Morgunblaðið - 15.04.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.04.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Hrafnkeli A. Jónssyni, formanni stjórnar Líf- eyrissjóðs Austurlands. Þar kemur m.a. fram að hann hefur ákveðið að víkja úr stjórn á næsta fulltrúaráðs- fundi 26. maí nk.: „Að gefnu tilefni vil ég að eftirfar- andi komi fram. Sem fulltrúi AFLs stéttarfélags í stjórn Lífeyrissjóðs Austurlands hef ég lagt kapp á að upplýsa stjórnarmenn í stéttarfélög- unum á Austurlandi um málefni líf- eyrissjóðsins. Þetta hef ég gert með því að skýra frá gangi mála á fundum og í samtölum við einstaka stjórnar- menn. Af þeirri ástæðu kom mér á óvart þegar Jón Ingi Kristjánsson, formað- ur Afls, segir í samtali við Fréttablað- ið að á aðalfundi Alþýðusambands Austurlands í næsta mánuði verði ákveðið með hvaða hætti stjórn lífeyr- issjóðsins verði kölluð til ábyrgðar fyrir meinta óráðsíu. Þetta orðaval vekur athygli en ekki síður að Jón Ingi gerir enga tilraun til að útskýra fyrir blaðamanninum m.a. það að stjórnarmenn LAUST hafi reglulega skýrt honum og öðrum stjórnar- mönnum Afls, Vökuls og ASA frá gangi mála. Í Morgunblaðinu 10. apríl sl. var stjórnarmönnum, framkvæmdastjóra og endurskoðanda Lífeyrissjóðs Austurlands birt ákæra vegna refsi- verðs athæfis í meðferð eigna Lífeyr- issjóðs Austurlands. Þar var því beint til ríkissaksóknara að látin yrði fara fram opinber rannsókn vegna með- ferðar fyrrgreindra aðila á sjóðnum. Ekki þótti ástæða til að upplýsa þá einstaklinga sem hlut eiga að máli um ákæruna. Þess í stað virðist hún hafa verið send Morgunblaðinu og afrit til ríkissaksóknara. Hinir ákærðu þurftu að kaupa Morgunblaðið til að fá frétt- ir af ákærunni. Ég verð að lýsa undrun minni á þessari málsmeðferð og hlýt að álykta að eitthvað annað en hagsmunir Líf- eyrissjóðs Austurlands og sjóðfélaga þar liggi að baki þessum vinnubrögð- um. Ég hef ásamt öðrum stjórnar- mönnum í Lífeyrissjóði Austurlands og samstarfsaðilum í Kaupþingi hf. unnið sleitulaust undanfarna mánuði við að verja sjóðinn áföllum og ég tel að við höfum náð að sigla honum út úr þeim brimgarði sem hann hefur verið í. Í dag teljum við að Lífeyrissjóður Austurlands sé kominn á lygnan sjó. Það hefur ekki tekist áfallalaust. Það þarf að skerða lífeyrisréttindi, það harma ég, en tel að önnur leið hafi ekki verið fær þannig að framtíðin verði tryggð enda um lagaskyldu að ræða þegar svo er komið sem er í dag. Með tilliti til þess sem hér hefur komið fram tel ég að hagsmunum Líf- eyrissjóðs Austurlands sé best borgið með því að ég hverfi úr stjórn sjóðs- ins. Ég lýsi því hér yfir að ég mun víkja úr stjórn á næsta fulltrúaráðs- fundi 26. maí nk. og óska eftir því að Afl stéttarfélag kjósi aðalmann í stjórn sjóðsins í minn stað.