Morgunblaðið - 11.04.2003, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Afmælisbarn dagsins er
spakt, nærgætið og háttvíst.
Það kýs ekki að vera mið-
depill athygli en innlegg
þess skiptir alltaf miklu
máli. Það fer létt með að axla
ábyrgð og það er góður
sáttasemjari.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Farðu varlega í samskiptum við
börn og ástvini þína og ræddu
ekki um fjármál. Óraunhæfar
væntingar valda vonbrigðum og
pirringi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér finnst þú þurfa að bjarga
einhverjum í dag. Gæti átt við
foreldri eða skyldmenni. Nauð-
synlegt er að vera góðgjarn en
láttu ekki hafa þig að ginning-
arfífli.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þrætur við fólk á bak við tjöldin
valda þér hugarangri í dag,
samræður þínar við aðra verða
eins og tvö skip sem mætast í
myrkri.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ekki rétti dagurinn til að ræða
um peninga eða lána ein-
hverjum, eða taka að láni.
Væntingar fólks almennt, þínar
líka, eru of miklar í dag.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Löngun þín til að rétta ein-
hverjum hjálparhönd gæti
dregið dilk á eftir sér. Ásetn-
ingur þinn er góður en þú getur
ekki verið öllum allt, sýndu
raunsæi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Samskipti við vinnufélaga eru
ekki nógu góð í dag, annað
hvort ertu rangtúlkaður eða
stórlega misskilin(n). Það þýðir
þó ekki að þú hafir haft rangt
fyrir þér.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Misskilningur milli þín og vina
þinna eða elskenda er líklegur í
dag og tilfinningar fólks má
auðveldlega særa um þessar
mundir, allir eru viðkvæmir.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er auðvelt að láta hugfallast
í dag, og jafnvel að líða minni
máttar. Láttu samt ekki hug-
fallast því annars gæti gott
tækifæri farið forgörðum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú skalt ekki ræða alvarleg
málefni við vini og félaga í dag,
alltént ekki er varða tilfinningar
fólks, því það er auðvelt að mis-
skilja meiningar manna nú.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú þarft að gæta þín á því að
spilla ekki börnum í dag þótt
freistingar stefni í þá veru. Þú
vilt sýna örlæti en gerðu það
ekki heimskulega.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vertu á léttu nótunum við sam-
starfsmenn í dag, ekki ræða al-
varleg málefni. Það á líka við
um samband þitt við fjölskyld-
una. Fólk er viðkvæmt um þess-
ar mundir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Leggðu áherslu á að vera skýr-
mælt(ur) við aðra í dag, notaðu
innsæið, það mun reynast vel.
Ef þú ert ekki viss er hins vegar
betra að þegja.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁRNAÐ HEILLA
ERLA, GÓÐA ERLA
Erla, góða Erla!
Ég á að vagga þér.
Svíf þú inn í svefninn
í söng frá vörum mér.
Kvæðið mitt er kveldljóð,
því kveldsett löngu er.
Úti þeysa álfar
um ísi lagða slóð.
Bjarma slær á bæinn
hið bleika tunglskinsflóð.
Erla, hjartans Erla,
nú ertu þæg og góð.
Stefán frá Hvítadal
LJÓÐABROT
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6 6. Be3
Bg7 7. f3 Rc6 8. Dd2 O-O 9.
Bc4 Rd7 10. O-O-O Rb6 11.
Bb3 Ra5 12. Dd3 Bd7 13.
Kb1 Hc8 14. g4 Rac4 15. h4
Re5 16. De2 a5 17. h5 a4
Staðan
kom upp á
Dos Her-
manas-
mótinu sem
lauk fyrir
skömmu á
Spáni. Alexei
Shirov
(2723) hafði
hvítt gegn
Sergei Tivj-
akov (2635).
18. hxg6!
axb3 svartur
yrði mát eftir
18... hxg6 19.
Dh2 He8 20.
Dh7+ Kf8
21. Bh6. Í framhaldinu reyn-
ast færi hvíts of mikil fyrir
manninn. 19. gxh7+ Kh8 20.
cxb3 e6 21. f4 Rc6 22. Rdb5
d5 23. Df2 Ra8 24. Bc5 Re7
25. f5 f6 26. exd5 e5 27. Rd6
Hc7 28. Rde4 Hc8 29. d6
Rc6 30. Rd5 Hf7 31. g5 Rd4
32. Bxd4 exd4 33. gxf6 Bxf6
34. Rexf6 Hxf6 35. Dxd4
Bxf5+ 36. Ka1 og svartur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 11. apr-
íl, er sextugur Arnar Björg-
vinsson, Skúlagötu 68,
Reykjavík.
