Morgunblaðið - 11.04.2003, Qupperneq 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 37
ég kveð ástkæran frænda og fóstur-
bróður.
Hann var fæddur í litla húsinu á
Bökkunum, inni á milli fagurra fjalla,
nærri því niðri í flæðarmáli, þar sem
hjatrahlýjan var næg og ekkert kyn-
slóðabil var til. Í því húsi fæddust
flest börn þeirra Albertssystra. Þar
tók á móti honum hún amma hans,
Guðný, konan sem hann bar alla tíð
mikla virðingu fyrir og sagði ótal sög-
ur af, konan sem ól upp mörg barna-
börn sín, konan sem sauð grös og að-
stoðaði marga, konan með sterka
persónuleikann, konan sem las mikið,
konan sem hafði tíma fyrir börnin.
Allt þetta og margt annað lærði
Kalli af ömmu sinni, hún mótaði hann
í æsku.
Það var ekki úr mörgu að spila á
hans uppvaxtarárum, en hann var al-
inn upp hjá henni en eftir að hún lést
tóku þær við móðursystur hans, þær
Maggý og Dísa Alberts.
Elskuleg móðir hans Jónína eign-
aðist fjögur börn og voru þau að
mestu leyti alin þarna upp, en Jónína
var sjúklingur alla tíð, en unni börn-
um sínum og barnabörnum mjög
heitt.
Það var gaman þegar Kalli var að
rifja upp gamla tíma í húsinu og hef
ég tekið saman nokkrar sögur og var
meiningin að láta hann lesa yfir það
með vorinu, en það verða bara aðrir
að gera það að þessu sinni.
Ég man þegar ég var smástelpa,
en þá var Kalli unglingur og ég var
eins og litla systir sem auðvitað var
að þvælast fyrir unga stráknum, hvað
ég leit upp til stráksins, hann var allt-
af í fótbolta eða frjálsum íþróttum, í
öllum félögum, svo ég tali nú ekki um
leikfélagið. Hann var mikill félags-
málamaður alla tíð og lagði mikið til
samfélagsins í þeim málum.
Það var spennandi að fylgjast með
þegar Kalli var kominn með kærustu,
sem hann sótti til Suðureyrar, þessa
yndislegu konu Sigríði. Ekki leið á
löngu að börnin kæmu, þau sem
fæddust hér fyrir vestan, Friðbert,
Jónína og Margrét, en eftir að þau
fluttust suður komu Karl, Hörður, og
Birgir. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að fá að vera barnapía hjá þeim
hér vestra, enda var heimilið hjá
þeim mitt annað heimili.
Það urðu mikil viðbrigði fyrir okk-
ur ömmu eftir að þau fluttu suður, þá
var það eins og nú, erfitt að sjá eftir
hluta af fjölskyldu sinni flytja burt.
En tengslin rofnuðu ekki, alltaf var
tryggðin fyrir hendi hjá Kalla og
sambandið við ömmu sem nú er ein
eftir af hans móðursystkinum mjög
sterkt og hefur það alla tíð verið.
Það koma ótal minningar upp í
hugann frá liðnum árum, en þær ætla
ég að geyma vel. Við áttum það sam-
eiginlegt að vera alin upp hjá ömmum
okkar í litla húsinu með góðu sálinni.
Fyrir þær stundir vil ég aðeins
þakka. Amma biður fyrir sérstakar
kveðjur og þakklæti fyrir traustið og
að halda uppi sterka þrjóska per-
sónuleika ættarinnar. Bestu kveðjur
frá Gunnlaugi og börnunum mínum.
Hafðu þökk fyrir allt. Minningin
um góðan dreng lifir.
Þín
Kristjana Sigurðar.
Fyrir 50 árum kynntumst við Al-
bert Karl Sanders. Það var í aðdrag-
anda alþingiskosninganna 1953.
Kosningabarátta þá eins og nú. Við
vorum ungir sjálfstæðismenn hvor í
sinni heimabyggð, hann á Ísafirði og
ég í Hafnarfirði og störfuðum á kosn-
ingaskrifstofum. Í nærri tvo mánuði
vorum við í nánu sambandi og aðstoð-
uðum hvor annan, því að mikið var í
húfi. Við ætluðum að tryggja þing-
setu frambjóðenda okkar, þeirra
Kjartans J. Jóhannssonar og Ingólfs
Fygenrings. Það tókst og Sjálfstæð-
isflokkurinn fékk víða góða kosningu.
