suður-
nesja. Úrslit í kjörinu hafa verið
kynnt á vef NFS.
Nýja stjórnin tekur við 15. júlí.
Með Bergi í stjórn verða: Sigrún
Lilja Gunnarsdóttir varaformaður,
Jóhann Már Smárason gjaldkeri,
Gunnar Skjöldur Baldursson ritari,
Ari Ólafsson formaður skemmti-
nefndar og Brynjar Ólafsson for-
maður íþróttaráðs.
Ný stjórn
NFS
Keflavík