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 11. apr-
íl, ganga tugirnir 5 í garð
hjá Þórhildi Ólafsdóttur á
Hrauni. Þórhildur mun
ásamt eiginmanni sínum,
Hannesi Sigurðssyni, taka á
móti ættingum, vinum og
samstarfsmönnum á liðnum
árum, í Hafinu bláa við ósa
Ölfusár frá kl. 19–21.
FYRST þegar tölvan tók
við hendinni að dreifa spil-
um keppnismanna komst
sá kvittur á kreik að tölvu-
gjöfin væri óeðlilega villt –
alltof mikið væri af skipt-
ingarspilum og blönkum
kóngum. Stærðfræðilega
sinnaðir spilarar sýndu
fram á það með tölulegum
rökum að tölvugjöfin væri
réttari en handgjöfin, en
reynsluboltarnir stóðu
fastir á sínu og sögðu tölv-
una kolvitlausa. Þessi deila
er 30 ára gömul og minnir
um margt á ágreining sjó-
manna og fiskifræðinga
um stærð þorskstofnsins. Í
bridsheiminum hafa fræð-
ingarnir orðið ofan á og
núorðið heyrist sjaldan
kvartað undan tölvugjöf-
inni, en þó var undantekn-
ing þar á eftir fimmtu um-
ferð Íslandsmótsins í
Borgarnesi. Þá var eins og
tölvan trylltist.
Austur gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ K
♥ D1093
♦ G98642
♣52
Vestur Austur
♠ 93 ♠ G1084
♥ KG54 ♥ 8762
♦ D1075 ♦ ÁK3
♣863 ♣D7
Suður
♠ ÁD7652
♥ Á
♦ –
♣ÁKG1094
Þetta er eitt af ævintýr-
um 5. umferðarinnar. Hin-
ir heppnu suðurspilarar
áttu erfitt með að velja
opnunarsögn. Sumir
Standard-spilarar þorðu
ekki annað en vekja á al-
kröfu, tveimur laufum, en
aðrir kustu að byrja ró-
lega á einum spaða. Hætt-
an við spaðaopnunina er
auðvitað sú að makker
passi, en í þessu tilfelli á
hann rétt nóg til að
kreista fram svar á
grandi. Og hvað á suður
þá að gera? Sumir höfðu
kerfið til að krefja, en hin-
ir létu einfaldlega vaða í
sex lauf! Norðri var nokk-
uð brugðið, en hann lum-
aði þó á einu góðu spili –
spaðakóngnum. Sjö lauf
vinnast með því að stinga
einn spaða í borði, en ekk-
ert par spilaði sjö. 24 pör
spiluðu hálfslemmu í laufi
eða spaða, 13 pör létu
geimið duga, en 3 pör
stönsuðu í bút, nánar til-
tekið í einum spaða! Þarf
að taka það fram – að suð-
ur opnaði á einum spaða
og var skilinn þar eftir.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 11. apr-
íl, verður fimmtugur Þórður
Kristjánsson, skólastjóri í
Seljaskóla, Bræðraborg-
arstíg 12, Reykjavík. Þórð-
ur og eiginkona hans, Ásta
Einarsdóttir, ætla að verja
afmælisdeginum í Portúgal.
MEÐ MORGUNKAFFINU
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninganna
10. maí er hafin. Kosið er hjá sýslumönnum og hreppstjórum
um land allt, sendiráðum og mörgum ræðismönnum erlendis.
Í Reykjavík er kosið í Skógarhlíð 6, virka daga frá kl. 9-15.30
og laugardaga og sunnudaga frá kl. 10-14.
Utankjörstaðaskrifstofan veitir allar upplýsingar og aðstoð við
kosningu utan kjörfundar. Einnig er hægt að nálgast upplýs-
ingar á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins www.xd.is og á upplýs-
ingavef dómsmálaráðuneytisins www.kosningar2003.is.
Sjálfstæðisfólk! Látið okkur vita um
stuðningsmenn sem ekki verða heima á kjördag,
t.d. námsfólk erlendis.
Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæð,
105 Reykjavík – Símar 515 1735 og 515 1736
Bréfasími 515 1739 – Farsími 898 1720
Netfang: oskar@xd.is
Stuttar og síðar kápur
sumarúlpur, heilsársúlpur,
regnúlpur, ullarjakkar,
hattar og húfur
Opið virka daga frá kl. 9-18
Laugardaga frá kl 10-15
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Sími 588 4422 – www.hm.is
Toppur
Margir litir
St. 32/34-
48/50
Kr. 860