Þegar kosningunum var lokið höfð-
um við Albert Karl bundist vináttu-
böndum sem styrktust eftir því sem
tímar liðu og ævinlega fagnaðarfund-
ir þegar við hittumst.
Albert Karl var ungur valinn í for-
ystusveit sjálfstæðismanna á Ísafirði,
liðlega tvítugur, og í bæjarstjórn sat
hann 1954 – 62. Til forystu valinn í
fjölmörgum félagssamtökum þar
vestra, þar á meðal Samtökum
íþróttamanna enda íþróttamaður
góður.
Árið 1962 bregður Albert búi og
flytur frá Ísafirði á syðri byggð til
Njarðvíkur. Það var mikill fengur
fyrir okkur sjálfstæðismenn í
Reykjaneskjördæmi að fá Albert og
fjölskyldu hans til liðs við okkur.
Hann var fljótt kominn í hóp dugmik-
illa ungra athafnamanna í Njarðvík
og var valinn til forystu í Sjálfstæð-
isflokknum. Hann gegndi störfum
bæjarstjóra í 12 ár frá 1974–86 auk
þess sem honum voru falin fjölmörg
trúnaðarstörf í félagsmálum á Suð-
urnesjum. Ólatur var vinur minn Al-
bert að sinna störfum fyrir okkur
sjálfstæðismenn sem formaður full-
trúaráðs og varaformaður í kjör-
dæmisráði. Það var mér afar mikill
styrkur í oft erfiðum störfum að eiga
minn gamla vin sem samverkamann
og ráðgjafa. Hann sagði óhikað skoð-
anir sínar, var hreinskiptinn, ráðholl-
ur og honum mátti alltaf treysta.
Þegar nú er komið að leiðarlokum
og Albert Karl Sanders er kvaddur
þakka ég honum samfylgdina og vin-
áttu við mig og mína. Biðjum við hon-
um Guðs blessunar á landi lifenda.
Eiginkonu hans Sigríði og fjölskyldu
þeirra sendum við samúðarkveðjur.
Matthías Á. Mathiesen.
Það var í kringum 1955 að ég var á
gangi niður Hafnarstrætið á Ísafirði
með föður mínum að kvikk og hressi-
legur maður vatt sér að okkur og
spurði tíðinda. Þessi maður varð mér
eftirminnilegur fyrir mjög skarpa
andlitsdrætti. Hann talaði hratt, var
með miklar skoðanir og hafði leikara-
legt yfirbragð. Þetta var Alli Kalli
eins og allir þekktu hann á Ísafirði.
Hann vann þá hjá Ísfirðingi hf. en
faðir minn var þar skipstjóri.
Hann fluttist nokkrum árum
seinna eins og fleiri ungir efnilegir Ís-
firðingar til Njarðvíkur á vit nýrra
ævintýra.
Það er þannig með Vestfirðinga að
það er sama hvar þeir eru, alls staðar
eru þeir fyrirferðarmiklir og stoltir af
uppruna sínum og standa saman.
Rætur okkar beggja eru frá Ísafirði
og konurnar okkar báðar frá Súg-
andafirði. Það gat því ekki farið hjá
því að þegar kom til tals að fjölskyld-
an flyttist til Njarðvíkur árið 1990 að
ég talaði við Alla Kalla og Siggu. Alli
Kalli hafði leitt Njarðvíkurbæ farsæl-
lega sem bæjarstjóri í áraraðir og fór
ekki á milli mála hver réð þar sem
hann var annars vegar. Það var ekki
að því að spyrja að þau hjónin tók
mér og minni fjölskyldu einstaklega
vel og greiddu götu okkar eftir föng-
um. Hann hafði eins og áður miklar
skoðanir á málunum og lá ekki á þeim
og talaði hátt. Alli Kalli var mjög póli-
tískur maður og mikill sjálfstæðis-
maður þó hann væri ekki alltaf sam-
mála forustunni. Þegar ég var
kominn á þing bað hann mig gjarnan
um skilaboð til forustunnar ef leið-
rétta þurfti kúrsinn. Hann var trúr
sannfæringu sinni en lét þó réttlæt-
iskenndina ráða þegar kom að því að
velja á milli flokks og fólks. Þannig
gat hann talað af mikilli virðingu um
pólitíska andstæðinga. Þessi hæfi-
leiki hans kom honum að miklum not-
um þegar hann var fenginn til að
stjórna Njarðvíkurbæ með vinstri
meirihluta. Leiðir okkar lágu saman
á ýmsum sviðum fyrir utan stjórn-
málin en við vorum m.a. saman í
Lions. Ég leitaði oft til Alla Kalla um
ráð og var það ávallt auðsótt. Það er
skarð fyrir skildi þegar þessi ágæti
vinur er allur allt of fljótt. Hann
studdi mig heilshugar í því sem ég
taldi rétt að gera í sviptingum stjórn-
málanna og fyrir það var ég honum
mjög þakklátur. Kynni við hann
gerðu mig að betri manni. Drottinn
blessi minningu þessa mæta manns.