“ Aths. ritstj. Vegna þeirra ummæla Hrafnkels að Morgunblaðið hafi birt forsvars- mönnum Lífeyrissjóðs Austurlands ákæru í þessu máli er rétt að taka fram að það er ekki í verkahring Morgunblaðsins að birta mönnum ákærur. Þáttur Morgunblaðsins í þessu máli var eingöngu sá að segja frétt af því að fjórir sjóðsfélagar hefðu kært forsvarsmenn lífeyris- sjóðsins til ríkissaksóknara vegna málefna sjóðsins. Yfirlýsing frá Hrafn- keli A. Jónssyni HÁLF öld er frá því Árni Gunnlaugsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, opnaði lögmannsstofu og af því tilefni hefur hann gefið út hljómdiskinn Kveðj- an mín með 16 lögum eftir sig og sjö lögum eftir aðra höfunda. „Ég gaf út diskinn Þú fagra vor 1998, sem var helgaður aldarafmæli móður minnar, hann fékk mjög góðar viðtökur og þess vegna ákvað ég á 75 ára afmælinu mínu í fyrra að fylgja honum eftir.“ Árni Gunnlaugsson segist hafa lifað og hrærst í tónlistinni frá unga aldri. „Ég var alinn upp við þetta. Móðir mín var mjög söngelsk, spilaði bæði á orgel og píanó og söngurinn var alltaf í hávegum hafður á mínu heimili,“ segir hann, en Árni bæði syngur og semur lög. „Elsta lagið er frá 1965,“ bætir hann við og segir að áhugi á tónlist og innblástur hafi ýtt sér á þessa braut. „En mest á ég að þakka móður minni, en það var okkar skemmtun á kvöldin að hún settist við orgelið og ég söng. Stundum opnaði hún gluggann til að leyfa vinkonum sínum að heyra, ættu þær leið um.“ Það eru ekki margir sem gefa út hljómdiska á átt- ræðisaldri. Árni segir að diskurinn sé fyrst og fremst hugsaður sem kveðju- og þakklætisvottur fyrir þær hlýju móttökur sem fyrri diskurinn hafi hlotið auk þess sem hann vilji geyma minningar frá fyrri tíma. Flytjendur laganna auk hans eru meðal annars Eyj- ólfur Eyjólfsson, Jóhanna Linnet, Margrét Eir og Gísli Magnason, Ragnheiður Linnet, Ólafur Magn- ússon frá Mosfelli, Carl Möller, félagar úr Lúðrasveit Hafnarfjarðar, Ingunn Hildur Hauksdóttir píanóleik- ari, Hrönn Geirlaugsdóttir fiðluleikari, Örn Arnarson gítarleikari, Kári Þormar orgel- og píanóleikari og Oliver Kentish sellóleikari. Ennfremur eru gamlar upptökur allt frá 1951 með Gluntasöng Árna Gunn- laugssonar og Stefáns Skaftasonar, söng tvöfalds kvartetts og Karlakórsins Þrasta. Halldór Víkingsson annaðist hljóðvinnslu og samsetningu, Eyþór Þor- láksson útsetti flest laganna og Gunnar Þór Halldór sá um hönnun vandaðs bæklings sem fylgir. „Ég þakka öllum sem hafa lagt mér lið og ég er ekki síður stoltur af bæklingnum,“ segir Árni og tek- ur ekki fyrir að hann eigi eftir að gefa út þriðja disk- inn. „Hver veit hvað ég geri þegar ég verð átt- ræður?“ Árni segist hafa sungið á hverjum degi alla tíð. „Þegar aðrir tala saman þá raula ég. Ég fer í sund í Garðabænum á hverjum morgni og við karlarnir tök- um lagið í gufunni á laugardagsmorgnum. Ég geng líka oft á milli klukkan sex og hálfsjö á morgnana, en hugmyndir mínar um ljóð og lag verða gjarnan til í göngutúrum úti í náttúrunni, ekki síst fallegustu stef- in. Það að hlusta á fuglana í kyrrðinni hefur gefið mér langsamlega mest, en söngurinn er mitt yndi og sálarvítamín.