Kristján Pálsson.
Fleiri minningargreinar um Al-
bert Karl Sanders bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ZHI LAN WANG,
Hafnargötu 58,
Keflavík,
lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi við Hring-
braut laugardaginn 5. apríl sl.
Útför hennar fer fram frá Neskirkju laugardag-
inn 12. apríl kl. 13.00.
Jóhannes Karl Jia, Rannveig Hallvarðsdóttir,
Sufen Jia, Qing Hua Tang,
Jun Shu Jia, Jóhannes Valdemarsson,
Rui Jia, Zhang Wei,
Shu Qin Jia, Chang Jun Sui,
Jens Beining Jia, Sóley Guðbjörnsdóttir,
Sui Xin,
Tang Yue, Wu Jin,
Xi Bei Zhang,
Anna Jia,
Amanda Beiningsdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
fóstri, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR YNGVI KRISTINSSON
frá Löndum í Vestmannaeyjum,
Breiðvangi 8,
Hafnarfirði,
lést á St. Jósefsspítala Hafnarfirði þriðjuda-
ginn 8. apríl.
Guðbjörg Bergmundsdóttir,
Kristinn Þórir Sigurðsson, Ásta Úlfarsdóttir,
Bergmundur Helgi Sigurðsson, Ingibjörg Sigurjónsdóttir,
Bergmundur Elli Sigurðsson, Ólöf Helga Júlíusdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON
(Wilfried Hans-Günther Steinmüller),
Suðurhólum 16,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
mánudaginn 7. apríl.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn
22. apríl kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Vísindasjóð Landspítala-háskólasjúkrahúss í Landsbanka Íslands, bankanr.
0139-15-372459, kt. 621101-2180.
Erna Fjóla Baldvinsdóttir,
Emma Vilhjálmsdóttir, Aðalsteinn Guðmundsson,
Þóra Rannveig Aðalsteinsdóttir,
Ragnheiður Vilhjálmsdóttir, Georg Pétur Sveinbjörnsson,
Steinar Ingi Vilhjálmsson, Þuríður Sigurðardóttir,
Ágúst Þór Vilhjálmsson, Kristjana Adda Ingvarsdóttir,
Linda Ósk Vilhjálmsdóttir, Guðlaugur Magnús Pétursson,
barnabörn og langafabarn.
Eiginmaður minn,
KJARTAN MARKÚSSON,
Sólvangsvegi 3,
Hafnarfirði,
lést á Sólvangi fimmtudaginn 10. apríl.
Guðrún Guðmundsdóttir.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför systur
okkar,
JENNÝJAR GUÐLAUGSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á dvalar-
heimilinu Hlíð fyrir góða umönnun.
Systkini og fjölskyldur þeirra.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærrar dóttur okkar,
unnustu, móður og systur,
ÖNNU MARÍU ÓLAFSDÓTTUR,
Melasíðu 4,
Akureyri.
Það hefur verið okkur mikill styrkur að finna
kærleikann sem hvarvetna hefur mætt okkur.
Guð blessi ykkur öll.
Ólafur Haraldsson,
Inga Lára Bachmann,
Árni Friðriksson,
Róbert S. Steindórsson,
Katrín Ólafsdóttir.
Hjartans þakkir fyrir alla þá vináttu og hlýhug,
sem okkur hefur verið sýndur við andlát og
útför okkar yndislega sonar og bróður,
HAUKS BÖÐVARSSONAR,
Baldursbrekku 6,
Húsavík.
Böðvar Bjarnason, Íris Víglundsdóttir,
Bjarni Böðvarsson,
Símon Böðvarsson.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma
SIGRÍÐUR KRISTINSDÓTTIR,
Víðilundi 24,
Akureyri,
lést á Kristnesspítala, Eyjafirði, þriðjudaginn
8. apríl.
Útförin hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 15. apríl kl. 13.30.
Sigurjóna Jónsdóttir,
Sóley Guðmundsdóttir, Kristinn Einarsson,
Sigurður Indriðason,
barnabörn og barnabarnabörn