“ Árni Gunnlaugsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafnar- firði, gefur út annan hljómdisk sinn á áttræðisaldri „Söngurinn er mitt yndi og sálarvítamín“ Morgunblaðið/Kristinn Árni Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi bæjar- fulltrúi í Hafnarfirði, með hljómdiskana sína. SAMTÖK sem berjast fyrir frelsi í fjölmiðlum hafa sent ljósvakamiðl- unum bréf þar sem farið er fram á að stuðlað verði að jöfnum aðgangi allra flokka, sem bjóða fram í alþingis- kosningum, að miðlunum. Gera sam- tökin það að tillögu sinni að hverjum flokki verði úthlutað minnst 5 mín- útum á besta tíma í dagskrá ljós- vakamiðlanna í hverri viku fram að kosningum. Að sögn Einars Árnasonar, hag- fræðings Félags eldri borgara og talsmanns samtakanna, hefur þessi háttur verið hafður á víða annars staðar, til að mynda í Englandi. Ein- ar segir að í öllum lýðræðisríkjum sé það sjálfsagður réttur allra þeirra sem bjóða sig fram að fá að koma sínum málum á framfæri í fjölmiðl- um. Hann segist sakna lýðræðislegr- ar umræðu í fjölmiðlum á Íslandi og að ákveðin ritskoðun eigi sér stað áð- ur en farið sé í fjölmiðla þar sem ekki allir hafi sama aðgang. Morgunblaðið/Jim Smart Hans Gústafsson og Einar Árnason, talsmenn Samtaka um frelsi í fjöl- miðlum, kynntu tillöguna á Austurvelli í gær. Allir flokkar fái útsend- ingartíma í sjónvarpi GEIR Haarde fjármálaráðherra heimsótti Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri í gær. Hér sýnir Þorvald- ur Ingvarsson lækningaforstjóri ráðherranum gerviliði á slysadeild sjúkrahússins. Með þeim á mynd- inni eru Halldór Jónsson forstjóri sjúkrahússins og Vignir Sveinsson framkvæmdastjóri fjármála og reksturs. Morgunblaðið/Kristján Fjármálaráðherra heimsótti FSA AF dagbók lögreglunnar á Selfossi má ráða að hún er ekki fyllilega sátt við vegfar- anda sem tilkynnti um óhapp í hádeginu á sunnudag. Maður- inn kvaðst hafa séð bifreið fara út af veginum neðarlega í Kömbunum og hafi hún horfið sjónum hans. Hann lét sér nægja að hringja en hélt ferð sinni áfram án þess að stöðva eða hafa fyrir því að kanna málið frekar. „Vegna óvissu var send sjúkrabifreið, lögreglubifreið, klippubifreið og læknir á vett- vang. Í ljós kom að ofarlega í Kömbum hafði bifreið farið út af veginum en henni verið ekið upp á veg aftur og var farin þegar björgunarlið kom á staðinn. Þetta dæmi sýnir hve nauðsynlegt er að þeir sem verða vitni að óhöppum sem þessum stöðvi og geri sér grein fyrir umfangi slyssins svo ekki þurfi að kalla til svo viðamikið björgunar- og hjálp- arlið að óþörfu,“ segir í dag- bókinni. Tilkynnti um óhapp í Kömbunum Hringdi en kannaði málið ekki frekar ÁKVEÐIÐ var á skiptafundi í gær að greiddar yrðu um 140 milljónir úr þrotabúi Frjálsrar fjölmiðlunar. Greiðslurnar renna upp í almennar kröfur en áður höfðu upp undir 70 millj- ónir verið greiddar vegna for- gangskrafna, að sögn Sigurðar Gizurarsonar hrl. skiptastjóra. Spurður sagði Sigurður að 140 milljónirnar sem greiddar verða út væru um helmingur af þeim fjármunum sem þrotabú- ið hefði yfir að ráða. Gjaldþrot- ið nemur á þriðja milljarð króna. Ekki hefur verið ákveðið hvenær næsti skiptafundur fer fram. 140 milljónir upp í almenn- ar kröfur Þrotabú FF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.